Morgunblaðið - 08.02.2020, Síða 56
Tónlistarhópurinn
Corpo di Stru-
menti og altsöng-
konan Hildigunn-
ur Einarsdóttir
flytja Myrkralexí-
ur eftir Charpen-
tier og fleiri verk í
Hallgrímskirkju í
dag kl. 16. „Harm-
ljóð Jeremía urðu kveikja að sér-
stöku tónlistarformi í Frakklandi á
17. öld sem nefnt var „leçons de
ténèbres“ eða „myrkralexíur“. Þær
voru í senn meinlætalegar og fág-
aðar og sungnar í dymbilviku,“ seg-
ir í tilkynningu og að Corpo di Stru-
menti og Hildigunnur muni spinna
efnisskrána utan um Myrkralexíur
eftir Marc-Antoine Charpentier en
einnig eldri harmljóðatónlist.
Harmljóðatónlist
í Hallgrímskirkju
LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 39. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
„Miðað við efnahag félagsins
reikna ég með því að allir leik-
mennirnir hafi verið meira og
minna til sölu. Ég fékk hins vegar
aldrei nein skilaboð um að það
stæði til að selja mig og ég heyrði
að það væri alls ekki víst að þessar
fregnir hefðu komið frá félaginu,“
segir Hjörtur Hermannsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, m.a. í
blaðinu. »49
Allir gætu hafa verið
til sölu hjá Bröndby
Ný sýning hefur
göngu sína á Sögu-
lofti Landnámsset-
urs í Borgarnesi í
kvöld kl. 20 en þá
mun Auður Jóns-
dóttir rithöfundur
tala við Auði Lax-
ness, ömmu sína,
og segja söguna Ósjálfrátt, „nú á
annan hátt en áður því skáldskap-
urinn í lífinu breytir því hvernig við
skynjum skáldskap“, eins og segir í
tilkynningu. Auður segir söguna af
nöfnu sinni en líka sögur um sögur,
sögur um lífið á Gljúfrasteini, snjó-
flóð á Flateyri, skrifandi konur og
konur drifnar áfram af Breiða-
fjarðarillsku og ástríkri útsjónar-
semi. Um leið mun hún miðla að-
ferðum til að fanga sögurnar í lífinu.
Auður og Auður og
Ósjálfrátt á Sögulofti
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Skúli Már Gunnarsson hefur fundið
fjölina eða öllu heldur mölina sína
eftir að hafa reynt fyrir sér á ýmsum
sviðum. Hann er lærður hár-
greiðslumeistari og vann lengi við
iðnina, var til sjós í áratug en hefur
helgað líf sitt ferðaþjónustu undan-
farin ár. „Ég hef fundið rétta farveg-
inn fyrir mig og uni mér ansi vel,“
segir hann.
Æskufélagarnir Skúli og Ólafur
Veturliði Björnsson hafa rekið
ferðaþjónustufyrirtækið Ride with
Locals síðan í september 2016 og
bjóða upp á þriggja til sjö daga mót-
orhjólaferðir. Skúli hefur auk þess
verið með eigið fyrirtæki frá 2018,
iguide, þar sem hann fer með fáa
ferðamenn í einu í bæði fyrirfram
ákveðnar ferðir og ferðir lagaðar að
þörfum hvers og eins.
Félagarnir eru með níu mótorhjól,
skipuleggja ferðirnar eins og hesta-
ferðir, eru með trússbíl, gista í fjalla-
kofum og miða þær eingöngu við
vant fólk. „Við auglýsum mikið á
samfélagsmiðlum og erum eingöngu
með erlenda ferðamenn,“ segir
Skúli.
Selfyssingarnir hafa að mörgu
leyti farið ótroðnar slóðir. „Við höf-
um svolítið plægt akurinn í mótor-
hjólaferðum og einbeitt okkur að af-
mörkuðum hópi sem engu að síður
er fjölmennur,“ segir Skúli. „Það
hefur tekið okkur tíma að gera okk-
ur sýnilega en trúverðugleikinn er
dýrmætur og við höfum vaxið jafnt
og þétt.“ Hann bætir við að jákvæð
umfjöllun á samfélagsmiðlum og
ekki síst í virtum mótorhjólablöðum
hafi haft mikið að segja. „Mótor-
hjólafólk fylgist vel með því sem ger-
ist og mikil og góð umfjöllun skilar
sér.“
Ævintýramennska
Tap á hlutabréfamarkaði varð til
þess að Skúli hætti að starfa sem
hárskeri. „Ég taldi að ég yrði lengi
að vinna upp tapið sem rakari og fór
því á sjóinn, var á Hugin VE í tíu
ár.“ Á þeim tíma stofnuðu félagarnir
mótorhjólafyrirtækið og heimabær-
inn togaði í hjónin. „Vestmannaeyjar
eru frábærar en ævintýramennskan
blundaði í mér,“ segir Skúli um nýja
starfsvettvanginn.
Viðtökurnar hafa verið góðar og
Skúli segist hafa nóg að gera. Hann
segir að eini rólegi tíminn sé á tíma-
bili strax eftir páska. „Þeir sem eru í
ferðaþjónustu fara gjarnan á taug-
um, þegar viðskiptin dragast saman
um stund, en svona hefur þetta verið
undanfarin ár og ég veit ekki hvers
vegna, en tek því með jafnaðargeði.“
Skúli segir að hann hafi stofnað
iguide til að tryggja sér vinnu allt
árið. „Ég keypti mér Landcruiser og
kerru, setti upp heimasíðuna, hef
verið duglegur á samfélagsmiðlum
og hef fengið viðurnefnið „herra
internet“. Ég er ófeiminn við það
enda veit ég að ég er að gera rétt.
Þeir sem eru duglegir og kunna til
verka hafa nóg að gera.“
Sérsniðnar ferðir fyrir færri eru
dýrari en hefðbundnar ferðir fyrir
fjöldann. Skúli segir að engu að síð-
ur verði alltaf markaður fyrir dýrari
ferðir og það óvenjulega sitji frekar
eftir. „Það er erfiðara að fara
ótroðnar slóðir en það skilur meira
eftir og fólk er ánægðara.“
Ótroðnar slóðir erf-
iðari en ánægjulegri
Á Skælingum Skúli setur eldsneyti á hjólin við skála Útivistar í Stóragili.
Skúli Már Gunnarsson hárgreiðslumeistari fann fjölina í náttúrunni
Á Öldufellsleið Skúli fer yfir leiðarlýsingu skammt frá Mýrdalsjökli.