Morgunblaðið - 08.02.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins.
Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum
keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast
tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að
leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar
– tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði.
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Tíð slys á RIB-bátum við landið
urðu kveikjan að gerð öryggiskerfis
við siglingar á slíkum farkostum.
Hugmynd um hugbúnað með leið-
beinandi siglingakerfi hefur þróast
og nú er svo komið að kerfi frá
Hefring ehf. er tilbúið og hefur ver-
ið sótt um einkaleyfi á því á
alþjóðavísu. „Vaktarinn“ hefur vak-
ið athygli víða og fram undan eru
viðræður við stóra bátaframleið-
endur í Evrópu og tryggingafyr-
irtæki hafa einnig sýnt áhuga.
Helmingur slysa skráður
Hugmyndavinna hófst 2017 og
fyrirtækið Hefring var stofnað
seint 2018. Í júlí í fyrra kom Ný-
sköpunarsjóður atvinnulífsins inn
sem hluthafi og síðan hafa þeir
Karl Birgir Björnsson fram-
kvæmdastjóri og Björn Jónsson, en
þeir eru báðir viðskiptafræðingar,
unnið að verkefninu í fullu starfi.
Þriðji stofnandinn er Magnús Þór
Jónsson, prófessor í verkfræðideild
HÍ, og hann starfar með þeim Birni
og Karl Birgi í hlutastarfi. Fjórði
starfsmaðurinn er Grikkinn, Evan
Kirou, sem er nýlega fluttur til Ís-
lands og hefur tengsl í hafsækna
starfsemi víða um heim. Hann
þekkir m.a. til og hefur tengsl inn á
markað með lystisnekkjur og
rekstrarumsjón fyrir slík fley, en
sú grein hefur sýnt verkefninu
áhuga.
Á síðustu árum hefur Rann-
sóknanefnd samgönguslysa, sigl-
ingasvið, fjallað um 14 mál vegna
slysa um borð í harðkorna bátum,
RIB. Öll tengjast þau of miklum
siglingahraða miðað við aðstæður
og höggum vegna öldu. Mörg slys á
bátum hér við land má tengja óvar-
kárni og því ætti ölduvari að geta
gagnast mörgum.
Erlendis er vandamálið stórt og
segja þeir Björn og Karl að rann-
sóknir sýni að um allan heim slasist
árlega um 355 þúsund manns um
borð í skemmtibátum. Aðeins um
helmingur slíkra slysa sé tilkynntur
og gæti fjöldinn því losað 700 þús-
und, aðeins á skemmtibátum. Þeir
segja að 96% slysa á sjó verði
vegna mannlegra mistaka og því sé
verk að vinna við að auka öryggi.
Búnaðurinn sem nú hefur verið
hannaður er miðaður við báta undir
24 metrum, ekki aðeins fyrir RIB-
báta, og tekur tillit til bátsgerðar
og hraða. Þeir segja að hreyfingar
báta séu yfirleitt svipaðar þó svo að
hraðinn geti verið verulega mis-
munandi og þá um leið höggin sem
koma á bát, skipverja og farþega.
Nýjung sem er ekki til staðar
„Útbúnaðinum má að hluta líkja
við ökurita í bílum, sem notar há-
markshraða og gerir ökuskrá,“
segir Karl Birgir. „Við höfum gert
ökurita fyrir báta til að leiðbeina
skipstjórnarfólki. Búnaðurinn er
hannaður til að mæla sjó- og öldu-
lag og breytingar á aðstæðum og
nota það til að reikna hámarks-
hraða í rauntíma, sem á þá við
hverju sinni. Þetta er nýjung sem
er ekki til staðar í dag.
Kerfið tekur ekki völdin af skip-
stjóranum, enn sem komið er, en
gefur leiðbeinandi hámarkshraða
miðað við sjó og öldulag. Ef farið
er eftir leiðbeiningum sem kerfið
veitir skipstjórnarmönnum á að
vera hægt að fækka slysum veru-
lega.
„Vaktari“ gæti fækkað slysum
Hefring sækir um einkaleyfi á leiðbeinandi siglingatæki Mælir sjó- og öldulag og ráðleggur um há-
markshraða Samkvæmt skráningum slasast 355 þúsund manns árlega í skemmtibátum víða um heim
Ljósmynd/Hefring ehf.
Prófanir Karl Birgir Björnsson, Einar Hansen hjá Landhelgisgæslunni og Björn Jónsson fara yfir niðurstöður.