Morgunblaðið - 31.01.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 2020
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Úlpa
Jakki
kr. 4.000
St. 38-54
Úlpa
Jakki
r. 5.000
St. 38-54
Gerið verðsamanburð
AÐ LÁGMARKI
50%
AFSLÁTTUR
af öllum
vörum
ÚTSALAN Í FULLUM GANGI
k
Leyndarmál
Matarkjallarans
Tryggðu þér borð á
www.matarkjallarinn.is
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Kvenfélagasamband Íslands, KÍ,
var stofnað 1. febrúar 1930 og í til-
efni 90 ára afmælisins munu kven-
félög um allt land standa fyrir söfn-
un með það að markmiði að safna 36
milljónum króna til 1. febrúar 2021.
Kvenfélögin og KÍ sinna líknar-,
mannúðar- og menningarstarfi,
fræðslu- og námskeiðahaldi og safna
fé meðal annars til tækjakaupa fyrir
sjúkrahús og skóla. Í samantekt KÍ
kemur fram að kvenfélögin söfnuðu
og gáfu um einn milljarð króna
2006-2016 til góðra málefna og sam-
kvæmt skýrslum lögðu þau um 65
milljónir króna til samfélagsins
2018.
Bakhjarl Landspítalans
Kvenfélagskonur hafa verið bak-
hjarl Landspítalans frá stofnun
hans og staðið fyrir söfnunum til
tækjakaupa. Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin hefur tileinkað hjúkrunar-
fræðingum og ljósmæðrum nýhafið
ár og tilgangurinn með söfnuninni,
sem hefst á morgun, er að safna fyr-
ir tækjum og hugbúnaði sem þeim
tengjast. Útbúnaðurinn á að nýtast
konum um allt land, hvort sem er
við meðgöngu og fæðingu eða vegna
skoðana í tengslum við kven-
sjúkdóma. Tækin auka öryggi í
greiningum og geta komið í veg fyr-
ir að senda þurfi konur landshluta á
milli vegna ýmissa óvissuþátta. Lið-
ur í söfnuninni er sala á armböndum
sem í eru grafin gildi sambandsins,
kærleikur, samvinna og virðing.
KÍ er samstarfsvettvangur og
málsvari kvenfélaga landsins. Um
5.000 félagar í 154 kvenfélögum inn-
an 17 héraðssambanda eru í þessari
fjölmennustu kvennahreyfingu hér-
lendis. Guðrún Þórðardóttir hefur
verið forseti frá 2015 en áður var
hún varaforseti frá 2012.
Ætla að safna 36
milljónum króna
Kvenfélagasamband Íslands 90 ára
KÍ Skrifstofan er á Hallveigar-
stöðum við Túngötu í Reykjavík.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Herjólfur hefur í vikunni siglt á hreinu raf-
magni frá Vestmannaeyjum í Landeyjahöfn
og hefur gengið vel að sögn Guðbjarts Ell-
erts Jónssonar, framkvæmdastjóra Herjólfs.
Skipið er nú hlaðið yfir nótt og á milli ferða
með landrafmagni í Eyjum, en hlaðið á vél-
um skipsins við bryggju í Landeyjum. Guð-
bjartur segist vonast til að sem allra fyrst
verði hægt að ljúka stillingum, forritun og
öðrum frágangi við hleðslukerfið í Land-
eyjum.
Meira en að setja kló á snúru
Guðbjartur segir að það sé allra hagur að
hægt verði að keyra skipið á rafmagni, en
Herjólfur er tvíorkuskip, sem getur bæði
gengið fyrir rafmagni úr landi og dísilvél.
Hugsanlega megi ljúka frágangi á hleðslu-
búnaði í Landeyjahöfn á tveimur eða þrem-
ur dögum, en finna þurfi tíma sem henti sér-
fræðingum frá ABB og Stemmann Technik
og öðrum þeim sem koma að verkefninu.
Um leið séu menn að meta hvernig til hefur
tekist með hleðslu rafgeyma í Eyjum og
siglingu fyrir rafmagni.
„Þetta er meira en að setja nýja kló á
snúru og stinga í samband,“ segir Guð-
bjartur. „Búnaðurinn er sjálfvirkur í tíu
metra háum turnum og á þeim eru armar
sem tengja hleðslubúnað á milli skips og
lands. Þrívíddaraugu lesa staðsetningu á
móttakaranum í skipinu og armurinn stillir
sig af í samræmi við það. Búnaðurinn tekur
mið af flóði og fjöru og hreyfingu í höfninni
þannig að svigrúmið til að tengjast er nokk-
uð mikið. Þessu fylgir töluverð forritun og
tengingar sem þurfa að vera í lagi svo allt
gangi upp,“ sagði Guðbjartur sem í gær-
morgun var á leið með Herjólfi frá Land-
eyjahöfn til Eyja í rjómablíðu.
Ekki búnaður í Þorlákshöfn
Nýr Herjólfur kom til landsins 15. júní í
fyrra og hóf áætlunarsiglingar 25. júlí. Guð-
bjartur segir að vel hafi gengið að fylgja
áætlun í Landeyjahöfn og það hafi verið
komið fram í desember þegar veður fór að
setja verulega strik í reikninginn. Ótíð hafi
haldið áfram í janúar fram undir þetta og
hafi því talsvert verið siglt í Þorlákshöfn síð-
ustu vikur. Auk veðurs í Landeyjahöfn hafi
þurft að taka tillit til viðvarana Veðurstof-
unnar um færð á vegum landsins. Meðan
siglt er í Landeyjahöfn eru farnar sjö ferðir
á dag á milli lands og Eyja, en tvívegis ef
siglt er til Þorlákshafnar. Ekki stendur til
að setja upp hleðslubúnað í Þorlákshöfn og
segir Guðbjartur kerfið miða við að hægt sé
að sigla í Landeyjahöfn allan ársins hring.
Sjálfvirk hleðsla og þrívíddaraugu
Vonast til að hleðslubúnaður fyrir Herjólf
verði tilbúinn sem allra fyrst í Landeyjahöfn
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Rafmagn Herjólfur hlaðinn við bryggju í Vestmannaeyjum, en þar ræður sjálfvirkni ríkjum.