Morgunblaðið - 08.02.2020, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
„Veist þúað skilgreining
áhitabreytist eftir aldri?
ThermoScan7eyrnahita-
mælirinnminnveit það.“
BraunThermoScan
eyrnahitamælar fást í öllum
lyfjaverslunum
ThermoScan® 7
Vetrarsól er umboðsaðili
40 ár
á Íslandi
Sláttuvélar
Snjóblásarar
Sláttutraktorar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Reiðibylgja hefur farið um kín-
verska samfélagsmiðla í kjölfar
frétta af andláti Li Wenliang, kín-
verska læknisins sem varaði við kór-
ónuveirunni mannskæðu fyrir ára-
mót. Þykir fréttaflutningur af
andláti Wenliang, sem lést sjálfur af
kórónusýkingu samkvæmt tilkynn-
ingu Borgarsjúkrahússins í Wuhan,
bera öll merki ritskoðunar kín-
verskra stjórnvalda.
Þannig greindu kínverska ríkis-
sjónvarpsstöðin CCTV og Global
Times, málgagn kínverska kommún-
istaflokksins, frá andláti Wenliang á
kínverska samfélagsmiðlinum
Weibo seint á fimmtudaginn. Til-
kynningar fjölmiðlanna tveggja voru
hins vegar fjarlægðar af Weibo
skömmu eftir að þær voru orðnar
mest lesna efnið þar og það næsta
sem birtist um lækninn var að hann
sætti bráðameðhöndlun vegna sýk-
ingarinnar. Að lokum voru svo frétt-
ir af andláti hans fluttar á nýjan leik
um klukkan þrjú aðfaranótt gær-
dagsins.
Eftir að fyrri dánartilkynningin
birtist varð myllumerkið „Dr. Li
Wenliang látinn“ það fjölsóttasta á
Weibo, yfir milljarður notenda nálg-
aðist það gegnum snjalltæki sín og
tölvur auk þess sem netverjar skildu
eftir sig rúmlega 1,1 milljón athuga-
semda við efnið, sem þó var skyndi-
lega horfið af listanum yfir 20 vin-
sælustu umræðuefnin í gær.
Átt var við listann
AFP-fréttastofan hefur eftir
King-wa Fu, sem rannsakar kín-
verskar ritskoðunaraðferðir við há-
skólann í Hong Kong, að svo virðist
sem átt hafi verið við listann. Fu
sagði fréttaflutninginn minna á
fréttir í kjölfar andláts Liu Xiaobo
árið 2017, andófsmannsins sem hlaut
friðarverðlaun Nóbels árið 2010.
„Þessi ónákvæmi fréttaflutningur af
dauða Li [læknisins] bendir til af-
skipta stjórnvalda,“ sagði Fu.
Notendur Weibo kvörtuðu yfir því
að skrif þeirra og athugasemdir við
skrif annarra hefðu verið fjarlægð,
hvort tveggja af Weibo og skilaboða-
forritinu WeChat, augsýnilega í
þeim tilgangi að hafa áhrif á um-
ræðu.
Leiðbeiningum til blaðamanna var
lekið á Weibo þar sem þeim er meðal
annars skipað að gera ekki meira úr
málinu en efni standi til, algeng rit-
skoðunaraðferð að sögn ónafn-
greinds blaðamanns við viðskipta-
tímaritið Caixin. Auk þess sögðu
fimm fréttamenn ríkismiðla við AFP
að þeim hefði verið sagt að vinna
„sólskinsfréttir“ af málinu, það er
fréttir af því sem vel gengi í barátt-
unni við kórónuveiruna.
Skýr teikn ritskoðunar í Kína
Efni fjarlægt af samfélagsmiðlum og fréttamönnum uppálagt að vinna „sólskinsfréttir“
AFP
Sjúkur Tvær myndir sem Li Wenliang setti á samfélagsmiðla af sér eftir að hann veiktist af kórónuveirunni.
Stjórnvöld í Hong Kong fyrir-
skipuðu í gær að allir sem þang-
að kæmu frá Kína skyldu sæta
tveggja vikna einangrun sem
varúðarráðstöfun gagnvart út-
breiðslu kórónuveirunnar.
Gestkomandi er gert að sitja í
einangrun á hótelherbergjum
ellegar gista í einangrunar-
miðstöðvum á vegum hins opin-
bera, en Hong Kong-búar sem
eru að snúa heim eiga að halda
til heimilis síns og taka einangr-
unarvistina út þar. Við brotum á
einangrunarreglunum liggja
sektir og allt að hálfs árs fang-
elsisvist.
Nýju reglurnar tóku gildi á
miðnætti í gærkvöld, föstu-
dagskvöld, og stóðu tugir þús-
unda ferðalanga í röðum í kín-
versku landamæraborginni
Shenzhen í gær til að freista
þess að ná yfir til Hong Kong án
þess að þurfa að sitja innilok-
aðir í tvær vikur.
Í Hong Kong hafa 26 tilfelli
kórónuveirunnar greinst og eitt
andlát orðið af völdum hennar
samkvæmt fréttum í gærkvöld.
Fyrirskipa
einangrun
HONG KONG
Ríkisstjórn Noregs hefur sett land-
inu það markmið að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda sem nemur
50 til 55 prósentum fyrir árið 2030.
Þetta tilkynntu þrír ráðherrar á
blaðamannafundi í gær en frestur
ríkja til að leggja fram áætlun fyrir
næstu fimm ár í loftslagsmálum sín-
um rennur út á morgun, 9. febrúar,
samkvæmt því sem um var samið í
Parísarsáttmálanum.
Samkvæmt sáttmálanum skulu
aðildarríkin, frá og með 2020, leggja
slíka áætlun fram fimmta hvert ár.
Þrátt fyrir tímafrestinn höfðu aðeins
Noregur, Súrínam og Marshall-
eyjar birt sínar áætlanir þegar
norska ríkisútvarpið NRK fjallaði
um málið í gær. Áður höfðu Norð-
menn einsett sér að draga úr losun
um 40 prósent frá því sem var árið
1990.
Sýndarmennska efst á blaði
Það voru Sveinung Rotevatn, um-
hverfisráðherra Vinstriflokksins,
Jan Tore Sanner fjármálaráðherra,
Hægriflokknum, og Kjell Ingolf
Ropstad, barna- og fjölskyldu-
málaráðherra Kristilega þjóðar-
flokksins, sem kynntu nýja losunar-
markmiðið. Jon Georg Dahle, fyrr-
verandi samgönguráðherra, sem
hvarf úr ríkisstjórn með Framfara-
flokknum þegar stjórnin sprakk í
janúar, segir nýja markmiðið
sýndarmennsku sem sé greinilega
efst á blaði í umhverfisstefnu ríkis-
stjórnarinnar.
Útspil stjórnarinnar á elleftu
stundu kom ýmsum á óvart. Lisa Si-
vertsen, talskona Hjálparstofnunar
norsku kirkjunnar, sagði fréttirnar
góðar; skjótar ákvarðanir hefðu ver-
ið teknar og kæmi útkoman einkum
þeim fátækari í heiminum til góða.
Vænti útfærslunnar fyrst
Steffen Kallbekken, rannsókna-
stjóri CICERO, Miðstöðvar al-
þjóðlegra loftslags- og umhverfis-
rannsókna í Ósló, sagði ríkis-
stjórnina nýverið hafa boðað áætlun
sína um loftslagsstefnu fram til
2030, en sú áætlun var lögð fram fyr-
ir rúmri viku.
„Ég og fleiri áttum von á að út-
færslu þeirrar áætlunar yrði beðið
áður en nýju markmiði væri lýst
yfir,“ sagði Kallbekken við NRK.
AFP
Ný markmið Ríkisstjórn Noregs kynnti í gær áform um losun gróðurhúsalofttegunda. Myndin er frá því í janúar.
Norðmenn herða róður-
inn í loftslagsmálum
Kynna markmið um 50-55% minni losun fram til 2030