Morgunblaðið - 27.01.2020, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 27.01.2020, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020 ✝ Ásta Finn-bogadóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 21. febrúar 1927. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 11. jan- úar 2020. For- eldrar Ástu voru Sesselja Ein- arsdóttir, f. 11. mars 1891, d. 14. október 1964, og Finnbogi Finnbogason skip- stjóri, f. 20. maí 1891, d. 3. apríl 1979. Systkyni Ástu eru Rósa, f. 27.9. 1914, d. 28.10. 1994, Árni, f. 7.11. 1916, d. 9.4. 2006, Fjóla, f. 16.12. 1917, d. 15.10. 2001, Lilja, f. 15.2. 1920, d. 1.5. 1959, Ólafur, f. 9.8. 1922, d. 14.2. 1999, Guðni, f. 6.12. 1924, d. 13.1. 1925 og Gréta, f. 31.3. 1929, d. 18.2. 2019. Ásta ólst upp í Bræðraborg og síðar í Vallartúni í Vest- mannaeyjum. Hún giftist 13.11. 1947 Björgvini Þórðarsyni, f. 11.5. 1924, d. 26.5. 2001 og bjuggu þau fyrstu búskaparár sín í Vallartúni, í foreldrahúsum Ástu, en fluttu árið 1958 á Herj- ólfsgötu 6, þar sem þau bjuggu fram að gosi árið 1973. Eftir gos Jónas, f. 5.9. 1950, d. 5.11. 1968. 3) Lilja, f. 27.5. 1967, maki Þór- hallur Óskarsson, f. 22.11. 1963. Börn Lilju og Þórhalls eru Björgvin Rúnar, f. 11.10. 1989, unnusta Erna Oddný Gísladótt- ir, f. 4.2. 1990 og Kristbjörg, f. 24.7. 1992, maki Ólafur Örn Helgason, f. 28.3. 1991. Sonur Kristbjargar og Ólafs er Her- mann Þór, f. 15.8. 2017. 4) Gunn- ar, f. 9.2. 1969, maki Birna Blön- dal, f. 2.4. 1969. Börn Gunnars og Margrétar Gunnarsdóttur eru Kristinn Arnar, f. 28.8. 1996, unnusta Sigurbjörg Líf Matthíasdóttir, f. 12.3. 1998, Jón Garðar, f. 20.6. 2001 og Sigrún Ásta, f. 24.2. 2004. Börn Birnu og Birgis Össurarsonar eru Hrönn, f. 23.12. 1989, Harpa Mukta, f. 23.12. 1998, Hrund Ni- lima, f. 7.11. 2000 og Jóhannes Fei, f. 14.3. 2006. Ásta stundaði nám við Barna- skóla Vestmannaeyja og síðar Húsmæðraskóla Reykjavíkur. Eftir að þau Björgvin hófu bú- skap starfaði hún ekki utan heimilisins, enda með stórt heimili og gestkvæmt í Eyjum, en eftir að þau fluttust í Hafn- arfjörð starfaði hún m.a. við fiskvinnslu hjá BÚH. Mestan tíma helgaði hún þó alltaf fjöl- skyldunni og lagði mikið af mörkum í uppeldi ömmubarna sinna og síðar langömmu- barnanna. Útför Ástu fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag, 27. janúar 2020, klukkan 13. bjuggu þau í Kefla- vík, þangað til þau settust að í Hafn- arfirði, þar sem þau bjuggu alla tíð síð- an. Fyrst á Suð- urvangi 14, en síð- ustu 22 árin á Sólvangsvegi 3. Börn Ástu og Björgvins eru: 1) Guðrún Þórdís, f. 16.2. 1949, d. 14.10. 2004. Börn hennar eru: a) Ásta Guðrún, f. 15.11. 1970, d. 4.3. 2006. Börn Ástu Guðrúnar eru Tómas Freyr, f. 25.9. 1986, Lilja, f. 17.4. 1993, maki Joachim Kveen, f. 11.7. 1991. Börn Lilju og Joachims eru Brynjar Jo- hannes, f. 6.7. 2014 og Nova Otilia, f. 23.5. 2017, Brynjar Æg- ir, f. 30.12. 1994 og Laufey Diljá, f. 12.8. 1996. b) Elva Björk, f. 25.6. 1973, maki Einar Helgi Jónsson, f. 23.4. 1976. Dætur Elvu og Einars eru Halldóra Sif, f. 7.2. 2002 og Elín Björt f. 7.2. 2002. c) Helena Sif, f. 14.7. 1976, maki Jón Ragnar Magnússon, f. 13.4. 1975. Börn Helenu og Jóns eru Sigurjón Axel, f. 17.2. 1998, Kári Fannar, f. 19.5. 2003, Hild- ur Inga, f. 30.12. 2006 og Anita Rut, f. 27.8. 2009. 2) Gunnar Mig langar með nokkrum orð- um að kveðja konuna sem var mér mikilvægust í þessu lífi. Mamma Ásta átti mig þegar hún var að komast af barneignaraldri þannig að á milli okkar var ein kynslóð. Þó svo að hún hafi verið komin af léttasta skeiði þegar uppvaxtarárin liðu var hún mikill vinur og var dugleg að sinna þeim börnum sem í kringum hana voru. Var mikið spilað á heimilinu og fékk maður góða kennslu í almennum húsverkum. Það sem var svo einkennandi við mömmu var hve hlýtt henni var í garð allra og sagði aldrei styggð- aryrði um nokkurn mann, alveg sama á hverju dundi. Hún var ótrúlega fær í því að sjá alltaf það jákvæða í öllum aðstæðum og stýra umræðunni á þá braut. Ég minnist móður minnar sem hlýrrar manneskju sem gerði allt fyrir mig sem hún mögulega gat veitt mér og gerði það ávallt með bros á vör. Fátt þótti henni skemmtilegra en að fara á mannamót og viðburði. Ég er með svo fallega mynd í höfðinu af okkur mömmu þegar við fór- um ekki fyrir svo löngu í bíó að sjá Mamma Mía nr. 2 Hún var svo falleg og ánægð þar sem hún sat í sætinu með mér og konu minni Birnu. Hún dillaði sér og klappaði í takt við lögin og þreyttist ekki á að segja hve dásamleg skemmtun þetta væri. Það sama var upp á teningnum þegar við Birna vorum svo hepp- in að fá að fara með henni að sjá leiksýninguna um Ellý í Borg- arleikhúsinu. Hún átti ekki til aukatekið orð og sagði þegar lag- ið Ramona var sungið, að þetta væri uppáhaldslagið hennar og brosti ekki bara með augunum heldur öllu andlitinu. Ég á líka margar minningar um þegar ég var að koma heim af æfingum ör- þreyttur og mamma tók bros- andi á móti mér og lagði mikinn metnað í að strákurinn fengi eitt- hvað gott að borða og spurði hvort ekki þyrfti að þvo eitthvað að fötunum því það væri senni- lega ekki langt í næstu æfingu. Stóran hluta af mínum fullorð- insárum bjó ég fjarri þér sem gerði það að verkum að ég fékk ekki að eiga jafn margar stundir með þér og ég hefði kosið. Þegar ég var í höfuðborginni þótti mér ákaflega gott að vera nærri þér og fá að njóta félagsskaparins, þú kenndir mér margt um lífið og tilveruna sem ég geymi um alla framtíð í hjarta mínu. Einnig á ég fallegar og góðar minningar um öll þau sumarferðalög sem fjölskyldan fór í. Þú búin að selja okkur hugmyndina að áningar- staðnum svo allir væru eftir- væntingarfullir og í sínu besta formi. Þú með nammið sem keypt hafði verið áður en lagt var af stað og skammtaðir af þinni alkunnu snilld. Svo er það jólaútgáfan af þér, elsku mamma, en þegar þú last á pakkana og dreifðir þeim varstu með sérstakan tón sem enginn getur leikið eftir, hann gerði það að verkum að hátíðleiki jólanna fór á annað stig. Með þessum fáu orðum kveð ég þig, elsku, elsku mamma, mín og óska þér alls hins besta á nýjum stað þar sem þér verður vel tekið af eigin- manni, börnum, vinum og ætt- ingjum. Elsku mamma, takk fyr- ir allt sem þú gerðir fyrir mig og mína. Gunnar Björgvinsson. Ég kynntist Ástu tengdamóð- ur minni fyrir allmörgum árum þegar við Gunnar sonur hennar rugluðum saman reytum okkar. Ég verð að játa að ég var nú pínulítið kvíðin að hitta hana í fyrsta skipti. En þær áhyggjur mínar voru óþarfar því hún opn- aði faðm sinn fyrir mér og um- vafði mig hlýju og kærleik frá fyrstu mínútu. Ég hef aldrei kynnst annarri eins konu, glað- værð hennar og lífsgleði var eft- irtektarverð, ekki síst þar sem lífið hafði ekki alltaf farið mjúk- um höndum um hana. Ásta varð fyrir stórum áföllum í lífinu, áföllum sem hæglega hefðu get- að slökkt lífsgleðina en svo var sannarlega ekki. Hún lifði tvö af börnum sínum, missti barnabarn og eiginmann sinn eftir áratuga hjónaband. Hún gekk líka í gegnum erfið veikindi sem gengu mjög nærri henni. En allt- af hélt hún gleðinni og jákvæðn- inni. Þessi kona var einfaldlega einstök sál, sem aldrei sagði styggðaryrði um nokkurn mann, var alltaf glöð og kaus að horfa á jákvæðu hlutina í lífinu. Það voru allir jafnir í augum Ástu, enginn betri en annar, hún dæmdi eng- an og tók öllum eins. Hún um- vafði fólkið sitt ást og hlýju og naut samverustundanna sem hún átti með því. Tónlist og söngur voru hennar ær og kýr og fátt gladdi hana meira en fara á góða tónleika. Ég á góðar minningar um bíóferð á Mamma Mia og Ellýartónleika síðasta vetur. Hún söng hástöfum með hverju lagi og gleðin skein af henni. Þannig ætla að ég að muna Ástu, syngj- andi og klappandi og njótandi hvers augnabliks. Mér þykir vænt um þessar minningar, sér- staklega í dag þegar við kveðjum yndislega konu sem ég get seint fullþakkað alla hlýjuna sem hún gaf mér og börnum mínum. Það þyrftu allir að kynnast konu eins og Ástu og heimurinn væri betri ef það væru fleiri eins og hún. Hafðu þakkir elsku Ásta fyrir samfylgdina síðustu ár, þú gafst mér mikið og kenndir mér margt með lífsviðhorfi þínu. Ég á eftir að sakna hlýja faðmsins. Ég veit ekki hvort þú hefur huga þinn við það fest að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki, hjarta sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði sakleysi, fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson.) Guð geymi þig. Þín tengdadóttir, Birna Blöndal. Það er vel við hæfi að byrja á bæninni sem hefur verið í uppá- haldi hjá mér síðan ég var lítil stelpa og það varst auðvitað þú sem kenndir mér hana. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Í dag mun ég fylgja þér síð- asta spölinn, elsku hjartans amma mín. Þú sem gafst mér svo mikið og kenndir mér svo margt. Ég var svo heppin að hafa alist upp að miklu leyti hjá þér og afa Björgvini og fyrir það verð ég ævinlega þakklát. Það eru auðvit- að alger forréttindi að hafa feng- ið að hafa þig jafn lengi og raun ber vitni. Ég var reyndar alveg viss um að þú yrðir 100 ára án áreynslu því þú varst alltaf svo hress og í gegnum tíðina hefur þú verið fyrir mér og Helenu systur svo miklu meira en bara amma. Ég er svo ótrúlega lán- söm að eiga óteljandi minningar um þig og samverustundir okkar sem ég geymi í hjarta mínu. Það sem einkenndi þig, elsku amma, var að allir sem kynntust þér á einhvern hátt voru sammála um að þú værir dásamleg mann- eskja. Alltaf varstu glöð og já- kvæð og mér er það svo minn- isstætt þegar ég tilkynnti þér að ég og Einar ættum von á tvíbur- um en þá réðstu þér ekki fyrir kæti, sennilega skemmtilegasta símtal sem ég hef átt um ævina, en þannig varst þú bara. Nú verða samverustundirnar eða símtölin því miður ekki fleiri í bili, elsku amma mín, en þangað til kveð ég þig með þessum orð- um: Ég horfi í ljóssins loga sem lýsir í hugskot mitt og sé á björtum boga brosandi andlit þitt. (Snjólaug Guðmundsdóttir) Þín, Elva Björk. Elsku amma. Margar yndislegar minningar flögra um hugann og mikið er maður heppinn að geta yljað sér við þær. Amma var ljúf og hóg- vær kona sem bar höfuðið ávallt hátt og umfram allt skein góð- mennskan frá hjarta hennar. Minn besti spilavinur í æsku var amma, alltaf var hún til í að spila við mig og skemmtum við okkur best þegar við spiluðum kleppara, þá heyrðust ófá hlátra- sköll í eldhúsinu. Á unglingsárum flutti ég til ömmu og afa og hefur það örugglega ekki verið auðvelt að fá ungling inn á heimilið á efri árum, en ekki fann ég fyrir því, ég var innilega velkomin og þau gerðu sitt besta sem ég er æv- inlega þakklát fyrir. Hlýjan frá ömmu og afa býr ávallt innra með mér. Hér er fallegt ljóð sem segir allt um ömmu. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Helena Sif Gísladóttir. Hún var alveg ótrúleg kona hún Ásta amma, svo ótrúlega já- kvæð og sá alltaf það góða við allt og alla. Hún lét ekki margt stoppa sig, eins og þegar hún rölti ásamt fleirum út á Sólvang í dagdvölina með skóflu í göngu- grindinni sinni svo hún gæti nú rutt leiðina af því að það mynd- uðust svo stórir snjóskaflar á leiðinni, þá komin yfir nírætt. Það var alveg dæmigert fyrir hana, alltaf að hugsa um alla í kringum sig. Við systkinin fórum einu sinni með ömmu á jólatónleika og eftir að tónleikarnir kláruðust komu til hennar konur sem sátu fyrir aftan okkur og þökkuðu henni sérstaklega fyrir, það hefði verið svo gaman að sjá hvað hún skemmti sér vel, hún söng með öllu og stóð upp og dansaði í lok- in. Hún hafði nefnilega þann eig- inleika að gleðja alla sem í kring- um hana voru, þó að það væri fólk sem hún þekkti ekkert. Hún hefur kennt mér svo ótrú- lega margt í lífinu, þegar ég verð komin á mín efri ár þá ætla ég að taka hana til fyrirmyndar og njóta lífsins eins og amma gerði, og fara seinust heim úr áramóta- partýunum! Elsku Ásta amma mín, hvíldu í friði. Ég er svo þakklát fyrir þær stundir sem ég fékk að eiga með þér, sérstaklega seinustu vikurn- ar þegar þú komst til okkar á Hrafnistu. Ég veit að Bjöggi afi og allt fólkið þitt taka vel á móti þér hinum megin, og er ég alveg viss um að þið systurnar eigið eftir að syngja og skemmta ykkur saman á ný. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Kristbjörg Þórhallsdóttir. Með miklu þakklæti í huga vil ég minnast elskulegrar móður- systur minnar Ástu Finnboga- dóttur sem lést að morgni 11. janúar sl. á 93. aldursári. Vegna fráfalls mömmu minnar og fjarveru pabba til sjós á æskuárum mínum fékk ég að dvelja löngum hjá Ástu og Bögga. Hjá þeim naut ég þess að vera litla stelpan þeirra því Guð- rún og Gunnar, börnin þeirra, voru þá að komast á unglingsár. Ég átti alltaf athvarf á Herj- ólfsgötunni. Ásta tók mér með hlýju án þess að ég væri eitthvað að trufla hana við annasöm heim- ilisstörf. Það var oft gestkvæmt á Herj- ólfsgötunni. Ásta var sú eina af systkinunum frá Vallartúni sem ílengdist í Eyjum. Þangað komu frænkur, frændur og vinkonur í spjall og þá var gaman að sitja uppi í stiga og hlusta. Ásta gaf mér leyfi til að gera ýmislegt sem ég fékk ekki heima, eins og að drekka kaffi. Eftir að yngri börnin, Lilja og Gunnar, fæddust gerðist ég barnapía hjá Ástu. Ég naut þess að vera í kringum hana, sem alltaf bjó yfir miklu jafnaðargeði og var alltaf hlý og glöð. Ég minnist góðra stunda þar sem við Ásta sátum og hlustuð- um á framhaldssöguna í útvarp- inu eftir hádegi og Ásta kenndi mér að hekla dúkkupeysu. Við Heimeyjargosið urðu miklar breytingar á lífi okkar beggja. Samgangur minni, en ég veit að Ásta fylgdist með ung- lingsstelpunni þroskast og verða fullorðin. Síðustu ár átti ég góðar sam- verustundir með Ástu minni. Við sóttum reglulega fundi hjá Kvenfélaginu Heimaey og þá var bílferðin á og af fundum vel nýtt í spjall og frásagnir. Það var dásamlegt að fylgjast með þegar Ásta mætti á fundi alltaf fallega klædd og brosandi, hvernig Heimaeyjarkonur þyrpt- ust að henni til að heilsa upp á hana. Það var sama hjá hverjum við settumst, alltaf náði Ásta tengingu við borðfélagana. Hún hafði gott minni og ég naut þess að rekja úr henni garnirnar. Við Ásta gátum rifjað margt upp bæði um liðna atburði í Eyjum og um fólkið okkar. Hún mundi vel eftir öllu sem nærði sálina. Ástin og hlýjan sem hún Ásta bjó yfir í svo ríkum mæli lifir áfram í minningunni. Með þökk og kærleika kveð ég þig, elsku- lega móðursystir. Ég sendi Lilju, Gunnari, Elvu, Helenu, öðrum afkomendum og fjölskyldum þeirra mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Ásdís Lilja Emilsdóttir. Ásta Guðfinna Finnbogadóttir var sú sjötta af sjö systkinum frá Vallartúni í Vestmannaeyjum sem upp komust. Þrjú fyrstu systkinin voru fædd í Norður- garði. Árið 1919 keyptu þeir bræður Finnbogi og Árni Bræðraborg og þar fæddust hin börnin. Árið 1935 keyptu afi og amma Vallartún sem var uppi í „sveit“ og átti eftir að vera ætt- aróðalið í augum fjölskyldunnar. Rósa, Fjóla og Lilja voru eins og blómvöndur í okkar huga. Árni og Óli voru strákarnir og síðan koma Ásta og Gréta. Ásta er sú síðasta sem kveður. Fyrstu kynni okkar af Ástu voru þegar hún heimsótti Lilju systur sína, mömmu okkar, aust- ur á Fáskrúðsfjörð um 1945. Þá var ég, Bryndís, 6 ára gömul og þótti mikið til þessarar heim- sóknar koma. Ásta hafði unnið við skógrækt á Hallormsstað þetta sumar og var á heimleið til Eyja. Í þessari ferð kynntist Ásta föðurbróður okkar honum Björgvini sem síðar átti eftir að verða maðurinn hennar. Ég fékk að snúa handsnúnum grammó- fóni meðan þau dönsuðu, en ekki fara með þeim í gönguferð eftir dansinn! Næst munum við eftir Ástu þegar þau Björgvin heimsóttu okkur upp á Akranes þar sem foreldrar okkar áttu heima. Með þeim í ferð var Guðrún, falleg lít- il stúlka sem átti fallega kerru sem okkur þótti gaman að keyra. Þessi litla stúlka var frænka okk- ar í báðar ættir. Næst munum við eftir Ástu þegar mamma flutti til Vest- mannaeyja með okkur systurnar eftir að pabbi dó. Þá setti mamma á fót Elliheimilið í Skál- holti og við systurnar áttum að vera hjá ömmu og afa í Vallar- túni. Ásta og Björgvin bjuggu þá í kjallaranum á Vallartúni og áttu Guðrúnu og nýfæddan bróð- ur hennar Gunnar. Björgvin og Ásta byggðu sér hús við Herjólfsgötu og þangað fluttu afi og amma ásamt Jóni St. Reykjalín sem hafði flutt með okkur frá Fáskrúðsfirði til Akra- ness og þaðan til Eyja. Samgangur milli systranna var alltaf mikill og bar þar aldrei skugga á. Þegar mamma dó frá bráðungum hálfsystrum okkar tók Ásta að sér að vera með Ás- dísi Lilju meðan Bryndís tók Gunnhildi Björgu með sér suður á meðan faðir þeirra var á síld. Það hefur alltaf verið sérstak- lega kært á milli Ásdísar og Ástu. Ásta var alltaf sú sem leita mátti til, róleg og nærfærin. Hún var sú sem aldrei fór frá ömmu og afa. Aldrei kiknaði hún undan áföllum lífsins, eins og þegar Gunnar Jónas, sonur hennar, fórst með bátnum Þráni með manni og mús, eða þegar mamma, amma, afi og Björgvin kvöddu. Á síðustu árum hittumst við frænkurnar – svokallaður Frænkuhittingur. Þar koma saman dætur Sesselju og Finn- boga í Vallartúni og dætur þeirra. Síðast hittumst við um miðjan desember og lék þá Ásta á als oddi. Gréta féll frá fyrir ári og núna Ásta, þær einu sem eftir voru af þeirri kynslóð. Hvert eig- um við núna að snúa okkur þegar heimildir vantar? Hún var orðin sú eina sem gat svarað spurn- ingum sem sneru að fjölskyld- unni okkar. Þökk fyrir allt. Við söknum þín. Hvíl í friði. Elsku Lilja, Gunnar, Elva Björk, Helena Sif og fjölskyldur. Við vottum ykkur dýpstu samúð. Ykkar frænkur, Bryndís og Rósa Gunnarsdætur. Ásta Finnbogadóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma. Þú varst yndislegasta manneskja sam ég hef þekkt, varst alltaf svo glöð að heyra í mér og öllum og hrósaðir manni fyrir allt. Mér fannst alltaf gaman að koma til þín eftir æfingar og borða ís og tala við þig og takk kærlega fyrir allar leikhúsferðirnar og matar- boðin, ég er mjög þakklát fyrir það að þú komst í ferminguna mína. Ég er svo þakklát fyrir að þú varst amma mín. Sigrún Ásta Gunnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.