Morgunblaðið - 08.02.2020, Síða 52

Morgunblaðið - 08.02.2020, Síða 52
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Fögnum öll sem eitt, gleðj-umst yfir því að vetrar-myrkri verður bolað burt, smátt og smátt, á næstu dögum. Og hvernig þá? Jú, með gleðiraust og helgum hljóm, nú eða jafnvel óhelg- um, því nú erum við að leggja í Söngvakeppnina, viðburð sem allir þykjast hata (í fyrstu) en fara svo að elska undurheitt þegar á líður. Merkilegur skolli. Munum þá, að þetta er í eina skiptið sem hægt er að tala við þjóðina gervalla um tón- list, þar sem við erum farin að hár- togast um viðlagið í einhverju lag- inu við pítsusendilinn úti á gangi. En nóg um það, hér er mín sýn á lögin fimm sem verða flutt í kvöld. ÆVINTÝRI Höfundar lags: Þormóður Eiríks- son, Kristinn Óli Haraldsson og Jóhannes Damian Patreksson. Höfundar texta: Þormóður Eiríks- son og Kristinn Óli Haraldsson. Flytjandi: Kid Isak. Skemmtilegt lag. Það er gáski í því sem heillar. Og þegar lagið heitir „Ævintýri“ og flytjandinn Kid Isak, já, það er eitthvað tölvu- leikja- og teiknimyndalegt við þetta, svei mér þá. Ekki skrítið kannski þegar JóiPé og Króli, ásamt hipphopp-hirðskáldinu Þor- móði Eiríkssyni, koma að sköpun- „Göngum saman gleðinnar veg“ Klukkan tifar Ísold og Helga. inni. Aaron Ísak ber lagið vel, gefur því það stuð sem það kallar á. Lag- inu vindur fram eins og skoppandi bolta, taktar drífandi, söngurinn knýjandi og melódían grípandi. Flæðið síðan brotið upp með nett- um rappkafla. Nútíma- og nostur- samlegt og líklegt til árangurs. ELTA ÞIG Höfundar lags: Elísabet Ormslev og Zoe Ruth Erwin. Höfundur texta: Daði Freyr. Flytjandi: Elísabet. Það er stíll yfir þessu lagi, söngurinn ákveðinn og kraftmikill enda umfjöllunarefnið af þeim toga, uppgjör stúlku við einhvern slóða sem er nú sem betur fer í fortíðinni. „Við vorum eitt sinn eitt / Nú erum við ekkert.“ Lagið er fínt, rafskotið fönk og hressilegt. Elísabet er frá- bær söngkona og með mikla út- geislun en samt, það er eitthvað sem truflar mig við þetta lag. Eins og það nái ekki alveg landi, eins og Elísabet sé ekki með alveg nægi- lega góðan efnivið fyrir þá óskor- uðu hæfileika sem hún býr yfir. Mig grunar samt að hún gæti snúið þessu sér í hag uppi á sviði. AUGUN ÞÍN Höfundar lags: Brynja Mary Sverr- isdóttir og Lasse Qvist. Höfundur texta: Kristján Hreins- son. Flytjandi: Brynja Mary. Merkilegt hvernig orðin í enda upphafssetninganna („sjá“, „þrá“, „blá“ og „frá“) heyrast varla. List- rænt útspil sem ég fíla dálítið. Brynja er ekki nema sextán ára, semur lagið sjálf í samstarfi við Lasse Qvist og það er prýðilegt, til þess að gera. Nokkuð hefðbundið þó, það vantar eitthvað afgerandi „x“ svo að það sé öruggt alla leið. Taktar og forritun annars móðins, þetta er nútímapopp með stóru N-i og aftur, Brynja gæti vel snúið hlut- unum sér í hag með flottri fram- komu. KLUKKAN TIFAR Höfundar lags: Birgir Steinn Stef- ánsson og Ragnar Már Jónsson. Höfundur texta: Stefán Hilmars- son. Flytjendur: Ísold og Helga Þetta lag sker sig rækilega frá öðrum hér sökum vel orts texta, en meistari Stefán Hilmarsson sér um þann þátt. Sonur hans semur lagið en þær stöllur, Ísold og Helga, flytja. Lagið er sennilega það hefð- bundnasta hér, ljúflingsballaða, hvorki lágstemmd né ofurepísk. Rúllar rólega af stað, svo er smekk- lega hraðað á hlutunum og sam- söngurinn fær að njóta sín. Einkar júróvisjónlegt í raun og aldrei að vita nema þau kunnuglegheit muni heilla alþýðu íslenska. ALMYRKVI Höfundur lags: DIMMA. Höfundur texta: Ingó Geirdal. Flytjandi: DIMMA. Þungarokk í Söngvakeppninni er engin nýlunda og nú er komið að hinni geipivinsælu DIMMU. Möndl- að er með flestar brellur hér; dramatískt upphaf með sönglínum frá Stefáni söngvara, því næst fín- asta riffa-trukk en svo er hægt á í viðlaginu. Laginu jafnframt slaufað á nokkuð glúrinn hátt. Textinn fjallar um leið manns úr heljar- greipum þunglyndis, saga sem end- ar vel. Þetta er áhlýðilegasta þungarokkssmíð, fellur smekklega að þeirri melódíukröfu sem keppn- inni stýrir og sjáum hvort þunga- rokkarar alþýðumannsins nái nú ekki að virkja sitt fólk. Hér verður settur undir smásjána fyrri skammtur þeirra laga sem keppa um sæti í Eurovision. Ævintýri Söngvarinn Kid Isak. Augun þín Hin 16 ára Brynja Mary. Elta þig Söngkonan Elísabet. DIMMA Þungarokkssveitin kunna flytur lagið Almyrkvi í kvöld. 52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020 Leyndarmál Matarkjallarans Tryggðu þér borð á www.matarkjallarinn.is Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Stjórnendum kvikmyndahússins Bíós Paradísar barst í vikunni stuðnings- yfirlýsing frá samtökum listrænna kvikmyndahúsa, CICAE, sem um 2.100 manns eiga aðild að í 44 lönd- um. Í yfirlýsingunni er ótvíræður stuðningur við menningarhúsið Bíó Paradís undirstrikaður, eins og segir í tilkynningu frá Bíó Paradís, og áhersla lögð á að lausn finnist áður en til lokunar hússins kemur. Dr. Christian Bräuer, formaður samtak- anna, ritar undir bréfið og leggur m.a. áherslu á þá breidd sem finna megi í dagskrá bíósins og mikilvægi kvikmyndamenningar. Bräuer skrif- ar m.a. að listræn kvikmyndahús eigi það sameiginlegt að vilja vernda menningararf kvikmyndalistarinnar og þjóna sínum samfélögum. Þessi einstöku hús færi samfélögum sínum alþjóðlegar, sjálfstæðar og lofsungn- ar kvikmyndir og séu því nauðsyn- legar menningarmiðstöðvar sem kjósi að þjóna sínu samfélagi frekar en einblína á hagnað. Margir alþjóð- lega viðurkenndir leikstjórar hefðu ekki náð flugi án stuðnings þessara kvikmyndahúsa. Að leggja niður eina listræna kvik- myndahús Íslands sé því bæði missir fyrir kvikmyndagerðarmenn og áhugafólk um kvikmyndir. „Frá því Bíó Paradís hóf starfsemi árið 2010 hefur fjöldi kvikmynda annars staðar frá en Hollywood meira en fjórfald- ast,“ bendir Bräuer á og segir hann Hrönn Sveinsdóttur, framkvæmda- stjóra Heimilis kvikmyndanna sem rekur Bíó Paradís, og hennar starfs- lið, hafa unnið framúrskarandi starf. Aðsókn hafi aukist með ári hverju og ólíkum þjóðfélagshópum sinnt, m.a. börnum með því að halda kvikmynda- hátíð fyrir þau. Ákall um stuðning við Bíó Paradís Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ákall Kvikmyndahúsið Bíó Paradís. Sýning á vatnslitamyndum eftir Guðrúnu Tryggvadóttur myndlistarkonu verður opnuð í Menningarsal Oddasóknar á Hellu í dag, laugardag, klukkan 14. Um er að ræða þriðju sýninguna í sýn- ingaröð samhliða útgáfu bókar hennar, Lífsverk – Þrettán kirkjur Ámunda Jónssonar, en önnur sýn- inganna stendur yfir í fordyri Hall- grímskirkju. Við opnun sýningarinnar mun Guðrún kynna bókina og verkefnið en á sýningunni má sjá 30 vatns- litamyndir sem eru í bókinni. Verk- efnið byggist á rannsókn um lífs- verk Ámunda Jónssonar (1738- 1805) smiðs og listamanns. Ámundi starfaði í Árnes- og Rang- árvallasýslum á 18. öld og byggði þar þrettán kirkjur og skreytti með verkum sem sum er enn að finna í sex kirkjum, þ.e. Keldnakirkju, Krosskirkju, Kálf- holtskirkju, Oddakirkju, Mosfells- kirkju og Gaulverjabæjarkirkju. Lífsverk Guðrúnar um Ámunda sýnt á Hellu Guðrún Tryggvadóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.