Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2020, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2020
Elsku Meyjan mín, Júpiter verður mikið á ferðalagi í lífi þínu á þessu ári, sér-
staklega tengt fjölskyldu og heimili, þar er að koma mikil velferð. Aprílmánuður er eini mánuðurinn
sem ég ætla að vara þig sérstaklega við, því þar myndast allskyns hindranir og þér finnst þú vera
föst, svo ekki taka neinar mikilvægar ákvarðanir í þeim mánuði, heldur leyfðu honum bara sigla eins
rólega framhjá og þér er unnt.
Strax og hinn dásamlegi maí birtist þér, þá bregðurðu fyrir þig betri fætinum, ákveður eða ferð í
ferðalög sem eru svo einstaklega tær og falleg og færa þér birtu og yl í lífið og þín einstaka gjafmildi
skilur eftir bros á vörum allra þeirra sem þú hjálpar.
Sumarið tengist ástinni og áskorunum um að taka áhættu, svo ef þú hefur áhuga á að bjóða ást-
argoði eða gyðju í líf þitt, þá er það skrifað í skýin að sumarið alveg fram í lok september er þinn
tími í ástinni.
Það verður mikill eldmóður í áhugamálum þínum og þeir sem eru að keppa í gamni eða alvöru,
standa uppi með bikarinn, þeim jafnvel alveg að óvörum. Þú verður búin að undirbúa þig svo svaka-
lega vel fyrir veturinn og skipuleggja svo skemmtilega að aðalatriðin munu ganga upp, en önnur
geta tekið örlítið lengri tíma.
Þú verður í essinu þínu með fjölskyldunni, ástinni og vinum og nýtur afburða vinsælda, meira en
aðrir geta státað af, en sýndu auðmýkt og lítillæti.
Þú græðir á fjárfestingu eða færð greitt fyrirfram fyrir eitthvað sem verður þér ekkert svo erfitt
að framkvæma, en það eina sem getur bitið þig, elsku hjartað mitt, er þráhyggja, svo hugsaðu um
eitthvað sem þú þráir endalaust, þannig að ekkert annað komist að, því það er góð þráhyggja.
Það getur verið þannig að þér finnist ekkert vera að gerast hjá þér svo árum skiptir og þú verður
jafnvel pirruð út í stjörnuspána, en þá er svo mikilvægt að þú sjáir að orkan, hamingjan eða ferða-
lagið kemur ekki og sækir þig, heldur þarftu að vera í hringiðu lífsins og bera ábyrgð persónulega á
mjög mörgu. Skelltu þér núna á fyrsta farrými, því þetta er svo sannarlega árið sem þú munt njóta
lystisemdanna.
Þú fyrirgefur gamlar erjur og ósætti og þér líður svo miklu betur, verður betri við maka þinn,
kærasta eða vini og þá líður þér ennþá betur og verður ekki eins stressuð yfir peningamálum eins og
þú hefur oft verið. Svo gæfan verður þér hliðholl og heldur utan um þig í öllum þeim aðstæðum sem
þú ferð í gegnum að það er svo sannarlega hægt að segja gleðilegt ár, því þannig rokkar 2020 til þín.
Eldmóður og uppskera
MEYJAN | 22. ÁGÚST 22. SEPTEMBER
Elsku Vogin mín, þú ert léttasta loftmerkið og tengir þig þar af leiðandi svo vel
við það að búa á Íslandi eða öðrum slíkum lítt spennandi stöðum og þér hentar ekki logmolla alla
daga, þess vegna ert þú í óðaönn að skapa skemmtilegri tíðni fyrir þig.
Þú munt mynda hóp eða hópa á árinu eða ganga í slíka, með það að leiðarljósi að skipta máli
plús að hafa gaman og þetta mun laða til þín nýtt fólk sem eflir gleði þína og ánægjuvog. Í upphafi
gætirðu verið eitthvað kvíðin yfir breytingum, en allir taka þér svo vel að það er eins og þú sért
klöppuð inn á sviðið og líka þegar þú yfirgefur það.
Það eru búin að vera mikil kaflaskil hjá þér og þú ferð inn í 2020 með báðar hendur á stýrinu
því þarft ekki að beygja þig fyrir neinum. Það er mikið frelsi í þessu ári sem táknar óvenjumikið
af ferðalögum og allskyns verkefnum sem gefa þér að vera mikið á fartinni og nýir staðir blasa
við þér og þú verður svo niðursokkin í þetta allt saman fyrstu mánuði ársins að þeir munu líða
eins og örskot.
Maímánuður gefur þér öryggi og þú gerir vel við svo marga, en sumarið gæti líka tengst vinnu
og allskonar verkefnum sem eru spennandi því lífstalan fimm skreytir þetta tímabil. Þér finnst
svo gaman að öllu sem þú tekur þér fyrir hendur og ég sé að þú klappar sjálfri þér á bakið og þótt
allt þetta fólk sé í kringum þig, þá þarftu í raun ekki á neinum að halda nema sjálfri þér.
Ágúst, september, nóvember og desember fullkomna líf þitt, því þá gerirðu heimili þitt á
heimsklassavísu notalegt og nostrar bæði við sjálfa þig og heimilið og býður ástinni í partí. Þarna
er Venus að skjóta ástarörvum sínum í gríð og erg, svo nýjar ástir kvikna með sprengikrafti, ást
sem er til staðar verður líkt og hún hafi fengið vítamínsprautu og endurnýjast, en sú ást sem hef-
ur fært þér sorg hvellspringur eins og gamalt dekk og verður ekki hægt að gera við, svo miklar
breytingar, kjarkur og kraftaverk mæta þér, elskan mín, á þessu tímabili.
Þetta ár verður að öllu leyti skemmtilegra en síðasta ár og gefur meiri möguleika í sambandi
við vinnu og heimili og ýmsar Vogir taka undir sig stökk og flytja til útlanda í nám eða bara til að
dvelja, en allar komið þið aftur, sama hversu langan eða stuttan tíma þið dveljið á erlendum slóð-
um.
Byrjaðu þetta blessaða ár á því að fá þér kassa og skrifaðu í hann á litlum allskonar blöðum
fyrir hvað þú getur verið þakklát. Kallaðu svo þennan kassa ÞAKKLÆTISKASSANN, því þakk-
læti hjálpar þér nefnilega að komast áfram í einu og öllu
Með báðar hendur á stýri
VOGIN | 23. SEPTEMBER - 22. OKTÓBER
Elsku Sporðdrekinn minn, þú ert að fara inn í litríkt ár sem mun leiða þig
áfram þangað sem þér líður best. Þetta tengist því sem þú ert að gera og jafnvel líka hvar þú vilt
vera, þú getur farið yfir svo stór fjöll á þessu ári því þú stendur upp og tekur þau skref sem þú
þarft að taka, óháð því að treysta á nokkurn til að hjálpa þér.
Þú ert svo sterkur þegar þú skilur að það besta sem þú gerir er að stóla á sjálfan þig, því þá
margfaldast getan sem þú hefur og allt fer svo miklu betur en ef þú leggur líf þitt eða örlög í
hendur annarra.
Þú sérð nýja möguleika birtast upp úr vandamálunum sem hafa verið síðustu mánuði eða þú
skynjar að séu yfirvofandi, en þessi vandamál koma nefnilega með lausnina til að láta þér líða bet-
ur og geta meira. Þú hefur áhyggjur af allt of mörgu í kringum fjölskyldu þína, en það eina sem
þú getur gert til þess að allt gangi vel er að efla sjálfan þig.
Í ástinni þarftu að hafa örugga undirstöðu, einhvern sem hægt er að stóla á og gefur þér jarð-
tengingu, og ef allt er búið að vera út og suður og í vitleysunni, skaltu loka á þá tengingu líkt og
þú sért að henda út sjúkdómi, því þetta er ekki ást. Hinsvegar geturðu spunnið fallegasta vefinn
og lokkað til þín þann sem þú átt skilið.
Það mætti segja að 2020 væri ár Sporðdrekans, en ef þér líður illa og lokar sjálfan þig af, þá
finnurðu nýjar leiðir til að opna fleiri hurðir og hleypa sólinni inn, en ef þú ert á fullri ferð og læt-
ur ekkert stoppa þig, þá þarftu að muna að þú þarft að sofa, ekki bara hvílast, heldur sofa, það
endurnýjar frumurnar þínar og þá læknar líkaminn sig sjálfur.
Þú þarft ekki að syrgja eða sakna, því ef sú tilfinning er að spila með þér, þá er það söknuður
eða sorg út af einhverju sem var gleði þín, svo þakkaðu fyrir hana. Þetta ár er tími endurnýjunar
og frelsis tilfinninganna og eflingar í sambandi við stöðu eða stétt og þú verður miklu rólegri og
hendir kvíðapúkanum út, svo farðu bjartsýnn inn í þetta ár því það gefur þér alla þá birtu sem
mögulega er hægt að gefa.
Tími endurnýjunar
SPORÐDREKINN | 23. OKTÓBER 22. NÓVEMBER
Elsku Bogmaðurinn minn, það er svo margt búið að vera að gerast hjá þér undan-
farið sem mun sýna þér að örlitlu leyti hvert leiðin liggur 2020 og þú munt sjá að þú kannt leikinn, það
þarf nefnilega að kunna leikinn að lifa, hvenær maður á að segja og hvenær maður á ekki að segja. Þú
munt koma þér út úr öllum þeim aðstæðum sem eru að brenna þig og lifa lífinu til fulls.
Talan sjö er árstalan þín og sumir segja að hún sé heilög tala, en hjá þér táknar hún heppni og
gleði sem er tengd tilfinningum og eflingu andlegra hæfileika og næmni. Þú þarft að fylgja þinni
fyrstu hugsun, sérstaklega næstu tvo mánuði, því þú verður svo sterkur í því að finna lausnir og laga
það sem hefur lagt lykkju á þinn veg.
Ef þú efast um ástina og ert í sambandi, þá mundu það að ef sterkar tilfinningar og ást hafa ein-
hverntímann verið í lífi þínu þá geturðu kallað til þín þær tilfinningar aftur og endurnýjað ástina.
Allt sem þú vilt ná árangri í krefst að sjálfsögðu dálítillar vinnu, margir munu endurnýja sambönd
sín, ný sambönd eru að fæðast í byrjun árs, en það þurfa að sjálfsögðu ekki allir Bogmenn að hafa
aðra manneskju hjá sér til að gera sig heila.
Sumarið verður ljúft og tíðindalítið og þú verður ánægður með það, seinniparturinn á árinu gefur
þér það sem þú hefur verið að bíða eftir og áfanginn verður stærri og merkilegri en þig hefði grunað.
Fjárhagslega lítur árið ágætlega út, en veraldleg gæði og peningar eru svo sterkt inni í lífinu þínu
síðustu sex mánuði ársins. Flutningar gætu markað gæfurík spor fyrir þig, því þér býðst eitthvað
spennandi og öðruvísi húsnæði eða staðsetning fyrir það sem þú ert að gera, af hverju ekki prófa
það? Þú átt ekki eftir að sýna ótta undir neinum kringumstæðum, þú ferð í gegnum þetta ár með
vindinn í fangið og elskar það.
Þú ert kominn með svo mikla visku til að bjarga þér út úr þeim hættum sem að sjálfsögðu eru alls
staðar, því þú átt ekki eftir að taka þetta blessaða líf of alvarlega og ert fæddur á þessa Jörð til að
skemmta þér og hafa gaman. Þetta er árið sem þú stendur upp, spennir bogann og hittir nákvæm-
lega í miðjuna á skotskífunni.
Lifir lífinu til fulls
BOGMAÐURINN | 23. NÓVEMBER 20. DESEMBER
Árið 2020
Áramótaknús
og kossar,
Sigga Kling