Morgunblaðið - 08.02.2020, Side 22

Morgunblaðið - 08.02.2020, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020 nammi Öskudags Pantanir áwww.goa.is Áttu von á smáfólki í fyrirtækið á öskudaginn? STUTT ● Fjármála- og efnahagsráðherra hefur enn ekki borist áfangaskýrsla frá Bankasýslu ríkisins um mögulegar leiðir til þess að losa um eignarhald ríkisins á Íslandsbanka. Í ViðskiptaMogganum 29. janúar síðastliðinn var haft eftir Lár- usi L. Blöndal, formanni stjórnar Banka- sýslunnar, að ráðherra yrði afhent skýrslan í komandi viku, þ.e. þeirri sem nú er að líða. Fyrr í þessari viku, þ.e. miðvikudag- inn 5. febrúar, sagði ráðherra að rétt væri að losa um eignarhald ríkisins í Íslandsbanka. Þá hugmynd útfærði hann ekki nánar enda ljóst að skýrslu stofnunarinnar sem fer með eignarhlut- inn í hans umboði er að vænta innan tíðar. Ekkert bólar á skýrslu til ráðherra um sölu Laxvísitala Nasdaq sýnir að meðal- verð á ferskum laxi hefur fallið mik- ið að undanförnu, eða 11,5% á síð- astliðinni viku og 13,19% á síðustu fjórum vikum, og stendur meðal- verð nú í 68,67 norskum krónum á kíló, jafnvirði rúmlega 932 ís- lenskra krónum. Heimildir Undercurrent News herma að fallandi verð megi rekja til kórónuveirunnar sem kennd er við borgina Wuhan í Kína. Eru afpant- anir viðskiptavina í Kína sagðar hafa haft veruleg áhrif og harmað að það hafi þurft þennan sjúkdóm til þess að koma verðinu úr óeðlilegum hæðum. Björn Hembre, forstjóri Arnar- lax, gefur samt lítið fyrir þessar skýringar er hann er spurður um áhrif veirunnar. „Það er ekki mikið hægt að segja um það, enda yrðu það bara einhverjar getgátur.“ Jafn- framt segir hann Kína ekki vera það stóran kaupanda á markaðnum að það væri líklegt til að hafa svona mikil áhrif á verðlagningu. „Þetta snýst bara um framboð og eftirspurn. Fyrir jól var hátt verð vegna þess að veðurskilyrðin í Nor- egi gerðu það að verkum að erfitt var að fá fisk á land í slátrun og Noregur er langumsvifamesti fram- leiðandinn. Þetta dró úr framboði og hækkaði því verðið, svo hefur þetta jafnað sig,“ segir Björn og bendir á að verðið sé enn tæplega 38% hærra en fyrir 12 vikum. „Það sem hefur verið óeðlilegt er ekki lækkun verðs, frekar að verð var óeðlilega hátt,“ bætir hann við. gso@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Slátrun Ekki fékkst fiskur á land í Noregi vegna veðurs. Verð á laxi lækk- ar ört á markaði  Veðurskilyrði í Noregi stór þáttur Björn Hembre BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Það var létt yfir fólki í Hveragerði í gær, þrátt fyrir hráslaga og lítið skyggni. Í vinnsluhúsnæði Pure North Recycling komu forsvars- menn tíu íslenskra fyrirtækja saman og undirrituðu samkomulag undir heitinu Þjóðþrif. Þar er á ferðinni verkefni sem ætlað er að stórauka endurvinnslu plasts í landinu og draga um leið úr útflutningi þess. Með því er ætlunin að draga úr sót- spori sem af endurvinnslunni óhjá- kvæmilega hlýst. Pure North býr til plastpallettur sem seldar eru til framleiðslu á nýj- um plastvörum hér á landi og er- lendis. Fyrirtækin sem undirrituðu sátt- málann í gær eru Brim, Eimskip, Össur, Mjólkursamsalan, Coca Cola á Íslandi, Bláa lónið, Lýsi, Krónan, Marel og BM Vallá. Coca-Cola á Íslandi tekur þátt Morgunblaðið tók Einar S. Magnússon, forstjóra Coca Cola á Íslandi, tali við athöfnina. Sagði hann að drykkjarvöruiðnað- urinn á Íslandi byggi vel að því að framsýnt fólk hefði stofnað Endur- vinnsluna fyrir um 30 árum, sem tek- ur við plastflöskum og dósum til endurvinnslu. Segir hann að það sé markmið fyrirtækisins að 100% af slíkum umbúðum skili sér í þann far- veg. „Í starfsemi Coca-Cola á Íslandi fellur líka til plast utan um hráefni og umbúðir. Yfir 95% af okkar úr- gangi er flokkaður í safngáma, m.a. plastið og við fögnum því að nú sé kominn nýr umhverfisvænn valkost- ur innanlands sem byggist á íslensku hugviti og íslenskum náttúruauð- lindum, jarðvarmanum, þar sem tryggt er að plastið sem frá okkur fellur verður aftur notað og að þann- ig verði tryggð hringrás,“ segir ein- ar. Vilja allt plast til endurvinnslu Áslaug Hulda Jónsdóttir, sem stýrir viðskiptum og þróun hjá Pure North, segir áætlanir fyrirtækisins fela í sér mikilvægt framlag í barátt- unni við loftslagsvandann. „Almennt sparast um 1,8 tonn af olíu fyrir hvert tonn sem er endur- unnið af plasti vegna þess hversu mikla olíu þarf til þess að búa til nýtt plast. Vinnsluaðferð Pure North, með jarðvarmann og umhverfisvæna orkugjafa að vopni, gefa okkur til viðbótar það forskot að við spörum um 0,7 tonn af kolefnislosun fyrir hvert tonn sem er endurunnið.“ Pure North hefur á síðustu árum endur- unnið plast og þar hefur einkum ver- ið um heyrúlluplast að ræða. Áslaug Hulda segir að nýr búnaður fyrir- tækisins geri fyrirtækinu betur kleift að endurvinna allar tegundir, bæði af hörðu plasti og mjúku. Fyrirtækið fjárfesti fyrir nokkru í nýjum búnaði frá Póllandi og Þýska- landi sem gerir því mögulegt að keyra tvær aðskildar framleiðslulín- ur fyrir hinar ólíkur tegundir plasts en að fram til þessa hafi þurft að skipta búnaðnum á milli vinnsl- unnar. Það er hins vegar ekki nægi- legt hentugt til lengdar. Talið er að um 20 þúsund tonn falli til af plast- úrgangi á Íslandi á ári og segir Ás- laug Hulda drauminn vera þann að endurvinna það allt hér heima. Starfsmenn og eigendur Pure North Recycling stefna ótrauðir að því. Þjóðþrif gegn plastmengun  Tíu stórfyrirtæki taka höndum saman og hvetja önnur til þátttöku um leið Átak Forsvarsmenn fyrirtækjanna 10 komu saman í Hveragerði í gær. Fyrirtækin skuldbinda sig til að endurvinna úrgangsplast hjá Pure North Recycling. Vonir standa til að fleiri fyrirtæki bætist í hópinn á komandi mánuðum. Morgunblaðið/Stefán E. Stefánsson Úrgangur Gríðarlegt magn af plasti fellur til á hverju ári sem búa má til verðmætar vörur úr ef vilji stendur til þess. Gengi Icelandair í Kauphöll Ís- lands hækkaði um 7,17% í gær í kjölfar þess að félagið skilaði upp- gjöri fyrir síð- asta fjórðung ársins 2019 eftir lokun markaða á fimmtudag. Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær var tap Icelandair á fjórðungnum 3,8 milljarðar króna, og tap félagsins á árinu öllu nam um 7,3 milljörðum króna. Í gærmorgun voru birtar til- lögur tilnefningarnefndar vegna stjórnarmanna í félaginu, en nefndin leggur til að þeir verði Guðmundur Hafsteinsson, John F. Thomas, Nina Jonsson, Svafa Grönfeldt og Úlfar Steindórsson, sem er formaður stjórnarinnar. Ef farið verður að tillögum tilnefn- ingarnefndar þurfa því tveir stjórnarmenn að víkja, þau Ómar Benediktsson og Heiðrún Jóns- dóttir. Reynslumiklir stjórnarmenn Nýju einstaklingarnir sem lagt er til að taki sæti í stjórninni, þau John F. Thomas og Nina Jonsson, eru sérfræðingar með yfirgrips- mikla reynslu á flugmarkaði, sam- kvæmt greinargerð tilnefningar- nefndarinnar. Nina starfar sem ráðgjafi hjá flugráðgjafarfyrir- tækinu Plane View Partners og Thomas er ráðgjafi í fluggeiranum og starfar meðal annars fyrir al- þjóðlega ráðgjafarfyrirtækið McKinsey & Co. Bæði hafa þau gegnt margvíslegum stjórnunar- störfum innan fluggeirans á al- þjóðavísu. Icelandair hækkaði Flug Icelandair tapaði í fyrra.  Tilnefningarnefnd vill nýja stjórnarmenn 8. febrúar 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.39 125.99 125.69 Sterlingspund 162.62 163.42 163.02 Kanadadalur 94.36 94.92 94.64 Dönsk króna 18.453 18.561 18.507 Norsk króna 13.586 13.666 13.626 Sænsk króna 13.063 13.139 13.101 Svissn. franki 128.67 129.39 129.03 Japanskt jen 1.1411 1.1477 1.1444 SDR 172.16 173.18 172.67 Evra 137.91 138.69 138.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.0461 Hrávöruverð Gull 1564.75 ($/únsa) Ál 1687.5 ($/tonn) LME Hráolía 55.56 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.