Morgunblaðið - 31.01.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020
50 ára Þóra Margrét
er Reykvíkingur, ólst
upp í Norðurmýrinni
og býr þar. Hún er
með meistarapróf í
sálfræði frá Freie Uni-
versität Berlin. Þóra
Margrét er mannauðs-
stjóri hjá Umhverfisstofnun.
Börn: Lara Valgerður Kristjánsdóttir, f.
1997, og Þór Valgarð Kristjánsson, f.
2001.
Foreldrar: Páll Bergsson, f. 1942, fram-
kvæmdastjóri hjá Fyrirtæki og samn-
ingar ehf., og Lilja Magnúsdóttir, f.
1943, húsmóðir. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Þóra Margrét
Pálsdóttir Briem
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Innsæi þitt leiðir þig nákvæmlega
þangað sem þú átt að vera. Þú ert kalin/n á
hjarta en það breytist fljótlega.
20. apríl - 20. maí
Naut Fjölskyldulíf þitt er ekki fullkomið
frekar en annarra en reyndu að vanda þig.
Hafðu hemil á tilfinningum þínum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú nýtur þess að gera breytingar
til batnaðar á vinnustað. Komdu þér niður á
jörðina, þú getur ekki endalaust svifið um á
bleiku skýi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gæfan er örlítið hliðhollari þér en
flestum öðrum þessar vikurnar. Sýndu öðr-
um örlæti. Einhver þér nákominn sýnir sinn
innri mann.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er sama hversu gamall/gömul þú
verður, þú ert alltaf barn foreldra þinna. Þú
ert alltaf potturinn og pannan í öllu hjá fjöl-
skyldunni og verður áfram í því hlutverki.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Makanum finnst hann dálítið van-
ræktur í augnablikinu. Ef þú vilt gera hlut-
ina vel skaltu gefa þér þann tíma sem til
þarf.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú kemst að leyndarmálum í dag í
samræðum við skyldmenni. Hættu að
dæma fólk áður en þú kynnist því.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er í góðu lagi að gera sér
glaðan dag ef þú gætir þess bara að það
bitni hvorki á þínu fólki né vinnu. Stífni get-
ur spillt fyrir möguleikum þínum í ástar-
sambandi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér gengur flest í haginn þessa
dagana. Dagurinn hentar vel til þess að
versla, en hann er líka vel fallinn til þess að
vera á höttunum eftir auknum tekjum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Öryggið er fyrir öllu en þó máttu
ekki ganga svo langt að þú lokir þig alveg af
frá umheiminum. Reyndu að temja þér
meiri tillitssemi í samskiptum við aðra.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Stundum er best að láta aðra al-
farið um sín mál því okkur er ekki ætlað að
lifa lífinu fyrir aðra. Talaðu um það sem
veldur þér áhyggjum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nagandi hugsun um að einhver sé
óánægður með þig mun plaga þig í dag.
Láttu ekki aðra ákveða hvernig þú átt að lifa
lífinu.
Benna Hemm Hemm, Murta St.
Calunga, var í hópi hljómplatna árs-
ins 2008 sem tónlistarsjóðurinn
Kraumur tilnefndi.
Jafnframt tónlistarferlinum hefur
Benedikt sinnt tónlistarkennslu.
SKOT ásamt hljómsveitinni Retro
Stefson, en hún kom út út þá um
haustið og hlaut góðar viðtökur. Ár-
ið 2014 tók Benni Hemm Hemm upp
plötuna Eliminate Evil, Revive Go-
od Times í Green Door-hljóðverinu í
Glasgow ásamt tónlistarmönnum úr
innsta hring skosku indísenunnar.
Árið 2016 gaf Benni Hemm Hemm
út 22 laga plötuna Skordýr ásamt
ljóðabók undir sama nafni. Árið
2018 gaf Benni Hemm Hemm út
plötuna FALL og í dag kemur út
platan KAST SPARK FAST og
verða útgáfutónleikar haldnir í
kvöld í Tjarnarbíói. Benni Hemm
Hemm hefur haldið tónleika víða í
Evrópu, Bandaríkjunum og Tókýó
og Kýótó í Japan.
Benni Hemm Hemm fékk Ís-
lensku tónlistarverðlaunin árið 2005
fyrir fyrstu hljómplötu sína, en
hljómsveitin fékk einnig verðlaun
sama ár sem Bjartasta vonin. Kajak
var tilnefnd til Íslensku tónlistar-
verðlaunanna árið 2007 sem hljóm-
plata ársins og þriðja breiðskífa
B
enedikt Hermann Her-
mannsson er fæddur
31. janúar 1980 í
Reykjavík og ólst upp í
Norðurmýrinni. Hann
gekk í Æfingaskólann, Mennta-
skólann við Hamrahlíð, Tónlistar-
skólann í Reykjavík, Konunglega
konservatoríið í Haag og Listahá-
skóla Íslands. Benedikt er með BA-
gráðu í tónsmíðum og MA-gráðu í
listkennslufræðum.
Hljómsveitin Benni Hemm
Hemm er hugarfóstur Benedikts.
Hann semur tónlistina sem hún flyt-
ur og stýrir upptökum á hljóm-
plötum hennar. Fyrsta útgáfa
Benna Hemm Hemm var smá-
breiðskífan SummerPlate, sem gef-
in var út í 30 eintökum árið 2003 og
fyrstu tónleikar hljómsveitarinnar
voru 1.5. 2004, á fimm ára afmælis-
tónleikum Tilraunaeldhússins. Í
nóvember þess árs hóf hljómsveitin
upptökur á fyrstu breiðskífunni og í
september 2005 var hún gefin út á
Íslandi, en snemma árs 2006 var
hún gefin út í Japan, Evrópu og
Bandaríkjunum.
Vorið 2006 hóf Benni Hemm
Hemm samstarf með þýska plötuút-
gáfufyrirtækinu Morr Music og í lok
ársins kom út önnur breiðskífa
sveitarinnar, Kajak, hér á landi og
út um allan heim í byrjun árs 2007. Í
október 2006 samdi Benedikt tónlist
við kvikmyndina Fjalla-Eyvind, eft-
ir Victor Sjöström, en tónlistin var
flutt af hljómsveitinni í tvígang í
Tjarnarbíói, á Kvikmyndahátíð
Reykjavíkur.
Benni Hemm Hemm gaf út smá-
breiðskífuna Ein í leyni í lok árs
2007. Þriðja breiðskífa hljómsveit-
arinnar, Murta St. Calunga, var gef-
in út á Íslandi í júní 2008 en um all-
an heim sumarið 2009. Þriðja
smábreiðskífan, Retaliate, kom út
um allan heim í apríl 2010.
Í júní 2010 var verkið Ryk á
Book, eftir Benedikt, flutt á
Listahátíð Reykjavíkur af Benedikt,
skoska þjóðlagasöngvaranum
Alasdair Roberts og Blásarasveit
Reykjavíkur, undir stjórn Tryggva
M. Baldvinssonar. Sama sumar tók
Benni Hemm Hemm upp plötuna
Hann kenndi 2013-2017 í Vestur-
bæjarskólanum og var stjórnandi
listadeildar í grunnskólanum á
Seyðisfirði. 2017-2019. „Deildin inni-
heldur gamla tónlistarskólann á
Seyðisfirði. Það er mjög skapandi
andrúmsloft á Seyðisfirði. Nýja
platan mín er öll samin þar og einn-
ig platan FALL. Svo á ég einnig
tilbúið efni fyrir aðra plötu sem var
líka samið á Seyðisfirði.“ Fjöl-
skyldan flutti aftur til Reykjavíkur í
fyrra og hefur Benedikt kennt við
Hagaskóla frá því í haust.
„Það eru óskýr mörk milli vinnu
og áhugamála hjá mér. Bækurnar á
náttborðinu eru allar um tónlist og
krakkarnir hafa verið að hjálpa mér
við að skreyta fyrir útgáfu-
tónleikana.“ Tónlistin er því allt-
umlykjandi hjá Benedikt.
Fjölskylda
Eiginkona Benedikts er Auður
Jörundsdóttir, f. 16.10. 1980, for-
stöðumaður Kynningarmiðstöðvar
íslenskrar myndlistar. Þau eru
Benedikt H. Hermannsson tónlistarmaður – 40 ára
Ljósmynd/BIG
Afmælisbarnið Benedikt.
Útgáfutónleikar í kvöld
Mæðgin Þorlákur
og Auður.
Synirnir Þorlákur
og Guðmundur Ari.
30 ára Hörður er
Kópavogsbúi. Hann er
með meistaragráðu í
endurskoðun frá HÍ, er
löggiltur endurskoð-
andi og stundar meist-
aranám í fjármálum við
HÍ. Hörður er endur-
skoðandi hjá Icelandair.
Maki: Erna Guðrún Stefánsdóttir, f. 1990,
löggiltur bókari hjá KPMG.
Börn: Anika Ýr Harðardóttir, f. 2013, og
stjúpdóttir er Árney Alba Ernudóttir, f. 2013.
Foreldrar: Valbjörn Jón Höskuldsson, f.
1965, vélstjóri, og Hrönn Önundardóttir, f.
1967, hjúkrunarfræðingur. Þau eru búsett
í Kópavogi.
Hörður Freyr
Valbjörnsson
Til hamingju með daginn
Halldórsstaðir,
Eyjafjarðarsveit
Rósa Guðrún Ragn-
arsdóttir fæddist
14. mars 2019 á
Sjúkrahúsinu á
Akureyri kl. 15.18.
Hún vó 3.832 g og
var 52 cm að lengd.
Foreldrar hennar
eru Bjarney Guð-
björnsdóttir og
Ragnar Jónsson.
Nýr borgari
Í blaðinu verður fjallað um
tísku, förðun, snyrtingu, heilsu,
fatnað, umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira.
–– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ
SMARTLAND
BLAÐ
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 14. febrúar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
BERGLIND GUÐRÚN BERGMANN
Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is
Meinleg villa
var í ættartré
Þórleifs Jóns-
sonar í blaðinu
24. janúar síð-
astliðinn. Leið-
rétt ættartré
má finna í
greinasafninu á
mbl.is. Beðist er
velvirðingar á
þessum mistök-
um.
LEIÐRÉTT
Villa í
ættartré