Morgunblaðið - 07.02.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020
B Æ J A R L I N D 1 4 - 1 6 2 0 1 K Ó P AV O G U R S Í M I 5 5 3 7 1 0 0 L I N A N . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
ú t s ö l u l o k
10 - 50% afslát tur af öllum vörum
laugardaginn 8.febrúar
- 2 5 %
r o n a s v e f n s ó f i - s v e f n f l ö t u r 1 4 0 x 2 0 0 c m - V ö n d u ð s p r i n g d ý n a k r . 1 8 9 . 7 0 0 nú kr. 142.275
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Unnið er að undirbúningi þess að
setja upp öryggismyndavélar við
nokkra af stærstu bæjum og þorp-
um Vesturlands. Unnið er að verk-
efninu í samvinnu lögreglu, sveitar-
félaga og Neyðarlínunnar.
Málið hefur verið alllengi til um-
ræðu á Vesturlandi. Jón S. Ólafsson,
yfirlögregluþjónn hjá lögreglustjór-
anum á Vesturlandi, segir að til-
gangurinn sé að auka eftirlit, með
sama hætti og gert er í bæjunum á
höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi,
á Akureyri og víðar.
Myndir eru teknar af öllum bílum
sem aka inn í bæina og út úr þeim.
Myndavélarnar eru vaktaðar hjá
lögreglu sem getur leitað að bílnúm-
erum eða skoðað myndir, ef eitthvað
kemur upp sem þarf að athuga sér-
staklega.
Skagamenn lengst komnir
Verkefnið er lengst komið á Akra-
nesi. Til athugunar er að koma ör-
yggismyndavélum upp í Borgarnesi
og jafnvel víðar í sveitarfélaginu, í
Stykkishólmi, Grundarfirði, Snæ-
fellsbæ og hugsanlega víðar á Vest-
urlandi. Jón segir áætlað að upp-
setning hvers straurs með öllum
búnaði kosti um 1,5 milljónir kr.
Kostnaður við tengingar geti verið
mismunandi og geti bæst við stofn-
kostnað. Hann segir misjafnt hversu
margar vélar þarf á hverjum stað
eða í hverju sveitarfélagi.
Byggðarráð Borgarbyggðar hefur
tekið jákvætt í erindi lögreglunnar
um að ganga til samninga sveitarfé-
laganna, lögreglunnar og Neyðarlín-
unnar um verkefnið.
Öryggismyndavélar
um allt Vesturland
Enginn kemst
óséður inn og út úr
bæjum og þorpum
Morgunblaðið/Eggert
Öryggi Myndavélar vakta ferðir
fólks í mörgum bæjarfélögum.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Frá árinu 2000 hafa 43 skip strand-
að hér við land vegna þess að
stjórnandi skips hafði sofnað, sam-
kvæmt niðurstöðum Rannsókna-
nefndar samgönguslysa. Jón Arilíus
Ingólfsson, rannsóknastjóri sigl-
ingasviðs, segir að meðalvökutími
skipstjórnenda í þessum óhöppum
hafi verið um 24 klukkutímar fyrir
strand, en hámarkið sé 40 tímar.
Jón Arilíus segir þennan fjölda
uggvænlegan og það sé mikil mildi
að ekki hafi orðið banaslys í þessum
skipsströndum, en í nokkrum tilvik-
anna eyðilögðust bátarnir. Hann
segir það aldrei nógsamlega brýnt
fyrir skipstjórnendum að þeir fái
nauðsynlegan hvíldartíma og nýti
þann viðvörunarbúnað sem sé um
borð í bátunum.
Í 41 tilviki á síðustu tveimur ára-
tugum var um að ræða minni báta
með fjóra eða færri í áhöfn, en í
tveimur tilvikum voru skipverjar 10
og 13. Oft hafa óhöpp af þessum
toga verið 1-2 á ári, en í fyrra voru
þau fimm talsins og fjögur bæði
2005 og 2007. Jón Arilíus segir að
margir minni bátanna hafi sótt
mjög stíft en margir þeirra séu nú
með tvær áhafnir. Það sé áhyggju-
efni að á síðasta ári hafi ströndum
fjölgað á ný.
Í nýrri lokaskýrslu siglingasviðs
RNSA er niðurstaðan sú að strand
Mars HU í maí í fyrra megi rekja
til þess að stjórnandi sofnaði. Þrír
menn voru um borð og björguðust
allir en báturinn var á grásleppu-
veiðum í Húnaflóa.
Báturinn losnaði af strandstað en
sökk síðan rétt fyrir norðan höfnina
á Hvammstanga. Bátnum var síðar
lyft upp með belgjum og dreginn til
hafnar þar sem hann var hífður á
land. Þá komu í ljós skemmdir á
stefni bátsins.
Í lokaskýrslu RNSA kemur fram
að upplýsingar bendi til þess að
skipstjórinn hafi verið á fótum í um
20 klukkustundir og þar af um 17
tíma á sjó þegar báturinn strandaði.
Bent er á að samkvæmt lögum um
áhafnir íslenskra fiskiskipa skuli
vera stýrimaður á skipum undir 24
metrum að skráningarlengd ef úti-
vera skips fer fram úr 14 klukku-
stund á hverju 24 klukkustunda
tímabili.
Sofnaði og strandaði 2017
Í ábendingu nefndarinnar er því
beint til skipstjórnarmanna að fara
eftir lögum um mönnun og útivist.
Þá hvetur nefndin stjórnendur til
að nota allan þann viðvörunarbúnað
sem geti komið í veg fyrir atvik sem
þetta. Rifjað er upp í lokaskýrsl-
unni að samskonar atvik og þetta
hafi orðið í júlí 2017. Þá sofnaði
skipstjóri og strandaði sama báti
ekki langt frá strandstaðnum síð-
asta vor. Sérstök ábending nefnd-
arinnar frá þeim tíma er samhljóða
þeirri sem nú var gerð.
Sofandi stjórnandi í 43 ströndum
Meðalvökutími skipstjórnenda í þessum óhöppum um 24 klukkutímar fyrir strand Fimm slík
óhöpp í fyrra Bátur sem strandaði á Húnaflóa síðasta vor strandaði þar einnig fyrir þremur árum
Ljósmynd/Úr skýrslu Rannsóknanefndar samgönguslysa.
Á Húnaflóa Leki kom að Mars HU eftir strand síðasta vor og sökk hann ut-
an við Hvammstanga skömmu eftir að björgunarsveit kom á vettvang.
Rætt var á stöðufundi sóttvarna-
læknis með áhöfn samhæfingarstöðv-
ar almannavarna í gær, vegna kór-
ónuveirunnar, hvort raunhæft væri
að stöðva för ferðamanna eða setja
hópa ferðamanna frá Kína í 14 daga
sóttkví þegar þeir koma til landsins.
,,Er það talið afar erfitt í fram-
kvæmd, m.a. vegna þess að í hverjum
mánuði eru hér þúsundir einstak-
linga með kínverskt ríkisfang en auk
þess má búast við að ferðamenn ann-
arra landa komi hingað til lands frá
Kína,“ segir í stöðuskýrslu frá hópn-
um.
Fram kom á vefmiðlinum visir.is
og í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að
íslensk fjölskylda sem er nýkomin til
landsins frá Kína er í 14 daga sóttkví
heima hjá sér, en sömu tilmæli eiga
ekki við um erlenda ferðamenn sem
dvalið hafa í Kína og koma til lands-
ins.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir sagði í samtali við mbl.is í gær að
þessar ráðstafanir gætu auðvitað
verið íþyngjandi fyrir fólk, en benti á
að einungis væri um tilmæli að ræða,
ekki fyrirskipanir. „Við höfum engin
tök á því, eins og staðan er núna, að
taka fólk með valdi. Það gæti komið
upp sú staða að það þyrfti að gera
það, en þá þarf að ræða það sérstak-
lega. Það er allra sísti kosturinn,“
sagði Þórólfur.
Hann benti einnig á að yfirvöld hér
á landi hefðu ekki úrræði til að kom-
ast að því hvaðan ferðamenn væru að
koma og hvort þeir hefðu verið í Kína
á undanförnum 14 dögum. Í þeim
ríkjum þar sem slíkt hefði verið tekið
upp þyrfti fólk að skrá sig sérstak-
lega áður en það kæmist til landsins,
en það hefði ekki verið gert hérlendis
til þessa. Þá kæmu hingað þúsundir
einstaklinga með kínverskt ríkisfang
í hverjum mánuði, og ógjörningur
væri að setja þá alla í sóttkví.
Eitt hundrað Íslendingar
eru nú staddir í Kína
Að mati borgaraþjónustu utanrík-
isráðuneytisins eru um 100 Íslend-
ingar nú staddir í Kína en sumir
þeirra eru þar búsettir.
Í gærdag hafði sýking af völdum
veirunnar verið staðfest hjá 28.284
einstaklingum og um 564 einstakling-
ar látist eða 2%. Eitt dauðsfall af
völdum veirunnar varð á Filippseyj-
um, sem er eina dauðsfallið enn sem
komið er utan Kína. 1.230 einstak-
lingar eru sagðir hafa náð sér eftir
veikindin skv. stöðuskýrslunni.
omfr@mbl.is, solrun@mbl.is
Ganga lengra en nágrannalönd
Talið er afar erfitt í framkvæmd að stöðva för ferðamanna eða setja hópa ferða-
manna frá Kína í 14 daga sóttkví vegna veirunnar Íslensk hjón eru í sóttkví
Morgunblaðið/Eggert
Viðbúnaður Kórónuveiran hefur
ekki greinst hér á landi.
Byggðarráð
Borgarbyggðar
leggur til við
sveitarstjórn að
Þórdís Sif Sig-
urðardóttir,
starfandi bæj-
arstjóri Ísafjarð-
arbæjar, verði
ráðin sveitar-
stjóri. Tillagan
verður lögð fyrir
fund sveitarstjórnar 13. þessa mán-
aðar.
Þórdís er lögfræðingur. Undan-
farin ár hefur hún starfað sem
sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjár-
málasviðs Ísafjarðarbæjar. Hún er
nú starfandi bæjarstjóri á Ísafirði
eftir að Guðmundur Gunnarsson
hætti. Starfið í Borgarbyggð var
auglýst eftir að bæjarstjórn sagði
Gunnlaugi A. Júlíussyni upp störf-
um í nóvember sl. helgi@mbl.is
Starfandi bæjar-
stjóri á Ísafirði
flyst í Borgarbyggð
Þórdís Sif
Sigurðardóttir