Morgunblaðið - 31.01.2020, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 31.01.2020, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020 Vetrarferð Þegar haldið er í heimsókn á framandi slóðir er skynsamlegt að klæða sig upp að hætti heimamanna. Þessi fjölskylda tók sig vel út í nýjum lopapeysum – og auðvitað var tekin mynd. Eggert Bóndi einn norður í Fljótum taldi sig hafa vit á öllu og sagði álit sitt á nánast flestu er bar á góma. Sveit- ungar hans töldu bóndann mjög vel gef- inn af þeirri ástæðu einni að hann fjallaði ekki um heimspeki. Og hann hætti sér aldrei svo langt að ræða heil- brigðismál, að öðru leyti en búfjár- sjúkdóma. Þó lét hann eitt sinn orð falla um heilbrigðismál. Það var þegar prestssetur var lagt af í sveitinni. Það þótti honum ekki tiltökumál, því samkvæmt stöðlum ætti að vera einn prestur á móti sex læknum. Þar sem ekki voru 36 læknar í Skagafirði taldi hann rétt og einsýnt að afleggja eitt prestssetur, enda þótt það væru 20 sveitakirkjur í sýslunni og tvær í þéttbýli. Löggjafinn hefur sett þau mark- mið að allir borgarar eigi þess kost að nýta sér góða heilbrigðisþjón- ustu, án tillits til efnahags. Til að svo megi verða hafa sumar þjóðir komið sér upp tryggingakerfi, sem tryggir öllum sem jafnasta heil- brigðisþjónustu þegar sjúkdóma ber að garði. Hér á landi er trygginga- kerfið ekki valkvætt. Allir eiga að- ild, með búsetu á Íslandi í tiltekinn tíma. Heilbrigði í nútímanum Sá er þetta ritar ætlar að láta heilbrigðismál sig varða, þrátt fyrir að hafa aldrei lagt fyrir sig lækna- vísindi eða heimspeki. Þó hefur hann komið nærri rannsókn á heilbrigðis- sviði. Það var rann- sókn á legutíma á Kleppsspítala á tveim- ur tímabilum, þar sem markmið rannsóknar- innar var að mæla marktæka virkni nýrra lyfja. Niður- staðan var ótvíræð; legutími sjúklinga hafði styst verulega vegna nýrra lyfja. Þær fréttir dynja á þjóðinni, að það sé öngþveiti á Landspítalanum. Jafnframt horfi ég á nokkra samborgara engjast af kvölum vegna þess að þeir hafa ekki beðið nægjanlega lengi, að áliti ráð- herra, til þess að réttlæta það að skera niður biðlista vegna lið- skiptaaðgerða. Stórstígar framfarir í læknavís- indum undanfarna áratugi og til- koma nýrra og fokdýrra en árang- ursríkra lyfja veldur því að eftir- spurn eftir heilbrigðisþjónustu er nánast ómettanleg. Nánast allt er hægt að gera. Forgangsröðun er því nauðsynleg og öllum biðlistum verður líklega seint útrýmt, óháð því hversu miklu fé er varið til heil- brigðismála. En afar langir biðlistar í vissar læknisaðgerðir um þessar mundir eru sérstakt rannsóknarefni. Hugsjón í heilbrigðismálum Sú eina heila hugsun í heilbrigð- ismálum nú um stundir er að færa alla heilbrigðisþjónustu á sjúkrahús og heilsugæslustöðvar. Sennilega eru komur til lækna að helmingi á heilsugæslustöðvar en hinar kom- urnar skiptast að jöfnu á milli sjúkrahúsa og sjálfstætt starfandi sérfræðilækna. Ekki veit sá er þetta ritar hvar á að staðsetja for- varnir og endurhæfingu, sem fram fer á starfsstöðvum sjálfseign- arstofnana samkvæmt þjónustu- samningum við heilbrigðisráðu- neytið og Sjúkratryggingar. Þar er átt við leitarstöð Krabbameins- félagsins, Reykjalund og áfeng- ismeðferð á Vogi. Eftir stendur að sjúkrahús ann- ast stórar og flóknar læknisaðgerðir og vandséð er að það muni breytast. Þeir, sem vit hafa á, telja fráleitt að allri dag- og göngudeildarþjón- ustu sé hægt að sinna á Landspít- alanum. Og hver eru rökin fyrir því? Það er ekki nauðsynlegt að sinna allri heilbrigðisþjónustu á sjúkrahúsum. Og alger óþarfi, þar sem ekki er um stórar og flóknar aðgerðir að ræða. Stundum aðeins eftirfylgni. Á móti eru rökin að það megi ekki undir nokkrum kring- umstæðum „einkavæða“ heilbrigð- isþjónustu. Rekstrarformið á ekki að skipta máli, heldur velferð sjúk- linga. Ef Sjúkratryggingar Íslands eru ófærar um að gera samninga um keypta þjónustu, þá verður að bæta þekkingu á kostnaði á þeim bæ. Sambærilegan kostnað á að- gerðum má að líkindum finna á op- inberum heilbrigðisstofnunum eða erlendum samanburði. Svo er til nokkuð sem heitir útboð vel skil- greindra læknisverka. Ökklar, liðir, mjaðmir, axlir, brjóst, legháls og ristill Kunnugir segja mér að aðgerðir á ökklum og öxlum séu alfarið fram- kvæmdar á aðgerðarstofum úti í bæ. Landspítalinn hefur viðurkennt vanmátt sinn á þessu sviði og Sjúkratryggingar taka undir það. Ristilspeglanir til að skima fyrir ristilkrabbameini fara fram á læknastofum utan sjúkrahúsa. Sama er að segja um skimun á brjóstakrabbameini og legháls- krabbameini. Krabbameinsfélagið hefur til skamms tíma byggt upp slíka leitarþjónustu í forvarnar- skyni. Og gengið ágætlega að sinna því starfi. Nú á að ríkisvæða það. Kostnaður við heilbrigðiskerfi Það kann að vera að æra óstöð- ugan að fjalla um kostnað við heil- brigðismál. Í minni hagfræði flokka ég búnað til hreyfinga og íþrótta sem útgjöld fyrir mitt heilbrigði. Opinberlega er það ekki gert. Hver einstaklingur ber nokkra ábyrgð á eigin heilsu. Í fjölþjóðlegum samanburði eru útgjöld til heilbrigðismála reiknuð sem hlutfall af landsframleiðslu. Þar eru Bandaríkin hæst. Það skilar sér þó ekki í góðri heilsu til allra. Ísland er nærri þeim þjóðum í OECD sem landið vill miða sig við. Mælikvarðar á velsæld sýna þó að margt er vel gert á Íslandi í lýð- heilsu, enda hafa heilbrigðisstéttir aflað sér bestu þekkingar beggja vegna Atlantshafs. Þó er ýmislegt að, eins og fram hefur komið í frétt- um af bráðadeildum á Landspítala, og biðlistum eftir aðgerðum, sem ekki eru bráðar. Samkvæmt orðum forsætisráð- herra drógust útgjöld til heilbrigð- ismála saman um 20% á hrunárum en hafa aukist um 12% síðan, þá á sama mælikvarða. Samkvæmt því vantar 10% upp á að fyrra út- gjaldastigi sé náð. Ekki ætla ég mér þá dul að segja hvar vandinn er mestur. Sjálfstæðisflokkurinn og stefnumörkun Það hefur oft komið fram að í stað óánægju kemur ekki alltaf ánægja þegar það sem veldur óánægju hverfur. Sjálfstæðisflokkurinn geld- ur fyrir þá óánægju og það ástand sem ríkir vegna biðlista og „neyðar- ástands“ á bráðadeildum. Afneitun á vanda eyðir ekki óánægju. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur á að skipa herdeild fólks, sem er fullfært um að móta stefnu flokksins í heil- brigðismálum nú þegar. Ef vandinn er einungis sá að erfitt er að koma sjúklingum á langlegudeildir, þá verður að viðurkenna þann vanda. Rekstur heilbrigðiskerfisins er ekki einfaldur og mörgum finnst langt í réttlæti. Það er full þörf á að fjalla áfram um þennan málaflokk. Það mun ég gera því óánægja er ekki viðunandi fylgifiskur í næstu kosningum. Heilbrigðisstéttir eru hreyfan- legar, með því að menntun og starfsréttindi eru alþjóðleg. Þar hnígur margur til síns uppruna. Það er eitthvað í taugunum sem heldur manni föstum við sitt pláss. Eftir Vilhjálmur Bjarnason »Rekstur heilbrigðis- kerfisins er ekki einfaldur og mörgum finnst langt í réttlæti. Það er full þörf á að fjalla áfram um þennan málaflokk. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Heilbrigði og lífsgæði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.