Morgunblaðið - 07.02.2020, Síða 27

Morgunblaðið - 07.02.2020, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020  Bjarki Már Elísson fór á kostum þegar lið hans Lemgo vann 31:29- útisigur gegn Balingen á útivelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Íslenski landsliðsmaðurinn gerði sér lítið fyrir og skoraði fjórtán mörk í leiknum, þar af fjögur úr vítaköst- um. Bjarki Már er markahæsti leik- maður deildarinnar með 173 mörk á tímabilinu og hefur nú fjögurra marka forskot á hinn íslenskættaða Hans Lindberg frá Danmörku, leikmann Füchse Berlín, sem hefur skorað 169 mörk. Bjarki Már og Lindberg eru í al- gjörum sérflokki í þýsku deildinni þegar kemur að markaskorun en Sví- inn Niclas Ekberg, leikmaður Kiel, er þriðji markahæstur með 134 mörk.  Knattspyrnukonan Elín Metta Jen- sen hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara Vals til næstu þriggja ára. Elín Metta var algjör lykilmaður í meistaraliði Vals á síðustu leiktíð þar sem hún skoraði 16 mörk í átján leikj- um í deildinni og þá var hún einnig valin besti leikmaður deildarinnar. El- ín Metta er uppalin á Hlíðarenda og á að baki 135 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað 101 mark. Þá á hún að baki 46 A-landsleiki þar sem hún hefur skorað 14 mörk.  Martin Hermannsson og liðs- félagar hans í Alba Berlín þurftu að sætta sig við naumt tap gegn stórliði Real Madrid í Berlín í Evrópudeildinni í körfuknattleik í gær. Leiknum lauk með 103:97-sigri Real Madrid en Martin skoraði 10 stig, þar af tvær þriggja stiga körfur, og gaf þrjár stoð- sendingar á tæplega sautján mín- útum. Eitt ogannað SA tíu sinnum og hélt þar með yfir- burðum sínum í íshokkí hér á landi áfram. Íslandsmót kvenna í íshokkí hefur verið haldið á hverju ári hér á landi síðan árið árið 2000 og hefur lið á veg- um Skautafélags Akureyrar unnið tit- ilinn 19 sinnum og á hverju ári síðan 2007. Björninn vann í fyrsta og eina skiptið árið 2006. Yfirburðir SA eru því fáheyrðir. Það var aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi í gær. Karítas Halldórsdóttir í marki Reykjavíkur var eina ástæða þess að hann varð ekki enn stærri þegar upp var staðið. Sarah Smiley fór á kostum og skoraði þrjú mörk, en hún hefur verið ein besta íshokkíkona landsins í meira en áratug og komið að flestu sem tengist íshokkí hér á landi, bæði í karla- og kvennaflokki. „Þetta er alltaf jafn gaman og það er sérstaklega gaman að fá að upplifa þetta með ungum leikmönnum. Þetta snýst allt um uppbyggingarstarf. Við fáum ungu stelpurnar inn snemma og gefum þeim tækifæri. Við höfum misst fullt af góðum leikmönnum til útlanda en við fáum alltaf inn unga og spræka leikmenn sem eru tilbúnir,“ sagði Sarah í samtali við Morgunblaðið. Nú þurfa Reykjavík og SA að snúa bökum saman, þar sem fram undan er 2. deild heimsmeistaramótsins sem fer fram á Akureyri. Þar eru Íslendingar á meðal þátttökuþjóða ásamt Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Tyrklandi, Króatíu og Úkraínu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Yfirburðir SA fagnar 19 Íslandsmeistaratitlinum á síðustu 20 árum í Egilshöllinni í gærkvöldi eftir 7:1-sigur á Reykjavík. SA vann einvígið 2:0. Yfirburðir Akureyringa  SA Íslandsmeistari 14. árið í röð  19 titlar á síðustu 20 árum  Unnu 10 af 12 leikjum gegn Reykjavík á tímabilinu HM á heimavelli næst á dagskrá Í EGILSHÖLL Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Skautafélag Akureyrar varð í gær Ís- landsmeistari kvenna í íshokkí eftir af- ar sannfærandi 7:1-sigur á Reykjavík í Egilshöllinni. SA vann einnig sann- færandi sigur í fyrsta leiknum í Skautahöll Reykjavíkur og vann því einvígið örugglega, 2:0. Liðin mættust alls tólf sinnum á leiktíðinni og vann mest tólf marka forskoti um miðjan síðari hálfleikinn, 32:20. Birkir Bene- diktsson var markahæstur Mosfell- inga með 8 mörk og Þorsteinn Gauti Hjálmarsson skoraði sjö mörk. Arnór Freyr Stefánsson varði 10 skot í mark- inu. Hjá ÍR var Sveinn Andri Sveins- son atkvæðamestur með 7 mörk.  Þá eru Haukar komnir í undan- úrslit í bikarkeppni kvenna eftir þrett- án marka sigur gegn 1. deildar liði Fjölnis í Dalhúsum í Grafarvogi í átta liða úrslitum keppninnar í gær. Leikn- um lauk með 33:20-sigri Hauka sem leiddu með sjö mörkum í hálfleik, 16:9. þjálfari liðsins, sagði í viðtali eftir leik að liðið hefði fallið á prófinu og misst hausinn í síðari hálfleik. Markaskor FH-inga dreifðist vel en Birgir Már Birgisson var marka- hæstur með fjögur mörk, á eftir hon- um komu nokkrir leikmenn með þrjú mörk en Sigursteinn nýtti leik- mannahópinn virkilega vel í leiknum. Þrátt fyrir það virkuðu FH-ingar bensínlausir á lokakaflanum og ráða- lausir gegn sterkri vörn ÍBV. Hjá Eyjamönnum var sóknarleik- urinn hræðilegur í fyrri hálfleik, þá aðallega færanýtingin en Phil Döhler, besti leikmaður vallarins, varði nítján skot í leiknum, mörg hver úr algjör- um dauðafærum. Döhler varði 14 af 21 skoti Eyjamanna sem rataði á mark FH-inga í fyrri hálfleik. Eyja- mönnum óx ásmegin í síðari hálfleik hvað færanýtingu varðar og skoruðu til að mynda fjórtán mörk á síðustu 20 mínútum leiksins. Petar Jokanovic var frábær í marki ÍBV og varði 16 skot, hann varði oft á tíðum á mikilvægum augnablikum leiksins, þegar FH-ingar virtust vera að komast inn í leikinn á ný. Eyjamenn hafa komist í undan- úrslit bikarsins í tvö af síðustu fimm skiptum og orðið bikarmeistarar í bæði skiptin, árið 2015 og 2018.  Afturelding fór létt með ÍR þeg- ar liðin mættust að Varmá í Mos- fellsbæ í fjórða og síðasta leik átta liða úrslitanna. Leiknum lauk með 38:31-sigri Mosfellinga sem voru með yfirhöndina í leiknum allan tímann. Afturelding náði þriggja marka forskoti eftir fimm mínútna leik og lét þá forystu aldrei af hendi. Mosfell- ingar leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 20:15, og Afturelding náði Berta Rut Harðardóttir átti stórleik fyrir Hafnfirðinga og skoraði tíu mörk úr tíu skotum, þar af þrjú úr vítum. Þá varði Saga Sif Gísladóttir 10 skot í markinu og var með 50% markvörslu. Guðrún Jenný Sigurð- ardóttir var markahæst Fjölnis- kvenna með níu mörk.  Undanúrslit bikarkeppninnar fara fram 5. og 6. mars næstkomandi í Laugardalshöll. Í karlaflokki leika Afturelding, Haukar, ÍBV og Stjarn- an í undanúrslitum en í kvennaflokki verða það Fram, Haukar, KA/Þór og Valur. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Fögnuður Gleðin var ósvikin í Vestmannaeyjum í gær þegar ÍBV sló bikarmeistara FH úr leik í bikarkeppninni. ÍBV sló bikar- meistarana úr leik í Eyjum  Afturelding keyrði yfir ÍR að Varmá Í EYJUM Guðmundur Tómas Sigfússon sport@mbl.is Eyjamenn unnu magnaðan sigur á FH-ingum þegar liðin mættust í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í handknattleik, Coca Cola-bikars, í íþróttahúsinu í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. FH-ingar leiddu með sex mörkum í hálfleik, 7:13, og mest með 7 mörkum, 10:17, þegar rúmar 20 mínútur voru til leiksloka. Þá tók við alveg hræðilegur kafli hjá FH-ingum þar sem Eyjamenn skoruðu níu af næstu tíu mörkum leiksins. Hörm- ungar FH voru þá einungis rétt að byrja því Eyjamenn unnu þessar síð- ustu 20 mínútur með 14 mörkum gegn 4. Lykilmenn FH-inga náðu sér eng- an veginn á strik og má þar nefna Einar Rafn Eiðsson og Ágúst Birg- isson. Einar gerði eitt mark úr átta skotum og tapaði boltanum fjórum sinnum, þá náði Ágúst einungis að skora úr einu af sínum fjórum dauða- færum í leiknum. Sigursteinn Arndal,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.