Morgunblaðið - 27.01.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Zhou Xianwang, borgarstjóri í Wuh-
an í Kína, kveðst gera ráð fyrir að
minnst þúsund manns til viðbótar
sýkist af kórónaveirunni sem á upp-
tök sín í borginni, en hún hefur þegar
kostað minnst 56 manns lífið í Kína.
Staðfest hefur verið smit hjá 1.975
manns en það sem gerir viðnám við
veikinni erfiðara er að smitberar
verða ekki varir við nokkur einkenni
þótt þeir séu farnir að smita fólk.
Franski læknirinn Yazdan Yazdan-
paneh við Bichat-Claude Bernard
sjúkrahúsið í París, þar sem veikt kín-
verskt par liggur, segir að veiran að
baki lungnaveikinni dularfullu sé ekki
eins skaðleg og SARS-veiran sem
blossaði upp árið 2002 og varð hundr-
uðum manns að aldurtila. Í samtali
við AFP-fréttastöðina kvað hann afar
litlar líkur á sjúkdómsfaraldri af völd-
um veirunnar í bæði Frakklandi og
Evrópu. Hann sagði Frakka vel búna
undir veiruna, en þeir hefðu þróað
fljótvirkt skimunarpróf er segði til
um smitun á augabragði. „Þessi veiki
nú er langt í frá eins alvarleg og sú
fyrri,“ sagði Yazdanpaneh eftir að
hafa ráðfært sig við kollega víða um
heim.
Kínverjar gripu til aukins banns við
ferðalögum til að reyna að hefta út-
breiðslu veikinnar. Aðgerðirnar eiga
sér ekkert fordæmi. Þá undirbjuggu
Bandaríkjamenn, Japanir og Frakk-
ar brottflutnings borgara sinna frá
Wuhan, sem er í sóttkví. Hafa yfir-
völd áhyggjur af nýju veirunni vegna
þess hversu hún er um margt lík
SARS-sýklinum frá 2002 er olli alvar-
legri lungnaveiki.
Til viðbótar hinum miklu sýkingar-
vörnum í Wuhan og Hubei-héraði
lýstu nærliggjandi Shandong-hérað
og borgirnar Peking, Sjanghæ, Xian
og Tianjin yfir banni við langferðum
til borganna og frá þeim. Það mun
bitna á milljónum manna sem hyggja
á ferðalög við ný áramót kínverska
dagatalsins. Þá var fólki skipað að
bera andlitsgrímur öllum stundum
utandyra í héruðunum Guangdong í
Suður-Kina, Jiangxi inni í miðju landi
og þremur borgum.
Veiran hefur nú breiðst til um 12
landa; tvö til fimm smit hafa greinst í
hverju landanna. Bandaríska utan-
ríkisráðuneytið skipulagði í gær
heimflutning starfsfólk ræðismanns-
skrifstofunnar í Wuhan og annarra
bandaríska borgara þar. Ráðgert var
að fljúga frá Wuhan til San Francisco.
Franski bílsmiðurinn PSA Peugeot-
Citroen áformaði einnig brottflutning
starfsmanna sinna og fjölskyldna
þeirra í borginni eftir sóttkví í grann-
héraði. Þá eiga Japanir í viðræðum
við kínversk yfirvöld um skjótan
brottflutning og sömuleiðis Bretar.
Ástandinu á sjúkrahúsum í Wuhan
eru skelfilegar, að sögn AFP. Starfs-
fólk er yfirbugað af þreytu og hóst-
andi sjúklingar bíða klukkustundum
saman í löngum röðum eftir því að
komast að því hvort þeir séu sýktir af
nýju kórónaveirunni. Wuhan er 11
milljóna manna borg og hefur verið í
sóttkví frá því á þriðjudag. Ferðir til
og frá borginni eru bannaðar meðan
yfirvöld reyna að koma í veg fyrir að
veiran breiði frekar úr sér.
Búast við enn fleiri sýkingum
Bandaríkjamenn hefja brottflutning landa sinna frá Kína og Frakkar, Japanir og Bretar eru að
skoða slíkt Kínverjar setja fleiri borgir í sóttkví Ástandið sagt skelfilegt á sjúkrahúsum í Wuhan
AFP
Sóttkví Læknalið sjúkrahúss í Wuhan í Kína klæðist til varnar nýju kóróna-
veirunnni. Þar í borg höfðu 56 látist af lungnabólgu í gær.
Mark Rutte, forsætisráðherra Hol-
lands, baðst í gær afsökunar fyrir
hönd þjóðarinnar á ofsóknum
gegn gyðingum í seinna stríðinu.
Var þetta í fyrsta sinn sem hol-
lenska ríkið biðst forláts.
„Nú eru þeir síðustu sem lifðu
af enn meðal vor. Í nafni ríkis-
stjórnarinnar biðst ég afsökunar í
dag á gjörðum stjórnvalda á sín-
um tíma,“ sagði Rutte í ræðu í
Amsterdam til að minnast helfar-
arinnar, en um þessar mundir eru
75 ár frá því bandamenn náðu
útrýmingarbúðum nasista úr klóm
þeirra.
Aðeins 38.000 af 140.000 hol-
lenskum gyðingum lifðu stríðið af.
agas@mbl.is
Hollendingar
biðjast afsökunar
HELFÖRIN 1939-45:
Ein af skærustu stjörnum banda-
rísku atvinnumannadeildarinnar í
körfubolta (NBA), Kobe Bryant,
beið bana í þyrluslysi í gær-
kvöldi.
Þyrlan fórst í Calabasas, út-
borg Los Angeles, að sögn sjón-
varpsstöðvarinnar TMZ en hún
sagði fimm manns a.m.k. hafa
farist með þyrlunni. Sömuleiðis
staðfesti dagblaðið Los Angeles
Times hrap þyrlunnar.
Sýslumaður Los Angeles sagði
engan hafa komist af en þyrlan
var af gerðinni Sikorsky S-76.
Bryant var 41 árs og varð
fimm sinnum meistari með Los
Angeles Lakers í NBA-deildinni
en þar spilaði hann á árunum
1996 til 2016. Hann varð og ól-
ympíumeistari með bandaríska
landsliðinu í Peking 2008 og
London 2012. agas@mbl.is »27
Kobe Bryant
ferst með þyrlu
BANDARÍKIN
NBA-deildin Kobe Bryant varð fimm
sinnum meistari með Los Angeles Lakers.
AFP
Nýrri langdrægri farþegaþotu frá Boeing, 777X, var
frumflogið um helgina, en hún er stærsta tveggja
hreyfla þota heims. Framfaraskref fyrir fyrirtækið
segja sérfræðingar en áfram muni þó hvíla drungi yfir
Boeing vegna 737 MAX-kreppunnar. Nýja þotan fór í
loftið við verksmiðjur Boeing í Seattle klukkan 18 að ís-
lenskum tíma á laugardag og lenti þar eftir fjögurra
stunda reynsluflug. Nýjung á þotunni er fellanlegir
endavænglar sem bæta eldsneytisnýtingu, en með þá
lóðrétta getur þotan athafnað sig á fleiri flugvöllum en
ella. Á myndinni fagna starfsmenn Boeing tilrauna-
flugmönnunum í lok fyrsta flugsins. agas@mbl.is
AFP
Fyrsta flug nýrrar Boeing-þotu
Adam Schiff,
stjórnandi sak-
sóknarinnar gegn
Donald Trump for-
seta í fulltrúadeild
bandaríska þings-
ins, segir forsetann
hafa haft í hótun-
um við sig í tísti á
samfélagsvefjum.
„Hinn slóttugi
Adam Schiff er spilltur stjórnmála-
maður og líklega alvarlega veikur
maður. Hann hefur ekki goldið þess,
ennþá, sem hann hefur valdið landi
okkar,“ tísti Trump.
Schiff sagði við NBC-sjónvarps-
stöðina að hann teldi það hafa verið
ætlan Trumps að ógna sér. Réttar-
haldið í þinginu gegn forsetanum
hefst að nýju í dag, mánudag. Skot-
spónn hans er formaður leyniþjón-
ustunefndar þingsins og stjórnaði
vitnaleiðslum sem leiddu til ákæru á
hendur Trump fyrir að misfara með
vald sitt.
Schiff hefur löngum setið undir
orrahríð reiðikasta Trumps sem hvað
eftir annað hefur sett út á útlit hans.
agas@mbl.is
Segir Trump
ógnandi
Donald Trump
Hefur í hótunum
á samfélagsvefjum