Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2020, Qupperneq 29
Gestgjafar Glebs voru hópur
listamanna sem hrifust af þeirri
lífssýn sem tíunduð er í Hreiðars
þætti heimska, stuttri sögu sem
telst til Íslendingaþátta, en þar er
greint frá ævi Hreiðars, manns
sem við fyrstu kynni virðist vera
heimskur en við nánari kynni er ef
til vill klókari og með skýrari sýn
á heiminn en margir sam-
ferðamenn hans. Þessir listamenn
bundust óformlegum samtökum
sem þeir kölluðu Félag Hreiðars
heimska. Upphafsmennirnir voru
Birgir Andrésson og Kristján Guð-
mundsson. Formaður félagsins í
dag er listakonan Rúna Þorkels-
dóttir sem búsett er í Amsterdam.
Þetta munu vera óformleg samtök
sem eru hvergi á skrá og félagatal
er ekki til.
Heimsóknin tekin upp
Gleb var í hálfan mánuð á Íslandi
og öll heimsóknin var tekin upp
ásamt nokkrum dögum í Moskvu.
„Ég kom inn í þetta verkefni að
frumkvæði Finns Arnars Arn-
arsonar og Ásu Thorlacius,“ segir
Ingvar Á. Þórisson, en heimild-
armynd hans um Gleb, Einfaldur
maður, verður sýnd í Bíó Paradís
frá og með miðvikudeginum 8. jan-
úar. Hún var frumsýnd á Skjald-
borgarhátíðinni í fyrra.
Ingvar var mættur á flugvöllinn
að taka á móti Gleb og ferðaðist
með honum um landið næstu tvær
vikurnar. „Gleb kunni vel við sig á
Íslandi og bauðst að koma aftur
sem hann gerði ekki, alla vega
ekki ennþá,“ segir Ingvar sem lýs-
ir Gleb sem sérstökum manni sem
hafi með óvenjulegum hætti tekist
að búa til setningar á íslensku sem
gengu upp – svo vel raunar að úr
varð óformleg bókmenntagrein.
„Auðvitað var þetta öðrum
þræði gjörningur hjá listamönn-
unum en þeir gerðu vel við Gleb
sem skemmti sér vel hérna. Ég
veit hins vegar ekki til þess að
hann hafi fengið neitt svar frá ís-
lenskum konum,“ segir Ingvar
sposkur.
Gleb býr ennþá í Moskvu en var,
síðast þegar Ingvar heyrði af hon-
um, farinn að keyra sjúkrabíl í
stað strætisvagns. „Ég veit ekki
annað en að hann lifi góðu lífi í
Moskvu.“
Gleb Terekhin á íslenskri
grund árið 2005.
Morgunblaðið/Árni Torfason
5.1. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
MÁLMUR Málmbandið Lamb of
God frá Richmond, Virginíu, gefur
sterklega í skyn í stuttu áramóta-
myndbandi á Instagram að nýrrar
plötu sé að vænta á árinu sem var
að byrja. Þar eru félagarnir staddir
í hljóðveri og myndbandinu lýkur á
birtingu lógós bandsins ásamt ár-
talinu. Síðasta plata, VII: Sturm
Und Drang, kom út árið 2015 og
fékk glimrandi dóma. Síðan hafa
þeir Lambungar skipt um trymbil,
Art Cruz er tekinn við kjuðunum af
Chris Adler.
Guðslambið með nýja plötu
Randy Blythe, söngvari Lamb of God.
AFP
BÓKSALA ÁRIÐ 2019
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Um tímann og vatnið Andri Snær Magnason
2 Tregasteinn Arnaldur Indriðason
3 Hvítidauði Ragnar Jónasson
4 Innflytjandinn Ólafur Jóhann Ólafsson
5 Gullbúrið Camilla Läckberg
6 Þögn Yrsa Sigurðardóttir
7 Independent People Halldór Laxness
8 Þinn eigin tölvuleikur Ævar Þór Benediktsson
9 Iceland in a Bag
10 Sumareldhús Flóru Jenny Colgan
1 Þinn eigin tölvuleikur Ævar Þór Benediktsson
2 Barist í Barcelona Gunnar Helgason
3
Orri óstöðvandi
– hefnd glæponanna
Bjarni Fritzson
4
Kjarval – málarinn sem
fór sínar eigin leiðir
Margrét Tryggvadóttir
5
Vigdís – bókin um fyrsta
konuforsetann
Rán Flygenring
6 Handbók fyrir ofurhetjur 4 Elias/Agnes Vahlund
7 Kennarinn sem hvarf Bergrún Íris Sævarsdóttir
8 Leikskólalögin okkar Jón Ólafsson og fleiri
9 Verstu börn í heimi 3 David Walliams
10 Óvænt endalok Ævar Þór Benediktsson
Allar bækur
Barnabækur
Ég verð að við-
urkenna að ég vissi
sáralítið um Rasmus
Kristian Rask þegar
ég rakst á nýja bók
um hann, Hugsað
stórt í litlu landi, eftir
Kirsten Rask innan
um alla staflana í
bókabúð nú fyrir jólin.
Íslenska þýðingin er
ný en bókin kom út
snemma á öldinni í
Danmörku. Ég gerði
auðvitað ráð fyrir því að höf-
undur væri skyldur söguhetjunni
en svo er víst ekki. Sjálfur gaf ég
út bók um jólin og vissi að svo
mikil virðing var borin fyrir
Rask í Frakklandi að Paul Gaim-
ard og leiðangursmönnum hans
þótti heiður að því að hitta
menn á borð við séra Árna
Helgason í Görðum því Rask
hefði orðið fullnuma í íslensku
undir handarjaðri hans á fátæk-
legu prestssetri í sveit.
Rask hafði svo mikil áhrif á ís-
lenska menningu að það má
með ólíkindum teljast; samdi
fyrstu íslensku málfræðina og
var hvatamaður að stofnun Hins
íslenska bókmenntafélags. Svo
snjall var danski málvísindamað-
urinn að hann kunni tugi tungu-
mála og lagði grundvöll að sam-
anburðarmálfræði og hinni
germönsku hljóðfærslu ásamt
öðrum Grimmsbræðra.
En það er persóna Rasks sem
gerir lesturinn áhugaverðan og
hið ótrúlega sambland snilligáfu
og hreinnar geðveiki sem rúm-
aðist í huga hans. Rask var einn
af mörgum snillingum sem
skutu upp kollinum á dönsku
„gullöldinni“ í kjölfar hálfgerðs
hruns Danaveldis í
Napóleonsstyrjöld-
unum ásamt t.d. vís-
indamanninum H. C.
Ørsted, heimspek-
ingnum Søren Kier-
kegaard og æv-
intýraskáldinu H.C.
Andersen. Allir áttu
þeir sammerkt – mis-
mikið þó – að vera
ekki spámenn í sínu
eigin föðurlandi, og
hafa fengið upphefð
sína að utan.
Við lestur bókarinnar var ég í
senn heillaður af þessum marg-
slungna persónuleika og svolítið
svekktur yfir því að höfundurinn
skyldi ekki gera sér þann mat úr
efninu sem það á skilið. Hún
reynir að sigla á milli skers og
báru og tæpa bæði á málvísind-
unum og persónunni en hættan
er sú að hvorugu séu gerð nægi-
leg skil. En Rask er svo magn-
aður að enginn verður svikinn af
lestri þessarar bókar. Og um
leið undrast maður að danska
snillingnum sé ekki gert enn
hærra undir höfði hér á landi ut-
an þröngs hóps fagmanna en
raun ber vitni. Það er svo sann-
arlega við hæfi að bókmennta-
félagið ráðist í þýðingu og út-
gáfu bókarinnar og óhætt að
mæla með henni – Rask stendur
svo sannarlega undir því.
ÁRNI ER AÐ LESA
Daninn sem hugsaði
stórt í litlu landi
Árni Snævarr
er upplýsinga-
fulltrúi hjá
Sameinuðu
þjóðunum fyrir
Norðurlönd.
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 alnabaer.is
GLUGGA-
TJÖLD
alnabaer.is
Úrval af gluggatjaldaefnum, þykk, þunn,
blúndur, kappar og allt þar á milli.
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
Vetrarsól er umboðsaðili
40 ár
á Íslandi
Sláttuvélar
Snjóblásarar
Sláttutraktorar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði