Morgunblaðið - 31.01.2020, Blaðsíða 27
SVÍÞJÓÐ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Elvar Már Friðriksson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, lætur vel af
sér í Svíþjóð. Þar gengur honum og
Borås flest í haginn á þessu keppnis-
tímabili en Elvar hélt þangað síðasta
sumar frá Njarðvík. Borås er á
toppnum með sex stiga forskot á
Luleå. Hefur Borås unnið tuttugu og
tvo leiki í deildinni sem af er af tutt-
ugu og sex. Elvar er lykilmaður í lið-
inu. Hefur skorað rúm 16 stig að
meðaltali og gefið að jafnaði átta
stoðsendingar.
„Það stefnir í besta árangur í sögu
félagsins ef við höldum svona áfram.
Allir eru því mjög sáttir hérna um
þessar mundir. Við erum á leiðinni í
fjögurra liða úrslit í bikarkeppninni.
Spilum í undanúrslitum á morgun en
liðið sem vinnur spilar til úrslita á
sunnudaginn. Vonandi kemur fyrsti
titillinn á tímabilinu í hús um
helgina,“ sagði Elvar þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til hans
á milli æfinga í gær. Andstæðingur
Borås á morgun verður Luleå en
bikarhelgin fer fram á heimavelli
Södertälje í útjaðri Stokkhólms.
Elvar segir að nokkrir leikmenn
hafi komið til liðsins á milli tímabila
en kjarninn í liðinu sé svipaður.
Jakob Örn Sigurðarson lék með lið-
inu síðustu árin í Svíþjóð áður en
hann kom heim í KR síðasta sumar.
„Það voru gerðar fjórar eða fimm
breytingar. Jakob fór og ég kom. Við
fengum einn Svía og tveir Kanar
fóru og aðrir komu í staðinn. Liðið er
með svipaðan kjarna og í fyrra og
einn Bandaríkjamaðurinn sem var í
fyrra er áfram hjá liðinu.“
Stjórnar sóknarleiknum
Ekki er Borås einungis í efsta
sæti deildarinnar heldur hefur Elvar
einnig leikið við hvern sinn fingur.
Er mjög atkvæðamikill í stigaskorun
eins og nefnt var hér að framan og
er raunar með flestar stoðsendingar
allra í deildinni til þessa. Hann er því
alsæll með gang mála til þessa á sínu
fyrsta tímabili í Svíþjóð.
„Ég er í hlutverki sem hentar mér
fulkomlega. Ég fæ að hafa boltann
mikið í höndunum og stjórna
sóknarleiknum. Svipað og var hjá
mér heima í Njarðvík en einnig í
skólanum úti [Barry University í
Bandaríkjunum]. Ég þekki slíkt
hlutverk mjög vel og því þægilegt
hvernig þetta hefur spilast fyrir mig.
Ég var akkúrat að leita eftir hlut-
verki sem þessu þegar ég ákvað að
fara aftur út. Við gerum ýmislegt í
sókninni sem hentar mínum styrk-
leikum. Ég er með flestar stoðsend-
ingar í deildinni en tel að það sé að
hluta til vegna þess að ég er með
góðar skyttur í kringum mig. Þeir
setja niður skot úr erfiðum færum
og ég fé kannski skráða á mig ódýra
stoðsendingu. Það er fínt líka,“ sagði
Elvar og hló.
Margir erlendir leikmenn
Elvar Már er ánægður með
sænsku deildina en óvíst er hvort
hann verður þar áfram. Hann er
bara með eins árs samning og segir
að það komi bara í ljós eftir tímabilið
hvert framhaldið verður.
„Deildin er þrælfín. Yfirleitt eru
þrír Kanar í hverju liði og flest liðin
með einhverja leikmenn frá Evrópu-
ríkjum, öðrum en Svíþjóð. Mörg lið
eru því með 4-5 útlendinga í hverju
liði. Spilaðar eru fjórar umferðir og
því fleiri leikir en maður er vanur.
Keyrslan er því töluvert meiri en í
deildinni heima. Hefur þetta gengið
framar vonum og mér finnst körfu-
boltinn hérna henta mér vel. Ég var
ekki með miklar væntingar þegar ég
fór til Svíþjóðar eftir Frakklands-
ævintýrið á síðasta tímabili,“
útskýrði Elvar, en haustið 2018 lék
hann með Denain í Frakklandi þar
til félagið leysti hann undan samn-
ingi í byrjun nóvember. Kom Elvar
þá heim og lék með Njarðvík út
tímabilið.
„Þar lenti ég í aðstæðum sem voru
ekki góðar fyrir mig en núna hitti ég
vel á það og þetta er því tvennt
ólíkt,“ sagði Elvar Már Friðriksson
enn fremur.
Hentar fullkomlega
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson mjög atkvæðamikill á fyrsta tímabili
sínu í Svíþjóð Allt önnur upplifun en vonbrigðin í Frakklandi á síðasta tímabili
Ljósmynd/Borås Basket
Svíþjóð Elvar Már Friðriksson í leik með Borås en andstæðingar liðsins þurfa að hafa góðar gætur á Elvari.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020
Knattspyrnumaðurinn Danny Rose
er kominn til Newcastle á lánssamn-
ingi frá Tottenham sem gildir út leik-
tíðina. Newcastle greiðir Tottenham
tvær milljónir punda fyrir lánið. Rose
gæti leikið fyrsta leik sinn með New-
castle er liðið mætir Norwich á heima-
velli í ensku úrvalsdeildinni á laugar-
dag. Rose á 156 leiki með Tottenham í
ensku úrvalsdeildinni og 29 landsleiki
fyrir A-landslið Englands.
Spennan á toppi 1. deildar karla í
körfubolta jókst eftir leiki gærkvölds-
ins. Topplið Hattar tapaði á heimavelli
fyrir Hamri, 75:70. Munar nú aðeins
tveimur stigum á liðunum; Höttur er
með 28 stig og Hamar með 26.
Everage Richardson skoraði 30 stig
fyrir Hamar. Matej Karlovic gerði 20
fyrir Hött. Breiðablik er einnig með 26
stig eftir sigur á Vestra á heimavelli,
104:98. Larry Thomas skoraði 24 stig
fyrir Breiðablik á meðan 29 stig hjá
Toni Jelenkovic dugðu ekki til hjá
Vestra, sem er í fimmta sæti með 14
stig.
Þýska knattspyrnufélagið Hertha
Berlín hefur fest kaup á pólska fram-
herjanum Krzysztof Piatek frá AC Míl-
an á Ítalíu. Piatek skoraði 13 mörk í 36
deildarleikjum í Mílanó. Hertha er í
sjötta sæti þýsku deildarinnar, sjö
stigum frá toppliði Leipzig.
Norski knattspyrnumaðurinn Sand-
er Berge er orðinn dýrasti leikmaður í
sögu enska úrvalsdeildarfélagsins
Sheffield United. Nýliðarnir greiddu
Genk í Belgíu 22 milljónir punda fyrir
miðjumanninn. Berge er talinn vera
einn besti ungi miðjumaður Evrópu.
Hann átti stóran þátt í velgengni Genk
á síðustu leiktíð er liðið varð belgískur
meistari. Hefur Berge leikið 20 A-
landsleiki fyrir Noreg og skorað í þeim
eitt mark.
Körfuknattleiksdómarinn reyndi
Leifur Garðarsson dæmir ekki meira á
þessu keppnistímabili. Leifur skýrði
frá því á Facebook að hann væri að
glíma við erfið meiðsli í nárafestum og
þessari leiktíð væri því lokið af hans
hálfu.
Gylfi Þór Sigurðsson hefur jafnað
sig af nárameiðslum og getur spilað
með Everton þegar liðið sækir Watford
heim í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri
Everton, skýrði frá þessu á frétta-
mannafundi í gær. Gylfi hefur misst af
tveimur síðustu leikj-
um Everton vegna
meiðslanna. Rich-
arlison og Alex
Iwobi eru líka
klárir í slaginn á
ný með liðinu eftir
fjarveru vegna
meiðsla.
Eitt
ogannað
Ný þegar farið er að styttast í
úrslitaleikinn í NFL-deildinni í
amerískum fótbolta, Super Bowl, er
viðburðurinn smám saman að taka
yfir umfjöllun vestan hafs.
Ein af undarlegri vangaveltum í
kringum leikinn er sú hvort Tyreek
Hill, leikmaður Kansas City Chiefs,
muni reyna að komast á Ólympíu-
leikana í Tókýó sem spretthlaupari.
Mun hann hafa hlaupið 100 m undir
10 sekúndum í menntaskóla árið
2013 en í miklum meðvindi. Til að
ná lágmarki fyrir úrtökumótið yrði
hann að fara undir 10,05 sek.
Reynir Hill við ÓL
í Japan í sumar?
AFP
Fljótur Tyreek Hill verður í eldlín-
unni í úrslitaleiknum á sunnudag.
Lionel Messi var í aðalhlutverki í
5:0-stórsigri Barcelona á Leganés í
16-liða úrslitum spænska bikarsins
í fótbolta í Barcelona í gær. Messi
skoraði þriðja og fimmta mark
Barcelona og lagði upp annað
markið á Clément Lenglet. Antoine
Griezmann og Arthur komust einn-
ig á blað í sigri sem aldrei var í
hættu.
Mirandés úr B-deildinni gerði sér
lítið fyrir og vann óvæntan 3:1-
sigur á Sevilla á heimavelli. Mat-
heus Alas skoraði tvö mörk fyrir
Mirandés og Álvaro Rey eitt.
Magnaður Messi
í aðalhlutverki
AFP
Samþykki Lionel Messi var skiljan-
lega ánægður með dagsverkið.
Svíþjóð
Malmö – Kristianstad.......................... 25:21
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 5
mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn
Einarsson 2.
Efstu lið: Alingsås 35, Malmö 35,
Kristianstad 30, Skövde 29, Ystad IF 28,
Lugi 26, IFK Ystad 24, Sävehof 24.
KR og Valur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmóts karla
í fótbolta næstkomandi mánudag eftir sigra í undan-
úrslitum í Egilshöll í gær.
Færeyski landsliðsmaðurinn Kaj Leo í Baralsstovu var
hetja Vals því hann skoraði sigurmarkið í 1:0-sigri á
Fjölni.
KR hafði betur gegn Víkingi úr Reykjavík í víta-
keppni. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 1:1, en KR-
ingar nýttu allar fimm spyrnur sínar í vítakeppninni á
meðan Víkingar brenndu af einni. Óttar Magnús Karls-
son kom Víkingi yfir snemma leiks en Ægir Jarl Jón-
asson jafnaði fyrir KR.
ÍA vann Fótbolta.net-mót karla eftir 5:2-sigur á Breiðabliki á Kópavogs-
velli í skrautlegum úrslitaleik. Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði þrennu
fyrir ÍA á meðan bæði Guðjón Pétur Lýðsson og Brynjólfur Darri Will-
umsson fengu bein rauð spjöld hjá Breiðabliki.
Úrslitaleikur erkifjandanna
Ægir Jarl
Jónasson
Serbinn Novak Djokovic er kominn í úrslitaleikinn á
Opna ástralska mótinu í Melbourne, fyrsta risamóti árs-
ins, í tennisíþróttinni. Djokovic lagði Svisslendinginn
sigursæla Roger Federer að velli á sannfærandi hátt, 7:6
(7:1), 6:4 og 6:3. Mun Serbinn mæta annaðhvort Alexand-
er Zverev eða Dominic Thiem í úrslitum á sunnudag, en
þeir tókust á í nótt að íslenskum tíma.
Federer hefur glímt við meiðsli og Djokovic fór fögr-
um orðum um keppinautinn. „Ég ber mikla virðingu fyr-
ir Roger fyrir að mæta til leiks í dag. Hann var greini-
lega meiddur og vantaði talsvert upp eðlilega hreyfigetu
hans,“ sagði Djokovic, sem stefnir að sautjánda sigri sín-
um á risamóti.
Garbina Muguruza frá Spáni og Sofia Kenin frá Bandaríkjunum mætast
jafnframt í úrslitum í einliðaleik kvenna. Muguruza lagði Simonu Halep frá
Rúmeníu að velli í undanúrslitum, 7:6 (10:8) 7:5.
Djokovic sló Federer út
Novak
Djokovic