Morgunblaðið - 27.01.2020, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 27.01.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Lega og útfærsla Blöndulínu 3, sem liggur frá Blöndustöð til Akureyrar, verður ekki skilgreind í svæðisskipu- lagi Eyjafjarðar heldur í aðalskipu- lagi Hörgársveitar og Akureyrar. Kemur þetta fram í breytingu á svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012- 2024 sem auglýst hefur verið. Þegar svæðisskipulagið var gert á sínum tíma var kveðið á um að þegar farið yrði í að leggja nýju byggðalín- una með Blöndulínu 3 og Hólasands- línu 3 þyrfti að ákvarða legu þeirra í svæðisskipulagi Eyjafjarðar, að sögn Þrastar Friðfinnssonar, formanns svæðisskipulagsnefndar. Nú er vinna við undirbúning Hólasandslínu 3 frá Akureyri að Kröflu komin vel á veg. Ekki er ágreiningur um legu hennar um land Akureyrar og Eyjafjarðar- sveitar enda fer hún þar í gegn í jarð- streng, vegna þéttbýlis og flugvallar. Hún er komin inn á aðalskipulag. Skulu gera ráð fyrir línum Vinna við undirbúning Blöndulínu 3 er skemmra komin enda var áveðið að vinna umhverfismat hennar upp á nýtt. Sveitarstjórn Hörgárbyggðar felldi hana út af aðalskipulagi sem loftlínu. Í svæðisskipulagsbreyting- unni kemur fram að sveitarfélögin skuli gera ráð fyrir þessum línum. Hins vegar er tekið fram að lega og útfærsla línunnar verði ekki skil- greind nánar í svæðisskipulaginu heldur í aðalskipulagi viðkomandi sveitarfélaga. Lega og útfærsla lín- unnar verði byggð á valkostagrein- ingu og umhverfismati sem Lands- net mun vinna í samráði við heimamenn, landeigendur og sveit- arstjórnir. Krafa hefur verið uppi um að leggja línuna í jarðstreng í Hörgár- dal og Öxnadal. Í auglýsingu um svæðisskipulagið kemur fram að nýta skuli þá möguleika sem kostur er á, með tilliti til tæknilegra og efna- hagslegra forsendna, til þess að leggja hluta Blöndulínu 3 sem jarð- streng. Sérstaklega eru nefnd þrengsli við núverandi byggð og býli og náttúruvernd. Öll sveitarfélögin á Eyjafjarðar- svæðinu sem línan mun liggja um, þrjú talsins, hafa samþykkt breyt- inguna. Línan liggur einnig um þrjú sveitarfélög í Skagafirði og Húna- vatnssýslu. Sverrir Jan Norðfjörð, fram- kvæmdastjóri þróunar- og tækni- sviðs Landsnets, segir að vinna við umhverfismat Blöndulínu 3 sé hafin. Skipað hafi verið verkefnaráð hags- munaaðila og fundað með því. Verk- efnaráðið komi með innlegg í gerð matslýsingar sem er fyrsta skref um- hverfismats. Legu línunnar vísað til sveitarstjórnar  Lega og útfærsla Blöndulínu 3 ekki skilgreind í svæðisskipulagi  Breyting á svæðisskipulagi Eyja- fjarðar auglýst  Vinna við umhverfismat byggðalínunnar til Akureyrar er hafin  Verkefnaráð skipað Morgunblaðið/Sigurður Bogi Akureyri Nýju endurbættu byggðalínurnar frá Kröflu og Blönduvirkjun munu tengjast á Rangárvöllum við Akureyri. Báðar eru í undirbúningi. Stefnt er að því á næstu þremur til fimm árum að draga úr sjónrænum áhrifum mannvirkja innan Þingvalla- þjóðgarðsins. Þannig eigi til dæmis að flytja öll stór bílastæði sem nú eru nálægt þinghelginni út fyrir svæðið þar sem Alþingi hið forna var haldið. Þetta kemur meðal annars fram í svari sem Þingvallanefnd sendi Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, í síðustu viku vegna fyrirspurnar stofnunarinnar um hvernig köfun í gjánni Silfru og tilheyrandi starfsemi í Þingvalla- þjóðgarði samræmdist því að Þing- vallaþjóðgarður væri á heimsminja- skrá UNESCO. Þingvallanefnd segir að aðstaða fyrir ferðamenn og kafara við Silfru sé til bráðabirgða. Þeir sjáist ofan af útsýnispalli á Hakinu en ekki frá öðr- um stöðum innan þinghelginnar fyrr en komið sé að gjánni. Sjónræn áhrif séu því afturkræf. Þá segir í svarinu að köfun í Silfru sé talin einstök leið til að njóta nátt- úrunnar. Með því að leyfa köfun í Silfru og Davíðsgjá fái almenningur aðgang að þessari upplifun og nátt- úru Þingvallavatns, sem sé einstök í heiminum. Hópar sem fari í skipuleg- ar ferðir í Silfru fái afar góðar upp- lýsingar og leiðsögn um þjóðgarðinn og jarðfræði vatnsins. Í lögum um þjóðgarðinn í Þingvöll- um, sem sett voru 2004, sé kveðið á um að almenningur skuli fá að njóta svæðisins. Það sé mat Þingvalla- nefndar að köfun innan þjóðgarðsins sé hluti af þessu: þetta sé eina skipu- lagða afþreyingin sem ferðaþjón- ustufyrirtæki bjóði ferðamönnum á svæðinu upp á. Nefndin telji hins vegar að leyfi fyrir slíkri starfsemi verði að vera háð því að hún sé sjálf- bær og tryggt sé að upplifun gesta sé jákvæð. Breyting á þjóðgarðslögunum sem gerð var á síðasta ári geri Þingvalla- nefnd kleift að takmarka fjölda þeirra sem kafi í Silfru og hugsanlega stöðva hana alveg. Fylgst verði með þessari starfsemi í samræmi við út- tekt verkfræðistofunnar EFLU sem gerð var á síðasta ári og í ljósi þess telji nefndin að ákvörðun um að heimila köfun innan þjóðgarðsins samræmist stöðu Þingvalla sem þjóð- garðs og skráningu á heimsminja- skrá UNESCO. Stór bílastæði flutt úr þinghelginni  Þingvallanefnd segir að köfun í Silfru samræmist lögum um þjóðgarðinn Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon Silfra Margir ferðamenn hafa kafað í Silfru á undanförnum árum. Áætlanir gera ráð fyrir því að allt að 75 þúsund manns geti kafað í gjánni á hverju ári. Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Sektir mættu vera hærri og viðurlög almennt strangari gegn brotum er- lendra leiðsögumanna sem starfa á Íslandi án tilskilinna leyfa, að mati framkvæmdastjóra Samtaka ferða- þjónustunnar (SAF), sem telur líka mikið vanta upp á eftirlit með þess- um málum hér á landi. Lögreglan á Suðurnesjum greindi tvívegis í síðustu viku frá afskiptum sínum af erlendum leiðsögumönnum sem starfa hér á landi án leyfis. Einn þeirra var sektaður um 40.000 krónur. Um þetta var rætt í hópnum Bakland ferðaþjónustunnar á Face- book og sögðu flestir þeir sem þar viðruðu skoðanir sínar að þessi sekt- arupphæð hefði ekki mikinn fæling- armátt. Undir þetta tekur Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, sem segir einnig að eftirlit sé ekki nógu skilvirkt þegar um ferða- þjónustu sé að ræða í samanburði við t.d. eftirlit við brotum í bygging- argeiranum. Sektin sögð allt of lág

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.