Morgunblaðið - 07.02.2020, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
Rás 2
FBL
BAFTA VERÐLAUN7 m.a.BESTA MYNDIN
BESTI LEIKSTJÓRINN SAM MENDES
ÓSKARS
TILNEFNINGAR11
6 ÓSKARSTILNEFNINGAR
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
LEIKSTÝRÐ AF CLINT EASTWOOD
Vetrarhátíð 2020 hófst í gær og
stendur út helgina. Vetrarhátíð er
haldin í 19. sinn og fer fram í öllum
sex sveitarfélögum höfuðborgar-
svæðisins. Markmiðið með henni er
að skemmta íbúum og gestum á
höfuðborgarsvæðinu og gefa þeim
tækifæri til að njóta menningar,
lista, íþrótta og útiveru. Í kvöld er
svo Safnanótt, sem er á dagskrá há-
tíðarinnar, og fjöldi viðburða þá í
boði í hinum ýmsu söfnum og á veg-
um menningastofnana. Safnanótt
stendur frá kl. 18 til 23. Gestum
býðst að fara á ein 50 söfn á höfuð-
borgarsvæðinu og skoða fjölmargar
sýningar, þar sem boðið verður upp
á fjölbreytilega dagskrá sem ætlað
er að veita gestum nýja sýn á söfnin.
Aðgangur að viðburðum er ókeypis.
Við setningu vetrarhátíðar var
byrjað að varpa á Hallgrímskirkju
verkinu Sálumessa jöklanna, eftir
Heimi Frey Hlöðversson, en kirkjan
er þar í formi bráðnandi jökuls.
Verkið er þrískipt og er önnur út-
gáfa þess sýnd í Ásmundarsal við
Freyjugötu og þriðja útgáfan á
Hafnartorgi. Áhugasamir eru hvatt-
ir til að fara í ljósgöngu og skoða
fleiri verk sem lýsa upp skammdegið
næstu kvöld og mynda áhugaverða
gönguleið. Sum eru á Hörpu en sjón-
listamennirnir Allenheimer (Atli
Bollason), DVDJ NNS (Katla
Blahutova) og Grainy Picker (Dom-
inika Ovarowska) „spila á“ 40 metra
háan ljósahjúp Hörpu á Vetrarblóti
annað kvöld, laugardag, en hin
kvöldin sýna þau ný og sérsamin
ljósaverk til sýnis á hjúpnum.
Ólík ljósalistaverk í borginni
Á Skólavörðustíg er sýnt ljós-
listaverk eftir Maríu Guðjohnsen
þrívíddarhönnuð; í Hafnarstræti og
Tryggvagötu er ljóslistaverk eftir
margmiðlunarlistamanninn Boris
Vitazek frá Slóvakíu; og verk eftir
hóp nemenda í fornámi við Mynd-
listaskólann í Reykjavík er sýnt á
gatnamótum Austurstrætis og Póst-
hússtrætis. Þá er á Austurvelli
gagnvirk innsetning eftir Abby
Portner þar sem blandað er skúlp-
túr, ljósum og myndbandi, og nem-
endur Barna-og unglingadeildar
Myndlistaskólans í Reykjavík sýna
hreyfimyndir á vegg Ráðhúss
Reykjavíkur, Vonarstrætismegin.
Verkin eru unnin í klippiforriti og
teiknuð í tölvu. Listaverkið Tákn
eftir Steinunni Þórarinsdóttur, sem
er á þakbrún Arnarhvols, verður
lýst upp á Safnanótt. Kl. 20 verður
frumflutt þar af Cantoque Ensemble
kórverk eftir tónskáldið Deborah
Pritchard við ljóð Dave Neita.
Kórar og gjörningur
Lögð er áhersla á að bjóða upp á
óhefðbundna viðburði á Safnanótt
og veita gestum nýja sýn á hin ýmsu
söfn. Til að mynda verður svarthvítt
og þögult kvikmyndaþema í Borgar-
bókasafni í Grófinni; í Árbæjarsafni
verður farið í draugagöngur, fyrst
fyrir börn og svo fullorðna; í Lista-
safni Reykjavíkur verða örleiðsagnir
um einstök verk og listaverka-
geymslur heimsóttar.
Kl. 19 verður vitinn nýi við Sæ-
braut vígður. Karlakór Reykjavíkur
og Fóstbræður syngja, og í fram-
haldi af því verður opið hús í Höfða
til kl. 21. Í Ráðhúsi Reykjavíkur flyt-
ur Sigrún Harðardóttir gjörning í
samvinnu við Harmoníukórinn undir
stjórn Krisztinu Kalló og uppistand
verður í Sjóminjasafninu, svo fátt
eitt sé nefnt af dagskránni sem í
heild má sjá á vefnum vetrarhatid.is.
Ljósaverk og draugagöngur
Fjölbreytilegir viðburðir í söfnum höfuðborgarsvæðisins á Safnanótt í kvöld
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljósasýning Eins og undanfarin ár er listaverki varpað á Hallgrímskirkju.
Hljómsveitarstjórinn Daníel
Bjarnason og Víkingur Heiðar
Ólafsson sáu í vikunni um dagskrá
hjá Fílharmóníuhljómsveit Los
Angeles sem helguð var nýrri nor-
rænni tónlist. Gagnrýnandi Los
Angeles Times, Mark Swed, lofar í
umfjöllun dagskrá tónleika þeirra,
verkin sem flutt voru og frammi-
stöðu flytjenda. Frumflutt var til að
mynda nýtt verk eftir Þuríði Jóns-
dóttur, The CV of a Butterfly, og er
því hrósað. Þá frumflutti Víkingur
Heiðar í Bandaríkjunum nýjan pí-
anókonsert Bents Sorensens, Mign-
on – Papillons, sem rýnir segir stór-
kostlegan. Og hann segir að rétt
eins og á frábærum tónleikum sín-
um með tónlist Bachs í Los Angeles
í fyrra hafi Víkingi auðnast að láta
hverja einustu nótu ljóma.
Dagskrá Daníels og Víkings í LA hrósað
Morgunblaðið/Hari
Samhentir Víkingur Heiðar og Daníel
Bjarnason fá lof fyrir frammistöðuna.
Félag um átjándu aldar fræði held-
ur á morgun, laugardag, málþing í
Þjóðarbókhlöðu undir yfirskriftinni
Framkoma karlmanna á átjándu og
nítjándu öld gagnvart konum. Mál-
þingið hefst kl. 13.30 og lýkur ekki
síðar en 16.15.
Erla Hulda Halldórsdóttir, dós-
ent í sagnfræði við HÍ, fjallar um
bónorðsbréf karla og vandræði
kvenna; Már Jónsson, prófessor í
sagnfræði við HÍ, fjallar um sjálf-
ræði kvenna og þvingun karla í
dulsmálum á átjándu öld; Sigurgeir
Guðjónsson, doktor í sagnfræði,
fjallar í sínu erindi um hugmyndir
karlmanna á nítjándu öld um svo-
kallaða hysteríu kvenna, og Dalrún
J. Eygerðardóttir, doktorsnemi í
sagnfræði við HÍ beinir sjónum að
umfjöllun um ofbeldi karla gegn
konum í vinnuhjúastétt.
Þing um framkomu karla við konur
Morgunblaðið/Ernir
Dósent Erla Hulda Halldórsdóttir fjallar
um bónorðsbréf karla og vandræði kvenna.
Bandaríski leikarinn Kirk Douglas
lést í fyrradag, 103 ára að aldri.
Ferill Douglas spannaði um 70 ár
og lék hann bæði í sjónvarpi og
kvikmyndum. Af þekktustu hlut-
verkum hans má nefna Spartacus í
samnefndri kvikmynd frá árinu
1960. Douglas fæddist í New York
árið 1916 og hlaut sína fyrstu til-
nefningu til Óskarsverðlauna árið
1949 fyrir leik sinn í Champion.
Douglas var tilnefndur þrisvar til
Óskarsins en hlaut ekki verðlaun
fyrr en árið 1996 og þá heiðurs-
verðlaun fyrir framlag sitt til kvik-
mynda. Í frétt BBC um Douglas
segir m.a. að hann hafi verið hvað
stoltastur yfir því að hafa mótmælt
á sínum tíma svörtum lista yfir
meinta kommúnista í Hollywood.
AFP
Allur Kirk Douglas árið 2011.
Douglas látinn
Enska hljóm-
sveitin Tind-
ersticks held-
ur tónleika í
kvöld í
Hljómahöll-
inni í Reykja-
nesbæ. Sveit-
in lék hér
síðast árið
2008 og hlaut mikið lof fyrir en hún
er nú á tónleikaferðalagi vegna
nýrrar breiðskífu sinnar, No Treas-
ure But Hope. Tónleikarnir hefjast
kl. 20 og skv. miðasöluvefnum tix.is
verða rútuferðir í boði milli Reykja-
víkur og Hljómahallar fyrir þá sem
eiga aðgöngumiða.
Tindersticks í
Hljómahöllinni
No Treasure But Hope.