Morgunblaðið - 27.01.2020, Síða 18

Morgunblaðið - 27.01.2020, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is skotbómulyftara AG línan frá Manitou býður meðal annars upp á nýtt ökumannshús með góðu aðgengi og útsýni. HANNAÐUR TIL AÐ VINNA VERKIN NÝ KYNSLÓÐ • DSB stjórntakkar • JSM stýripinni í fjaðrandi armi • Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum • Virk dempun á bómu Á 21. öldinni er til fólk sem telur að jörðin sé flöt og raunar hefur flatjarðarhreyfingin mjög sótt í sig veðrið á síðustu 4-5 árum. „Flat Earth“ er á meðal vin- sælustu leitarstrengj- anna á google og á hverjum degi eru hundruð myndbanda sett inn á Youtube sem tengjast flötu jörðinni. Hvað einkennir þankagang þessara fulltrúa hinna myrku miðalda? Sveigju jarðar er hvergi að finna. Samkvæmt reikniformúlu Pýþagóras- ar þá eykst sveigja á kúlufleti í öðru veldi með fjarlægðinni miðað við stöðu sjáandans. Reikniformúlu fyrir sveigju jarðar er t.d. að finna á netsíð- unni: Earth Curve Calculator; sveigja jarðar (fall) ætti þannig að vera 2 metrar miðað við 5 km, 8 metrar mið- að við 10 km og 785 metrar miðað við 100 km. Snæfellsjökull er 1.446 metra hár og í u.þ.b. 116 km fjarlægð frá Reykjavík og sést stundum í björtu veðri yfir Faxaflóann. Miðað við að augu sjáandans séu tíu metra fyrir of- an sjávarmál þá ættu 840 metrar af jöklinum að vera í felum á bak við sveigju jarðar. Sem sagt aðeins rúm- lega einn þriðji af jöklinum ætti að vera sýnilegur horfi maður á jökulinn ofan af varnargarðinum við Reykja- vík. Perlan er í 80 metra hæð yfir sjávarmáli. Horfi maður á Snæfells- jökul af útsýnispallinum við Perluna ættu 550 metrar af fjallinu að vera á felum á bak við sveigju jarðar. Maður ætti sem sagt að sjá aðeins tæplega tvo þriðju af jöklinum. Hverju svara flatjarðingar því að mastrið er það síðasta sem hverfur sjónum þegar horft er á skip sigla frá landi? Er skipið ekki þarna komið á bak við sveigju jarðar? Við höfum takmarkað sjón- svið, sjáum ekki enda- laust frá okkur. Þegar við horfum á eitthvað sem er langt í burtu þá er það sem er niðri við jörðina það fyrsta sem hverfur okkur sjónum. Það er síðan vel hægt að beina sterkum sjónauka eða Nikon 900 myndavél að skipinu sem kemur þá allt aftur í sjón. Vatn liggur alltaf flatt. Yfirborð þess þyrfti að vera sveigt ef jörðin er kúla. Farþegaþotur eru ekkert fljótari þegar þær fljúga gegn snúningi jarð- ar. Jörðin snýst á u.þ.b. 1.600 km hraða umhverfis miðbauginn og far- þegaþotur fljúga á u.þ.b. 900 km hraða. Þær ættu því að vera umtals- vert fljótari í för þegar þær fara gegn snúningi jarðar, raunar nálægt þrefalt fljótari ef flugtak og lending eru und- anskilin. Flatjarðingar virðast þarna ekki átta sig á einfaldri eðlisfræði. Andrúmsloftið snýst með jörðinni, hraðar eftir því sem ofar dregur og því má líkja þessu við það að vera um borð í lest. Þú hreyfist með lestinni og ef þú gengur aftur í lestina þá ertu ekkert fljótari heldur en ef þú gengur fram í hana. Farþegaþotur ættu stöðugt að þurfa að vera að lækka flugið ef jörðin er kúla, eða 800 metra fyrir hverja mínútu sem þær fljúga. Aftur virðast flatjarðingar þarna ekki átta sig á ein- faldri eðlisfræði. Togkraftur jarðar heldur farþegaþotum á kórréttri braut yfir jörðinni og yfirvinnur lá- rétta kraftinn sem knýr þær áfram. Samkvæmt heimsmynd flatjarð- inga þá er jörðin umlukin ís og norð- urskautið er miðja hennar. Antartíka er sem sagt ekki eyja í suðri heldur ís- breiða sem umlykur okkur. Jörðin er miðja alheimsins og sólin og tunglið sveima á braut yfir okkur. Sólin er þannig ekki í 150 milljón km fjarlægð frá jörðinni heldur í aðeins 5.000 km fjarlægð og jafnstór tunglinu, u.þ.b. 50 km í þvermál. Sólin og tunglið ferðast frá suðri til norðurs og síðan frá norðri til suðurs á síminnkandi/ stækkandi braut sinni yfir jörðinni. Sem skýrir árstíðirnar. Þegar braut sólar umhverfis Ísland er lengst höf- um við vetur. Þegar braut sólar um- hverfis Ísland er styst (sólin er nyrst) höfum við sumar. Sólin virkar eins og lampi sem lýsir upp aðeins hluta af jörðinni og sést þess vegna ekki alls staðar að frá jörðinni. Þetta skýrir það að við höfum dag og nótt á flötu jörðinni. Allt sem kemur frá NASA er lygi segja flatjarðingar. Engar raunveru- legar myndir eru til af jörðinni. Þær eru allar tölvugerðar, t.d. sýnir ein mynd af jörðinni Ameríku mun stærri en á öðrum myndum og skýjafar er víða copy/paste. Maðurinn hefur vita- skuld aldrei farið til tunglsins enda tunglið ekki fyrirbæri sem hægt er að lenda á og ISIS geimstöðin er ekki til. Þyngdaraflið er sömuleiðis ekki til; hlutir falla til jarðar vegna þess að þeir eru eðlisþyngri en andrúmsloftið, myndskeið af geimförum í þyngd- arleysi í ISIS er gert með ýmsum brellum; green screen, zero gravity plane o.fl. Nú veit lesandinn vonandi betur hvað við er að eiga á öld upplýsing- arinnar. Vangaveltur um lögun jarðar Eftir Sölva Jónsson » Á 21. öldinni er til fólk sem trúir því að jörðin sé flöt. Hvað ein- kennir þankagang þess- ara fulltrúa hinna myrku miðalda? Sölvi Jónsson Höfundur er félagsliði og tónlistarmaður. gaufi2@yahoo.co.uk Atvinna Ákveðnir hags- munaaðilar komu að undirbúningi og gerð laga um fiskeldi með það að markmiði að tryggja sínum fyrir- tækjum fjárhagslegan ávinning. Málið snýst ekki um að nýta sér tækifærin, heldur að vera leiðandi við hönn- un á leikreglum, skjal- fest í lögum, sjálfum sér og sínum fyrirtækjum til fjárhags- legs ávinnings á kostnað annarra. Fulltrúar í stefnumótunarhópi Forráðamenn laxeldisfyrirtækja í meirihlutaeigu erlendra aðila hafa farið offari í að ,,helga sér svæði“. Arnarlax með um 70.000 tonn í ferli og Fiskeldi Austfjarða um 55.000 tonn eða um 70% eldissvæða um mitt ár 2016. Fjárhagslegir hagsmunir voru því miklir og stjórnarformenn Arnarlax og Fiskeldis Austfjarða komu sér í starfshóp fyrir stefnu- mótun í fiskeldi sem fulltrúar Lands- sambands fiskeldisstöðva. Ferlið Í upphafi skal endinn skoða, sem eflaust hefur verið gert af stjórn- arformönnunum Arn- arlax og Fiskeldis Austfjarða:  Markvisst var sótt um eldissvæði í flestum fjörðum þar sem ekki var bannað að vera með laxeldi í sjókvíum til að tryggja sig til lengri tíma þar sem bestu svæðin eru takmörkuð og eftir- sótt. Þannig er verið að koma sér í ákveðna stöðu með möguleika á fjárhagslegum ávinningi.  Útbúin viðskiptaáætlun. Eldis- svæði og framleiðsluheimildir eru verðmæti og erlendir aðilar fengnir að borðinu með fjármagn.  Stjórnarformenn tveggja stærstu laxeldisfyrirtækjanna létu skipa sig í starfshóp um stefnumótun í fiskeldi sem fulltrúa Lands- sambands fiskeldisstöðva og komust þannig í yfirburðastöðu til að vinna að hagsmunagæslu sinna fyrirtækja á kostnað annarra. Fyrirtæki stjórn- arformanna voru búin að koma leyf- isveitingarkerfinu í uppnám og nú var verkefnið að tryggja áfram þeirra stöðu og væntingar um fjár- hagslegan ávinning.  Ráðinn var starfsmaður fyrir stefnumótunarhópinn með aðstöðu í ráðuneyti sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, sem jafnframt var starfsmaður stjórnarformanns Arn- arlax.  Gefin var út stefnumótunar- skýrsla með hagstæðum tillögum fyrir stjórnarformennina, með væntingum um fjárhagslegan ávinn- ing.  Ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skrifaði til- lögur stefnumótunarskýrslunnar inn í fiskeldisfrumvarpið og aug- ljóslega var verið að huga að sér- hagsmunum þeirra sem sömdu leik- reglurnar.  Alþingi Íslands tók á ýmsum málum og bætti frumvarpið veru- lega, stoppaði af ýmis áform og dró þannig úr væntanlegum fjárhags- legum ávinningi stjórnarformann- anna.  Þegar breytingar á lögum um fiskeldi voru samþykktar á síðasta ári voru þó margar tillögur í stefnu- mótunarskýrslunni sem komust í gegn og geta tryggt stjórnar- formönnunum fjárhagslegan ávinn- ing.  Í framhaldinu setti Arnarlax sem er í meirihlutaeigu erlenda að- ila hlutabréf á erlendan hlutabréfa- markað og hefur þegar náðst veru- legur fjárhagslegur ávinningur. Drifkrafturinn Drifkrafturinn við uppbyggingu eldis laxfiska í sjókvíum á Íslandi hefur verið fjárhagslegur ávinn- ingur laxeldisfyrirtækja sem nú eru í meirihlutaeigu erlendra aðila. Frumkvöðlar sjá tækifæri í að koma áformunum af stað, tryggja leyfi og möguleika að selja síðan sinn hlut, áður en raunverulega reynir á rekstrarforsendurnar. Jafnframt hefur verið ódýrara og auðveldara að fá leyfi á Íslandi en t.d. í Noregi sem hefur verið drifkraftur er- lendra aðila að koma að uppbygg- ingunni. Ekki allt sem sýnist Staðreyndin er sú að umhverfis- aðstæður til sjókvíaeldis á Íslandi eru lakari og samkeppnishæfni minni en í tilfelli nágrannalanda sem skapar vissa óvissu um framtíð- ina, sem tekið verður fyrir seinna. Lítil samfélög geta því verið að taka mikla áhættu og því skynsamlegt að fara hægt í uppbyggingu og aðlaga eldið að erfiðum umhverfis- aðstæðum á Íslandi. Markaðsverð á laxfiskum hefur verið í hæstu hæð- um undanfarin ár vegna takmarkaðs framboðs sem m.a. má rekja til vandamála við að hemja laxalúsina. Þegar samkeppnislönd verða búin að ná tökum á laxalúsinni, eykst aft- ur framboð og verð lækkar og keppt verður á grunni framleiðslu- og flutningskostnaðar. Slæm vinnubrögð Hlutverk ráðuneytis sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra í þessu máli er ámælisvert, að leggja fram á þingi fyrst árið 2018 og aftur 2019 vanhugsað og ónothæft frum- varp, þar sem verið er að verja hags- muni laxeldisfyrirtæki í meiri- hlutaeigu erlendra aðila á kostnað annarra. Mál þetta lyktar að sér- hagsmunagæslu, slæmu siðferði eða spillingu og því ekki að ástæðulausu að farið hefur verið fram á opinbera úttekt, sem fram að þessu hefur ver- ið hunsað. Að tryggja sínum fyrirtækjum fjárhagslegan ávinning Eftir Valdimar Inga Gunnarsson »Drifkrafturinn við uppbyggingu eldis laxfiska í sjókvíum á Ís- landi hefur verið fjár- hagslegur ávinningur laxeldisfyrirtækja sem nú eru í meirihlutaeigu erlendra aðila. Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og hefur m.a. unnið við ýmis mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. valdi- mar@sjavarutvegur.is Móttaka aðsendra greina Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.