Morgunblaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 33
skammvinn veikindi, veikindi sem komu okkur öllum ástvinum hennar í opna skjöldu. Amma var auðvitað mögnuð kona sem hafði áður lifað af ótrúlega hluti og það sást svo bersýnilega hve sterk hún var síðustu vikurnar þrátt fyrir alvarleg veikindi. Þótt við hér á jörðu niðri söknum ömmu heil ósköp hefur afi Gunnar loks- ins fengið hana til sín og getum við huggað okkur við þá góðu endurfundi. Foreldrar mínir voru ungir þegar þau áttu mig og var ég því svo heppinn að verða fastagestur hjá ömmu Guggu og afa Gunnari allt frá fyrsta degi. Það mynd- uðust sterk og einstök tengsl á milli okkar ömmu og var heimili þeirra afa mitt annað heimili - og amma svo gott sem önnur mamma mín. Amma spilaði stórt hlutverk í mínu lífi og kenndi mér svo margt sem hefur mótað mig. Það eru ótal minningar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa til allra góðu stundanna sem við áttum saman og fyrir þær er ég endalaust þakklátur. Mér þykir ómetanlegt að synir mínir hafi fengið að kynnast langömmu sinni og hún kallað þá „himneskur“ eins og hún kallaði mig þegar ég var lítill. Að hún hafi kynnst Maríu minni, heim- sótt okkur á ný heimili og fengið að umgangast strákana okkar þegar hún var í bænum. Mér eru minnisstæð samtölin við ömmu um hversu þakklát hún var fyrir að hafa fengið að hitta svona marga afkomendur sína, öll barnabörnin og barnabarna- börn – nokkuð sem hefði svo auð- veldlega getað verið hrifsað af henni í slysinu í Skálavík. Í veik- indum hennar kom það svo vel í ljós hversu elskuð, dýrkuð og dáð hún var af fólkinu sínu og vinum. Gestagangurinn stoppaði ekki meðan hún lá inni á spítalanum, það var alltaf einhver hjá elsku ömmu. Þarna sá maður bersýni- lega hversu rík hún var og hvern- ig hún hafði uppskorið þá ást, umhyggju og alúð sem hún hafði gefið frá sér alla tíð. Við María og strákarnir erum svo þakklát fyrir að hafa heim- sótt ömmu vestur í Bolungarvík síðastliðið sumar, þar sem við dvöldum hjá henni á Hlíðar- strætinu. Strákarnir okkar fengu að kynnast langömmu sinni enn betur og nutum við samveru hvert við annað til hins ýtrasta. Við eigum margar góðar minn- ingar frá heimsókninni en eina sérstaklega ljúfa frá því þegar amma gekk með okkur „niður á malir“, fræddi okkur um staði og fólk og sagði okkur sögur. Og hún lét það ekki stoppa sig að þurfa að drösla göngugrindinni á undan sér, frekar en annað. Ég hugsa til ömmu með hlýju, ást og söknuði. Hún hafði ein- stakt hjartalag og ég verð henni ævinlega þakklátur fyrir allt það sem hún hefur kennt og gefið mér. „Ég elska þig amma Gugga og vona að afi Gunnar taki vel á móti þér og að þú fallir vel í hópinn hjá Guði.“ – Jóhann Gunnar Benedikts- son, sex ára. Hvíldu í friði elsku amma, langamma og tengdaamma. Benedikt Eggert Pálsson (Benni) og fjölskylda. Elsku besta amma mín Gugga. Tómarúmið sem er komið í lífið vegna fráfalls þíns er svo mikið og svo óendanlega stórt. Sárs- aukinn hefur verið svo mikill undanfarið að ég hef átt erfitt með að anda. Ég er að æfa mig að fylla tómarúmið af minningum af þér og okkur. Ég hef alltaf frá því ég man eftir mér haft annan fótinn hjá þér á hlýja og fallega heimili þínu á Hlíðarstræti 15 og átt þar öruggt skjól. Það er svo dýrmætt til þess að hugsa hve stór partur af lífi mínu og allrar minnar fjölskyldu þú hefur verið. Margs er að minnast, margt er hér að þakka Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guði þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Minningar um mig þegar ég var lítil stelpa að leika í garðinum á Hlíðarstræti 15 eru töfrum lík- astar. Garðurinn þinn er svo fal- legur enda hefur þú hugsað vel um hann. Ef veðrið var til friðs þá varstu í garðinum á öllum tím- um sólarhringsins. Ég hef fengið skilaboð seint á kvöldin þess efn- is að þú sért að veltast um í garð- inum. Ein skilaboðin fékk ég þegar klukkan var að ganga eitt. Ég fór þá í smá hjólatúr og kom við hjá þér. Ég spurði hvað þú værir að gera úti svona seint. Ég fékk sömu spurningu á móti og þá horfðumst við í augu og fórum að hlæja. Þú vissir alveg að ég var þarna komin til þess að at- huga með þig. Kyrrðin, birtan og róin heltóku þig í garðinum þótt vissulega gæti garðvinnan verið ógurlegt puð en hún hélt þér við eins og þú sagðir sjálf. Eftir að við frændsystkinin öll gáfum þér bleiku gellutölvuna fékkstu þér facebookaðgang. Þér fannst svo gaman að skoða síðuna og þá sér- staklega þegar afkomendur þínir settu inn myndir. Þér var svo umhugað um fjölskylduna þína. Þú lifðir fyrir okkur öll. Þú vildir vita af okkur, heilbrigðum og öruggum. Þú varst elskuð og dáð af okkur öllum, fólkinu þínu, þess vegna er fráfall þitt okkur svo sárt. Þrátt fyrir sársaukann og söknuðinn finn ég fyrir þakklæti fyrir allar minningarnar sem ég á. Ég er sérstaklega þakklát fyr- ir að þú skyldir fá að kynnast börnunum mínum fjórum, him- nesku manneskjunum þeim Mar- gréti, Vagnfríði Elsu, Ernu Ósk og svo loks himnaríkisprinsinum Hafþóri Nóa. Amma, þú upplifðir ævintýri, töfra og drauma verða að veruleika eins og þú sagðir sjálf á Minni-Bakka í Skálavík í sumar er við Krissi gengum í hjónaband og skírðum Hafþór Nóa. Þér fannst ég aldeilis hafa dottið í lukkupottinn að hafa krækt í hann Krissa og þú varst svo hamingjusöm fyrir okkar hönd með heimili okkar og fjöl- skyldu. Amma, augun þín svo blá, skýr og fögur, brosið þitt blíða og hlát- urinn voru einkennandi fyrir þig litla sjarmabúntið þitt. Ég lýk þessum skrifum á vísu sem þú söngst fyrir mig og börnin mín öll. Vísuna sungum við pabbi nokkrum sinnum fyrir þig á síð- ustu vikum. Brostu amma brostu amma blítt til mín. Svo ég sjái svo ég sjái bláu augun þín. Í þau vil ég stara og í þeim vil ég sjá alla gleði og hamingju sem lífið á. Elsku amma Gugga, þú varst svo miklu meira en bara amma mín og þú vissir það. Guð launi þér fyrir allt og allt. Ég elska þig. Guðbjörg Stefanía. Elsku amma okkar og lang- amma, Gugga. Þú hefur alltaf verið og munt halda áfram að vera stór partur af lífi okkar. Allar óteljandi stundirnar sem við vorum svo heppin að eiga með þér. Minningarnar sem við eigum um þig eru gull sem við munum varðveita í hjörtum okkar. Þú kenndir okkur svo ótal margt og við gátum alltaf treyst á þig, fyrir það erum við ævin- lega þakklát. Það er okkur mikill missir að hafa þurft að kveðja þig svo skjótt en við vitum að þú munt varðveita okkur og vernda. Guðný, Þórður, Jón Ragnar, Kolbrún Ýr Sigurgeirsbörn og Stefanía Guðmundsdóttir. Með Guðbjörgu Stefánsdóttur er gengin góð og merk kona. Gugga hans pabba eða amma Gugga hefur nú kvatt okkur eftir stutta en snarpa sjúkrahúslegu. Hún Gugga var ekki að kvarta en okkur grunar að hún hafi lifað lengi með verki sem hún talaði lítið um. Það var ekki fyrr en undir það síðasta að í ljós kom að hún var með illvígan sjúkdóm sem ekkert var hægt að með- höndla. Gugga lifði fyrir fjölskylduna, börnin sín, barnabörn og barna- barnabörn. Hún hafði stóran faðm, knúsaði og lagði sig fram um að fylgjast vel með því hvar hópurinn hennar var staddur í lífinu. Það var ekki verra að fá frá henni vettlinga á litla putta, sem voru sérstaklega fallegir og vel gerðir. Síðustu pörin verða vel geymd. Það var alltaf gott og gaman að koma á Hlíðarstrætið, setjast inn í eldhús og spjalla. Þar var oft þéttsetinn bekkurinn og Gugga á þönum við að finna til bakkelsi, hella upp á kaffi og gera gestum og gangandi til góða. Það sem einkenndi Guggu var hennar góðlegi hlátur, hún var alltaf til í að tala um gamla daga og lífið á Vestfjörðum sem og að uppfræða okkur um forfeð- urna. Á meðan pabbi lifði voru þau samstiga í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Þá átti Skálvík og uppbyggingin þar stóran sess í hjörtum þeirra. Yfir Skálavík ríkir ákveðinn ævintýraljómi, sandvíkin, áin, fjöllin, útsýnið yf- ir hafið og bústaðirnir mynda eina fallega heild. Við eigum fallegar minningar um ómetanlegar samverustundir með pabba og Guggu í Skálavík og þá síðustu með henni og stór- fjölskyldunni sl. haust. Það sýndi vel styrk Guggu að hún lét ekki bugast þegar pabbi lést árið 1994 í hörmulegu vélsleðaslysi á leið- inni á milli Skálavíkur og Bolung- arvíkur. Gugga var með pabba í þeirri ferð og upplifði þar meira en margur hefði staðið undir, þar sem hún beið í marga klukkutíma eftir hjálp. En Gugga hélt áfram lífsgöngunni, sýndi innri styrk og þrautseigju og við erum viss um að pabbi tekur vel á móti henni. Okkur er ljúft að þakka fyrir margar góðar stundir, umhyggju og vináttu. Að leiðarlokum getum við yljað okkur við ótal góðar minningar sem samveran með Guggu gaf okkur. Blessuð sé minning Guðbjargar Stefáns- dóttur. Fanný Gunnarsdóttir, Hörður Gunnarsson, Gunnar Harðarson. Elsku langamma, við systurn- ar eigum eftir að sakna þín. Það var svo gott að koma til þín í kaffi eða bara koma við til að fá knús. Þú leyfðir okkur næstum allt og það var svo gaman að lita hjá þér og fá góða kexið eða muffins. Vagnfríður Elsa vildi alltaf bara vatn og þér fannst það agalegt að geta ekki boðið henni neitt annað að drekka. Margrét var orðin hærri en þú og þegar hún faðm- aði þig þá fórstu oft að hlæja. Við gleymum aldrei deginum þegar við fórum með þér á Kolbeinslæk fyrir utan Súðavík þar sem þú áttir heima sem stelpa. Þú varst svo glöð og ánægð að segja okkur sögur frá því þú varst lítil. Núna þegar við keyrum framhjá Kol- beinslæk sjáum við þig fyrir okk- ur standa með fallega brosið þitt á stéttinni sem var fyrir framan útihurðina á Kolbeinslæk. Mar- grét man nokkuð vel eftir því þegar hún, þú og mamma voruð veðurtepptar í Reykjanesi í tvo daga. Til að stytta okkur stundir fórum við meðal annars í hár- greiðsluleik. Þér fannst svo gam- an að koma með okkur á rúntinn og bara gera allskonar hluti með okkur. Okkur fannst það líka gaman. Þú hafðir smitandi hlát- ur. Þú varst dugleg að prjóna og prjónaðir á okkur mörg pör af vettlingum. Garðurinn þinn er svo flottur og okkur krökkunum finnst gaman að fara í eltingar- leik og feluleik í honum. Oft þeg- ar við fórum labbandi eða hjól- andi framhjá húsinu þínu á sumrin sáum við þig vera að dúlla þér í garðinum að klippa trén, vökva blómin, raka grasið og stundum varstu bara í sólbaði. Á veturna varstu stundum úti að moka. Þegar þú varst á sjúkra- húsinu í Reykjavík þá fóru Vagn- fríður Elsa, Hafþór afi og hún Erna Ósk að moka snjóinn fyrir þig því við vorum alltaf að vona að þú mundir koma heim og við söknuðum þín öll, elsku amma. Guð geymi þig, rófan þín og tófan þín, eins og þú varst vön að segja við okkur. Við elskum þig. Þínar Margrét og Vagnfríður Elsa. MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020 Þökkum alla góðvild, vinarhug og auðsýnda samúð við andlát og útför elsku systur minnar og frænku okkar, SIGRÍÐAR HELGU SIGURÐARDÓTTUR skólaritara, Borgarnesi. Sigþrúður Sigurðardóttir Sigurður Halldórsson Erla Helga Sveinbjörnsdóttir Brynjúlfur Halldórsson Gunnar Jóhannesson Elín Eir Jóhannesdóttir Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SÆVAR SIGURSTEINSSON, Selfossi, sem lést sunnudaginn 2. febrúar, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju mánudaginn 10. febrúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna. Sigrún Gerður Bogadóttir Sigurður Bogi Sævarsson Sigursteinn G. Sævarsson Nikki Kwan Ledesma Ragnhildur Sævarsdóttir Daníel Pálsson og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SALBJÖRG H. NORÐDAHL, fyrrverandi húsfreyja Hólmi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir 30. janúar, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju mánudaginn 10. febrúar klukkan 14. Karl H. Norðdahl Ásdís B. Ottesen Þorvaldur S. Norðdahl Erla Norðdahl Eggert Norðdahl Valur Þór Norðdahl Marta K. Halldórsdóttir Heiða Björk Norðdahl Jón Jóhannesson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR ÁRNI SIGURÐSSON, Addi prentari, Skúlagötu 44, Reykjavík, andaðist á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Grund miðvikudaginn 5. febrúar. Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 14. febrúar klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarsjóð Oddfellow, s. 897-9899. Helga G. Sigurðardóttir Þórður Ingason Sigríður Lovísa Sigurðard. Pétur Pétursson Hallveig Sigurðardóttir Sigurður Oddgeir Sigurðsson barnabörn og langafabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, ÞÓRUNN ÁRNADÓTTIR, Tjörn, Álftanesi, lést á Litlu-Grund mánudaginn 3. febrúar. Útförin fer fram frá Bessastaðakirkju mánudaginn 17. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim er vildu minnast hennar er bent á að láta dvalar-og hjúkrunarheimilið Grund njóta þess. Anna Ólafsdóttir Björnsson Ari Sigurðsson Jóhanna Aradóttir Hörður Bragason Hörður Bragason Shui Kay Ma Elskuleg móðir okkar, SIGRÚN HERMANNSDÓTTIR, hjúkrunarfræðingur frá Seyðisfirði, lést 2. febrúar á hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför fer fram frá Áskirkju í Reykjavík föstudag 14. febrúar klukkan 15. Guðný Bjarnadóttir Einar Bjarnason Stefanía Sigríður Bjarnad. Hermann Bjarnason Guðríður Bjarnadóttir Móðir mín, AMALÍA SVERRISDÓTTIR, Millý, Dalbraut 16, Reykjavík, sem lést á Vífilsstöðum 1. febrúar, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 14. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna. Starfsfólki á 3. hæð Vífilsstaða, HERU og heimahjúkrunar eru færðar innilegar þakkir fyrir ómetanlega aðhlynningu og umhyggju sem þau veittu hinni látnu. Gréta Gunnarsdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, EINAR SVERRISSON viðskiptafræðingur, Hlíðarhúsum 5, Reykjavík, lést sunnudaginn 2. febrúar. Útförin fer fram frá Langholtskirkju 20. febrúar klukkan 13. Þorgeir Einarsson Halla Kristín Þorsteinsdóttir Sverrir Einarsson Vilborg Rósa Einarsdóttir Tryggvi M. Baldvinsson Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir Sigrún Unnur Einarsdóttir Sigurjón Bragason og afabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.