Morgunblaðið - 19.02.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 19.02.2020, Síða 14
SVIÐSLJÓS Þorgerður AnnaGunnarsd. thorgerdur@mbl.is Engin þjóð í heiminum ermeð fullnægjandi hættiað verja heilsu, um-hverfi og framtíð barna samkvæmt nýrri tímamótaskýrslu UNICEF, WHO og The Lancet. Ísland er eitt besta land í veröld- inni fyrir börn en mikil losun gróð- urhúsalofttegunda dregur okkur niður listann. Skýrslan ber yfirskriftina „A Future for the World’s Children?“ og er afrakstur tveggja ára vinnu nefndar skipaðri 40 sérfræðingum í málefnum barna og unglinga um allan heim. Skýrslan er sú fyrsta sinnar tegundar sem skoðar stöðu, heilsu og velferð barna í löndum heims- ins, meðal annars með tilliti til loftslagsbreytinga og annarra utanaðkomandi þátta sem nútíma- börnum stafar ógn af. Níðst á börnum með skaðlegri markaðssetningu Í tilkynningu frá UNICEF á Íslandi segir að skýrslan sé því býsna svört, en samkvæmt niður- stöðum hennar er heilsu og framtíð allra barna og ungmenna ógnað af vistfræðilegri ósjálfbærni, lofts- lagsbreytingum og óheiðarlegri markaðssetningu stórfyrirtækja sem halda óhollu skyndibitafæði, sykruðum drykkjum, áfengi og tóbaki að börnum heimsins. „Þrátt fyrir framfarir í heilsu- vernd barna og unglinga síðustu 20 ár er okkur hætt að miða áfram í þessum efnum og erum komin í bakkgír,“ segir Helen Clark, fyrr- verandi forsætisráðherra Nýja- Sjálands og annar formanna nefnd- arinnar. Í skýrslunni er að finna nýja alþjóðlega vísitölu 180 þjóða þar sem bornir eru saman mælikvarðar á hvernig börn dafna út frá lífs- líkum, velferð, heilsu, menntun, næringu, sjálfbærni og yfirliti yfir losun gróðurhúsalofttegunda. Þegar einungis er litið til hefð- bundinna velferðarviðmiða eins og heilsu, menntunar, næringar og barnadauða trónir Noregur í efsta sæti, Suður-Kórea í öðru, Holland í þriðja sæti og Ísland í níunda sæti. Þegar losun gróðurhúsaloft- tegunda miðað við höfðatölu í hverju þessara topplanda er tekin með í reikninginn yfir sjálfbærni hrapa þessi lönd hins vegar niður listann. Noregur fer sem dæmi úr fyrsta sæti í það 156., Suður-Kórea úr öðru sæti í í það 166., Holland úr því þriðja niður í 160. sæti og Ísland úr því níunda í 163. sæti. Skelfilegar afleiðingar á allt líf á jörðunni Skýrslan bendir á að þótt fá- tækari lönd þurfi vissulega að gera meira til að bæta lífslíkur og heilsuvernd barna sinna sé það staðbundnari vandi; óhófleg losun gróðurhúsalofttegunda meðal rík- ari þjóða sé ógn við framtíð barna um allan heim. Miðað við núver- andi spár fer hnattræn hlýnun yfir 4°C árið 2100, sem myndi hafa skelfilegar afleiðingar fyrir allt líf á jörðu. Til að verja börn kalla skýrsluhöfundar eftir nýrri al- þjóðlegri hreyfingu sem drifin verði áfram fyrir börn og leggja m.a. áherslu á að stöðva verði los- un koltvísýrings, að leyfa þurfi röddum barna að heyrast og að stjórnvöld taki fastar á skaðlegri markaðssetningu. Erum að bregðast börnunum okkar 1. Búrúndí 2. Tjad 3. Sómalía 4. Austur-Kongó 5. Mið-Afríkulýðveldið 6. Malaví 7. Rúanda 8. Malí 9. Níger 10. Madagaskar 1. Noregur 2. Suður-Kórea 3. Holland 4. Frakkland 5. Írland 6. Danmörk 7. Japan 8. Belgía 9. Ísland 10. Bretland 171. Lúxemborg 172. Kasakstan 173. Bandaríkin 174. Ástralía 175. Sádi-Arabía 176. Barein 177. Sam. arabísku furstad. 178. Kúveit 179. Trínidad og Tóbagó 180. Katar 171. Afganistan 172. Síerra Leóne 173. Suður-Súdan 174. Nígería 175. Gínea 176. Malí 177. Níger 178. Sómalía 179. Tjad 180. Mið-Afríkulýðveldið Vísitala velferðar barna í 180 löndum Heimild: Unicef Hefðbundin velferðarviðmið. Heilsa, menntun, næring og barnadauði Sjálfbær velferðarviðmið. Losun gróður- húsalofttegunda – ógn við framtíð barna . . . . . . . . . 163. Ísland . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1 1 9 163 180180 14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Enn ein tíma-mót urðu íleiðangri Breta út úr Evr- ópusambandinu í þessari viku. Þá mætti samn- ingamaður Breta með umboð frá Boris Johnson um að ganga frá fyrirkomulagi út- göngunnar. Sá sami hefur ekki aðeins í fórum sínum þjóðar- atkvæðið fræga sem hristi af sér ósvífinn hræðsluáróðurinn. Þrátt fyrir það var reynt að halda því fram á breska þinginu, því sama og hafði heitið að virða þjóðaratkvæðið, að það hefði óskráða heimild til að eyðileggja áhrif þess, ef ESB leyfði engan annan kost. Þá tókst með herkjum að efna til kosninga og þjóðin átti enn leik og nýtti hann til að að ýta þess- um svikahröppum burt af þingi. Og af því að hún er annarrar gerðar en þeir þá gerði hún það svikalaust og með hnykk. Og nú mætti David Frost sendur af Boris með bréf frá honum. Gunnar Rögnvaldsson pistla- höfundur með meiru hefur eftir- farandi endursögn af atburð- unum: „Svo virðist sem að kaldur hrollur sé að byrja að hríslast um skilningsvana ráða- menn Evrópusambandsins vegna Brexit. Þeir eru byrjaðir að gera sér ljóst að skilning- arvit þeirra hafa aldrei virkað. Svo er nefnilega í Brexit- pottinn búið að aðalsamn- ingamaður Bretlands í útgöngu- málum, David Frost, kveikti á einni einfaldri ljósaperu í hinum lokaða ESB-heimi gær. Það gerði hann með því að segja efn- islega að Bretland fór út úr Evrópusambandinu vegna þess að það er vont fyrir ríki að vera þar. Það er vont fyrir ríki að missa fullveldi sitt og það er vont fyrir ríki að missa sjálf- stæðið. En það sem er allra verst er að þurfa að kyngja lög- um sem við Bretar sjálfir höfum ekki að fullu samið sjálfir og sem gilda bara fyrir okkur í okkar eigin landi. Það er með öðrum orðum algerlega óásætt- anlegt að missa löggjafarvaldið úr landi. Við erum að yfirgefa Evrópu- sambandið til þess að aðeins okkar eigin lög gildi í okkar eig- in landi. Við þolum ekki að lög Evrópusambandsins gildi í Bretlandi. Við erum því ekki að fara úr Evrópusambandinu til að fá neinn „annan samning“ við það um eitt né neitt. Við erum að fara þaðan út til þess að við sjálfir ráðum því hvernig við- skipti við eigum við önnur lönd. Það kemur aldrei til greina að við gerum viðskiptasamning við Evrópusambandið á þeim for- sendum að við þurf- um að samþykkja lög þess og reglur. Þeir sem skilja þetta ekki, skilja ekki neitt. Við er- um farin. Og þegar við erum farin þá gerum við á ný við- skiptasamninga við önnur lönd án þess að gangast undir lög þeirra og reglur. Við- skipti eru bara viðskipti. Þeir sem vilja ekki eiga viðskipti við okkur á þeim forsendum sem við viljum semja um, þeir geta þá gert það undir skilmálum WTO. Takk fyrir þetta Frost. Svona frost líkar mér!“ Í framhaldinu gerðist það að talsmenn búrókratanna í Bruss- el sögðu að fyrsta verkefnið væri að semja um það á milli að- ila í hversu mörg ár þeir vildu framlengja þann tíma sem veitt yrði í þessar umfangsmiklu og flóknu viðræður um lífið eftir útgöngu. Langflest ríki heims búa reyndar við þá tilveru að vera utan þessa sæluríkis Sam- fylkingar og forystusveita fleiri flokka, jafnvel þeirra sem síst skyldi, og þau eiga engin vand- ræði með að gera viðskipti við þetta stirðbusalega samband þrátt fyrir það. Það gæti verið vegna þess að í því tilfelli hafa aðilarnir sameiginlega hags- muni af bærilegu viðskiptaum- hverfi og þurfa ekki að láta ESB skaffa sér lög og reglufargan til að fara eftir, sem þeir munu ekki hafa neitt um að segja fremur en Íslendingar um orku- pakkann, sem svipti íslenskum raforkumálum burtu úr forsjá heimamanna eins og hendi væri veifað, þótt það sé óheimilt sé horft til stjórnarskrár landsins. Stjórnarskráin var ekki einu sinni ómerkt með lögum heldur með þingsályktun svo öruggt væri að þjóðin gæti hvergi kom- ið nálægt málinu. Frost, fullrúi breska for- sætisráðherrans, lét þá í Bruss- el vita af því strax að hann gæti sparað mönnum drjúgan tíma því að umbjóðandi hans for- sætisráðherrann hefði þegar til- kynnt að væri ekki málum lokið um næstu áramót gæti Evrópu- sambandið átt eintal við sjálft sig um framhaldið og myndi enginn norðan hinna hvítu kletta við Dover blanda sér í það hjal né hlusta eftir því. Það var á því augnabliki sem einhver í liðinu sem tók á móti vakti athygli sinna manna á því að flest benti nú til þess að The- resa May væri flutt úr Down- ingstræti og sennilega fyrir fullt og allt. Nú sitja þeir og fást við þess- ar síðbúnu fréttir og gera fátt annað á meðan. Það má orða það svo að þeir hafi verið settir í frost. Menn sem búa til gervivandamál frá morgni til kvölds finna „kulnun í starfi“ þegar þau leysast upp} Nýir menn, annað upplit F rá árinu 1995 hefur almenningur átt þess kost að flytja inn eigið áfengi til einkaneyslu. Einka- réttur ÁTVR til innflutnings á áfengi var með öðrum orðum af- numinn fyrir 25 árum. Fjölmargir nýta sér þetta, kaupa áfengi í verslunum erlendis og láta senda heim til sín á Íslandi. Samhliða auknu valfrelsi neytenda og al- þjóðavæðingu hefur ósk almennings um aukið frjálsræði í áfengislöggjöf farið vaxandi. Frumvarp til breytinga á áfengislögum, sem nú er til kynningar í samráðsgátt Stjórn- arráðsins, miðar að því að heimila sölu áfengis í gegnum vefverslanir, innlendar sem erlendar. Íslendingar kaupa hlutfallslega meira af er- lendum áfengistegundum en íbúar nágranna- landa okkar gera. Íslenskir áfengisframleið- endur hafa staðið höllum fæti gagnvart erlendri samkeppni, um árabil meðal annars vegna þess að erlendir áfengisframleiðendur hafa greiðan aðgang að íslenskum neytendum í gegnum auglýsingar og netversl- un á meðan íslenskir framleiðendur hafa það ekki. Það er því fullt tilefni til að endurskoða löggjöf um áfeng- isauglýsingar í náinni framtíð. Núverandi lagaumhverfi felur í sér ójafnræði milli inn- lendrar og erlendrar verslunar, sem er ósanngjarnt og fer gegn hagsmunum neytenda. Fá, ef einhver dæmi, má finna í íslenskum lögum þar sem almenningi er heimilt að kaupa vörur frá erlendum verslunum til innflutnings, en mega ekki kaupa sömu vöru af íslenskri versl- un. Innlendir framleiðendur hafa gripið til þess ráðs að selja afurðir sínar til útlanda, til sölu í erlendum vefverslunum, oftar en ekki til íslenskra neytenda. Við getum farið betur með fjármuni og hugað betur að loftslags- málum. Fjöldi sölustaða áfengis hefur margfaldast frá árinu 1995 í samræmi við áherslur og kröf- ur neytenda. Frumvarpið hróflar ekki við al- mennum verslunarrekstri ÁTVR og felur ekki í sér tillögur um breytingu á áfengisstefnu, áherslum í lýðheilsumálum eða tekjuöflun rík- isins á þessu sviði. Með því að heimila sölu áfengis í gegnum vefverslanir er ekki verið að auka sýnileika áfengis í íslensku samfélagi. Í þeim tilvikum þar sem neytendur sækja áfengið á starfsstöð leyfishafans, þarf leyf- ishafinn að gæta þess að áfengi sé ekki til sýn- is á starfsstöðinni. Sömu almennu skilyrði verða sett fyrir vefversl- unarleyfi, eins og öðrum leyfum sem fjallað er um í áfeng- islögum. Einstaklingar og lögaðilar munu almennt geta fengið slíkt leyfi, hafi þeir náð tilskildum aldri og tilkynnt ríkisskattstjóra um atvinnustarfsemi sína. Verði frumvarpið að lögum er stigið mikilvægt skref í átt að auknu jafnræði, frelsi og samkeppni innlendrar verslunar við þá erlendu. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Áfengi til útlanda og aftur heim Höfundur er dómsmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen „Samkvæmt öllum hefð- bundnum mælikvörðum er gott að vera barn á Íslandi, eins og niðurstöður skýrslunnar sýna. Börn hafa hér öll tækifæri til að blómstra og dafna,“ segir Berg- steinn Jónsson, framkvæmda- stjóri UNICEF á Íslandi. „Þar sem við erum hins vegar að bregðast börnum, líkt og hin- ar ríku þjóðirnar, er hversu mik- ið við mengum miðað við höfða- tölu. Þar þurfum við að grípa til tafarlausra aðgerða og gera meira, enda eigum við langt með að ná þeim losunarmark- miðum sem sett hafa verið fyrir árið 2030. Við þurfum að skuld- binda okkur til að skapa framtíð sem hæfir börnum og þar höf- um við Íslendingar öll tækifæri til að vera í fararbroddi,“ segir Bergsteinn ennfremur um helstu niðurstöður skýrslunnar. Mengum of mikið UNICEF Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.