Morgunblaðið - 08.02.2020, Síða 35

Morgunblaðið - 08.02.2020, Síða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020 ✝ Eyrún Péturs-dóttir fæddist á Siglufirði 17. apríl 1952. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 25. janúar 2020. Foreldrar henn- ar voru Halldóra María Þorvalds- dóttir húsmóðir frá Vatnsenda í Héð- insfirði, f. 20.októ- ber 1925, d. 23. júlí 1982, og Pétur Þorsteinsson verkamað- ur frá Gilhaga í Lýtingsstaða- hreppi, f. 13. maí 1922, d. 27. mars 1995. Bróðir Eyrúnar var Kristinn Ásgrímur, f. 7. maí 1956, d. 20.10. 2015. Eiginmaður Eyrúnar var Þormóður Birgisson stýrimað- ur, f. 8. ágúst 1951, d. 22. júlí 2005. Þau gengu í hjónaband 26. október 1974. Foreldrar Þormóðs voru Margrét Hjör- dís Pálsdóttir húsfreyja frá Ölduhrygg, Svarfaðardals- hreppi, Eyjafirði, f. 5. mars 1919, d. 9. júlí 1998, og Birgir Runólfsson vöruflutninga- bifreiðastjóri frá Kornsá í Ásahreppi, A-Húnavatnssýslu, f. 2. janúar 1917, d. 5. maí Gunnar Steinn og Nóel Gunn- ar. Eyrún eignaðist sitt fyrsta barn snemma eða rétt tæplega 16 ára. Fór síðan í húsmæðra- skólann á Laugalandi í Eyja- firði. Eftir dvöl sína þar fór hún vestur á land á vertíð. Ey- rún og Þormóður hófu síðan búskap með smáhléum í byrjun og giftu sig í október 1974. Ey- rún starfaði fyrst um sinn mik- ið við almenn fiskvinnslustörf á Siglufirði. Síðar var hún við verslunarstörf hjá Gesti Fann- dal, Verslunarfélaginu og í verslun Guðrúnar Rögnvalds allt þar til Elín Gestsdóttir keypti verslunina. Eyrún fylgdi með í kaupunum og starfaði hún fyrir hana í tíu ár. Einnig rak Eyrún Söluturninn um nokkurra ára skeið ásamt Þormóði eiginmanni sínum. Árið 2002 hóf hún störf sem skólaliði og starfaði þar til 2018 er hún lét af störfum vegna veikinda. Eyrún starfaði einnig mikið við afleysingar á sambýlinu við Lindargötu. Útför Eyrúnar fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 8. febrúar 2020, og hefst athöfnin klukkan 14. 1970. Börn Ey- rúnar og Þor- móðs eru: 1) Þor- steinn, f. 12. mars 1968. Bú- settur á Ak- ureyri. Börn hans eru: Brynjar Ingi, Hólmfríður Dúna og Steinunn Ósk og Elín Margrét. Barnabörnin eru fimm; Benoný Ingi, Eiður Vopni, Andrea Pálrún, Aron Ernir og Brynja Dögg. 2) Halldóra María, f. 1. maí 1975, maki Valdimar L. Birgisson, þau eru búsett á Siglufirði. Börn þeirra eru Eyrún Brynja, Þormóður Birgis og Þorsteinn Birgis. Barnabarn er Sólveig María. 3) Pétur, f. 26. ágúst 1985, maki Hildur Björk Mar- grétardóttir, þau eru búsett í Reykjavík. Börn þeirra eru Linda Roberts, Óskar Þór, Ró- bert Þór og Matthías Þór. 4) Þorsteinn Þórsteinsson, f. 1. feb. 1971, maki Una Marsibil Lárusdóttir. Þau eru búsett í Reykjavík. Börn þeirra eru Aleksandra Dís og Bergrós Lilja. Barnabörnin eru tvö; Elskuleg móðir okkar hefur kvatt þessa jarðvist eftir erfið veikindi. Það hefur verið okkur þungur harmur jafnvel þótt við vissum öll í hvað stefndi. Sérstak- lega þar sem hún var okkur ekki bara frábær móðir heldur líka okkar besti vinur. Það er óhætt að segja að hún hafi vaðið eld og brennistein fyrir okkur því hún setti okkur alltaf í fyrsta sæti. Sama hvert vandamálið var, alltaf var hún til staðar, jafnvel þótt við byggjum ekki öll á svæðinu. Mamma var búin að ganga í gegn- um erfiðleika og sorg í lífinu. Missti móður sína snemma, síðan föður okkar og bróður sinn. Öll fóru þau úr sama sjúkdómi. Mömmu var einnig mjög annt um bróður sinn Ása. Ási var ekki allra og var oft mömmu erfiður en hún reyndi ávallt að gera gott úr öllu og hún sagði alltaf að hann væri bróðir sinn og yrði það alltaf og þótti ákaflega vænt um hann, jafnvel þótt hún fengi það ekki alltaf endurgoldið. En þegar Ási veiktist breyttist allt til hins betra og sennilega hafa þau aldrei átt eins gott samband og undir það síðasta. Með þessum fátæklegu orðum langar okkur systkinin að þakka þér móðir góð fyrir að hafa verið til fyrir okkur. Söknuðurinn er óbærilegur, en það veitir okkur huggun að nú ert þú komin í faðm pabba, ömmu Dúnu og afa Péturs. Þú varst alltaf svo góð við mig, ég fékk athygli þína óskipta, þú lifðir fyrir mig, hlustaðir á mig, talaðir við mig, leiðbeindir mér, lékst við mig, sýndir mér þolinmæði, agaðir mig í kærleika, sagðir mér sögur, fræddir mig og baðst með mér. Þú varst alltaf svo nærgætin og skilningsrík, umhyggjusöm og hjartahlý. Þú varst skjól mitt og varnarþing. Við stóðum saman í blíðu og stríðu, vorum sannir vinir. Mér þótti svo undurvænt um þig, elsku mamma mín. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þótt móðir mín sé nú aðeins minningin ein mun ég ávallt minnast hennar með glöðu geði og dýpstu virðingu, hugheilu þakklæti og hjartans hlýju, fyrir allt og allt. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þorsteinn, Halldóra María og Pétur. Eyrún Pétursdóttir var mikill persónuleiki og hjartahlý mann- eskja sem reyndist sínum nán- ustu afar vel. Hún var stór partur af lífi minnar fjölskyldu í 53 ár. Hún var fyrsta kærasta tví- burabróður míns Þorra Birgis allt frá 15 ára aldri og eftir smá hvíld hvort frá öðru í nokkur ár tóku þau saman á ný og giftu sig í októ- ber 1974 og náðu að vera gift í 30 ár. Þorri lést eftir löng og erfið veikindi 22. júlí 2005, tæplega 54 ára gamall. Fráfall Þorra var henni og fjölskyldu hennar mikið áfall sem og mér og minni fjöl- skyldu. Eyrún sýndi mikið æðru- leysi og styrk meðan á veikindum Þorra stóð. Einnig var það ein- staklega aðdáunarvert hvernig hún sinnti bróður sínum Ása en hann lést aðeins 59 ára gamall ár- ið 2015 eftir baráttu við löng veik- indi. Innst inni var Eyrún hlédræg og oft mannfælin, en við sem þekktum hennar bestu takta viss- um hvað bjó með henni. Hún var oft hrókur alls fagnaðar þegar sá gállinn var á henni, þvílíkur orða- forði og „menningartengt“ rugl sem kom frá henni. Hún gerði mig meira að segja oft orðlausan, því- lík skemmtum. Hún var uppi- standari af bestu gerð. Eyrún var mér afar kær, enda stelpan sem giftist tvíburabróður mínum. Þau eignuðust sitt fyrsta barn mjög ung að aldri, strákinn hann Steina. Á kaupstaðarafmæli Siglufjarðar í júlí 1968 var son- urinn skírður í hátíðarmessu í Siglufjarðarkirkju. Ég, sem þá var 16 ára strákur, mætti auðvit- að til messu. Ástæðan var að for- vitnast um hvernig unglingunum Þorra og Eyrúnu gengi að gefa frumburðinum nafn með yfirfulla kirkju af prúðbúnu fólki sem fylgdist með hverri hreyfingu þeirra. Hvað skyldi litli frændi svo heita? Það kom mér mikið á óvart þegar ég heyrði svo nafnið Þorsteinn nefnt, en það nafn þekkti bróðir minn best af öllum nöfnum, sem sagt nafnið mitt. Ég hef verið ákaflega stoltur og þakklátur fyrir þessa gjöf, þetta var mín fyrsta og kærleiksríka stund sem ég upplifði. Þorsteinn Þormóðsson er mér afar kær og góður vinur og hefur verið í 52 ár elskulegur frændi. Seinna eignuðust ungu hjónin Halldóru og Pétur sem einnig eru miklir vinir mínir ásamt fjölskyld- um þeirra. Eyrún var börnum sínum og afkomendum afar góð og gerði allt sem hún gat til að hjálpa þeim af miklum kærleika. Árið 1971 eignaðist Eyrún dreng sem hún tók ákvörðun um að fela yndislegum hjónum að ala upp og gera að manni. Drengur- inn fékk nafnið Þorsteinn eins og bróðir hans en þeir kynnast fyrst mörgum árum seinna. Eyrún og Þorsteinn Þórsteinsson náðu svo að tengjast miklum vina- og kær- leiksböndum fyrir allmörgum ár- um. Og í veikindum Eyrúnar hef- ur Þorsteinn yngri verið móður sinni mikill styrkur, staðið við hlið systkina sinna og boðið fram hjálparhönd sem sýnir kærleik til fjölskyldu sinnar norður á Siglu- firði. Góður og sterkur drengur þar á ferð. Í dag er mikill sorgardagur í lífi fjölskyldunnar og vottum við þeim öllum okkar innilegustu samúð. Eyrún kvaddi okkur allt of ung og viljum við þakka henni sam- fylgdina, lífið verður örugglega öðruvísi án hennar. Við kveðjum hana með sökn- uði. Þorsteinn Birgisson, Ragnheiður Stein- björnsdóttir. Kær mágkona og vinkona er fallin frá, allt of snemma. Við þökkum henni samfylgdina gegn- um árin og vináttuna, sem ekki bar skugga á. Hún passaði húsið okkar og blómin árin sem við vor- um í burtu, af samviskusemi og al- úð. Mikill vinargreiði sem hún gerði og á heiður skilið fyrir það. Það var engin lognmolla í kring- um Eyrúnu. Hún var gleðigjafi. Í gegnum veikindin fór hún æðru- laus, kvartaði aldrei, gerði grín að sjálfri sér og sjúkdómnum. Þann- ig vildi hún hafa það. Það er margs að minnast en verður ekki rakið hér. Við sendum börnunum hennar og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúðarkveðjur. Við söknum Eyrúnar, tileink- um henni ljóðlínur Stephans G.: Bognar aldrei – brotnar í bylnum stóra seinast. Runólfur og Hólmfríður (Óli og Fríða). Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Stundum erum við minnt á hve hverfult lífið getur verið og ósann- gjarnt, ekki síst þegar komið er að þeim tímamótum í lífinu sem enginn fær umflúið. Þegar horfið er á braut úr jarðnesku lífi fylgir förin til hins óþekkta og í þá för lagði Eyrún æskuvinkona mín hinn 25. janúar sl. Dauðans tími er alltaf óviss, jafnvel þótt fólk hafi um hríð staðið við dauðans dyr. Skilnaðurinn er svo algjör, umskiptin svo glögg. Margs er að minnast þegar litið er til baka og er þakklæti mér efst í huga fyrir að hafa átt svo langa samleið með þér í gegnum þykkt og þunnt í lífi okkar á Sigló uns leiðir skildi þegar ég fór til Reykjavíkur í nám. Við héldum þó ávallt sambandi og alltaf var fjör og gaman í hvert skipti þegar við hittumst. Það sem er og hefur lengi ver- ið, það verður skyndilega hluti af liðinni tíð. Eftir lifa minningar sem ég á mikið af og ylja mér við. Á þessum tímamótum lít ég til baka og sé í skýrara ljósi en nokkru sinni fyrr hve mikið er skilið eftir. Eyrún var trygg, traust, glað- vær og fylgin sér enda litríkur karakter sem varð sjaldan orða- vant. Hún var ennfremur þekkt fyrir að nota kjarnyrt íslenskt mál þegar hún þurfti að leggja áherslu á mál sitt. Þú sýndir hetjulega baráttu í veikindum þínum, Eyrún mín, en varðst að lokum að játa þig sigr- aða. Þú tókst á við mótbyr í lífinu af æðruleysi og sýndir hvernig á að vinna úr erfiðleikum á jákvæð- an hátt. Nú þegar komið er að kveðju- stund er erfitt að sætta sig við að þú sért ekki lengur á meðal okkar. Ég hugga mig þó við það að Þorri þinn og aðrir ættingjar munu taka vel á móti þér í Sumarland- inu. Elsku Steini, Þorsteinn, Hall- dóra, Pétur og aðrir aðstandend- ur. Ykkar missir er mikill og votta ég ykkur öllum mína dýpstu sam- úð á þessum erfiðu tímum. Hvíl í friði elskuleg. Anna Björnsdóttir. Það var bara við lok skólaárs- ins 2018-2019, í fallegu veðri á skólaslitum, að við kvöddum hana Eyrúnu samstarfskonu okkar til margra ára og þökkuðum henni vel unnin störf við Grunnskóla Fjallabyggðar og þar áður Grunnskóla Siglufjarðar. Eyrún hafði þurft að hætta störfum vegna erfiðra veikinda en hafði fulla trú á að geta komist í gegn- um þau og tekið lífinu með ró. Ey- rún vann sem skólaliði í skólahús- inu á Siglufirði, sá um ræstingar af miklum dug og kom að umönn- un barna ásamt því að sinna þörf- um þeirra á göngum sem og í úti- veru. Okkur þótti vænt um Eyrúnu. Hún var einstakur karakter, grár húmor og léttleiki einkenndi hennar framkomu alla jafnan. Hún kom til dyranna eins og hún var klædd, átti alltaf svar á reiðum höndum ef því var að skipta og var ekkert að erfa hlut- ina við neinn. Eyrún hafði kynnst þeim erf- iðu veikindum sem krabbamein er og þurft að sjá á eftir ástvinum sem féllu fyrir þeim illvíga fjanda. En nú var röðin komin að henni sjálfri. Hún hefur kvatt þessa jarðvist eftir stranga baráttu, siglt inn í sumarlandið. Elsku Eyrún, við höfum fylgst með baráttu þinni í gegnum veik- indin og þú varst dugleg að koma við í skólahúsinu, aðeins að hrista upp í liðinu. Við þökkum þér sam- fylgdina öll þessi ár. Minning þín lifir. Aðstandendum vottum við innilega samúð okkar. F.h. starfsmanna Grunnskóla Fjallabyggðar, Erla Gunnlaugsdóttir skólastjóri. Elsku fjölskylda Eyrúnar, við viljum byrja á því að votta ykkur innilega samúð vegna fráfalls þessarar mögnuðu konu. Blendn- ar tilfinningar voru þegar tilkynnt var um andlát Eyrúnar; þótt þakklæti væri efst í huga er alltaf sárt að kveðja vin. Þakklæti fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og fjölskyldu mína sem og þakklæti fyrir að kvölin hafi ekki verið lengri. Eyrún átti ansi stóran þátt í lífi mínu eða okkar fjölskyldunnar í raun og veru, tryggari og rétt- sýnni vin er vart hægt að finna. Ófár kvöldstundir áttum við sam- an síðustu ár þegar við enduðum í sambýli nokkru eða bjuggum í sömu blokk, heimsóknir sem áttu að vera smá „kíkk“ enduðu oft í margra klukkustunda spjalli um allt og ekkert, líf okkar og til- veruna og jafnvel ekki neitt nema þögnina … oftar en ekki yfir ís eða kaffi. Þessar heimsóknir voru ekki bara heimsóknir heldur ein- kenndust þær af virðingu, vin- skap og miklum kærleika og er því alveg óhætt að segja að aldur sé algjörlega afstæður þegar vin- skapur er annars vegar. Margt var líkt með okkur og áttum við margt sameiginlegt. Eyrún mín hafði munninn á rétt- um stað og notaði hann rétt, því þrátt fyrir að það væði oft mikið á henni var hún samt alltaf réttlát og sanngjörn í því sem hún vildi fá fram eða var að benda manni hreint og beint á. Hún gat alveg sagt manni í hreinskilni ef henni fannst maður vera að gera bölv- aða vitleysu eða sá það á manni að maður var í þann mund að klúðra algjörlega málunum, því já yfir- leitt sá hún þessa hluti á okkur áð- ur en við náðum hausnum sjálf í kringum þá. Það er því með miklu þakklæti sem ég eða við fjölskyld- an sem bjuggum fyrir neðan hana á Laugarveginum kveðjum þessa frábæru og skemmtilegu konu, það er henni að mörgu leyti að þakka hvar við stöndum í dag og að við stöndum þar saman. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kölluð á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo gestrisin, einlæg og hlý. En örlög þín ráðin – mig setur hljóða, við hittumst ei framar á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó komin sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Haukur Orri Kristjánsson og fjölskylda. Eyrún Pétursdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Sambýliskona mín og systir, BERGÞÓRA MAGNÚSDÓTTIR, Hringbraut 42, Hafnarfirði, andaðist á hjúkrunarheimilnu Sólvangi mánudaginn 3. febrúar. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 13. febrúar klukkan 13. Gunnar G. Guðmundsson Hallveig Magnúsdóttir Núna er ein- manalegt á Kanarí. Enginn Pétur, eng- inn Pétur að ná í mig út á flugvöll, enginn Pétur að drekka te kl. 15 á Cafe Par- is, enginn Pétur að horfa á enska boltann. Við Pétur kynntumst fyrir 40 árum kring- um knattspyrnufélagið Val þar sem hann var foringinn. Í byrj- un voru samskiptin ekki tíð en síðustu misseri voru þau mikil. Pétur kom reglulega til mín í Fjósið á sumrin í te. Það voru notalegar stundir. Rætt var um lífsins gagn og nauðsynjar en Pétur Sveinbjarnarson ✝ Pétur Svein-bjarnarson fæddist í Reykjavík 23. ágúst 1945. Hann lést 23. des- ember 2019. Útför Péturs fór fram 24. janúar 2020. ekki síst um mál- efni Vals og klúbb- húsið okkar og fé- lagsheimili Fjósið. Pétri var mjög annt um Fjósið og síðustu skilaboð frá honum um miðjan desember voru: „Ég verð alla tíð Fjósavinur Gunni minn.“ Þeg- ar Pétur hafði orð- ið hlustuðu allir. Undirritaður og Þorsteinn Sívertsen kveiktu á kerti kl. 13.00 föstudaginn síðastliðinn þegar jarðarförin fór fram. Kl. 15.00 héldum við okkar eigin erfidrykkju á Cafe Paris ásamt nokkrum vinum Péturs hér á Kanarí. Fengum okkur kaffi og tertu í anda Péturs. Höfðingi er fallinn frá. Innilegar samúðarkveðjur. Gunnar Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.