Morgunblaðið - 08.02.2020, Page 25

Morgunblaðið - 08.02.2020, Page 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020 Útstilling Vissara er að vanda til verka þegar stilla á vörum út í búðar- glugga. Ljósmyndarinn fékk þó athygli vegfaranda í þetta sinn. Kristinn Magnússon Samfélög fara í gegnum ákveðin þroskaskeið, alveg eins og mannfólkið. Við Ís- lendingar höfum fram til þessa verið hálf- gerðir unglingar í sam- félagi vestrænna þjóða. Verið ung þjóð í ýms- um skilningi, með margar vinnandi hend- ur og átt mikla mögu- leika á því að vaxa. Þetta er að breytast hratt. Fallandi fæðingartíðni og hár lífaldur hefur áhrif á samsetningu þjóðarinnar og því fylgja ýmsar áskoranir sem við þurfum að takast á við. Samfélagið er líka að breytast með opnari vinnumarkaði og þeim liðs- auka sem okkur hefur borist með er- lendu vinnuafli. Lífsgæði hér eru mikil, laun einhver þau hæstu í heimi, hvort sem litið er til lægstu launa eða meðaltals og launajöfn- uður mikill. Við höfum lagt áherslu á að búa í haginn fyrir framtíðina með því að greiða niður skuldir og tryggja sjálfbærni lífeyriskerfisins um leið og við leggjum áherslu á að styrkja ýmsa innviði í landinu. En áskoranirnar eru til staðar, sumir myndu jafnvel kalla þær ógnir. Ég lít á þær sem hvatningu til að hugsa hluti upp á nýtt og taka þessari áskorun framtíðarinnar sem nálgast hratt. Til að einfalda málið langar mig að brjóta viðfangsefnið niður í fjóra þætti: Öldrun, innflytj- endur, samkeppnishæfni og innviði. Öldrun Það styttist í að stórir árgangar sem fæddir eru fyrir 1960 hverfi af vinnumarkaði. Á næstu fimm árum mun þeim sem eru 67 ára og eldri fjölga um fjórðung, eða nærri 10.000 manns. Það fjölgar einnig hratt í elsta hópnum. Til ársins 2025 er gert ráð fyrir að 85 ára og eldri fjölgi um nærri 500 manns eða 10%. Þetta kallar á nýja nálgun í þjón- ustu við þennan aldurshóp. Við þurf- um líka að bregðast við núna sem samfélag og einstaklingar til að tryggja okkur sem besta heilsu og lífsgæði á eldri árum. Fyrir þá sem þegar eru komnir á þennan aldur eða nálg- ast hann er heilsuefl- andi þjónusta mikil- væg, en einnig aukin virkni, hvort sem er í einkalífi eða á vinnu- markaði. Þannig þurf- um við að skoða af fullri alvöru sveigjanleg starfslok, sem þýðir ekki einungis mögu- leikann á að hætta fyrr, heldur einnig til að vinna lengur ef heilsan leyfir og viljinn er fyrir hendi. Við þurfum að gefa fleirum tæki- færi til þess að búa lengur heima. Við eigum að vera í fararbroddi við að nýta okkur nýja tækni sem gerir fjarþjónustu raunverulegan kost. Hvort sem það er með tölvunni, sím- anum eða snjallúrum, sem margir ganga með, eða sérhæfðari lausnum, eins og víða er verið að þróa, til dæmis til að fylgjast með fólki með hjartavandamál. Þrátt fyrir þessa breyttu nálgun verður ekki hjá því komist að öldrun þjóðarinnar leiði til aukins kostn- aðar. Útreikningar fjármála- og efnahagsráðuneytisins benda til þess að heildarútgjöld vegna heilbrigðis- mála vaxi úr 8% af VLF í 11% árið 2050 þegar aðeins er horft til áhrifa af hærra hlutfalli aldraðra. Með öðr- um orðum, ef aldurssamsetning þjóðarinnar væri í dag eins og hún verður þá, má áætla að heilbrigðis- kerfið kostaði okkur um 100 millj- örðum meira á ári, að öðru óbreyttu. Árið 2010 var um það bil einn af hverjum tíu eldri en 65 ára. Árið 2050 verður þetta hlutfall einn af hverjum fjórum. Sífellt dýrari tæki og lyf geta svo leitt til enn meiri kostnaðar. Við verðum því sem sam- félag að leita stöðugt betri leiða til þess að fjármagna og veita heil- brigðis- og öldrunarþjónustu. Á mælikvarða gæða og framleiðni þurfum við einfaldlega að verða framúrskarandi. Innflytjendur Um 1960 eignuðust íslenskar kon- ur að meðaltali fjögur börn um ævina en síðan 2012 hefur hlutfallið ekki farið yfir tvö. Árið 2018 var það 1,7 börn sem þýðir að ef ekkert annað kæmi til myndi íbúum landsins fækka. Þeirri þróun hefur verið skot- ið á frest, þar sem uppgangstímar hafa laðað að sér tugi þúsunda út- lendinga. Nú er svo komið að rúm- lega 20% einstaklinga á vinnumark- aði eru erlendir ríkisborgarar, sem svarar til um það bil 15% af öllum íbúum. Um helmingur þessa stóra hóps hefur flutt til landsins á ein- ungis síðustu fjórum árum. Án þessarar innspýtingar hefði ís- lenskt atvinnulíf ekki staðið undir þeim vexti sem við höfum séð und- anfarin ár, en þegar samdráttur verður er þetta hópur sem getur átt undir högg að sækja. Það sést nú þegar á því að atvinnuleysi meðal er- lendra ríkisborgara er orðið meira en hægt er að sætta sig við. Eru er- lendir ríkisborgarar 40% atvinnu- lausra, mun meira en hlutdeild þeirra á vinnumarkaði gefur tilefni til. Þær atvinnugreinar sem erlendir ríkisborgarar eru fjölmennastir í hafa sætt mestum samdrætti að und- anförnu sem getur skýrt þetta háa hlutfall að einhverju leyti en mennt- un getur líka haft áhrif þar sem vís- bendingar eru um að í þessum hópi séu færri með iðn- og háskóla- menntun en meðal Íslendinga. Ný- legar rannsóknir OECD gefa einnig til kynna að menntakerfið sinni ekki nógu vel þörfum barna sem eiga er- lenda foreldra. Það er skylda okkar að sjá til þess að börn erlendra ríkis- borgara njóti sambærilegra tæki- færa og börn íslenskra foreldra. Við þurfum sömuleiðis að fjárfesta í menntun og endurmenntun fullorð- inna til að gera þeim kleift að taka fullan þátt í íslensku samfélagi. Markmið okkar er að allir geti blómstrað. Það er til þess sem við berjumst fyrir opnu, frjálsu og rétt- látu samfélagi. Að allir geti notið sín. Það eykur líka líkurnar á því að við getum sinnt mikilvægum samfélags- legum verkefnum, því framleiðni vex. Ef stór hluti íbúa landsins upp- lifir sig utangátta og án þeirrar hæfni sem nauðsynleg er í nútíma- samfélagi er hætt við að samfélaginu og hagkerfinu hnigni og minna verði til skiptanna fyrir alla. Samkeppnishæfni Erfið samkeppnisstaða hagkerf- isins er þriðja áskorunin. Laun hafa hækkað meira hérlendis en víðast hvar annars staðar. Há laun og mikill launajöfnuður birtist fyrirtækjum sem hár launakostnaður og skert samkeppnishæfni. Þar sem launa- kostnaður er orðinn mjög hátt hlut- fall heildarverðmætasköpunarinnar í nær öllum atvinnugreinum er lítið svigrúm til frekari launahækkana, auk þess sem takmörkuð arðsemi dregur úr getu og vilja til fjárfest- inga. Í hagsögu okkar Íslendinga hefur verið brugðist við slíkum erfiðleikum með veikingu krónunnar og verð- bólgu. Það kemur verst niður á þeim sem hafa minnst milli handanna og þeim sem hafa verið að koma sér þaki yfir höfuðið. Ef gengið helst stöðugt og verðbólgan sér ekki um að rýra krónuna, eins og venjan var áður, er fátt sem fyrirtækin geta tek- ið til bragðs, annað en að hagræða. Það getur leitt til aukins atvinnu- leysis, a.m.k. tímabundið. Mestu skiptir að samningar við starfsmenn hins opinbera verði í samræmi við lífskjarasamninga og að þeim stöð- ugleika sem við höfum skapað saman verði ekki varpað fyrir róða. Einnig þurfa ríki og sveitarfélög að leita allra leiða til að liðka til. Endurskoða alla reglubyrði til einföldunar og auka kröfur um skilvirkni eftirlits. Ríkisstjórnin er í miðju átaki við að einfalda samskipti við hið opinbera með því að gera þau sem mest sjálf- virk og stafræn. Það er fyllilega raunhæft að Ísland sé til fyrir- myndar meðal þjóða við innleiðingu tæknilausna svo létta megi fólki og fyrirtækjum að reka erindi sín við stjórnvöld. Að auki þarf að huga að annars konar samkeppnishæfni íslensks samfélags sem felst í því að búa þær kynslóðir sem nú eru að vaxa úr grasi undir breyttar þarfir vinnu- markaðarins. Stór hluti starfa mun breytast mikið eða hverfa en um leið verða önnur til sem krefjast nýrrar hæfni. Til þess að geta haldið í og helst komist fram fyrir þessa þróun þurfum við að sýna raunverulegt þor við að endurskoða menntakerfið og skapa með því nauðsynleg tækifæri í nýjum veruleika. Innviðir Samdráttur í fjárfestingu eftir hrun og mikil fólksfjölgun undan- farin ár kalla á fjárfestingu hins op- inbera. Sú þörf kemur til viðbótar byggingu nýs Landspítala og því átaki sem nú stendur yfir í sam- göngukerfinu. Við erum í einstakri stöðu til að hefja uppbyggingarskeið með því að umbreyta eign ríkisins í Íslands- banka á næstu árum í innviði og það er ólíklegt að nokkur önnur þjóð í Evrópu sé í annarri eins stöðu til að taka til í efnahagsreikningi sínum og leggja grunn að aukinni verðmæta- sköpun til framtíðar. Eigið fé Íslandsbanka er rúmlega 170 milljarðar króna. Jafnvel þótt bankinn myndi seljast á lægra verði en eigið fé hans segir til um, myndi sala á 25-50% eignarhlut á næstu ár- um opna stór tækifæri til fjárfest- inga. Þar má nefna allt frá hefð- bundnum samgöngufjárfestingum í vegum, brúm og höfnum yfir í fjar- skipti, svo sem nýjan gagnastreng og aðra grunninnviði, meðal annars í heilbrigðisþjónustu. Nú er góður tími til að huga að átaki í þessum efnum, efnahagslífið er tilbúið fyrir opinberar fram- kvæmdir og þannig getum við stutt við hagkerfið á tímum hagræðingar í einkageiranum og skotið stoðum undir hagvöxt til frambúðar. Eftir vel heppnaða endurreisn efnahagslífsins undanfarin ár er brýnt að beina sjónum að framtíð- inni. Markmiðið er einfalt: Ísland áfram í fremstu röð. Eftir Bjarna Benediktsson » Við höfum lagt áherslu á að búa í haginn fyrir framtíðina með því að greiða niður skuldir og tryggja sjálf- bærni lífeyriskerfisins um leið og við leggjum áherslu á að styrkja ýmsa innviði í landinu. Bjarni Benediktsson Höfundur er formaður Sjálfstæðis- flokksins og fjármála- og efnahags- ráðherra. Áfram í fremstu röð Hinn 5. febrúar fór fram málflutningur fyr- ir svonefndri yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) í máli Íslands vegna skipunar dómara í Landsrétt. Í fréttum var sagt frá málflutningi af hálfu Ís- lands í þessu máli, auk þess sem birt voru við- töl við íslenska lögfræð- inga sem gert höfðu sér ferð til Strassborgar til að hlusta á þennan málflutning. Hvort tveggja vekur undrun og áhyggjur svo ekki sé meira sagt. Við Íslendingar erum aðilar að Mannréttindasáttmála Evrópu (MSE). Efnisákvæðum sáttmálans var veitt lagagildi á Íslandi með lög- um nr. 62/1994. Í 2. gr. laganna er að finna svofellt ákvæði: Úrlausnir mannréttinda- nefndar Evrópu, mannréttinda- dómstóls Evrópu og ráðherranefndar Evrópuráðsins eru ekki bindandi að íslenskum landsrétti. Í ákvæðum stjórnarskrár okkar felst að Ísland er fullvalda ríki. Þess vegna hefði það ekki staðist íslensku stjórnarskrána að kveða svo á að úr- lausnir MDE skyldu verða bindandi hér á landi. Dómur MDE 12. mars 2019 (sem skotið var til yfirdeildarinnar) hafði því ekki réttaráhrif hér á landi, eins og bent var á þá þegar. Í framhald- inu brugðust íslensk stjórnvöld hins vegar skyldum sínum. Þau höguðu sér eins og bindandi dómur hefði verið kveðinn upp þar ytra. Með framgöngu sinni síðan hafa þau hagað sér eins og full- veldi Íslands hafi verið framselt til dómstólsins, þrátt fyrir að lögin kveði skýrt á um að svo sé ekki, auk þess sem slík afstaða fékk ekki staðist íslensku stjórnar- skrána. Dómararnir við Landsrétt sem um ræddi í málinu voru settir til hliðar og látnir hætta að dæma, svo ótrúlegt sem það er. Einhverjir þeirra hafa svo síðan sótt um stöður, sem þeir gegna fyrir! Ráðherra dómsmála vék úr ráðherraembætti vegna málsins, jafnvel þó að ráð- herrann hefði ekki einu sinni skipað dómarana, sem MDE hafði talið skip- aða án fullnægjandi lagaheimildar. Þessi atburðarás hefur verið með miklum ólíkindum. Í stuttu máli má segja að íslensk stjórnvöld hafi, með tilstyrk nokk- urra lögfræðinga, algerlega brugðist skyldum sínum gagnvart þjóðinni með viðbrögðum sínum. Og þetta er núna að endurtaka sig við málflutn- inginn fyrir yfirdeildinni. Það var átakanlegt að hlýða á fréttir af mál- flutningi lögmanns íslenska ríkisins fyrir yfirdeildinni, þar sem biðlað var til dómstólsins um að leysa íslenska dómskerfið úr viðjum. Hvaða viðjum? Íslensk lög kveða alveg skýrt á um að dómskerfið hefur ekki verið bundið í nokkrar viðjar. Það er eins og Íslendingar missi stjórn á sér, ef erlendir menn segja eitthvað um íslensk málefni. Þá hætta stjórnendur ríkisins að ráða við verk- efni sín sem stjórnendur fullvalda ríkis. Þeir drúpa bara höfði í lotningu yfir löglausum ákvörðunum útlend- inga, sem alveg er vafalaust að ekki hafa réttaráhrif hér á landi. Við hljót- um að verðskulda merkilegri stjórn- endur en þetta ef við viljum halda áfram að telja Ísland til fullvalda ríkja. Menn ættu að skilja að aðild okkar að MDE hefur fullt leiðbeiningargildi fyrir íslenska löggjafann þó að full- veldi ríkisins hafi ekki verið framselt. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Það er eins og Ís- lendingar missi stjórn á sér, ef erlendir menn segja eitthvað um íslensk málefni. Þá hætta stjórnendur ríkis- ins að ráða við verkefni sín sem stjórnendur fullvalda ríkis. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögfræðingur. Er Ísland fullvalda ríki?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.