Morgunblaðið - 08.02.2020, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020 41
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Fjölbreytt sumarstörf fyrir iðn- og háskólanema
Við leitum að snjöllum iðn- og háskólanemum til starfa í margvísleg sumarstörf við spennandi
verkefni sem tengjast starfsemi fyrirtækisins. Starfstímabil háskólanema er 3 mánuðir.
Störfin sem við bjóðum tengjast m.a. fjármálum, kerfisstjórnun, upplýsingatækni, kerfisvörnum og
verklegum framkvæmdum. Hér er kjörið tækifæri fyrir þau sem vilja verða sér úti um alvöru reynslu
og hafa alvöru áhrif í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Að umsækjandi stundi nám á iðn- eða háskólastigi
· Nákvæm, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
· Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknarfrestur er til og með 29. febrúar n.k. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á landsnet.is.
Spennandi
reynsla
framundan!
Landsnet er þjónustufyrirtæki sem kapp kostar
að vinna í takt við samfélagið og hefur það að
meginmarkmiði að tryggja örugga afhendingu
á raforku til framtíðar. Við bjóðum upp á fyrsta
flokks aðbúnað, góðan starfsanda, frábært
mötuneyti, aðgengi að líkamsræktaraðstöðu
og stuðning við að viðhalda og sækja sér
frekari þekkingu. Landsnet er þátttakandi
í fjölmörgum rannsóknar- og samvinnu-
verkefnum innan Norðurlandanna og Evrópu.
SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI RÍKISINS
Tæknimaður – innri þjónusta og vélbúnaður
Við embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins er laus til umsóknar staða tæknimanns í
innri þjónustu og velbúnaði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í boði eru fjölbreytt verkefni er lúta einkum að innri þjónustu og vélbúnaði. Verkefni
snúa m.a. að notendaaðstoð, umsjón og viðhaldi á vél- og hugbúnaði embættisins
og starfsmanna þess auk verkefna er lúta að meðhöndlun rafrænna gagna í vörslu
embættisins. Í starfinu felast einnig samskipti við aðrar stofnanir og viðskiptavini
embættisins varðandi tæknimál og rafræna þjónustu. Þá felst í starfinu þróun
rafrænna lausna á verkefnasviðum embættisins í samvinnu við aðra starfsmenn
embættisins.
Hæfnikröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. tölvunarfræði, kerfisfræði
eða sambærilegt.
• Reynsla af kerfisstjórn, netrekstri og notendaaðstoð er nauðsynleg.
• Þekking á Microsoftlausnum er nauðsynleg.
• Reynsla af samskiptakerfum (s.s. símkerfi og fjarfundabúnaði) er æskileg.
• Þekking á miðlægum búnaði er æskileg.
• Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund er nauðsynleg.
• Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og geta til að vinna undir álagi er nauðsynleg.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í margbreytilegu umhverfi. Um verkefni
skattrannsóknarstjóra ríkisins vísast nánar til vefsíðu embættisins srs.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og við-
komandi stéttarfélags. Um starfskjör, réttindi og skyldur fer að öðru leyti eftir lögum
um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Starfshlutfall er 100%.
Umsóknum skal skila til skattrannsóknarstjóra ríkisins á netfangið srs@srs.is
merktar „Umsókn um starf“. Umsókninni skal fylgja greinargerð þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið. Með umsókn
skal einnig fylgja afrit af viðeigandi prófskírteinum og upplýsingar um tvo núverandi
eða fyrrverandi samstarfsmenn sem veitt geta upplýsingar um störf eða aðra hæfni
umsækjanda. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur
út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn skal hafa borist eigi síðar en 14. febrúar 2020.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sandra Sveinbjörnsdóttir, forstöðumaður
fjármálasviðs í síma 550 8800.
Ertu að leita að sérfræðingi?
hagvangur.is