Morgunblaðið - 08.02.2020, Side 1

Morgunblaðið - 08.02.2020, Side 1
L A U G A R D A G U R 8. F E B R Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  33. tölublað  108. árgangur  OUTLANDER PHEV ALLTAF JAFN VINSÆLASTUR HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · Mitsubishi.is Verð frá 4.590.000kr. ÞURFUM AÐ HALDA LENGUR ÚT GLÍMAN VIÐ FORELDRA- HLUTVERKIÐ MÆÐUR Í IÐNÓ 50ÓLAFUR ANDRÉS 49  Rannsóknir sýna að um allan heim slasast árlega um 355 þúsund manns um borð í skemmtibátum, að sögn þeirra Björns Jónssonar og Karl Birgis Björnssonar, sem standa að fyrirtækinu Hefring ehf. Líklegt er að um helmingur slíkra slysa sé tilkynntur. Þeir hafa þróað og lokið prófun- um á „vaktara“, eða leiðbeinandi siglingakerfi, sem mælir sjó- og öldulag og gefur upplýsingar um æskilegan hámarkshraða. Karl Birgir segir að ef farið sé eftir leið- beiningum kerfisins eigi að vera hægt að fækka verulega slysum um borð í bátum. »10-11 Upplýsir um æski- legan hámarkshraða  Afgangur verður af rekstri 62 sveitarfélaga á landinu í ár gangi fjárhagsáætlanir þeirra eftir en átta sveitarfélög munu væntanlega skila neikvæðum rekstrarafgangi. Sveitar- félögin gera þó ráð fyrir að rekstrar- niðurstaða A-hlutans verði aðeins verri á þessu ári en í fyrra. »24 Afgangur af rekstri í 62 sveitarfélögum „Fólkinu var mjög brugðið og það var skelkað. Það kom hvellur sem líktist sprengingu við lendingu. Miðað við alvarleika málsins voru farþegar í frekar góðu jafnvægi. Það var mjög vel að öllu staðið bæði hjá Isavia, Icelandair og öllum þeim sem komu að málum,“ sagði Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, um það þegar hjóla- búnaður á flugvél Icelandair bilaði við lendingu í Keflavík í gær. Áfallateymi og viðbragðshópur Rauða krossins voru virkjuð. Öllum farþegum var boðin áfallahjálp þeg- ar þeir komu úr vélinni og voru þeir jafnframt hvattir til að hafa sam- band í síma 1717 ef vanlíðan gerði vart við sig á næstu dögum. thorunn@mbl.is »2 Fólkinu var mjög brugðið Óhapp Farþegar fóru frá borði og öllum var strax boðin áfallahjálp. Dansararnir Rúna og Sólbjörg sigruðu í hæfi- leikakeppni Frístundamiðstöðvarinnar Mið- bergs, Breiðholt got talent, í gærkvöld. Söng- konan Íris Þöll varð í 2. sæti og Marta Quental saxafónleikari í 3. sæti. Í gærdag kepptu börn af frístundaheimilunum og í gærkvöld unglingar úr félagsmiðstöðvum. Keppnin var nú haldin í 11. sinn. Hún er löngu orðin einn af vinsælustu viðburðum ársins hjá æskunni í Breiðholti. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Breiðhyltingar sýndu fjölbreytta hæfileika Hildur Guðnadóttir kvikmynda- tónskáld segir undanfarnar vikur á þeytingi milli verðlaunahátíða hafa verið sannkallaða rússíbanareið. „Þetta hefur verið brjálað,“ segir hún hlæjandi í samtali við Morgun- blaðið, en alls hefur tónlist hennar í sjónvarpsþáttunum Chernobyl og kvikmyndinni Joker hreppt tíu verð- laun. Og nú spá margir sérfræðingar því að hún fari líka heim með Óskarsverðlaun annað kvöld. Hildur segist finna fyrir miklum stuðningi og áhuga að heiman og finnst það fallegt. En hún hefur lítið getað einbeitt sér að því að semja undanfarið. „Ég hef lítið getað ein- beitt mér. Það hefur verið frekar mikill hávaði!“ Í samtalinu lýsir Hildur því hvernig hún kom óvenjulega snemma að vinnuferlinu við Joker. Tónlistin var svo leikin við tökur myndarinnar og hafði til að mynda áhrif á það hvernig aðalleikarinn Joaquin Phoenix brást við. „Tónlist- in hafði áhrif á alla á settinu og er djúpt inni í frumeindunum,“ segir Hildur. „Það er svo fallegt við tónlist hvernig hún getur náð á aðra staði en orð, hún fer undir húðina.“ Sömu karlkyns tónskáldin hafa komið að mörgum umtöluðustu Hollywood-kvikmyndum síðustu ára og Hildur keppir við þá nokkra um Óskarinn. Hún neitar því ekki að hún sé nú komin í þann karlaklúbb, ein örfárra kvenna. „Maður þarf bara að komast með annan fótinn inn til að sanna að mað- ur geti ráðið við þetta – og á síðustu árum hafa stúdíóin séð að ég geri það. Þar af leiðandi hafa þau gefið mér tækifæri á stærri og stærri verkefnum, sem er frábært.“ Hefur verið mikill hávaði  Margir spá Hildi Guðnadóttur tónskáldi Óskarsverðlaunum annað kvöld AFP Verðlaun Hildur með Gullinn hnött. Hún hefur hreppt fjölda verðlauna. MSpekingar spá Hildi … »4 Tónlist nær á aðra staði … »51

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.