Morgunblaðið - 08.02.2020, Page 28

Morgunblaðið - 08.02.2020, Page 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020 Í dag, 8. febrúar, eru liðin 100 ár frá því að skíðafélag var stofnað á Siglufirði en stofn- fundur félagsins var haldinn þennan dag og stjórn kosin. Félagið fékk nafnið Skíðafélag Siglufjarðar og fyrsti formaður þess var Sóphus Árnason og með honum í stjórninni voru Andrés Hafliðason og Ole Tynes. Þess má geta að Ole flutti inn skíðabúnað og seldi á vægu verði. Þetta ár dvaldi hjá Ole Tynes norskur maður að nafni Edvin Johansen sem kenndi heimamönnum skíðastökk. Fyrsta skíðamót félagsins var haldið 29. mars á stofnári þess. Keppt var í tveimur greinum, annars vegar í kappgöngu frá Prestssetrinu á Hvanneyri og fram að Steinaflötum og til baka, ca. 7 km, og hins vegar í hindrunarlausu brekkurennsli frá Hvanneyrardalsbrún og niður á jafn- sléttu. Greinargerð og úrslit mótsins voru birt í blaðinu Fram hinn 3. apríl. Sigurvegarar fengu „ágrafna pen- inga“ í hverjum aldursflokki, eins og sagt var frá í blaðinu. Á fyrstu árum félagsins voru ár- lega haldin fjölmörg skíðamót og tek- ið er fram í heimildum að strax á öðru ári félagsins hafi stúlkur tekið þátt í skíðamótum. Sex árum eftir stofnun félagsins eða árið 1926 dofnaði nokkuð yfir skíðaíþróttinni en árið 1931 lifnaði yf- ir henni á ný og þá hófst blómaskeið sem að mestu má rekja til forgöngu Guðmundar Skarphéð- inssonar skólastjóra. Árið 1932 byggði félagið skíðaskála sem bætti aðstöðu skíðaiðkenda. Félagið fékk til sín norskan skíðakennara, Helge Torvö, sem kenndi bæði drengjum og stúlkum skíðastökk, þar á meðal föðursystur minni Unni Möller sem vann skíðastökkskeppni árið 1931. Helge kom einnig með fyrsta flokks skíði og skíðaútbúnað. Í framhaldi af kennslu og þjálfun Helge fóru sigl- firskir skíðamenn strax að láta til sín taka og vöktu mikla athygli um land allt. Félagið klofnar Árið 1936 sögðu nokkrir félagar Skíðafélags Siglufjarðar sig úr hinu 16 ára gamla félagi og stofnuðu nýtt félag sem hlaut nafnið Skíðafélagið Siglfirðingur. Félagið byggði sama ár skíðaskála sem nefndur var Skíða- borg. Kraftmikið skíðafólk þá strax. Bæði félögin störfuðu óslitið til árs- ins 1951. Krafturinn og metnaðurinn var mikill þessi ár og mikil keppni milli félaganna tveggja og ekki er nokkur vafi á að það efldi bæði keppnisanda og keppnisskap. En á sama tíma var þetta óheppilegt, til dæmis þegar verið var að senda keppendur á mót og sumir kepptu fyrir Skíðafélag Siglufjarðar og aðrir fyrir Skíðafélagið Siglfirðing. Eitt atvik sýnir kriturnar milli fé- laganna á þessum tíma. Þannig var að Skíðafélagið Siglfirðingur hélt stökk- keppni við skíðaskála sinn, en á sama tíma hélt hitt félagið skíðagöngumót og lagði brautina m.a. yfir frárennslið frá skíðastökksbrautinni! Félögin sameinast á ný Svona gat þetta ekki gengið til frambúðar, þ.e. með tvö skíðafélög í sama firði, og var þetta mál rætt á ársþingi Íþróttabandalags Siglu- fjarðar og kosin 9 manna sameining- arnefnd, Bragi Magnússon, félags- málafrömuður og lögregluþjónn, bar upp tillögu um sameiningu félaganna og að eignir þeirra og sjóðir rynnu til hins sameinaða félags. Ágreiningur var um nafnið á félaginu um nokkurn tíma því bæði félögin vildu halda sínu nafni. Bragi kom þá með málamiðlun- artillögu þess efnis að félagið myndi heita Skíðafélag Siglufjarðar – Skíða- borg og tók sameiningin gildi 2. nóvember 1952. Skíðamót Íslands og Íslandsmeistarar Siglfirðingar með Guðmund Skarphéðinsson, skólastjóra og verkalýðsfrömuð, í broddi fylkingar áttu hugmyndina að fyrsta lands- mótinu, sem nefnt var Skíðakappmót Íslands, og haldið var í apríl 1922. Keppt var um fagran verðlaunabikar en þar sem ekki náðist tilskilinn ár- angur var bikarinn ekki afhentur. Ekkert slíkt mót var haldið aftur á Siglufirði fyrr en árið 1938 þegar keppt var í stökki, göngu, svigi og norrænni tvíkeppni. Þetta teljum við Siglfirðingar vera fyrsta Skíðamót Ís- lands, en aðrir telja að hið svokallaða Thulemót í Reykjavík sem haldið var 1937 hafi verið það fyrsta. Geta má þess að þar var aðeins keppt í göngu og stökki og lagðist það mót af árið 1943, eftir að siglfirsku skíðafélögin höfðu unnið Thulebikarinn sitt á hvað öll árin. Skíðamót Íslands, áður Skíðakappmót Íslands, hélt áfram og er haldið enn þann dag í dag. Blómaskeið siglfirskra skíðamanna Það má með sanni segja að blóma- skeið siglfirskra skíðamanna hafi ver- ið á þessum árum og fram undir 1968 og má sem dæmi nefna að Siglfirðing- ar unnu alla Íslandsmeistaratitlana árið 1963. En með hvarfi síldarinnar 1968 og íbúafækkun frá þeim tíma fór heldur að halla undan fæti hjá sigl- firskum skíðamönnum. Starfsemi skíðafélagsins hefur svo hin síðari ár þróast meira yfir í barna- og ung- lingastarf, oft á tíðum með góðum ár- angri siglfirskra unglinga á Ung- lingameistaramótum, og barna á Andrésar Andarleikunum. Siglfirsk skíðamannvirki Stór og mikill skíðastökkpallur var byggður upp og tekinn í notkun 1948 og var hann alltaf kallaður Stóri Boli. Lengsta stökk af þeim palli átti Norð- maðurinn Dag Jensvoll skíðastökks- þjálfari árið 1973, en hann stökk 63 metra. Á þessum stökkpalli var oft keppt á Skíðamóti Íslands. Eins og áður var greint frá voru byggðir tveir skíðaskálar á vegum skíðafélaganna tveggja og meira að segja var skíðabrekka upplýst. Þar kom að því að gerðar voru tilraunir með frumstæðar heimagerðar skíða- lyftur rétt ofan við bæinn, neðan Gimbrakletta, og var sú brekka einn- ig upplýst. Hún var alltaf kölluð Ljósabrautin og var oft skíðað þar langt fram eftir kvöldi og allt til mið- nættis ef svo bar undir. Fyrsta al- vöruskíðalyftan var reist í Hólshyrn- unni 1977 en hún skemmdist í snjóflóði árið 1988 og þá var loksins farið í að byggja upp skíðaaðstöðu í Siglufjarðarskarði með fjórum lyft- um upp á 2,3 km og lengsta samfellda rennsli um 2,5 km, tveimur snjótroð- urum og skíðaskála. Svæðið er sann- kölluð skíðaparadís og sótt af þús- undum skíðamanna á hverjum skíða- vetri. Aðsókn er sífellt að aukast, m.a. vegna tilkomu hins glæsilega Sigló Hótels. Saga skíðaíþróttarinnar er merki- leg saga og samofin lífinu á Siglufirði síðustu 100 ár eins og ég hef hér rakið í stuttu máli. Sú saga hefur sveiflast til og frá eins og saga síldarinnar gerði líka. Margt margt fleira mætti skrifa um en það bíður betri tíma. Afmælisins verður minnst á Siglu- firði í dag með útgáfu afmælisblaðs og kaffisamsæti. Síðar í vetur verður haldin mikil skíðahátíð í bænum. Ég óska Siglfirðingum til hamingju með 100 ára afmæli merkrar skíða- sögu og einnig eru góðar óskir um áframhaldandi gott starf í Skíðafélagi Siglufjarðar – Skíðaborg. Eftir Kristján L. Möller » Á þessum degi fyrir 100 árum var Skíða- félagið á Siglufirði stofnað. Afmælisins verður minnst á Siglu- firði í dag með ýmsum hætti. Kristján Möller Höfundur er fyrrverandi íþróttafulltrúi Siglufjarðar. Siglufjörður, ekki bara síld Nú í tannverndar- viku er gleðilegt að greina frá því að búið er að undirrita sam- komulag milli Tann- læknafélags Íslands og Sjúkratrygginga Ís- lands um framlengingu á samningi um tann- lækningar barna til 31. janúar 2021. Almenn sátt hefur ríkt um barnasamninginn. Samning- urinn var undirritaður árið 2013. Fram að því höfðu ekki verið beinir samningar í gildi um tannlækningar barna heldur ráðherragjaldskrá sem ákvarðaði endurgreiðsluna. Endur- greiðsluhlutfallið var orðið mjög lágt og staðan í tannheilsumálum barna á Íslandi komin í algjört óefni. Samn- ingarnir voru innleiddir í skrefum, en í lok árs 2017 voru öll börn komin inn á samninginn. Nú í dag er því búið að byggja upp kerfi sem heilbrigðis- yfirvöld á Íslandi og tannlæknar geta verið stolt af og svipar til þeirra kerfa sem eru í gildi á hinum löndunum á Norðurlöndum. Mikilvægt er að standa vörð um þessa samninga því öll börn eiga rétt á heilbrigðisþjón- ustu og tannlæknaþjónusta er þar ekki undanskilin. Tannlækningar barna á Íslandi eru gjaldfrjálsar að undanskildum 2.500 kr. komugjaldi sem greitt er af for- ráðamönnum á 12 mánaða fresti. Hvert barn á að vera skráð hjá heim- ilistannlækni sem er ábyrgur fyrir því að kalla barnið inn til skoðunar. Börn eru kölluð til skoðunar á 6-12 mánaða fresti. Ef barn skilar sér ekki í reglubundið eftirlit hjá tannlækni og tannlæknir hefur ítrekað reynt að ná í forráðamenn ber tannlækni skylda til að tilkynna það til barnaverndaryfirvalda. Lengi býr að fyrstu gerð. Mælt er með að börn fari að mæta reglu- lega til tannlæknis um þriggja ára aldur. Mikil- vægt er að byrja aðlög- un snemma til að mynda gott traust milli tann- læknis og barns. Það að mæta reglulega til tann- læknisins er mikilvæg- asta forvörnin gegn tannskemmdum. Þegar mætt er reglulega er hægt að bregð- ast við áður en vandamálið verður stærra og erfiðara viðfangs. Ef rýnt er í tölur úr ársskýrslu Sjúkratrygginga Íslands má sjá að börnum sem mæta reglulega til tann- læknis hefur fjölgað ár frá ári eftir að samningar komust á. En síðustu ár hefur viðgerðum á ári fækkað. Þessar tölur sýna okkur því að samningarnir eru að skila okkur í rétta átt að bættri tannheilsu barna á Íslandi. Því er það fagnaðarefni að þeir hafi verið fram- lengdir og unnið verði áfram að því að tryggja öllum börnum á Íslandi tann- læknaþjónustu. Eftir Jóhönnu Bryndísi Bjarnadóttur Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir » Búið er að byggja upp kerfi sem heil- brigðisyfirvöld á Íslandi og tannlæknar geta ver- ið stolt af og svipar til þeirra kerfa sem eru í gildi hjá hinum Norður- landaþjóðunum. Höfundur er formaður Tannlæknafélags Íslands. formadur@tannsi.is Framlenging á samningi um tann- lækningar barna Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Sími 564 6711 | thingvangur@thingvangur.is | thingvangur.is Fasteignin, sem er á tveimur hæðum, er eitt fallegasta veitingahús Reykja- víkur. Að auki er útiaðstaða fyrir veitingasölu í Hjartagarðinum. Heildarstærð er 622,9 fm. Einstakt tækifæri til að tengja saman fjárfestingu og rekstur. Frekari upplýsingar hjá katrin@thingvangur.is eða í síma 820 6355. Klapparstígur 28 og 30 Til sölu glæsilega innréttuð fasteign

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.