Morgunblaðið - 08.02.2020, Qupperneq 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020
Óskar
Bergsson
fasteignasali
s. 893 2499
Hildur
Harðardóttir
lögfr. og lgfs.
s. 897 1339
Elín G.
Alfreðsdóttir
nemi til lögg.
s. 899 3090
Sveinbjörn
Sveinbjörnsson
lögmaður
s. 892 2804
Vilhjálmur
Einarsson
fasteignasali
s. 864 1190
H a m r a b o r g 1 2 • 2 0 0 K ó p a v o g u r • 4 1 6 0 5 0 0
ÁRANGUR Í SÖLU
FASTEIGNA
www.eignaborg.is
Þess var getið í síðastapistli að SigurbjörnBjörnsson hefði tryggtsér sigur á Skákþingi
Reykjavíkur 2020. Þar með öðlað-
ist hann sæmdarheitið Skákmeist-
ari Reykjavíkur í fyrsta sinn.
Hann vann skák sína í lokaumferð-
inni og sigraði því með fullu húsi,
hlaut níu vinninga af níu mögu-
legum.
Skakhátíð MótX í Stúkunni á
Kópavogsvelli hófst um svipað
leyti og skákþingið en þar hefur
verið teflt einu sinni í viku, sjö
umferðir alls, og mun mótinu ljúka
þriðjudaginn 18. febrúar nk. Til
þessa mótahalds var á sínum tíma
stofnað af Jóni Þorvaldssyni og
honum tókst að fá til keppni kunna
meistara sem höfðu ekki teflt opin-
berlega í langan tíma. Nú nýtur
Jón dyggrar aðstoðar skákdeildar
Breiðabliks og þá einkum Halldórs
G. Einarssonar sem einnig hefur
verið það sem kallað er teflandi
skákdómari. Hann hefur stundum
fengið þekkta meistara til að að-
stoða við skákstjórnina. Allt hefur
þetta gengið prýðilega. Teflt er í
tveimur flokkum, A og B, en inn-
gönguskilyrðin í stigahærri flokk-
inn miðast við 2.220 elo-stig þó að
gerðar hafi verið undantekningar.
Eins og oft áður hafa óvænt úr-
slit sett svip á keppnina. Í fyrstu
þremur umferðunum vann stiga-
hæsti keppandinn, Hjörvar Steinn
Grétarsson, allar skákir sínar og
voru menn farnir að velta því fyrir
sér hvort hann næði að endurtaka
afrek sitt frá ÍS-Skyr-mótinu á
Selfossi á dögunum þegar hann
sigraði með fullu húsi vinninga. En
í fjórðu umferð tapaði hann fyrir
Ingvari Þ. Jóhannessyni og aftur í
fimmtu umferð þegar hann mætti
Degi Ragnarssyni. Þessir tveir
eru efstir ásamt Guðmundi
Kjartanssyni, allir með fjóra vinn-
inga. Í B-riðli er Arnar Milutin
Heiðarsson efstur með 4½ vinning.
Það eru heilmikil gæði í tafl-
mennskunni. Þegar greinarhöfund
bar að garði sl. þriðjudagskvöld
sátu þessir tveir yfir athyglis-
verðri stöðu:
Þröstur Þórhallsson – Guð-
mundur Kjartansson
Guðmundur hafði gefið skipta-
mun á c6, virtist djarft teflt því að
drottningin er í skotlínu biskups-
ins. Getur hvítur leikið 27. Rg5+
með hugmyndinni 27. … fxg5 28.
Dxf8? Guðmundur hafði reiknað
dæmið rétt því hann á 28. … De6
eða 28. … Dc3 og framhaldið gæti
orðið 29. Df2 Dxb3+ 30. Db2 Dxe3
og biskupar svarts njóta sín vel í
opinni stöðu. Þess vegna valdi
Þröstur réttilega 27. Hd4! sem
Guðmundur svaraði hvergi bang-
inn með 27. … Bf5.
Aftur gat Þröstur látið reyna á
stöðu drottningarinnar á c6 og
leikið 28. Dxf5! með hugmyndinni
28. … gxf5 29. Rg5+! Nú eru kost-
irnir tveir:
a) 29. … fxg5 30. Bxc6 g4 31.
Hd7! Hf7 32. He1 og hér eru
möguleikar hvíts betri.
b) 29. … Bxg5 30. Bxc6 Bxe3 31.
Hd7 Bc5 32. Bb7! og svartur á við
ramman reip að daga.
Sennilega hefur Þröstur verið
undir áhrifum fyrra mats á að-
stæðum og sleppti því þessu tæki-
færi. Hann átti ágæt færi en fékk
á sig mikinn hnykk í 32. leik og
tapaði. Framhaldið varð:
28. Hc1 De6 29. Ka2 a5 30. Hc5
Hc8 31. Hxc8 Dxc8 32. Dd2?
Bxe3!
33. Dxe3 Dc2+ 34. Ka1 Dxg2
35. Rd2 e5 36. Hd8 Dc6! 37. Da7+
Rg7 38. Dg1 Dc7 39. Hd5 Dc3+
40. Ka2 Dc2+ 41. Ka1 Dc3+ 42.
Ka2 Be6! 43. Hd6 Dc7!
Hrókurinn á engan góðan reit á
d-línunni.
44. Rc4 Bxc4 45. Db6 Bxb3+!
46. Kxb3 Dc3+ 47. Ka2 Dc2+ 48.
Ka1 b3
– og hvítur gafst upp.
Óvænt úrslit
setja svip á
Skákhátíð MótX
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Helgi Ólafsson
Tveir góðir
Hjörvar Steinn
og Guðmundur
Kjartansson
tefldu saman í
3. umferð.
Nýir stjórnendur
hafa verið ráðnir til Ís-
landspósts. Eins og
komið hefur fram í
fréttum hefur síðan
gengið á með nið-
urskurði í fyrirtækinu;
dótturfélög seld, dreif-
ingu á fjölpósti hætt á
SV-horninu og smásölu
á ýmsum varningi hætt.
Samkvæmt upplýs-
ingum sem borist hafa er þetta gert
til að straumlínulaga fyrirtækið og
sinna eingöngu pósttengdri starf-
semi. Íslandspóstur tekur hér allt
aðra stefnu en flest póstfyrirtæki í
Evrópu hafa valið að láta ráða för. Ný
stefna stjórnar, stjórnmálamanna og
forstjóra er að keyra Íslandspóst aft-
ur til þess er pósturinn var stofnun
sem sinnti eingöngu póstþjónustu.
Mitt í þessum hremmingum skilar
ríkið auðu og leggur ekkert til póst-
þjónustunnar eins og gert er víða í
hinum siðmenntaða heimi. Þar greið-
ir ríkið póstfyrirtækjunum umsamda
upphæð fyrir þjónustu á svæðum sem
skila ekki hagnaði. Á það hefur ekki
mátt minnast á Íslandi og þrátt fyrir
áralanga baráttu fyrir að á þetta sé
hlustað steinsefur alþingi Íslendinga.
Hér á landi þarf að kalla eftir að ríkið
geri þjónustusamning við póstinn og
greiði umsamda upphæð fyrir þjón-
ustuna. Væri gott ef þingmenn legðu
sig fram um að skilja hvað er póst-
þjónusta og á hvers ábyrgð hún er.
Það er væntanlega með þeirra vitund
og vilja að ohf-ið er sett í fyrsta sæti
og viðskiptavinir og starfsmenn þar á
eftir.
Fórnarlömb þessarar niðurskurð-
arstefnu stjórnvalda og stjórnar
fyrirtækisins eru póstnotendur sem
fá verri þjónustu, starfsmenn sem
eru reknir í tugatali og þeir sem eftir
verða sem búa við hræðslustefnu og
niðurskurðarhótanir. Nú er mál að
linni og kominn tími til að metnaður
og framsýni verði í rekstri póstþjón-
ustunnar.
Póstmenn hafa fengið sig full-
sadda. Skilaboð um uppsagir hafa
hangið yfir félagsmönnum Póst-
mannafélags Íslands
mánuðum saman.
Það er von okkar
póstmanna að þeir sem
bera ábyrgð á rekstri
póstþjónustunnar hætti
niðurrifs- og uppgjaf-
artali í garð starfs-
manna og fyrirtækis og
temji sér þann góða sið
að tala upp þjónustuna,
fyrirtækið og starfs-
menn.
Viðskiptablaðið og
fleiri hafa verið dugleg að tala niður
Íslandspóst og ljóst að þeir hafa séð
ofsjónum yfir því að fyrirtæki í eigu
ríkisins hefði metnað í samkeppni.
Þeim hefur nú tekist að drepa það að
miklu leyti, enda var það alltaf mein-
ingin. Það er stemning fyrir slíku hjá
ríkjandi stjórnvöldum. Leitt að sjá
stjórn og forstjóra láta undan þeim
þrýstingi.
Vona að framtíð póstmanna og
póstnotenda verði björt og metnaður
einkenni póstþjónustu á Íslandi. Gott
væri líka að stjórnmálamenn áttuðu
sig á ábyrgð sem er mikil, þótt illa
gangi að ná skilningi á því þar á bæ.
Póstþjónusta er þjónusta við lands-
menn og fyrirtæki en ekki þjónusta
við ohf-ið.
Stjórn Póstmannafélagsins sendir
félagsmönnum sínum kveðjur og sér-
staklega þeim sem hafa fengið reislu-
passann hjá fyrirtækinu. Að þeim er
mikil eftirsjá, mikil þekking, reynsla
og kunnátta hverfur út úr póstþjón-
ustunni með þeim. Vonandi er fram
undan björt framtíð með auknum
metnaði og framsýni stjórnar og for-
stjóra.
Íslandspóstur og
niðurskurðurinn
Eftir Jón Inga
Cæsarsson
» Fórnarlömb niður-
skurðarstefnu
stjórnvalda og stjórnar
fyrirtækisins eru póst-
notendur sem fá verri
þjónustu, og starfsmenn
reknir í tugatali.
Jón Ingi Cæsarsson
Höfundur er formaður
Póstmannafélags Íslands.
Svend-Aage Malmberg fædd-
ist 8. febrúar 1935 í Reykja-
vík. Foreldrar hans voru
hjónin Ejner Oluf Malmberg
og Ingileif Halldórsdóttir
Malmberg.
Svend-Aage varð stúdent
frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1955 og lauk dokt-
orsprófi í haffræðum frá Há-
skólanum í Kiel 1961. Hann
starfaði við hafrannsóknir hjá
fiskideild atvinnudeildar Há-
skólans og Hafrannsókna-
stofnun frá árinu 1962 og til
starfsloka.
Svend-Aage ritaði greinar í
vísindarit, dagblöð og tímarit
innanlands og erlendis um
áratuga skeið um haffræði,
náttúruvísindi, umhverfismál,
trúmál og önnur hugðarefni
sín og starfaði í fjölda nefnda
tengdra starfi sínu og fræð-
um. Hann var einnig ötull í
starfi jafnaðarmanna, Al-
þýðuflokks og Samfylkingar
og sat í sóknarnefnd Hafn-
arfjarðarkirkju 1985-1990.
Hann hlaut heiðursviður-
kenningu Alþjóðahafrann-
sóknaráðsins í Edinborg og
fálkaorðuna fyrir hafrann-
sóknir sínar.
Svend-Aage var tvíkvæntur
og með fyrri eiginkonu sinni,
Elísabeth Pálsdóttur Malm-
berg, sem lést 1981, eignaðist
hann þrjú börn.
Svend-Aage lést 25.6. 2014.
Merkir Íslendingar
Svend-Aage
Malmberg