Morgunblaðið - 08.02.2020, Side 29

Morgunblaðið - 08.02.2020, Side 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020 GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is www.gimli.is Mikil sala! Góður sölutími framundan. Óskum eftir öllum tegundum eigna á skrá. Eigendur slíkra mynda sem vilja leggja þessu verkefni lið með því að benda á athyglisverðar Þingvallamyndir eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við ritstjóra bókarinnar, Aðalstein Ingólfsson, netfang: adalart@mmedia.is – við fyrstu hentugleika. HIÐ ÍSLENSKA BÓKMENNTAFÉLAG HAGATORGI · SÍMI 588 9060 hib@hib.is · www.hib.is Hið íslenska bókmenntafélag vinnur nú að útgáfu á listaverkabók með myndum íslenskra myndlistarmanna frá Þingvöllum, frá upphafi til okkar daga. Þingvallamyndir í íslenskri myndlist Undanfarið hef ég, ásamt öllum öðrum, fylgst náið með þróun mála vegna lungna- bólgufaraldursins sem hefur orsakast af nýja kórónuvírusnum (2019- nCoV), og ég er áhyggjufullur og dapur vegna þess að stað- festum tilfellum og dauðsföllum hefur fjölgað dag frá degi. Ég hef líka tekið eftir að samfélagið og fjölmiðlar á Ís- landi eru einnig áhyggjufullir vegna faraldursins, sérstaklega vegna nei- kvæðra áhrifa sem fækkun ferða- manna frá Kína hefur á íslenska ferðamannaiðnaðinn. Kínversk yfirvöld, undir forystu Xi Jinping, forseta Kína, hafa brugð- ist við faraldrinum af mikilli ábyrgð og festu gagnvart bæði eigin íbúum og íbúum heimsins alls. Það hefur leitt af sér að 1,4 milljarðar manna í Kína hafa tekið höndum saman við að berjast gegn útbreiðslu vírussins í kapphlaupi við tímann. Í dag hefur víðtæku og fjölþættu forvarna- og eftirlitskerfi, sem nær til bæði ríkis- stjórnar og sveitarstjórna á öllum stigum, verið komið á. Nokkrar neyðarráðstafanir hafa verið fram- kvæmdar og hafa allar almennings- samgöngur verið stöðvaðar í Wuhan-borg sem og á öðrum svæð- um þar sem fjöldi smitaðra er mikill. Einnig var almenna fríið vegna kín- versku nýárshátíðarinnar fram- lengt, skólar hafa frest- að því að taka til starfa eftir vetrarfríið, ýms- um almennum sam- komustöðum hefur ver- ið lokað, ferðalög hópa frá Kína í ferðir bæði innanlands og utan hafa verið bönnuð, einnig var sett í gang mikið átak í aukinni dreifingu fræðsluefnis um vörn gegn smiti, ásamt því að þróa bólu- efni og auka upplýs- ingagjöf með daglegum fjölmiðla- fundum. Kína hefur fjárfest með yfir 6,7 milljónum bandaríkjadala í for- vörnum og gegn útbreiðslu farald- ursins og hefur sent um 10.000 heil- brigðisstarfsmenn og mikið magn af hjúkrunarvörum frá öllum lands- hornum til Wuhan-borgar. Tveir spítalar með um 2.500 einöngruðum sjúkrarúmum hafa verið byggðir á innan við tveimur vikum og þar er starfsemi hafin við að hjúkra smit- uðum. Margir heilbrigðisstarfsmenn hafa tekið mikla áhættu og fórnað sjálfum sér í baráttunni við að bjarga mannslífum. Þetta gríðarlega átak er farið að bera árangur, dánar- hlutfall 2019-nCoV veirunnar í Kína er um 2,1%, fjöldi tilfella á alþjóðvísu er einungis um 1% af þeim tilfellum sem hafa greinst í Kína og er þetta mun lægra hlutfall heldur en í H1N1-faraldrinum í Bandaríkjunum árið 2009 og í öðrum alþjóðlegum faröldrum. Þessar staðreyndir sýna fram á að þessar hörðu aðgerðir sem kínversk stjórnvöld gripu til hafa borið árangur við að hefta útbreiðslu veirunnar og sýna fram á að lungna- bólgufaraldrinum af völdum nýju kórónuveirunnar er hægt að halda í skefjum, meðhöndla og lækna. Í baráttu sinni við vírusinn hefur Kína ávallt verið leiðandi í al- þjóðlegri samvinnu með opnum og ábyrgum hætti. Okkur tókst að greina erfðamengi vírussins og deildum því með WHO, öðrum ríkj- um og svæðum innan Kína, sem dæmi Hong Kong, Macao og Taívan eins fljótt og hægt var. Við buðum sérfræðingum frá WHO í vettvangs- ferðir til Wuhan í þeirri viðleitni að samræma viðbragðsáætlanir allra aðila. Þessar hörðu aðgerðir sem Kína greip til voru miklu strangari heldur en þær sem WHO og IHR (International Health Regulation) mæltu fyrir um og hafa hlotið lof WHO og alþjóðasamfélagsins. Eins og forstjóri WHO, dr. Tedros, sagði þá var yfirlýsing WHO, um að lýsa yfir neyðarástandi á heimsvísu, að- allega til að hjálpa ríkjum með veik- ara heilbrigðiskerfi sem eru ekki eins vel í stakk búin til að takast á við ástandið. Yfirlýsingin var ekki vegna lítillar tiltrúar á kínverskum stjórn- völdum, þvert á móti hefur WHO fulla trú á að Kína geti náð tökum á faraldrinum. Það er engin ástæða til að setja ónauðsynlegar hömlur á al- þjóðleg viðskipti og ferðalög. Eina leiðin til að sigrast á faraldrinum er að öll ríki heimsins taki höndum saman í sameiningu og samvinnu. Vírusar virða engin landamæri. Þegar við stöndum frammi fyrir skyndilegri ógn við lýðheilsu verða ríki úr öllum heimshornum að vinna saman í staðinn fyrir að tala niður Kína. Kína þakkar fyrir hina skyn- samlegu nálgun sem Katrín Jakobs- dóttir, forsætisráðherra Íslands, sýndi við útbreiðslu faraldursins. Katrín Jakobsdóttir ritaði bréf til forsætisráðherra Kína, Li Keqiang, þar sem hún lýsti stuðningi og sam- stöðu almennings á Íslandi við hinar umfangsmiklu aðgerðir Kína til að stemma stigu við faraldrinum vegna nýja kórónuvírussins og lýsti jafn- framt yfir fullu trausti þess efnis að Kína myndi beita öllum þeim aðferð- um sem tiltækar væru til að hindra útbreiðlu sjúkdómsins. Þessi aðgerð sýnir ennfremur fram á hið góða tví- hliða samband á milli Kína og Ís- lands varðandi það að takast á við áskoranir saman. Margir íslenskir vinir hafa einnig sýnt kínversku ríkisstjórninni og almenningi í Kína stuðning á eigin vegum og fyrir það er ég djúpt snortinn. Sem sendiherra Kína á Íslandi hef ég verið í nánu sambandi við heilbrigðis- og al- mannavarnayfirvöld á Íslandi og höf- um við stillt saman strengi okkar til að takast á við þessa áskorun saman. Til að hindra hugsanlega út- breiðslu vírussins hefur Kína hætt við allar hópferðir Kínverja til út- landa. Eins og gefur að skilja hefur þetta leitt til þess að færri kín- verskir ferðamenn heimsækja Ís- land. Ég vona að þessar erfiðu ákvarðanir sem við höfum neyðst til að taka mæti skilningi hjá íslensk- um vinum okkar. Ég trúi því að þessar árangursríku aðferðir til að ná tökum á faraldrinum muni leiða til þess innan tíðar muni kínversk stjórnvöld aflétta þessu ferðabanni. Við hlökkum til að sjá fleiri kín- verska ferðamenn heimsækja Ís- land þegar beint flug mun hefjast milli landanna á þessu ári. Ég er sannfærður um að áhrif faraldurs- ins á íslenskan ferðamannaiðnað muni einungis vera tímabundin og að viðskiptatækifærin sem kín- verskir ferðamenn færa Íslandi verði mörg og góð. Í gegnum tíðina hefur mannkynið margsinnis staðið andspænis erfið- leikum en ávallt tekist að yfirvinna þá. Á þessum krefjandi tímum þörfn- umst við yfirvegunar frekar en ótta, þörfnumst samstöðu frekar en eiginhagsmunasemi. Það er trú mín að með auknum skilningi og stuðningi alþjóða- samfélagsins muni kínverska ríkis- stjórnin og almenningur í Kína öðl- ast það sjálfsöryggi og nái að nýta þau úrræði sem nauðsynleg eru til að vinna þessa baráttu eins fljótt og auðið er. Fullviss um fullnaðarsigur í baráttunni við kórónuvírusinn Eftir Jin Zhijian » Vírusar virða engin landamæri. Þegar við stöndum frammi fyr- ir skyndilegri ógn við lýðheilsu verða ríki úr öllum heimshornum að vinna saman. Jin Zhijian Höfundur er sendiherra Kína á Íslandi. Ég fagna! Ég fagna pistli dómsmálaráð- herra, Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem hún skrifaði í Morgunblaðið 22.1. 2020, undir heitinu Réttarbót í dóms- málum. Pistill ráðherra fjallar um að fyrir vor- þingi liggi að setja lög um endurupptökudóm. Ráðherra rekur í stuttu máli og skil- merkilegu lagalega stöðu nú til upp- töku dómsmáls. Að leita þurfi til úr- skurðarnefndar á vegum fram- kvæmdavaldsins til að fá dómsmál endurflutt fyrir dómi. Þá tilgreinir ráðherra hvaða skil- yrði þarf að uppfylla til að endurupp- tökunefnd heimili að dómsmál sé endurflutt, en þau eru:  að leiða verði sterkar líkur að því að málsatvik hafi ekki verið leidd réttilega í ljós þegar málið var til meðferðar og aðilanum verði ekki um það kennt.  að ný gögn muni leiða til breyttrar niðurstöðu í mikilvægum atriðum.  að stórfelldir hagsmunir aðilans séu í húfi. Í hinu nýja lagafrumvarpi er lagt til að endurupptökudómur heimili upptöku dómsmáls ef skilyrðum ákvæða eitt eða tvö sé fullnægt, enda hljóti þriðja skilyrðið um hagsmuni ætíð vera fyrir hendi. Ég skil fyrrgreint þriðja ákvæði gildandi laga svo, að hagsmunir dómþola rangs dóms, um að fá leið- réttingu á máli sínu, hljóti ávallt að vera stórfelldir. Lengi hef ég þekkt þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að dómur sé upp tekinn. Í meira en áratug hef ég notað hverja lausa stund til að undir- búa kröfu mína um upptöku hæstaréttar- dóms nr. 610/2007. Málinu hallaði í dómi vegna þess að dómarar þess byggðu úrlausn sína á tveimur upp- skriftum, sem höfðu rangt eftir, þ.e. á Jarðatali Johnsens 1847 og Jarðabók Skúla 1760. Jarðatalið vitnar rangt í frum- heimildina; Jarðabók- ina 1803. Á þessari villu Johnsens byggði Hæstiréttur, þrátt fyrir að ég legði heimildina frá 1803 í hendur dóm- stólsins. Ég hef í áratugi verið sannfærður um að uppskriftin Jarðabók Skúla 1760 sé villuheimild um dýrleika Ytri-Sólheima. Fyrir þremur árum fann ég frumheimildina, sem Skúli skráir eftir. Þar sést að Jarðabók Skúla hefir ekki rétt eftir sinni frum- heimild. Upphaf hæstaréttarmáls nr. 610/ 2007 eru ólög í eignarrétti land- skipta; nr. 46/1941. Það eru ólög sem ganga gegn tvö þúsund ára hefð vestrænnar siðmenningar. Senni- lega voru þau sett af fávisku Al- þingis. Það er á valdi eiganda eignar að ákveða í hvaða hlutföllum hann skiptir eigum sínum. Við þau rök réttra laga verður að búa. Ég hef nú í þrjú ár unnið að því að fletta ofan af afleiðingum ólaganna á landsvísu. Til þess verks rannsakaði ég meira en 400 landskipti á Íslandi frá nýliðnum hundrað árum og í kjöl- farið er ég að rannsaka eignarrétt á um þrjátíu jarðatorfum. Ég ætla að höfða mál um endur- upptöku á hæstaréttarmáli nr. 610/ 2007. Ég bið forlögin um að gefa mér líf og heilsu til að ljúka báðum verk- unum. Rétt lög þurfa að byggjast á sann- leika, jafnræði og rökréttri hugsun. Það er staðföst sannfæring mín að þau formlegheit sem fólgin eru í mál- flutningi fyrir dómi séu það haldreipi sannleikans, sem aldrei megi víkja frá. Dómstólar sem byggja á réttum lögum standa vörð um frelsi manna. Upptaka dóms um Ytri-Sólheima Eftir Tómas Ísleifsson »Málinu hallaði í dómi vegna þess að dóm- arar þess byggðu úr- lausn sína á tveimur uppskriftum, sem höfðu rangt eftir … Tómas Ísleifsson Höfundur er líffræðingur. linekra@simnet.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.