Morgunblaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020 Gæðavörur í umhverfisvænum umbúðum Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Hollt, bragðgott og þæginlegt Vegan - Keto - Pascaterian - Glutenlaust Sölustaðir: Hagkaup, Nettó, Heilsuhúsin, Fjarðarkaup, Melabúðin, Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi Hildur Guðnadóttir, tónskáld, sellóleikari og söngkona, getur skráð nafn sitt á spjöld Íslandssögunnar á sunnudags- kvöld þegar Óskarsverðlaunin verða af- hent við hátíðlega athöfn í Dolby- leikhúsinu í Los Angeles. Hildur er tilnefnd í flokki bestu kvikmyndatónlistar fyrir kvik- myndina Joker og vinni hún á sunnudaginn verður hún fyrsti Ís- lendingurinn til að hreppa Óskarinn. Þá yrði hún þriðja konan til að fá Óskarsverðlaun fyrir bestu kvik- myndatónlistina í 84 ára sögu verð- launanna. 33 ár eru síðan kona vann síðast verðlaun í sama flokki þegar Ann Dudley hlaut þau fyrir The Full Monty. Hildur fæddist árið 1982 og er dóttir Guðna Kjartans Franzsonar, klarinettuleikara og tónlistarkennara, og Ingveldar Guðrúnar Ólafsdóttur óperusöngkonu. Hildur byrjaði ung að árum að læra á selló í Tónlistar- skóla Reykjavíkur og var í fyrsta nemendahópnum sem útskrif- aðist af nýmiðlabraut Lista- háskóla Íslands vorið 2005. Hildur hefur verið í nokkrum hljómsveitum og stofnaði til að mynda hljómsveitina Rúnk upp úr aldamótum þar sem hún spilaði m.a. með tónlistarmönnunum Prins Póló og Benna Hemm Hemm. Fimm verðlaun á einum mánuði Sigurganga Hildar síðustu vikur hefur verið mögnuð. Í lok síðasta árs hlaut hún Emmy-verðlaun fyrir tónlistina í þáttunum Chernobyl og það sem af er þessu ári hefur hún unnið til fimm verðlauna, meðal annars Golden Globe, Grammy og BAFTA, ýmist fyrir tónlistina í Chernobyl eða Joker. Óhætt er að segja að mikill meðbyr sé með Hildi í aðdraganda Óskarsverðlaun- anna. 28 af 32 spekingum hjá Gold Derby, sem sérhæfir sig í að segja fyrir um sigur- vegara á verðlaunahátíðum, spá Hildi sigri á sunnudag samkvæmt nýjustu spám. Eini keppinautur Hildar, að mati spekinganna, er Thomas Newman, en fjórir telja að hann hreppi hnossið fyrir tónlistina í 1917. Hinir þrír keppninautar hennar eru þó engir au- kvisar; Alexandre Desplat er tilnefndur fyrir Little Women, Randy Newman fyrir Marriage Story og sjálfur John Williams fyrir Star Wars: The Rise of Skywalker. New York Times spáir því sömu- leiðis að Hildur hljóti Óskarinn í flokki kvikmyndatónlistar fyrir Joker. Hildur er orðin alvön verð- launahátíðum og ætti því að vera nokkurn veginn á heimavelli á sunnudaginn, sem er einmitt uppáhaldsvikudagurinn hennar. Það sagði hún að minnsta kosti í viðtali við Morgunblaðið árið 2006. Ástæðan er einföld: „Það er svo mikil ró yfir honum.“ Hildur ætti því mæta róleg og yfirveguð á rauða dregilinn á sunnudagskvöld, sama hver niðurstaðan verður. erla@mbl.is BAFTA Á BAFTA-verðlaununum, sem þykja gefa góð fyrir- heit um Óskarsverðlaunin, í byrjun mánaðarins. Litrík Hildur klæddist svörtu á fyrstu verðlaunahátíðunum en var öllu litaglaðari á Grammy-verðlaununum í lok janúar. Verðlaun gagnrýnenda Þriðju verðlaun ársins hlaut Hildur á Critics’ Choice-verðlaunaafhendingunni um miðjan janúar. Spekingar spá Hildi Óskarnum  Hildur Guðnadóttir gæti orðið þriðja konan sem hlýtur Óskarinn fyrir kvikmyndatónlist Óskarsverðlaunin verða afhent aðfaranótt mánudags Golden Globe Hildur með gullhnöttinn. AFP Áætlað er að varðskipið Þór komi til Reykjavíkur um miðja næstu viku þar sem áhafnarskipti verða. Verður úthald varðskipsins þá búið að standa yfir í 60 daga sem er með því lengsta sem þekkst hefur hjá Þór síðan skipið kom nýtt árið 2011. „Það er rétt að úthald varðskips- ins Þórs hefur verið í lengri kantinum að þessu sinni. Ástæðan er sú að varðskipið er mun stærra og öflugra en varð- skipið Týr. Þar fer betur um mannskap og farþega um borð heldur um borð í Tý. Þar sem veður hafa verið válynd og útlit var fyrir að svo yrði áfram var tekin var sú ákvörðun að halda varðskip- inu Þór áfram úti og færa áhöfnina á varðskipinu Tý yfir á Þór. Stærstur hluti áhafnarinnar á varðskipinu Tý hafði talsverða reynslu af því að vera um borð í Þór og því var vitað að áhafnarskiptin myndu ganga vel, sem og þau gerðu,“ segir Ásgeir Er- lendsson, upplýsingafulltrúi Land- helgisgæslunnar. Þór gegndi sem kunnugt er lykilhlutverki í óveðrinu á Norðurlandi í desember og á Vest- fjörðum í janúar. Áhafnarskiptin fóru fram í Grundarfirði í síðasta mánuði. Þá voru jafnframt teknar vistir um borð. Hefðbundin áhöfn á varðskipum Landhelgisgæslunnar telur 18 manns. Skipherrar hafa verið Hall- dór Benóný Nellett og Páll Geirdal. Þeir hafa skipt með sér túrunum. Þá hefur Einar H. Valsson, skipherra á Tý, jafnframt verið um borð undan- farnar vikur til að hljóta þjálfun á varðskipið Þór. sisi@mbl.is Tveggja mánaða úthald hjá Þór  Er miklu öflugra varðskip en Týr Morgunblaðið/Eggert Óveðrið Varðskipið Þór sá Dalvík- ingum fyrir rafmagni í tæpa viku. Halldór B. Nellett
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.