Morgunblaðið - 07.02.2020, Síða 28
Menning
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Orgelið er allra besta hljóðfærið til
að tjá það sem við skiljum ekki,
hvort heldur það er guð, eitthvað
mystískt eða náttúran“ segir org-
anistinn Kristján Hrannar Pálsson
sem í kvöld kl. 20 frumflytur lofts-
lagsverk sitt +2,0°C á Klais-orgel
Hallgrímskirkju. Tónleikarnir eru
hluti af Vetrarhátíð og eru miðar
seldir við innganginn og á tix.is, en
allur ágóði tónleikanna rennur til
Votlendissjóðs. Í upphafi kvölds
heldur rithöfundurinn Andri Snær
Magnason stutta ræðu.
Kristján bendir á að ýmist lista-
fólk hafi fengist við að semja loft-
lagsverk með því að tengja saman
veðurmæla og hljóðfæri. „Eins og
Björk er að gera núna þar sem hún
tengir himininn yfir New York við
kórtalgervil,“ segir Kristján og tek-
ur fram að hann sé ekki fara slíka
tæknilega leið heldur reyni í tónlist
sinni að fanga tilfinningarnar sem
loftlagsvandinn framkallar.
Hugsa þarf hlutina upp á nýtt
„Verkið byggist upp á 20 stuttum
köflum. Þetta byrjar í +0,0°C sem er
jafnvægi og hækkar síðan um 0,1°C í
hverjum kafla þar til það endar í
+2,0°C með tilheyrandi heimsendi,
brjálæði og ómstríðni sem endur-
speglar átökin innra með okkur.
Verkið er atónal en engu að síður
mjög aðgengilegt,“ segir Kristján og
bendir á að kaflarnir séu leiknir með
vaxandi styrkleika. „Núna erum við í
+1,5°C yfir meðalhita sem ætti að fá
alla til að bregðast við hættu-
ástandinu sem er ríkjandi, samt eru
flestir bara enn pollrólegir í sínum
hversdegi. Sjálfur upplifi ég sam-
viskubit og einnig smá afneitun. Það
er óþægilegt að horfast í augu við
hlutina. Það leiðir til sinnuleysis og
uppgjafar. Verkið fjallar í grunninn
um það hvernig við sem manneskjur
ætlum að takast á við vandann.“
Yfirskrift tónleikanna er „Ég vil
að þú vitir“. Það vísar til þess að ég
vil að fólk viti að við getum ekki
leyst loftlagsvandann með þeim að-
ferðum sem við þekkjum í dag. Það
þarf að hugsa hlutina upp á nýtt,“
segir Kristján og tekur fram að ætl-
un hans sé þó alls ekki að predika
yfir fólki eða reyna að magna upp
samviskubit heldur fremur að vekja
fólk til umhugsunar um vandann.
Aflátsbréf 21. aldarinnar
„Ég upplifi mig svolítið týndan í
allri þessari umræðu og er bara af
veikum mætti að vekja fólk til um-
hugsunar um þetta stóra verkefni
þar sem margir upplifa sig sem svo
smáa. Ég vil að fólk viti að við getum
ekki leyst vandann með fortíðar-
hugmyndafræði. Margir virðast líta
á kolefnisjöfnun sem svar við öllu,
en í mínum huga er það bara afláts-
bréf 21. aldarinnar. Við þurfum nýj-
an hugsunarhátt því það sem við er-
um að gera í dag er augljóslega ekki
að virka,“ segir Kristján og hvetur í
leiðinni tónleikagesti til að nýta sér
umhverfisvænan fararkost á leið
sinni til Hallgrímskirkju eða fjöl-
menna í bíla velji þeir þann kost.
Loftslagsverkið +2,0°C er annað
verk Kristjáns sem snertir á lofts-
lagsmálum en árið 2016 sendi hann
frá sér plötuna Arctic take one. „Þar
fjallaði ég um valda bæi eða borgir á
norðurslóðum sem orðið hafa fyrir
áhrifum af hlýnun jarðar. Ég spann
verkin á píanó og leyfði mér bara
eina töku fyrir hvert verk,“ segir
Kristján sem að þessu sinni hefur
skipt píanóinu út fyrir orgelið, sem
að hans sögn er stórkostlegt hljóð-
færi. Kristján hefur starfað sem
tónlistarmaður um árabil. Hann er í
dag fastráðinn organisti við Óháða
söfnuðinn í Reykjavík auk þess að
stýra tveimur kórum á höfuðborg-
arsvæðinu. Hann var meðlimur indí-
rokk sveitarinnar 1860 á árunum
2010 til 2012 og sendi frá sér raf-
popp-plötuna Anno 2013 sem hann
vann með færeyingnum Janusi
Rassmusen úr Kiasmos. Þá hefur
Kristján kennt djasspíanóleik við
FÍH.
„Besta hljóðfærið til að tjá
það sem við skiljum ekki“
Morgunblaðið/Eggert
Organisti Kristján Hrannar Pálsson vill vekja fólk til umhugsunar.
Loftslagsverkið +2,0°C frumflutt í Hallgrímskirkju í kvöld
Sinfóníuhljómsveit Íslands lagði í
vikunni lokahönd á undirbúning
fyrir fyrstu tónleikaferð sína til
Bretlands, undir stjórn Yans Pas-
cals Torteliers, fyrrverandi aðal-
hljómsveitarstjóra hennar. Áður
hefur hljómsveitin aðeins haldið
eina tónleika í Bretlandi á Proms-
tónlistarhátíð BBC sumarið 2014.
Fyrstu tónleikar ferðarinnar
verða í Royal Concert Hall í Nott-
ingham í kvöld og þeir síðustu í
Usher Hall í Edinborg sunnudaginn
16. febrúar. Hljómsveitin heldur
alls átta tónleika ytra og kemur
fram í nokkrum fremstu tónleika-
húsum Bretlands, þeirra á meðal
eru Symphony Hall í Birmingham
og Cadogan Hall í London. Með í
för eru píanistarnir Jean-Efflam
Bavouzet og Yeol Eum Son, sem
skiptast á að leika píanókonsert
Maurice Ravels fyrir vinstri hönd.
Á tónleikunum öllum verður flutt
verkið Aeriality eftir Önnu Þor-
valdsdóttur, staðartónskáld hljóm-
sveitarinnar, sem verður með í för
og tekur þátt í kynningu á verkum
sínum á öllum tónleikastöðum.
Önnur verk á efnisskránni eru svít-
an L’Arlesienne eftir Georges
Bizet, Sinfónía nr. 1 eftir Jean
Sibelius og brot úr ballettsvítum
verksins Rómeó og Júlíu eftir
Sergej Prokofíev.
Í tilkynningu frá hljómsveitinni
kemur fram að breska dagblaðið
The Telegraph hafi valið tónleika
hljómsveitarinnar í ferðinni sem
eina af áhugaverðustu tónleikum á
vormánuðum í Bretlandi. Hægt er
að fylgjast með tónleikaferðinni á
samfélagsmiðlum undir myllu-
merkinu #IcelandSymphony-
OnTour.
Morgunblaðið/Eggert
Tilhlökkun Yan Pascal Tortelier stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrstu tónleikaferð hennar til Bretlands.
Tónleikaferð til Bretlands
Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) (Kassinn)
Fim 13/2 kl. 19:30
AUKASÝNING
Ágengt og tragíkómískt nýtt íslenskt verk sem spyr stórra spurninga
Engillinn (Kassinn)
Fös 7/2 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Lau 15/2 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Leiksýning byggð á textum og myndlist eftir Þorvald Þorsteinsson
Meistarinn og Margarita (Stóra Sviðið)
Lau 8/2 kl. 19:30 síðustu
sýningar
Hnyttin háðsádeila, gædd myrkum töfrum
Bara góðar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 13/2 kl. 20:00 Fim 20/2 kl. 20:00
Sprenghlægilegt uppistand!
Útsending (Stóra Sviðið)
Fös 21/2 kl. 19:30 Frums Lau 29/2 kl. 19:30 4.sýn Lau 14/3 kl. 19:30 7. sýn
Lau 22/2 kl. 19:30 2. sýn Lau 7/3 kl. 19:30 5.sýn
Fös 28/2 kl. 19:30 3.sýn Sun 8/3 kl. 19:30 6. sýn
Magnað verk um átök innan fjölmiðlaheimsins og vald fjölmiðlanna
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fim 27/2 kl. 19:30 29. sýn Sun 1/3 kl. 19:30 30. sýn Fim 5/3 kl. 19:30 31. sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Eyður (Stóra Sviðið)
Fös 20/3 kl. 19:30 3.sýn
Sviðslistahópurinn Marmarabörn
Þitt eigið leikrit II (Kúlan)
Fim 13/2 kl. 17:00 aðalæ Fös 21/2 kl. 18:00 auka Sun 1/3 kl. 15:00 7. sýn
Fös 14/2 kl. 18:00 Frums Lau 22/2 kl. 15:00 4.sýn Lau 7/3 kl. 15:00 8. sýn
Lau 15/2 kl. 15:00 2.sýn Sun 23/2 kl. 15:00 5.sýn Sun 8/3 kl. 15:00 9. sýn
Sun 16/2 kl. 15:00 auka Lau 29/2 kl. 15:00 6. sýn Lau 14/3 kl. 15:00 10. sýn
Hvert myndir þú fara? Þú mátt velja núna!
Konur og krínólín - Leikhúslistakonur 50+
(Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 15/2 kl. 16:00 Lau 22/2 kl. 16:00
Sun 16/2 kl. 16:00 Sun 23/2 kl. 16:00
Tískugjörningur sem allir hafa beðið eftir! Fegurð, fræðsla og fjör.
Kópavogskrónika (Kassinn)
Lau 14/3 kl. 19:30 Frums Lau 21/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 29/3 kl. 19:30 7. sýn
Sun 15/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 27/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 3/4 kl. 19:30 8. sýn
Fim 19/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/3 kl. 19:30 6. sýn
Til dóttur minnar með ást og steiktum
Skarfur (Kúlan)
Fös 20/3 kl. 19:30 Frums Lau 21/3 kl. 19:30 2. sýn
Í heimi þar sem illskan nærist á náttúrunni er ekki pláss fyrir ófleyga fugla.
Brúðumeistarinn (Brúðuloftið)
Lau 7/3 kl. 17:00 Frums Mán 9/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 14/3 kl. 17:00 3.sýn
Átakamikil og nýstárleg sýning um uppgjör brúðumeistara við fortíðina
Sjitt, ég er sextugur (Þjóðleikhúskjallarinn )
Lau 14/3 kl. 21:00 Frums Lau 21/3 kl. 21:00 3.sýn Fim 26/3 kl. 21:00 5.sýn
Þri 17/3 kl. 21:00 2.sýn Sun 22/3 kl. 21:00 4.sýn
Örn Árnason sýnir allar sínar skástu hliðar... í smá stund
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Sex í sveit (Stóra sviðið)
Fös 7/2 kl. 20:00 46. s Mið 19/2 kl. 20:00 50. s Lau 29/2 kl. 20:00 54. s
Lau 8/2 kl. 20:00 47. s Fös 21/2 kl. 20:00 51. s Fös 6/3 kl. 20:00 55. s
Fös 14/2 kl. 20:00 48. s Lau 22/2 kl. 20:00 52. s
Lau 15/2 kl. 20:00 49. s Fös 28/2 kl. 20:00 53. s
Sýningum lýkur í mars.
Níu líf (Stóra sviðið)
Fös 13/3 kl. 20:00 Frums. Fös 27/3 kl. 20:00 8. s Þri 7/4 kl. 20:00 16. s
Lau 14/3 kl. 20:00 2. s Lau 28/3 kl. 20:00 9. s Fim 16/4 kl. 20:00 17. s
Sun 15/3 kl. 20:00 3. s Sun 29/3 kl. 20:00 10. s Fös 17/4 kl. 20:00 18. s
Fim 19/3 kl. 20:00 aukas. Mið 1/4 kl. 20:00 11. s Lau 18/4 kl. 20:00 19. s
Fös 20/3 kl. 20:00 4. s Fim 2/4 kl. 20:00 12. s Sun 19/4 kl. 20:00 20. s
Lau 21/3 kl. 20:00 5. s Fös 3/4 kl. 20:00 13. s Mið 22/4 kl. 20:00 21. s
Sun 22/3 kl. 20:00 6. s Lau 4/4 kl. 20:00 14. s Fim 23/4 kl. 20:00 22. s
Fim 26/3 kl. 20:00 7. s Sun 5/4 kl. 20:00 15. s Fös 24/4 kl. 20:00 23. s
Við erum öll, við erum öll, við erum öll; Bubbi.
Vanja frændi (Stóra sviðið)
Sun 9/2 kl. 20:00 11. s Fim 20/2 kl. 20:00 13. s Fim 27/2 kl. 20:00 15. s
Sun 16/2 kl. 20:00 12. s Sun 23/2 kl. 20:00 14. s
Er líf okkar andlegt frjálst fall?
Helgi Þór rofnar (Nýja sviðið)
Fös 7/2 kl. 20:00 9. s Lau 15/2 kl. 20:00 10. s Fim 27/2 kl. 20:00 11. s
Drepfyndið og spennandi leikrit eftir Tyrfing Tyrfingsson
Er ég mamma mín? (Nýja sviðið)
Sun 9/2 kl. 20:00 Frums. Fim 20/2 kl. 20:00 aukas. Fim 5/3 kl. 20:00 7. s
Fim 13/2 kl. 20:00 2. s Sun 23/2 kl. 20:00 4. s Sun 8/3 kl. 20:00 8. s
Sun 16/2 kl. 20:00 3. s Sun 1/3 kl. 20:00 6. s Fim 12/3 kl. 20:00 9. s
Tvær sögur ■ eða alltaf sama sagan?
Um tímann og vatnið (Stóra sviðið)
Mán 27/4 kl. 20:00 7. s
Kvöldstund með listamanni.
Skjáskot (Nýja sviðið)
Þri 11/2 kl. 20:00 4. s Fim 27/2 kl. 20:00 5. s
Kvöldstund með listamanni.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Mið 12/2 kl. 20:00 21. s Fös 14/2 kl. 20:00 22. s Fös 21/2 kl. 20:00 23. s
Allra síðustu sýningar.
Gosi (Litla sviðið)
Sun 23/2 kl. 13:00 Frums. Sun 22/3 kl. 13:00 9. s Sun 19/4 kl. 15:00 17. s
Sun 23/2 kl. 15:00 2. s Sun 22/3 kl. 15:00 10. s Fim 23/4 kl. 13:00 18. s
Sun 1/3 kl. 13:00 3. s Sun 29/3 kl. 13:00 11. s Lau 25/4 kl. 13:00 19. s
Sun 1/3 kl. 15:00 4. s Sun 29/3 kl. 15:00 12. s Sun 26/4 kl. 13:00 20. s
Sun 8/3 kl. 13:00 5. s Sun 5/4 kl. 13:00 13. s Sun 26/4 kl. 15:00 21. s
Sun 8/3 kl. 15:00 6. s Sun 5/4 kl. 15:00 14. s Lau 2/5 kl. 13:00 22. s
Sun 15/3 kl. 13:00 7. s Lau 18/4 kl. 13:00 15. s Sun 3/5 kl. 13:00 23. s
Sun 15/3 kl. 15:00 8. s Sun 19/4 kl. 13:00 16. s Sun 3/5 kl. 15:00 24. s
Eitt ástsælasta ævintýri allra tíma
Kynntu þér matseðil Leikhúsbarsins á
borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is