Morgunblaðið - 08.02.2020, Síða 13

Morgunblaðið - 08.02.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlit MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020 Styrkir til krabbameins- rannsókna Nýjar áskoranir – nýjar leiðir milljónum úthlutað 160 styrkir veittir 36 „Stuðningurinn hefur skipt sköpum og hjálpað okkur að afhjúpa ferla sem auka skilvirkni ónæmiskerfisins í því að drepa æxlisfrumur.“ Erna Magnúsdóttir hlaut 10 milljónir króna úr sjóðnum 2019. „Þessi styrkur mun gera okkur kleift að rannsaka áhrif skimunar og greiningar á forstigi mergæxlis á andlega heilsu.“ Andri Steinþór Björnsson hlaut 7,4 milljónir króna úr sjóðnum 2019. „Aukinn skilningur á áhrifum krabba- meinslyfja og þróun frjósemisvernd- andi lyfja myndi auka verulega lífsgæði stúlkna og kvenna í kjölfar krabbameinsmeðferðar.“ Bríet Bjarkadóttir hlaut 2,5 milljónir króna úr sjóðnum 2019. Dæmi um rannsóknarverkefni sem styrkt eru af sjóðnumMarkmið Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins er að efla rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga. Fjölbreytt rannsóknarverkefni eru styrkt af Vísindasjóðnum. Sérstaklega er hvatt til umsókna til klínískra rannsókna og rannsókna sem tengjast börnum og unglingum. Stofnfé sjóðsins eru styrkir og gjafir frá almenningi og fyrirtækjum um allt land. Við þökkum öllum velunnurum félagsins. Með ykkar stuðningi varð stofnun sjóðsins að veruleika. Óskað er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum • Umsóknareyðublað, úthlutunarreglur og aðrar upplýsingar er að finna á www.krabb.is/visindasjodur/ • Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti miðvikudaginn 4. mars • Umsóknir skal senda rafrænt á visindasjodur@krabb.is • Hámarksupphæð styrks er 10 milljónir króna • Styrkur vegna sama verkefnis er veittur að hámarki í þrjú ár Hægt er styrkja sjóðinn á krabb.is eða í síma 540 1900 Lj ós m .K ris tin n In gv ar ss on Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, formaður Miðflokks- ins, er þessa dag- ana með fundi á Austurlandi í þeim byggðum sem mynda sameinað sveitar- félag sem formlega verður stofnað í vor. Í gær hitti Sig- mundur fólk á Egilsstöðum, fundar í dag á Borgarfirði eystra og Seyðisfirði og á morgun á Djúpavogi, að því er fram kemur á vef Miðflokksins. „Það er mikilvægt að vel takist til með sameiningu eystra, nú þegar ríkisstjórnin leggur svo mikið upp úr þeim málum, jafnvel þvingaðri sam- einingu sem ég er ekki fylgj- andi. Mikilvægt er einnig að sameining sveitarfélaga leiði til þess að opinberum störfum úti um land verði fjölgað, en ekki fækkað eins og stundum hefur gerst,“ sagði Sigmundur Davíð. Viðreisn fer víða Meðal þingmanna Viðreisnar er ætlunin að tala við fulltrúa sveitarfélaga, opinberra stofn- ana, og atvinnulífsins. Sjónum verður sérstaklega beint að Ár- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Vesturlandi. Sameining takist vel SIGMUNDUR FYRIR AUSTAN Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Óvenjumargir illviðrisdagar í janúarmánuði höfðu auðsjáanlega mikil áhrif á umferð ökutækja um þjóðvegi landsins. ,,Umferðin á Hringveginum í janúarmánuði dróst mjög mikið saman eða um tæp átta prósent og leita þarf átta ár aftur í tímann til að finna viðlíka samdrátt. Samdráttur er í umferðinni á öllum landssvæðum,“ segir á nýútkomnu yfirliti Vegagerðarinnar um umferð- ina á Hringveginum í janúar. „Gríðarlegur samdráttur“ Þar segir að þegar litið er á tölur um umferð á 16 lykilteljurum á Hringveginum hafi „gríðarlegur samdráttur“ mælst í janúar borið saman við sama mánuð á síðasta ári. „Leita þarf aftur til ársins 2012 til að finna meiri samdrátt en þá mæld- ist tæplega 10% samdráttur. Það sem sker sig úr núna er að sam- dráttur mældist í öllum landssvæð- um en árið 2012 jókst umferð á Austurlandi hins vegar. Ástæður samdráttar í umferð á Hringvegi árið 2012 er sjálfsagt flestum kunn en þá var efnahags- kreppa á Íslandi, en nú hins vegar má gefa sér að afar slæm tíð í janúar eigi mesta sök á lítilli umferð,“ segir í umfjöllun á vefsíðu Vegagerðar- innar. Samanlögð meðalumferð á dag yfir lykilteljara á hringveginum sýnir að í janúar óku 57.642 bílar að meðaltali um Hringveginn en þeir voru 62.516 að jafnaði í fyrra. 17% samdráttur umferðar á Vesturlandi í janúar Fram kemur að umferðin dróst saman á öllum landsvæðum, þó mest um Vesturland eða um tæp 17% en minnst um Austurland eða um 3,5%. Umferðin dróst saman um 15,8% á Norðurlandi, 10,8% á Suðurlandi en 3,9% á höfuðborgar- svæðinu ef tölurnar eru bornar sam- an við sama mánuð í fyrra. „Það verður afar fróðlegt að fylgjast með framhaldinu og hvort að á næstu mánuðum muni áfram mælast samdráttur í umferð á Hringvegi,“ segir á vef Vegagerð- arinnar. Minnkaði mest á fimmtudögum Sé litið á umferðina á einstökum vikudögum kemur í ljós að hún dróst saman alla vikudaga. Hlut- fallslega mest á fimmudögum en minnst á föstudögum. Eins og venjulega var mest ekið á föstu- dögum en minnst á þriðjudögum. Færri á ferðinni um allt land  Umferð ökutækja á Hringveginum dróst saman um tæp 8% í nýliðnum mánuði  „Leita þarf aftur til ársins 2012 til að finna meiri samdrátt,“ skv. Vegagerðinni Morgunblaðið/Hari Á vegum úti Umferðin á Hringveginum í janúarmánuði dróst mikið saman. Inflúensa var staðfest hjá 29 einstak- lingum í síðustu viku, eða nánast tvöfalt fleiri en vikurnar á undan, samkvæmt tilkynningu frá Embætti landlæknis. Frá því um mánaðamótin septem- ber/október hafa samtals 169 verið greindir með staðfesta inflúensu, flestir á höfuðborgarsvæðinu, en líka víða annars staðar. Fimm þurftu innlögn á Landspít- ala vegna staðfestrar inflúensu í síð- ustu viku, þar af voru þrír 67 ára eða eldri. „Inflúensan færist nú í aukana, þeim sem voru með staðfesta inflú- ensu í síðustu viku fjölgaði frá því sem var í vikunni á undan og þeim sem eru með inflúensulík einkenni fjölgar töluvert. Inflúensan er sam- kvæmt þessu að breiðast talsvert út í samfélaginu þessar vikurnar.“ Einkenni inflúensunnar koma oft- ast snögglega og lýsa sér með hita, hósta, hálssærindum, höfuðverk, vöðvaverkjum og almennri vanlíðan. Þeim fjölgar sem greinast með flensu Umhverfis- og auðlindaráð- herra skipaði í gær Sigrúnu Ágústsdóttur forstjóra Um- hverfisstofn- unar. Sigrún lauk cand.jur. prófi frá Háskóla Ís- lands árið 1995. Hún hefur starfað að umhverfis- málum í um 20 ár, þar af sem sviðs- stjóri hjá Umhverfisstofnun frá árinu 2008 og var auk þess stað- gengill forstjóra áður en hún var settur forstjóri í október sl. Einnig starfaði hún m.a. sem lögfræðingur hjá umhverfis- og auðlindaráðu- neytinu frá 2000-2008. Embættið var auglýst í október sl. og sóttu 12 um það. Nýr forstjóri Um- hverfisstofnunar Sigrún Ágústsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.