Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2020, Blaðsíða 10
Elsku Ljónið mitt, þetta verður uppbyggjandi ár sem kennir og sýnir þér að þú hafir miklu meiri hæfileika en þú heldur og þú átt eftir að nýta þér það til að efla og gera líf þitt skemmtilegra. Febrúarmánuði fylgir sérstakur máttur fyrir þig og í því er svo mikilvægt að þú vitir hver þú ert og hvert þú ert að fara, því þú kemur að U-beygju sem breytir lífinu eða lífsspilunum þér í hag. Þannig að þú finnur hjá þér meiri aga en þú hefur áður fundið og þú verður staðráðinn í að láta lífið gerast á réttan máta. Það versta sem hefur komið fyrir þig framkallar oft það besta sem þú lendir í, svo þegar þú upplifir að þú getir þakkað fyrir það slæma sem fyrir þig hefur komið ertu orðinn sig- urvegari. Þú rifjar upp gamla drauma og sérð að einhverjir þeirra eru að verða að veruleika og þú verður hálfhissa á þeim krafti sem þú færð fyrstu mánuði ársins, svo skoðaðu vel að nýta þér þær gjafir. En mundu að einu skiptin sem orðið árangur kemur á undan orðunum vinna eða erfiði eru í orðabók. Maímánuður lokar þeim leiðindum sem þér hefur fundist þú hafa verið að takast á við og nýir, bjartari og betri möguleikar opnast í júní og júlí og þá er svo mikilvægt þú hafir það að leiðarljósi að hjálpa þeim sem þurfa á þér að halda. Það verður svo mikill tilfinningahiti í kringum ástfangin Ljón, það er hreinlega eins og þau ráði sér ekki fyrir kæti og eru þar af leiðandi með þetta extra sem þarf til að fanga til sín ástina. Þú ert segulmögnuð vera og hver einasta fruma í líkama þínum er rafhlaða og laðar það að sér sem þú hugsar um. Ágústmánuður er kraftmesti mánuður ársins, þar tekur þú góðar ákvarðanir, færð ólíklegasta fólk með þér í lið og talan þrír er sterkt yfir þessu ári hjá þér og táknar hún mikla skemmtun og list og árangur í hverskonar sköpun sem er. Þetta er ár sem sendir þér gæfu og getu til þess að bregðast rétt við þegar þú þarft og þú gefur orðum þínum meiri mátt til þess að sannfæra þig og aðra, sem hjálpar þér við töluvert miklar lífs- stílsbreytingar sem verða í byrjun ársins 2020. Peningar verða í talsvert miklu flæði, en ekki eyða um efni fram heldur safnaðu sjóði, því þá líður þér betur. Árangur í sköpun LJÓNIÐ | 21. JÚLÍ 21. ÁGÚST Elsku Krabbinn minn, þetta verður óvenjulegt og spennandi ár sem hefur margar hliðar, þú verður svoleiðis í essinu þínu strax í janúar, meðal annars vegna þess að fullt tungl er þann 10. janúar í þínu merki, Krabbamerkinu. Ótrúlegustu draumar eru að verða að veruleika og það er svo dásamlegt á fullu tungli að skrifa niður markmið ársins og þá bara það sem þú vilt að gerist, því það hefur verið sannað að fullt tungl hefur mikil áhrif á okkur mennina, svo nýttu þér afskaplega vel þennan dásamlega janúar- mánuð sem er að mæta þér. Það eru eins og tveir ásar eða talan 11 sem lýsa þér leið í gegnum árið og hún táknar það að ekkert getur stoppað þig á þessu áhrifaríka og merkilega ári, nema þú bregðir sjálfur fyrir þig fæti, svo þú skalt vanda allt sem þú segir og treysta ekki nokkrum manni fyrir neinu sem getur spillt fyrir þér, því þjóð veit ef þrír vita, segir máltækið. Þetta ár verður reyfarakennt, öðruvísi en undanfarin ár, meira spennandi, dramatískara og færir þér meiri velferð en þú áður hefur upplifað. Maí og júní opna fyrir þér nýjar dyr sem þú bjóst ekki við að þú gætir opnað og þú verður sérstaklega hissa hversu auðvelt það reynist þér, svo mundu að fagna og í hvert skipti sem þú fagnar gengur þér betur, svo gleymdu því ekki. Júlí og ágúst verða svo ljúfir mánuður þar sem þú nærist andlega og byggir upp kraft. Talan tveir er líka sterk yfir þér og tvö þúsund og tuttugu er tvisvar sinnum með töluna tvo, svo þetta er sannarlega happaárið þitt og þó þér finnist að þú sért alveg að renna fram af björg- um, þá er ekkert annað að gerast en gott færi og allt bjargast áður en dagurinn rís. Þér finnst þú verða svo spenntur, en þessari spennu fylgir töframáttur og á þessu ári gengurðu frá mikilvægum hlutum eins og samningum, eða ert að skrifa undir pappíra og það verða svo miklir og merkilegir töfrar í kringum það. Þetta ár tengir saman ástina svo það verður töfrum líkast, gamlar ástir endurnýjast, nýjar finnast svo útkoman verður góð. Seinniparturinn af árinu verður eins og góður áramóta- eftirréttur, allskonar bragðupplifanir sem framkalla margslungnar tilfinningar og þú verður saddur og sæll og sáttari en nokkru sinni fyrr. Reyfarakennt ár KRABBINN | 21. JÚNÍ 20. JÚLÍ 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2020 Árið 2020 Elsku Nautið mitt, þetta er árið sem þú lokar og gerir allt sem þú hefur frestað hingað til, horfist í augu við það sem þú hræðist og ryður óttanum í burtu eins og hann væri smá gola. Þú verður steinhissa á sjálfum þér hvers vegna þú hefur ekki gert þetta allt saman fyrir löngu, en 2020 er svo sannarlega þinn tími til að klára, læra og loka því sem þú vilt ekki hafa, byrja hægt og rólega, eða hratt og örugglega með nýju markmiðin sem munu blasa við þér þegar það gamla og leiðinlega fýkur á brott. Þú átt eftir að finna nýjar hliðar á þér, taka líkamann í gegn og þá fylgir hið andlega í kjölfarið, þetta á sérstaklega við fyrstu sex mánuði ársins. Þá finnst þér eins og þú sért ný manneskja og þú átt eftir að gera hlutina á þinn hátt og brýst út úr vana og venjum og átt eftir að sanna þig fyrir bæði sjálfum þér og öðrum og munt dansa við þína eigin músík á þessu ári og annarra afskiptasemi mun ekki hamla þér. Í ástinni fellur fólk kylliflatt fyrir þér, þú ert fæddur til þess að láta elska þig, svo það er í þínu valdi hversu mikið þú leyfir ástinni að vera og hversu langt hún fær að ganga, en sum ykkar nenna ástinni alls ekki og hrista bara höfuðið ef einhver bendir á möguleikana, en ástin er eins og hnerri, þú getur ekki stoppað hana. Þetta er sérstaklega gott ár fyrir skapandi Naut, því hugmyndirnar flæða til þín sem aldrei fyrr og þegar þér finnst eitthvað þrengja að þér, þá akkúrat færðu rétta kraftinn til að framkvæma, gera og breyta. Seinniparturinn á árinu gefur uppskeru og gleði, nokkur átök verða þó innan fjöl- skyldunnar en það er samt ekkert sem þú átt að leyfa að láta hindra þig á þessu and- lega og skemmtilega ári sem þú ert að fara í gegnum. Peningar koma og fara á árinu, en alltaf þegar þig vantar þá, geturðu teygt þig eftir þeim, svo þetta er gjafmilt ár þar sem þú gefur mikið og færð mikið til baka, eins og fullkomið Yin&Yang. Út úr vana og venjum NAUTIÐ | 21. APRÍL 20. MAÍ Elsku Tvíburinn minn, þetta verður afar, afar merkilegt ár og þó þér finnist að mörgu leyti ekki vera nógu mikið að gerast í upphafi ársins, allavega ekki það sem þú hafðir óskað þér, þá hefur lífið og alheimurinn lag á því að senda manni gjafirnar öðruvísi en þær voru pantaðar. Það er búið að vera svo ofboðslega mikið að gera hjá þér á síðasta ári og þetta nýja ár eflir líf þitt til muna og fólk á eftir að taka meira og betur eftir þér, ef það er hægt. Þú hefur nefnilega svo miklu meiri áhrif en þig grunar og allt sem þú hefur hugsað og sagt í gegn- um tíðina er skráð í skýin, og eftir því sem þú leyfir þér að óska stærra og vera jákvæðari þá gengur allt svo miklu, miklu betur. Næstu mánuðir gefa þér miklu meiri stjórn á huganum eða heilanum, því sálin er nefnilega for- stjórinn og þú þarft að þagga niður í þessum ofurhugsandi heila, hugsanirnar koma frá heilanum og í 80% tilfella hugsarðu það sama og þú hugsaðir í dag og gerir það sama og þú gerðir í gær. Þú þarft að gefa skýrar skipanir NEI og út með þær hugsanir sem eru meiðandi, því það er ekk- ert að pína þig eins mikið eins og þessir litlu blindfullu kallar í höfðinu á þér sem muna ekkert sem þeir sögðu og þeir eru með sömu skilaboðin aftur og aftur. Þegar þú skilur að þú ert forstjórinn, en sú tilfinning er að opnast fyrir þér á næstu mánuðum, getur þú séð betur og betur hversu mikil áhrif þú hefur sjálfur á hamingjuna. Í apríl byrjar þú á nýjum hlutum, það er svo margt að gerast í apríl og maí, sem tengist litum regnbog- ans, eitthvað sem kemur á óvart, lætur hjarta þitt léttast og þér finnst þú sért að springa úr hamingju. Ástin er í öllu sínu veldi að skjóta sínum örvum að þér, og hún getur að sjálfsögðu tengst mörgu, en samt svo sannarlega alltaf því sem þú elskar og sumarið kemur snemma hjá þér og þess vegna leikurðu á als oddi. Talan einn er þín lífstala á þessu ári og táknar það að þú munt verða opinn fyrir nýjum hlutum, táknar hugrekki og að þú munir sigrast á hindrunum. Þú ferðast mikið á þessu ári og nýir staðir verða fyrir valinu, þú átt eftir að græða svo margfalt í þessum ferðalögum eða ferðalagi, því þú kynnist nýju fólki sem breytir lífssýn þinni eða hefur mikil áhrif á þig, þannig að þegar haustið og veturinn birtist ertu svo miklu betur undirbúinn, því þér líður svo vel og þegar manni líður vel er maður hamingjusamur og þannig tæklar þú árið. Þú ert forstjórinn TVÍBURINN | 21. MAÍ 20. JÚNÍ

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.