Morgunblaðið - 07.02.2020, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020
Spánn
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Real Madrid – Real Sociedad.................. 3:4
Athletic Bilbao – Barcelona..................... 1:0
Real Sociedad og Athletic Bilbao eru
komin í undanúrslit ásamt Granada og Mir-
andés.
Coca Cola-bikar karla
Bikarkeppni HSÍ, 8-liða úrslit:
ÍBV – FH .............................................. 24:22
Afturelding – ÍR ................................... 38:31
Coca Cola-bikar kvenna
Bikarkeppni HSÍ, 8-liða úrslit:
Fjölnir – Haukar .................................. 20:33
Þýskaland
RN Löwen – Melsungen...................... 30:33
Alexander Petersson skoraði tvö mörk
fyrir Löwen og Ýmir Örn Gíslason kom til
félagsins í gær. Kristján Andrésson er
þjálfari liðsins.
Magdeburg – Hannover-Burgdorf.... 30:30
Gísli Þorgeir Kristjánsson hjá Magde-
burg er frá keppni vegna meiðsla.
Bergischer – Flensburg...................... 20:21
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 5 mörk
fyrir Bergischer og Ragnar Jóhannsson 1.
Balingen – Lemgo ............................... 29:31
Oddur Gretarsson skoraði 7 mörk fyrir
Balingen.
Bjarki Már Elísson skoraði 14 mörk fyr-
ir Lemgo.
Frakkland
Toulouse – París SG............................ 28:36
Guðjón Valur Sigurðsson komst ekki á
blað hjá PSG.
Danmörk
Skanderborg – GOG............................ 29:33
Arnar Freyr Arnarsson skoraði 3 mörk
fyrir GOG og Óðinn Þór Ríkharðsson 2.
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 15 skot.
Svíþjóð
Sävehof – Guif ......................................33:29
Ágústi Elí Björgvinssyni tókst ekki að
verja skot í marki Sävehof.
Dominos-deild karla
Fjölnir – ÍR ........................................... 81:82
Haukar – Tindastóll ............................. 76:79
Grindavík – Þór Þ. ................................ 95:78
Staðan:
Stjarnan 17 15 2 1559:1387 30
Keflavík 17 13 4 1522:1382 26
Tindastóll 18 12 6 1562:1488 24
Haukar 18 11 7 1606:1538 22
Njarðvík 17 10 7 1450:1315 20
KR 17 10 7 1463:1421 20
ÍR 18 9 9 1526:1617 18
Grindavík 18 7 11 1526:1592 14
Þór Þ. 18 7 11 1448:1491 14
Þór Ak. 17 5 12 1460:1620 10
Valur 17 5 12 1354:1475 10
Fjölnir 18 1 17 1517:1667 2
Evrópudeildin
Alba Berlín – Real Madrid ............... 97:103
Martin Hermannsson skoraði 10 stig og
gaf þrjár stoðsendingar fyrir Alba Berlín á
þeim tæpu sautján mínútum sem hann lék.
NBA-deildin
Detroit – Phoenix ............................. 116:108
Toronto – Indiana............................. 119:118
Boston – Orlando.............................. 116:100
Brooklyn – Golden State.................... 129:88
Oklahoma City – Cleveland............. 109:103
Minnesota – Atlanta......................... 120:127
Dallas – Memphis ............................. 107:121
Utah – Denver ...................................... 95:98
LA Clippers – Miami........................ 128:111
Þau stórtíðindi bárust frá Þýska-
landi í gær að þýska handknatt-
leikssambandið hefði ákveðið að
ráða Alfreð Gíslason sem þjálfara
karlalandsliðsins. Í annað sinn á sex
ára tímabili veðja Þjóðverjar á Ís-
lending til að stýra landsliði sínu í
íþrótt sem er ein sú allra vinsælasta
hjá þessari stórþjóð.
Samkvæmt upplýsingum frá
þýska handknattleikssambandinu
verður Alfreð kynntur formlega
sem nýr landsliðsþjálfari í Hann-
over í dag. Frá ráðningu hans var
hins vegar greint á vef þýska sam-
bandsins í gær. Þar kom fram að á
stjórnarfundi á dögunum hefði ver-
ið tekin sú ákvörðun að slíta sam-
starfinu við fráfarandi landsliðs-
þjálfara, Christian Proko.
Þýskaland hafnaði í 5. sæti á EM í
janúar og í 4. sæti á HM í fyrra þeg-
ar liðið lék á heimavelli.
Landsliðið mun koma saman í
fyrsta skipti undir stjórn Alfreðs
hinn 9. mars og leikur gegn Hol-
landi hinn 13. mars. Alfreð mætir
því Íslendingi í sínum fyrsta lands-
leik en Erlingur Richardsson þjálf-
ar hollenska landsliðið.
Samningur Alfreðs gildir fram
yfir lokakeppni EM 2022 sem hald-
in verður í Ungverjalandi og Sló-
vakíu. Fyrsta stóra verkefni Al-
freðs með þýska
liðið verður und-
ankeppni Ólymp-
íuleikanna sem
fram fer í apríl.
Þar verða Þjóð-
verjar í snúnum
riðli með Slóven-
íu, Svíþjóð og
Alsír en tvö lið
komast á leikana
í Japan í sumar.
Alfreð hefur verið laus allra mála
eftir að hann hætti störfum hjá
þýska stórliðinu THW Kiel að eigin
ósk síðasta sumar. Sagði hann í við-
tali við Morgunblaðið í fyrra að til
greina kæmi að þjálfa landslið. Hef-
ur hann áður þjálfað landslið en
hann stýrði því íslenska 2006-2008.
Forráðamenn þýska sambandsins
hafa vafalítið rennt til hans hýru
augu þar sem Alfreð þjálfaði fé-
lagslið í Þýskalandi í tuttugu og tvö
ár með framúrskarandi árangri.
Þrjú þeirra á meðal þeirra sögu-
frægustu: Magdeburg, Gummers-
bach og Kiel.
Dagur Sigurðsson stýrði þýska
liðinu á árunum 2014-2017. Undir
stjórn Dags urðu Þjóðverjar Evr-
ópumeistarar árið 2016 og unnu til
bronsverðlauna á Ólympíu-
leikunum í Ríó 2016. kris@mbl.is
Þjóðverjar veðja aftur á Íslending
Alfreð
Gíslason
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Origo-höllin: Valur – Stjarnan ............ 18.30
DHL-höllin: KR – Keflavík ................. 20.15
Höllin Ak.: Þór Ak. – Njarðvík............ 19.15
1. deild karla:
VHE-höllin: Höttur – Sindri ............... 19.15
Hveragerði: Hamar – Álftanes ........... 19.15
Borgarnes: Skallagr. – Breiðablik ...... 19.15
Vallaskóli: Selfoss – Snæfell................ 19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Höllin Ak.: Þór Ak. – Grótta..................... 18
Víkin: Víkingur– Stjarnan U.................... 20
Origo-höllin: Valur U – FH U .................. 20
Dalhús: Fjölnir U – Haukar U ............ 20.30
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Víkin: Víkingur – Stjarnan U ................... 18
Fylkishöll: Fylkir – Grótta ....................... 19
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Fífan: Breiðablik – Leiknir R.............. 18.30
Kórinn: HK – FH ...................................... 19
Reykjavíkurmót kvenna:
Origo-völlur: Valur – KR .......................... 18
Egilshöll: Fylkir – Fjölnir ........................ 19
Í KVÖLD!
menn liðanna gengu til búnings-
herbergja að loknum fyrri hálfleik
höfðu níu leikmenn Tindastóls kom-
ist á blað í stigaskorun.
Þegar komið verður fram í úr-
slitakeppnina, og leikjaálagið eykst
umtalsvert, getur verið sterkt að
vera með góða breidd. Erfitt er að
komast alla leið á Íslandsmótinu án
einhverra skakkafalla auk þess sem
einn eða tveir leikmenn geta orðið
litlir í sér þegar spennustigið er sem
mest. Þess vegna getur verið kostur
að treysta ekki um of á einn eða tvo
leikmenn í sókninni. Ég gæti trúað
því að formúlan sem Tindastóll fer
eftir gæti reynst heppileg þegar á
líður mótið. Leikmenn liðsins brugð-
ust þó ekkert sérstaklega vel við
mótlæti í síðasta leikhlutanum í gær
og það ættu menn að skoða.
Haukarnir voru sjálfum sér verst-
ir í sókninni og hittu illa lengi vel.
Lentu fyrir vikið fimmtán stigum
undir. Þeir reyndu þó eins og þeir
gátu að vinna leikinn. Minnkuðu
muninn niður í tvö stig en komust
aldrei yfir. Vítanýtingin skipti máli
en þeir hittu bara úr 14 af 24 vítum.
Þriðji sigur
Stólanna í röð
Voru yfir allan tímann á Ásvöllum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ásvellir Ekki er gott að átta sig á hvað var að gerast þegar Árni Sæberg
smellti af á þessu augnabliki í leik liðanna í Hafnarfirði í gær.
Á ÁSVÖLLUM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Skagfirðingar eru í ágætum málum í
Dominos-deild karla í körfuknattleik
þegar farið er að styttast í úrslita-
keppnina þar sem vertíðin nær há-
marki. Tindastóll er með 24 stig í 3.
sæti eftir góðan útisigur á Haukum
á Ásvöllum í gær, 79:76. Liðin voru
jöfn fyrir leikinn með 22 stig og því
um mikilvæg stig að ræða en efstu
fjögur liðin í deildinni fá heima-
leikjarétt í 8-liða úrslitum.
„Ég held að flest lið yrðu bara
mjög ánægð með að koma hingað og
ná í sigur, sama hvernig það er
gert,“ sagði leikstjórnandi Tinda-
stóls, Pétur Rúnar Birgisson, að
leiknum loknum.
Ágætur taktur virðist vera í leik
Tindastóls á nýjan leik. Þeir töpuðu
nokkuð óvænt fyrir Val snemma árs
en hafa svarað því með þremur sigr-
um í röð. Liðið virkar heilsteypt og
með góða breidd leikmanna. Má til
að mynda benda á að þegar leik-
Fjölnismenn eru svo gott sem falln-
ir eftir eins stigs tap gegn ÍR í úr-
valsdeild karla í körfuknattleik,
Dominos-deildinni, í Dalhúsum í
Grafarvogi í átjándu umferð deild-
arinnar í gær. Leiknum lauk með
82:81-sigri ÍR-inga sem leiddu með
fjórum stigum í hálfleik, 44:40.
ÍR-ingar eru með 18 stig í sjö-
unda sæti deildarinnar og hafa nú
fjögurra stiga forskot á Grindavík.
Fjölnismenn eru á botni deild-
arinnar með 2 stig og þurfa að
vinna þá leiki sem þeir eiga eftir til
að eiga von um að halda sér uppi.
Fjölnismenn
þurfa kraftaverk
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Seigur Evan Singletary fór lang-
leiðina með að fella Fjölnismenn.
Grindavík hirti áttunda sætið af
Þór frá Þorlákshöfn þegar liðin
mættust í úrvalsdeild karla í körfu-
knattleik í Mustad-höllinni í
Grindavík í átjándu umferð deild-
arinnar í gær. Grindvíkingar voru
með 60% þriggja stiga nýtingu í
leiknum og leiddu allan tímann.
Liðið er nú með 14 stig í áttunda
sæti deildarinnar en Þórsarar eru
einnig með 14 stig. Grindavík hefur
hins vegar vinninginn þegar kemur
að innbyrðis viðureignum liðanna
og eru Grindvíkingar á leið í úr-
slitakeppnina eins og sakir standa.
Lífsnauðsynlegur
sigur í Grindavík
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrirliði Ólafur Ólafsson fór fyrir
sínu liði í gær og skoraði 20 stig.
Handknattleiksþjálfarinn Aðalsteinn Eyjólfsson verður
áfram erlendis allra næstu árin og er ekki á heimleið í
sumar með fjölskyldu sinni eins og til greina kom um
tíma. Aðalsteinn hafði ákveðið að segja skilið við Er-
langen næsta sumar. Fyrr í vikunni ákvað félagið að
slíta samstarfinu fyrr en áætlað var og er Aðalsteinn því
laus allra mála.
Þegar Morgunblaðið hafði samband við Aðalstein í
gær sagðist hann ekki geta tjáð sig um starfslokin en
sagði ákvörðun félagsins ekki hafa komið sér mjög á
óvart.
Hann er nú að skoða hvað er í boði en spurður um
hvort hann hefði gert upp við sig hvort hann yrði áfram erlendis sagði
hann svo vera. Hann reiknar með því að vera áfram erlendis alla vega
næstu tvö árin eða svo. Aðalsteinn hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna
hjá Stuttgart í þýskum fjölmiðlum. kris@mbl.is
Verður áfram erlendis
Aðalsteinn
Eyjólfsson
Útlit er fyrir að næsti aðalfundur knattspyrnudeildar
KR verði nokkuð líflegur. Tveir fyrrverandi leikmenn
liðsins gefa kost á sér í stjórnina. Annar þeirra er fyrr-
verandi atvinnumaður og landsliðsmaður, Indriði Sig-
urðsson. Fremur sjaldgæft er að landsliðsmenn hafi látið
til sín taka í knattspyrnudeildum þótt auðvitað megi
finna um það dæmi. Hinn er Jón Skaftason sem er fræg-
astur fyrir að skora mikilvægt mark fyrir KR gegn Fylki
á lokaspretti Íslandsmótsins árið 2002.
Kristinn Kjærnested, sem lengi hefur farið fyrir
knattspyrnudeildinni, gefur ekki kost á sér eins og fram
kom í október í fyrra. Hefur Kristinn verið formaður frá
árinu 2008 og í stjórninni í tvo áratugi. Stjórnin mun því taka breytingum
og hefur lögmaðurinn Páll Kristjánsson lýst því yfir að hann gefi kost á sér
til formennsku. Páll hefur verið í stjórn knattspyrnudeildar síðustu þrjú
árin og var um tíma formaður KR-klúbbsins.
Landsliðsmaður í stjórn?
Kristinn
Kjærnested