Morgunblaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Glæsileg borðstofuhúsgögnum frá CASÖ
í Danmörku
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sala á prótínríkari mjólkurafurðum
heldur áfram að minnka og sala á
fituríkari afurðum eykst. Í heildina
dregst salan saman. Skýringin ligg-
ur ekki alveg á lausu en gæti verið
aukinn innflutningur á ostum og
samdráttur á hótelum og veitinga-
stöðum vegna fækkunar ferða-
manna.
„Verslanamarkaðurinn hefur
haldið sér. Íslendingar eru ekki
neitt að minnka við sig í mjólkur-
vörum. Við finnum fyrir samdrætti
á fyrirtækjamarkaðnum. Virðist
vera að kaup hótela og veitinga-
staða séu að dragast saman. Út úr
því má lesa samdráttinn í ferða-
þjónustunni,“ segir Elín M. Stef-
ánsdóttir, bóndi í Fellshlíð og for-
maður stjórnar Mjólkursamsölunn-
ar.
Eins og sést á töflunum er mesti
samdrátturinn á síðasta ári í mjólk,
sýrðum vörum og skyri, rúm 5%.
Sala á rjóma og smjöri eykst en sala
á íslenskum ostum stendur í stað.
Tölur um innflutning sýna að inn-
flutningur á mjólkurosti hefur auk-
ist um tæp 100 tonn eða 18%. Hefur
innflutningurinn aukist ár frá ári,
vegna tilslakana í tollamálum, og er
hlutur innflutnings kominn í 9% af
ostaneyslu landsmanna.
Með því er sagan þó ekki öll sögð,
eins og Elín bendir á. „Innflutn-
ingur á svokölluðum jurtaosti hefur
aukist. Til dæmis eru pítsustaðir
farnir að nota hann mikið. Við erum
svolítið hissa á þessu. Svo virðist
sem nóg sé að skipta út hluta af
mjólkurfitunni fyrir jurtafitu og
kalla það jurtaost sem ekki ber
neinn toll og er verðið því lægra,“
segir Elín. Hún tekur fram að
Mjólkursamsalan sé að kanna þetta
mál enda geti samkeppnin verið
ósanngjörn ef verið er að flytja inn
mikið af jurtaosti sem sé að mestu
úr mjólk en með lægri tolli.
Við skoðun á innflutningsskýrsl-
um sést að innflutningur á jurta-
ostum nærri tvöfaldaðist á árinu
2019, frá árinu á undan. Flutt voru
inn tæp 300 tonn á móti 153 tonnum
árið áður. Þetta kemur til viðbótar
innflutningi á mjólkurosti sem
sýndur er í töflunni hér með. Að
auki voru flutt inn 173 tonn af jurta-
rjóma, lítið eitt minna en árið á und-
an.
Efnahallinn eykst
Svokallaður efnahalli í mjólkur-
framleiðslunni eykst stöðugt með
aukningu á sölu fituríkari vara og
minni sölu þeirra prótínríkari. Hall-
inn er nú orðinn 21 milljón lítra.
Framleiðan er stillt af miðað við
fituhlutann, til þess að örugglega sé
til næg mjólk fyrir innlenda mark-
aðinn. Þannig er kvótinn 145 milljón
lítrar en framleiðslan í fyrra var þó
meiri, nærri 152 milljónir lítra.
Mjólkursamsalan þarf að nota
prótínið sem ekki selst til að fram-
leiða mjólkurduft og flytja út. Verð
fyrir duft er lágt á heimsmarkaði og
dugar langt í frá fyrir kostnaði.
„Það eru engar töfralausnir til við
þessu. Mjólkursamsalan hefur
stundað öflugt vöruþróunarstarf og
komið með margar nýjungar í skyri
og osti sem mér hefur fundist ganga
vel,“ segir Elín.
Innflutningur á ostum eykst
Til viðbótar mjólkurostum koma svokallaðir jurtaostar en innflutningur á þeim tvöfaldaðist í fyrra
Sala á fituríkari afurðum eykst en prótínríkari vörur láta undan síga Ferðamenn borða minna
160
150
140
130
120
110
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
Sala mjólkurafurða 2019 Skipting afurða 2019
Framleiðsla og sala, milljónir lítra
Heimild: SAM,
Hagstofa Íslands
( bráðabirgða-
tölur)
Sala, þúsundir lítra / tonn 2018 2019 Breyting
Mjólk og sýrðar vörur 40.825 38.756 -5,1%
Rjómi og sýrður rjómi 3.044 3.217 5,7%
Skyrvörur 3.161 3.001 -5,1%
Viðbit 2.351 2.390 1,7%
Ostar 6.208 6.187 -0,3%
Duft 1.191 1.173 -1,5%
Samtals 56.780 54.724
Innvegin mjólk
Heildarsala umreiknuð í fi tu
Heildarsala umreiknuð
í prótein
Mjólk og
sýrðar vörur,
71% (38.756 lítrar)
Rjómi og
sýrður
rjómi, 6%
Viðbit, 4%
Duft, 2%
Ostar, 11%
Skyr og
skyr drykkir,
5% Samtals
56.780
þúsundir lítra
og kílóa
Innlend framleiðsla,
6.187 tonn, 91%
9%
126
147
152
Innfl utningur 2018-2019
Þúsundir lítra / tonn 2018 2019 Breyting
Mjólk, rjómi 142 108 -24%
Jógúrt 171 170 -1%
Smjör, mjólkurviðbit 3 5 67%
Ostar 511 603 18%
„Gríðarleg þörf er fyrir innviða-
uppbyggingu,“ sagði Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra í ræðu sinni
á flokksráðsfundi VG í félagsheim-
ilinu á Seltjarnarnesi í gær. Tók hún
þar undir sjónarmið Bjarna Bene-
diktssonar, fjármála- og efnahags-
ráðherra, um að selja þyrfti hlut
ríkisins í Íslandsbanka.
Katrín sagði í ræðu sinni að eitt af
grunngildum VG væri félagslegt
jafnrétti og jöfnuður, sem flokkur-
inn ynni ötullega að. Í þessu sam-
hengi nefndi hún lengingu fæðingar-
orlofs, fleiri félagslegar lausnir í
húsnæðismálum, að bæta kjör aldr-
aðra og öryrkja og efla heilbrigðis-
kerfið. „Heilbrigðismálin hafa verið
mál málanna að undanförnu en þar
höfum við staðið vaktina – stóraukið
framlög til heilsugæslunnar og aukið
þar þjónustu, ekki síst á sviði geð-
heilbrigðismála, til Landspítalans og
heilbrigðisstofnana um land allt og
síðast en ekki síst hjúkrunarheim-
ila,“ sagði hún. »12
Mikil þörf á upp-
byggingu innviða
Katrín Jakobsdóttir á fundi VG
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fundað Katrín og flokksfélagar.
Guðni Einarsson
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Enginn slasaðist þegar hjólabúnað-
ur á þotu Icelandair brotnaði við
lendingu á Keflavíkurflugvelli kl.
15.34 í gær. Um borð voru 160 far-
þegar og sex manna áhöfn. Flugvélin
var að koma frá Berlín.
„Þetta var frekar óþægilegt,“
sagði Jóhann Steinn Eggertsson,
farþegi. „Þetta var venjuleg lending
þar til hjólið brotnaði undan vélinni,
en allir eru heilir á húfi þannig að
þetta fór eins vel og það gat farið.
Þetta var mjög vel gert hjá flug-
mönnunum.“
Að sögn hans var vélin lent þegar
hjólabúnaðurinn gaf sig. Svo hallað-
ist vélin og lagðist á hægri hreyf-
ilinn. Farþegarnir fundu vel fyrir
því. Flestir héldu þó ró sinni en þessi
lífsreynsla var heldur óskemmtileg.
Farþegarnir voru komnir frá borði
tæpri klukkustund eftir lendingu.
Áfallateymi Rauða krossins tók á
móti þeim og bauð aðstoð. Farþegar
sem áttu bókað tengiflug til N-Am-
eríku héldu för sinni áfram.
Mikilvægast að enginn slasaðist
Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice-
landair, sagði skipta mestu máli að
engin slys urðu á fólki. „Aðflugið og
lending voru eðlileg en skömmu eftir
lendingu virðist lendingarbúnaður-
inn hægra megin gefa sig þannig að
hún dettur í raun niður á hreyfilinn
hægra megin og rennur aðeins eftir
flugbrautinni,“ sagði Bogi. Hann gat
ekki sagt hvað olli því að lendingar-
búnaðurinn gaf sig. Atvikið væri til
rannsóknar hjá RNSA.
Flugvélin, TF-FIA, er af gerðinni
Boeing 757. Hún var smíðuð árið
2000 og er því 20 ára á þessu ári.
Bogi sagði bæði eldri og yngri vélar í
flota félagsins og almennt væru flug-
vélar gerðar til að fljúga mun lengur
en í 19 ár. Skipt væri um lending-
arbúnað á ákveðnu árabili og flugvél-
arnar færu reglulega í skoðanir og
viðhald. „Miðað við þær upplýsingar
sem við höfum hefur aldur vélarinn-
ar ekkert með atvikið að gera. Ör-
yggið er númer eitt, tvö og þrjú hjá
okkur,“ sagði Bogi.
Rauðu hættustigi var lýst yfir á
flugvellinum, Samhæfingarstöð var
virkjuð og Rannsóknarnefnd sam-
gönguslysa (RNSA) látin vita.
Sex flugvélum snúið frá
Suðaustanátt, 19 m/s og 26 m/s í
hviðum, var á Keflavíkurflugvelli kl.
16.00 í gær. Landgöngubrýr voru
teknar úr notkun á fjórða tímanum
vegna vindhraða. Wizz Air og Finn-
air sneru flugvélum sínum við síð-
degis í gær vegna veðurs hér, Wizz
Air fimm og Finnair einni. Finnair-
vélin kom aftur og lenti í gærkvöld.
Guðjón Helgason, upplýsingafull-
trúi Isavia, sagði að RNSA þyrfti að
ljúka vettvangsrannsókn áður en
leyft yrði að færa flugvélina. Hann
taldi að þótt vélin yrði ekki færð af
flugbrautinni í nótt myndi það ekki
hafa teljandi áhrif á flug í dag því að
önnur flugbraut væri opin.
Enginn slasaðist þeg-
ar hjólabúnaður bilaði
Í flugvélinni voru 160 farþegar og sex manna áhöfn
Ljósmynd/Aðsend
Óhappið Hjólabúnaðurinn hægra megin gaf sig eftir lendingu í Keflavík og
flugvélin lagðist á hreyfilinn. Um borð voru 166 manns, enginn slasaðist.
Ljósmynd/Rögnvaldur Óli Pálmason
Heimkoma Farþegarnir fóru frá
borði og var boðin áfallahjálp.