Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2020, Side 6
Einhvern tímann las ég athyglis-verða frásögn um rafmagns-leysi í New York. Blaðamaður
kortlagði daginn hjá íbúa á efstu hæð í
skýjakljúfi. Þegar hann yfirleitt
komst út af heimili sínu mátti hann
þakka fyrir að komast aftur til síns
heima í lyftulausu háhýsinu. Allir þeir
sem áttu við einhverja kvilla að stríða
voru hins vegar innilokaðir. En heim
kominn, við illan leik eftir stigana, tók
ekki betra við. Þegar átti að nærast
kom í ljós að maturinn var að uppi-
stöðu til niðursoðinn dósamatur, dósa-
opnarinn rafknúinn og eldavélin að
sjálfsögðu einnig. Erum við þá ekki
farin að minnast á vandræðin sem
urðu á sjúkrahúsinu, í lestunum og yf-
irleitt í samgöngukerfinu þegar þar
slokknaði á öllu. Hvergi grænt ljós í
rafmagnsleysi. Það segir sig sjálft.
Það er ekki að undra að menn vilji
telja raforkuna til innviða í samfélag-
inu – bresti þeir innviðir brotnar
margt sem á þeim hvílir.
Elías Elíasson, sérfræðingur í
orkumálum, lengi vel lykilmaður hjá
Landsvirkjun, skrifaði góða grein í
Morgunblaðið nú rétt fyrir hátíðir.
„Eftir storminn“ hét hún. Elías ber
saman Ísland fyrr og nú. Hve mjög
við erum orðin háð raforkunni borið
saman við aðstæður fyrir hálfri öld
eða svo. Hann ber líka saman raf-
orkukerfi á harðbýlu Íslandi og síðan
í Evrópu yfirleitt: „Þessi munur á því
að rafvæða Ísland og Evrópu var að
koma betur og betur í ljós á síðari
hluta aldarinnar sem leið og stjórn-
málamenn fylgdust vel með og voru
með í ráðum þegar þurfti. Þar varð
breyting á með nýjum raforkulögum
2003, þegar innleidd voru lög ESB
um markaðsvæðingu raforkunnar.
Þar með höfðu stjórnmálamenn
minni möguleika á að fylgjast með og
þeim virðist ranglega hafa verið talin
trú um að markaðurinn mundi sjá
fyrir nægu öryggi. Þeir sofnuðu á
verðinum. Eitthvað hafa þeir rumsk-
að við veðrið nú …“
Á undanförnum árum hefur al-
menningur fylgst með því hvernig
smám saman er verið að búta raf-
orkukerfið niður í samkeppnishæfar
einingar. Þetta sjáum við öll á raf-
magnsreikningunum okkar sem ú
koma frá aðskiljanlegum þáttum
framleiðslu, dreifingu og smásölu á
raforkunni en samanlagt hefur kostn-
aður neytandans hækkað jafnt og
þétt. Því er haldið að okkur að allt sé
þetta gert í þágu neytendaverndar og
gagnsæis. Þetta eigum við hins vegar
mörg erfitt með að skilja og í þessu
efni talar Þórarinn Eldjárn ljóðskáld
alla vega fyrir mig þegar hann yrkir
um hin gagnsæju ferli:
Mér barst um gagnsætt ferli fregn,
fannst þó vandinn meðða
að það var alveg glært í gegn,
ég gat því ekki séðða.
Opinskátt er nú talað um frekara
niðurrif raforkukerfisins að kröfu
fjárfesta sem flögra jafnan yfir þegar
þeir skynja sláturtíð í vændum. Hver
lái þeim, því nú vita þeir að lögin eru
þeirra megin og þar standa stjórn-
völdin einnig. Með samþykkt orku-
stefnu Evrópusambandsins síðast-
liðið haust ákvað meirihluti Alþingis
að takmarka enn beina aðkomu
Rafmagnið rætt í þjóðaröryggisráði
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is ’
Opinskátt er nú talað
um frekara niðurrif raf-
orkukerfisins að kröfu fjár-
festa sem flögra jafnan yfir
þegar þeir skynja sláturtíð í
vændum. Hver lái þeim,
því nú vita þeir að lögin eru
þeirra megin og þar standa
stjórnvöldin einnig.
lýðræðisins að raforkugeiranum.
En hvað er þá til ráða eftir storm-
inn? Svarið er komið. Ríkisstjórnin
ætlar að taka málið föstum tökum í
Þjóðaröryggisráðinu! Til að vinda of-
an af markaðsvæðingunni? Nei, ald-
eilis ekki. Það á að ræða leiðir til að
ná í hluta af væntanlegum arði af
markaðsvæddri raforkunni til sam-
félagsins svo styrkja megi innviðina.
Svona getur kapítalisminn leikið fólk.
Líka eina ríkisstjórn, sem nú hefur
tamið sér aðferðafræði og tungutak
hans í einu og öllu.
En þar sem vikið var að rafmagns-
leysi í New York má gjarnan geta
þess að í fáum iðnvæddum ríkjum
heims eru innviðir samfélagsins jafn
veikburða og í Bandaríkjunum.
Hvers vegna skyldi rafmagnsleysi
nánast verða viðvarandi jafnvel á
þéttbýlum svæðum þar þegar veður
gerast válynd? Gæti skýringin verið
sú að fjárfestar sem eiga raforku-
fyrirtækin tími ekki að verða af arði
til þess að treysta innviðina?
Ég hef grun um að erfitt gæti
reynst íslensku þjóðaröryggisráði að
ná í arðinn í markaðsvæddu raf-
orkukerfi. En þá þarf að spyrja hvers
vegna við eigum þetta ekki bara sjálf
og skipuleggjum framleiðslu og dreif-
ingu á rafmagni í þágu samfélagsins
og látum allt tal um arðsemi og gróða
lönd og leið?
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2020
Í fyrra fór ég í fyrsta sinn til útlanda til umjólin. Ég man ég skrifaði um það hvernigmér leið eins og svikara. Yfirgefa íslensk-
ar jólahefðir sem sannarlega hafa markað mig
sem manneskju. En ég gerði það aftur. Og ég
get sagt í þennan hóp: Ég sé ekki eftir neinu.
Ég held að Baggalútur hafi nokkurn veginn
neglt þetta:
Af veðri og vindum,
skafrenningi blindum,
af slyddu og sköflum,
úrkomu á köflum,
af stormi og hríðum,
gammosíum síðum …
Nú hef ég fengið upp í kok af því.
Má ég heldur biðja um jólafrí
sötrandi kamparí
suður á Kanarí.
Ég geri mér grein fyrir því að í huga
margra er ótrúlega plebbalegt að vera á Kan-
arí um jólin. Ég sætti mig við það. Ég var ekki
einu sinni á Tene, sem mögulega er töff í ein-
hverjum hverfum á höfuðborgarsvæðinu. Ég
var á Gran Canaría með gamla fólkinu. En
það er meiriháttar. Ég vissi það og ég veit það
jafnvel betur núna.
Á nýársdag fórum við út að borða með
tengdó, sem hafa ákveðið að segja skilið við
norðlenskan snjómokstur og ganga mót sól-
inni hálft árið.
Við fórum á kínverskan stað rétt fyrir ofan
bækistöð íslenskra eldri borgara, Yumbo
Center. Það er reyndar alveg sérstakur stað-
ur sem ég skrifa kannski um seinna. Hann á
það að minnsta kosti skilið.
Nema. Ég var sem sagt á þessum kínverska
stað, Slowboat. Hann er ekkert venjulegur.
Sennilega hefði það átt að vera einhver vís-
bending að á stórum skjá í miðjum salnum var
Helgi Björns að syngja. Það má segja margt
um Helga en hann er ekki það fyrsta sem
manni dettur í hug þegar maður nefnir Kína.
Ekki frekar en Vilhjálmur Vilhjálmsson sem
hljómaði af miklum krafti frá þessum stað
degi áður, þegar við gengum þar framhjá.
Matseðlar voru á nokkrum tungumálum.
Þeirra á meðal íslensku. Sem, eftir að hafa
keyrt hringinn í sumar og talað við útlenska
afgreiðslumenn, maður kann að meta. Það er
nefnilega ekkert sjálfgefið að finna íslenskan
matseðil á hringferð um Ísland.
Eins og þetta hafi ekki verið nóg þá er eitt-
hvað fallegt við það þegar Kínverji, sem lík-
lega hefur aldrei komið til Íslands, heilsar á
íslensku og segir svo: Takk kærlega fyrir og
verði þér að góðu. Að sjálfsögðu með þessum
hefðbundna austurlenska misskilningi á r og l.
Hér er hægt að skipta fólki í tvo hópa. Ann-
ars vegar eru þeir sem finnst þetta hallær-
islegt, eitthvað rosalega óútlandalegt og nátt-
úrlega plebbalegt. Ég er ekki þar.
Í mínum huga er þetta skemmtilegt og virð-
ingarvert. Hér er fólk sem hefur lagt mikið á
sig til að taka vel á móti þessu flóttafólki ís-
lenska veðurfrábrigðisins. Og við eigum að
kunna að meta það.
Alveg eins og ég sé fegurðina í því að sitja á
Vindmyllupöbbnum með grindvískri áhöfn að
horfa á Manchester United. Áhöfnin vel að
merkja í búningum og ekki útlilokað að ég
hefði viljað skipta einhverjum af þeim inn á.
En þetta er sem sagt staðan. Ég hef, tvö ár í
röð, haldið jólin á eyju undan ströndum Afr-
íku. Fyrir að hafa borðað einstaklega ójóla-
legan mat, drukkið ódýran bjór, gengið um í
stuttbuxum í desember, ekki hlaupið um eins
og hauslaus hæna að redda síðustu jólagjöf-
unum og margt fleira ætti sennilega að setja
mig á válista handhafa íslenskra vegabréfa.
En ég sé ekki eftir neinu..
’Sennilega hefði það átt aðvera einhver vísbending að ástórum skjá í miðjum salnum varHelgi Björns að syngja. Það má
segja margt um Helga en hann er
ekki það fyrsta sem manni dettur
í hug þegar maður nefnir Kína.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Jól á Kanarí II
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Úrval af rafdrifnum
hvíldarstólum
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Skapið varð jafnara og hitakófi
„Ég er svo ánægðmeð Femarelle a
mínar vinkonur og ég veit að nokk
Femarelle hefur hjálpaðmér alveg
líðanminni“.
Valgerður Kummer Erlingsdóttir
Femarelle vörurnar eru náttúruleg lausn
fyrir konur sem finna fyrir einkennum vegna
hormónabreytinga
Rannsóknir sýna að þær geti slegið
á einkennin og einnig unnið gegn
beinþynningu
Recharge
FEMARELLE RECHARGE 50+
■ Slær hratt á einkenni (hitakóf og nætursviti minnka)
■ Stuðlar að reglulegum svefni
■ Eykur orku
■ Eykur kynhvöt
■ Hefur engin áhrif á vef í brjóstum eða legi