Morgunblaðið - 31.01.2020, Side 29
BORGARLEIKHÚSIÐ
Sex í sveit (Stóra sviðið)
Fös 31/1 kl. 20:00 44. s Fös 14/2 kl. 20:00 48. s Lau 22/2 kl. 20:00 52. s
Lau 1/2 kl. 20:00 45. s Lau 15/2 kl. 20:00 49. s Fös 28/2 kl. 20:00 53. s
Fös 7/2 kl. 20:00 46. s Mið 19/2 kl. 20:00 50. s Lau 29/2 kl. 20:00 54. s
Lau 8/2 kl. 20:00 47. s Fös 21/2 kl. 20:00 51. s Fös 6/3 kl. 20:00 55. s
Sýningum lýkur í mars.
Níu líf (Stóra sviðið)
Fös 13/3 kl. 20:00 Frums. Fim 26/3 kl. 20:00 7. s Lau 4/4 kl. 20:00 14. s
Lau 14/3 kl. 20:00 2. s Fös 27/3 kl. 20:00 8. s Sun 5/4 kl. 20:00 15. s
Sun 15/3 kl. 20:00 3. s Lau 28/3 kl. 20:00 9. s Þri 7/4 kl. 20:00 16. s
Fim 19/3 kl. 20:00 aukas. Sun 29/3 kl. 20:00 10. s Fim 16/4 kl. 20:00 17. s
Fös 20/3 kl. 20:00 4. s Mið 1/4 kl. 20:00 11. s Fös 17/4 kl. 20:00 18. s
Lau 21/3 kl. 20:00 5. s Fim 2/4 kl. 20:00 12. s Lau 18/4 kl. 20:00 19. s
Sun 22/3 kl. 20:00 6. s Fös 3/4 kl. 20:00 13. s Sun 19/4 kl. 20:00 20. s
Við erum öll, við erum öll, við erum öll; Bubbi.
Vanja frændi (Stóra sviðið)
Sun 2/2 kl. 20:00 9. s Sun 16/2 kl. 20:00 12. s Fim 27/2 kl. 20:00 15. s
Fim 6/2 kl. 20:00 10. s Fim 20/2 kl. 20:00 13. s
Sun 9/2 kl. 20:00 11. s Sun 23/2 kl. 20:00 14. s
Er líf okkar andlegt frjálst fall?
Helgi Þór rofnar (Nýja sviðið)
Fös 31/1 kl. 20:00 6. s Sun 2/2 kl. 20:00 8. s Lau 15/2 kl. 20:00 10. s
Lau 1/2 kl. 20:00 7. s Fös 7/2 kl. 20:00 9. s Fim 27/2 kl. 20:00
Drepfyndið og spennandi leikrit eftir Tyrfing Tyrfingsson
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Lau 1/2 kl. 17:00 Lokas.
Allra síðustu sýningar!
Um tímann og vatnið (Stóra sviðið)
Mán 27/4 kl. 20:00 7. s
Kvöldstund með listamanni.
Skjáskot (Nýja sviðið)
Þri 11/2 kl. 20:00 4. s Fim 27/2 kl. 20:00 5. s
Kvöldstund með listamanni.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Mið 12/2 kl. 20:00 21. s Fös 14/2 kl. 20:00 22. s Fös 21/2 kl. 20:00 23. s
Allra síðustu sýningar.
Gosi (Litla sviðið)
Sun 23/2 kl. 13:00 Frums. Sun 22/3 kl. 13:00 9. s Sun 19/4 kl. 15:00 17. s
Sun 23/2 kl. 15:00 2. s Sun 22/3 kl. 15:00 10. s Fim 23/4 kl. 13:00 18. s
Sun 1/3 kl. 13:00 3. s Sun 29/3 kl. 13:00 11. s Lau 25/4 kl. 13:00 19. s
Sun 1/3 kl. 15:00 4. s Sun 29/3 kl. 15:00 12. s Sun 26/4 kl. 13:00 20. s
Sun 8/3 kl. 13:00 5. s Sun 5/4 kl. 13:00 13. s Sun 26/4 kl. 15:00 21. s
Sun 8/3 kl. 15:00 6. s Sun 5/4 kl. 15:00 14. s Lau 2/5 kl. 13:00 22. s
Sun 15/3 kl. 13:00 7. s Lau 18/4 kl. 13:00 15. s Sun 3/5 kl. 13:00 23. s
Sun 15/3 kl. 15:00 8. s Sun 19/4 kl. 13:00 16. s Sun 3/5 kl. 15:00 24. s
Eitt ástsælasta ævintýri allra tíma
Er ég mamma mín? (Nýja sviðið)
Sun 9/2 kl. 20:00 Frums. Sun 23/2 kl. 20:00 4. s Sun 8/3 kl. 20:00 8. s
Fim 13/2 kl. 20:00 2. s Sun 1/3 kl. 20:00 6. s Fim 12/3 kl. 20:00 9. s
Sun 16/2 kl. 20:00 3. s Fim 5/3 kl. 20:00 7. s
Tvær sögur ■ eða alltaf sama sagan?
Kynntu þér matseðil Leikhúsbarsins á
borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Menning
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það er gaman að geta frumsýnt
svona flottan söngleik hér, því þetta
er í fyrsta skipti sem söngleikurinn
er sýndur í atvinnuleikhúsi á
Íslandi,“ segir
Marta Nordal,
leikstjóri söng-
leiksins Vorið
vaknar sem frum-
sýndur er í Sam-
komuhúsinu á
Akureyri í kvöld
kl. 20. Söngleik-
urinn er eftir Ste-
ven Slater og
Duncan Sheik, en
byggist á samnefndu leikriti eftir
Frank Wedekind sem hann samdi
árið 1891 en var vegna ritskoðunar
ekki frumsýnt fyrr en 1906, þá í leik-
stjórn Max Reinhardt hjá Deutsches
Theater í Berlín. Íslenska þýðingu
gerði Salka Guðmundsdóttir.
Söngleikurinn var frumsýndur á
Broadway 2006 við góðar viðtökur
og hlaut meðal annars Tony-
verðlaun sem besti söngleikurinn,
Laurence Olivier-verðlaun sem besti
nýi söngleikurinn og Grammy-
verðlaun fyrir bestu söngleikja-
hljómplötuna. Leikmynd og búninga
hannar Auður Ösp Guðmundsdóttir,
lýsingu hannar Ólafur Ágúst Stef-
ánsson, um hljóð sér Hafþór Karls-
son og tónlistarstjóri sýningarinnar
er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, en
uppfærslan er unnin í samstarfi
Leikfélags Akureyrar og Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands undir
merkjum Menningarfélags Akur-
eyrar.
Brechtísk nálgun í tónlistinni
„Ég var að skoða marga söngleiki
þegar þennan rak á fjörur mínar,“
segir Marta og rifjar upp að hún hafi
leikið nöfnu sína í uppfærslu
Borgarleikhússins á leikriti Wedek-
inds árið 1999. „Ég þekkti því sög-
una vel og tilurð verksins, en We-
dekind byggði það að hluta á eigin
reynslu. Upphaflega verkið er ótrú-
lega marglaga og áhrifamikið,“ segir
Marta og tekur fram að söngleik-
urinn hafi orkað sterkt á sig. „Þetta
er átakamikil saga sem fjallar um
vaknandi hvatir unglinga og alvar-
lega árekstra þeirra við kúgandi og
bælandi feðraveldið. Þetta er verk
sem fjallar um kynferðislega kúgun
og þöggun, en einnig um vald og
valdaleysi í stóru samhengi. Verkið
gerist seint á 19. öld og við höldum
okkur í réttri períóðu. Tónlistin er
hins vegar nútímaleg og afar lag-
ræn,“ segir Marta og tekur fram að
það hvernig höfundar noti tónlistina
til að miðla tilfinningum persóna hafi
heillað sig.
„Höfundar söngleiksins tala sjálf-
ir um að tónlistarnotkunin sé brecht-
ísk, sem er skemmtilegt því Frank
Wedekind hafði sem leikskáld mikil
áhrif á Bertolt Brecht. Í brecht-
ískum anda leggjum við áherslu á að
unga fólkið í verkinu sé að segja sög-
una og notumst í þeim tilgangi meðal
annars við handhelda lýsingu. Verk-
ið dregur upp mynd af heimi þar
sem ekki gefst rými til að mistakast,
á sama tíma og þetta er samfélag
þar sem konur og börn eru undirseld
kúgun, kynferðislegri misnotkun og
ofbeldi. Afturhaldssamt valdakerfi
feðraveldisins sem byggt hefur verið
upp í heimi verksins byggir á sið-
ferðislegum gildum kristinnar trúar
þar sem syndin er alltumlykjandi og
bannað að spyrja óþægilegra spurn-
inga í leit að nýrri þekkingu. Afleið-
ingin er óhamingja og jafnvel lífs-
missir. Ofbeldið sem í verkinu birtist
talar mun sterkar til okkar í dag en
fyrir bara tuttugu árum eftir að búið
er að afhjúpa feðraveldið á öllum
sviðum,“ segir Marta og bendir á að
ógerningur væri að færa verkið til í
tíma og gefa sér að börn og ungling-
ar viti lítið sem ekkert um kynhvatir
og kynferðislegt ofbeldi, líkt og
heimur verksins gerir ráð fyrir.
Þykkir sósuna
„Við erum trú verkinu og setjum
það upp í rétti períóðu, en innra líf
og tilfinningar persóna fá útrás í
dansi og söng. Þar geta þau loks
sagt það sem þau mega ekki segja,“
segir Marta og tekur fram að það
hafi verið mikill fengur að fá dans-
höfundinn Lee Proud til samstarfs,
en þau Marta hafa áður unnið saman
í söngleikjunum Rocky Horror og
Kabarett. „Hann býr yfir ákveðinni
snilligáfu, tekur frumkvæði að hlut-
um og er svo skapandi í öllu sam-
starfi sem er mjög gefandi fyrir mig
sem leikstjóra. Hann er ofboðslega
góður í því að ná því besta út úr fólki
og búa til sviðsetningu sem virkar
flókin á sinn einfalda hátt. Söngleik-
urinn inniheldur mörg tónlistar-
atriði, enda hafa persónurnar allar
sína sögu að segja. Lee er ein-
staklega góður í því að búa til sjón-
rænar sögur þar sem persónur miðla
tilfinningum sínum. Fyrir vikið
verða tónlistaratriðin ekki bara full
af fagurfræðilega fallegum dansi
heldur líkamlegri tjáningu sem
þykkir sósuna, ef svo má að orði
komast,“ segir Marta og áréttar að
dansinn sé líka mjög nútímalegur
sem færi verkið nær áhorfendum.
Ótrúlega flottir krakkar
En er ekkert erfitt að selja áhorf-
endum þá hugmynd að koma og sjá
svona myrkt og ofbeldisfullt verk?
Eða er kannski einmitt gott að fá til-
finningalega útrás í leikhúsinu við að
horfa á þetta verk?
„Tónlistin býður upp á ákveðinn
létti og líkn, þannig að skemmtana-
gildi verksins er ótvírætt. Því er hins
vegar ekki að leyna að undiralda
verksins er þung. En á sama tíma
fær mennskan mikið rými sem og
vináttan og ástin. Það er líka mikil
fegurð í verkinu. Hvað það varðar
endurspeglar það lífið ágætlega.
Persónulega finnst mér alltaf mest
spennandi að fá að fara í gegnum all-
an tilfinningaskalann og fá tækifæri
til að fara á dýpið. Ég held að fólk
hafi þörf fyrir það. Í tengslum við
verkið er umhugsunarvert hversu
stutt er síðan feðraveldið var sam-
þykkt sem stjórntæki og hversu al-
varlegar afleiðingar þetta kerfi get-
ur haft,“ segir Marta og bendir á að
ungi pilturinn Melchior birtist sem
vonin í verkinu þar sem hann sé and-
lega sterkur og óþreytandi að spyrja
erfiðra spurninga.
Með hlutverk Melchiors fer Júlí
Heiðar Halldórsson, en vini hans,
þau Moritz og Wendlu, leika Rúnar
Kristinn Rúnarsson og Þórdís Björk
Þorfinnsdóttir. „Við héldum opnar
prufur fyrir hlutverkin og það skil-
aði okkur því að við erum með fullt
af ungu og hæfileikaríku fólki sem er
í sumum tilvikum hér að fá tækifæri
til að stíga sín fyrstu skref eftir út-
skrift. Hlutverkin gera mikla kröfu,
því þátttakendur þurfa að vera jafn-
vígir á leik, dans og söng. Þetta eru
ótrúlega flottir krakkar. Það er ein-
staklega gaman að veita nýjum and-
litum tækifæri og mikill ferskleiki
sem fylgir leikhópnum,“ segir
Marta, en auk ofannefndra leikara
taka þátt Ahd Tamimi, Ari Orrason,
Árni Beinteinn Árnason, Bjarklind
Ásta Brynjólfsdóttir, Eik Haralds-
dóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir
og Viktoría Sigurðardóttir. „Loks
taka þátt reynsluboltarnir Edda
Björg Eyjólfsdóttir og Þorsteinn
Bachmann,“ segir Marta og bendir á
að það sé fyrirskrift frá höfundum
söngleiksins að sömu tveir fullorðnu
leikaranir leiki allar fullorðnu per-
sónur verksins. „Með þeim hætti er
undirstrikað að þau eru fulltrúar
ólíkra hópa samfélagsins, sem er
spennandi nálgunarleið.“
Persónur verksins „fá
útrás í dansi og söng“
Söngleikurinn Vorið vaknar frumsýndur í Samkomuhús-
inu á Akureyri Átakamikil saga um vald og valdaleysi
Ljósmyndir/Auðunn Níelsson
Dýpi „Persónulega finnst mér alltaf mest spennandi að fá að fara í gegnum allan tilfinningaskalann og fá tækifæri
til að fara á dýpið,“ segir leikstjórinn Marta Nordal um uppfærslu sína á söngleiknum Vorið vaknar.
Marta Nordal
Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) (Kassinn)
Fim 13/2 kl. 19:30
AUKASÝNING
Ágengt og tragíkómískt nýtt íslenskt verk sem spyr stórra spurninga
Engillinn (Kassinn)
Lau 1/2 kl. 19:30 10. sýn Fös 7/2 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Lau 15/2 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Leiksýning byggð á textum og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson
Meistarinn og Margarita (Stóra Sviðið)
Lau 1/2 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Lau 8/2 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Hnyttin háðsádeila, gædd myrkum töfrum
Bara góðar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 13/2 kl. 20:00 Fim 20/2 kl. 20:00
Sprenghlægilegt uppistand!
Útsending (Stóra Sviðið)
Fös 21/2 kl. 19:30 Frums Fös 28/2 kl. 19:30 3.sýn Lau 7/3 kl. 19:30 5.sýn
Lau 22/2 kl. 19:30 2. sýn Lau 29/2 kl. 19:30 4.sýn Sun 8/3 kl. 19:30 6. sýn
Magnað verk um átök innan fjölmiðlaheimsins og vald fjölmiðlanna
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fim 27/2 kl. 19:30 29. sýn Sun 1/3 kl. 19:30 30. sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Eyður (Stóra Sviðið)
Fös 20/3 kl. 19:30 3.sýn
Sviðslistahópurinn Marmarabörn
Þitt eigið leikrit II (Kúlan)
Fös 14/2 kl. 18:00 Frums Lau 22/2 kl. 15:00 4.sýn Sun 1/3 kl. 15:00 7. sýn
Lau 15/2 kl. 15:00 2.sýn Sun 23/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 7/3 kl. 15:00 8. sýn
Fös 21/2 kl. 18:00 auka Lau 29/2 kl. 15:00 6. sýn Sun 8/3 kl. 15:00 9. sýn
Hvert myndir þú fara? Þú mátt velja núna!
Konur og krínólín - Leikhúslistakonur 50+
(Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 15/2 kl. 16:00 Lau 22/2 kl. 16:00
Sun 16/2 kl. 16:00 Sun 23/2 kl. 16:00
Tískugjörningur sem allir hafa beðið eftir! Fegurð, fræðsla og fjör.
Kópavogskrónika (Kassinn)
Lau 14/3 kl. 19:30 Frums Lau 21/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 29/3 kl. 19:30 7. sýn
Sun 15/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 27/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 3/4 kl. 19:30 8. sýn
Fim 19/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/3 kl. 19:30 6. sýn
Til dóttur minnar með ást og steiktum
Skarfur (Kúlan)
Fös 20/3 kl. 19:30 Frums Lau 21/3 kl. 19:30 2. sýn
Í heimi þar sem illskan nærist á náttúrunni er ekki pláss fyrir ófleyga fugla.
Brúðumeistarinn (Brúðuloftið)
Fim 5/3 kl. 19:30 Frums Lau 7/3 kl. 19:30 2.sýn Mán 9/3 kl. 19:30 3.sýn
Átakamikil og nýstárleg sýning um uppgjör brúðumeistara við fortíðina
Sjitt, ég er sextugur (Þjóðleikhúskjallarinn )
Lau 14/3 kl. 21:00 Frums Lau 21/3 kl. 21:00 3.sýn Fim 26/3 kl. 21:00 5.sýn
Þri 17/3 kl. 21:00 2.sýn Sun 22/3 kl. 21:00 4.sýn
Örn Árnason sýnir allar sínar skástu hliðar... í smá stund
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200