Morgunblaðið - 19.02.2020, Side 26

Morgunblaðið - 19.02.2020, Side 26
FÓTBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Liverpool þurfti að sætta sig við 0:1-tap fyrir Atlético Madríd á úti- velli í Meistaradeild Evrópu í fót- bolta í gærkvöld. Saúl Niguez skoraði sigurmarkið strax á fjórðu mínútu og eftir það var varn- arleikur spænska liðsins í heimsk- lassa. Það var sama hvað Liverpool reyndi, ekki tókst að skapa alvöru- færi og að lokum átti enska liðið ekki skot að marki og Jan Oblak í marki Atlético þurfti ekki að verja eitt einasta skot. Hinum megin var Atlético hættulegt í skyndisóknum og fékk fleiri færi til að bæta við en Liverpool að jafna. Pirraðir Liverpool-menn Liverpool er enn ósigrað í ensku úrvalsdeildinni eftir 26 leiki, en lið- ið hefur tapað tveimur leikjum af sjö í Meistaradeildinni. Jürgen Klopp tók Sadio Mané út af í hálf- leik og Mo Salah af velli í seinni hálfleik. Svo virðist sem enska úr- valsdeildin sé í forgangi, enda fyrsti titill Liverpool í 30 ár heima fyrir í augnsýn. Unnendur góðrar varnarknatt- spyrnu hafa væntanlega fylgst vel með Atlético síðustu ár undir stjórn Diego Simeone. Argent- ínumaðurinn fann lausnir við sókn- arleik Liverpool sem lið á Eng- landi hafa enn ekki fundið. Varnarmenn Atlético voru með svör við öllu sem Liverpool reyndi. Þá tókst spænska liðinu að pirra Liverpool-menn, eins og sjá má í viðtölum leikmanna enska liðsins eftir leik. Virgil van Dijk sagði Atlético- menn heppna og Andrew Robert- son sagði þá hafa farið auðveldlega niður og það hafi pirrað leikmenn Liverpool. Þá skaut hann á mikil fagnaðarlæti Atlético-manna eftir leik. Jürgen Klopp fékk svo gult spjald fyrir hörð mótmæli. Það verður áhugavert að sjá hvaða ger- ist þegar liðin mætast á Anfield 11. mars. Norðmaður í sögubækurnar Ef vitað væri fyrir leik Dort- mund og PSG að lokatölur yrðu 2:1, Dortmund í vil, yrði stuðullinn hjá veðbönkum á að Erling Braut Håland myndi skora bæði mörk Dortmund, eflaust ekki mjög hár. Það er nákvæmlega það sem hinn 19 ára gamli Norðmaður gerði. Hann hefur nú skorað ellefu mörk í sjö leikjum í Meistaradeildinni. Aldrei hefur leikmaður verið eins snöggur að skora meira en tíu mörk í keppninni. Þá varð hann fyrsti leikmaðurinn í sögu Dort- mund til að skora í sínum fyrsta leik í Meistaradeildinni, þýsku deildinni og í þýska bikarnum. Neymar skoraði mark PSG, sem gæti reynst dýrmætt, enda útivall- armörk gulls ígildi í Meistaradeild- inni. Liverpool lenti á vegg í Madríd  Áttu ekki skot á markið á Spáni AFP Mark Leikmenn Atlético fagna sigurmarki Saúl Niguez í Madríd í gær. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2020 Meistaradeild Evrópu 16-liða úrslit, fyrri leikir: Atlético Madrid – Liverpool................... 1:0 Saúl Niguez 4. Dortmund – París SG.............................. 2:1 Erling Braut Håland 69., 77. – Neymar 75.  Í kvöld mætast Atalanta – Valencia og Tottenham – RB Leipzig en hinar fjórar viðureignirnar fara fram í næstu viku.  Frakkland Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Toulon – Metz ...................................... 23:33  Mariam Eradze skoraði 2 mörk fyrir Toulon. Áskorendabikar karla Dregið til 8-liða úrslita: Victor Stavropol – CSM Búkarest Karviná – Dukla Prag AEK Aþena – Potaissa Turda Halden – Valur  Leikið er 21. til 29. mars.  Í undanúrslitum leikur Halden eða Valur gegn AEK eða Potaissa.   1. deild kvenna Njarðvík – Grindavík b ........................ 90:61 Keflavík b – Hamar .............................. 88:59 Staðan: Fjölnir 17 13 4 1319:1066 26 Keflavík b 17 12 5 1279:1181 24 ÍR 17 11 6 1144:963 22 Njarðvík 18 11 7 1209:1055 22 Tindastóll 18 8 10 1186:1293 16 Grindavík b 18 4 14 1021:1336 8 Hamar 17 2 15 977:1241 4   Atvinnukylfing- arnir Guðrún Brá Björgvins- dóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir verða báðar á meðal þátttak- enda á Ladies Classic Bonville- mótinu sem fram fer í Ástr- alíu dagana 20.- 23. febrúar næstkomandi í Evr- ópumótaröðinni. Mótið er það fyrsta hjá Guðrúnu í mótaröðinni eftir að hún tryggði sér þátt- tökurétt í síðasta mánuði. Valdís Þóra hefur leikið í mótaröðinni síðustu ár. Valdís náði sínum besta ár- angri í mótaröðinni á sama móti árið 2018, en hún endaði þá í þriðja sæti. Hún komst hins veg- ar ekki í gegnum niðurskurðinn á mótinu á síðasta ári. Marianne Skarpnord frá Noregi vann mótið á síðasta ári og hún er aftur á meðal kylfinga. Þá verða einnig sterkir kylfingar á borð við Anne van Dam, Meghan McLaren og Laura Davies einnig með á mótinu. Skorið verður niður eftir tvo hringi á mótinu og um það bil 60 efstu kylfingar tryggja sér þátt- tökurétt fyrir lokadagana tvo. Valdís og Guðrún ríða á vaðið Guðrún Brá Björgvinsdóttir HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Origo-höllin: Valur – Fjölnir ............... 20.15 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Origo-höllin: Valur – Skallagrímur.......... 18 Smárinn: Breiðablik – Grindavík........ 19.15 DHL-höllin: KR – Haukar................... 19.15 1. deild kvenna: Dalhús: Fjölnir – ÍR............................. 19.15 KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Skessan: FH – Grótta ............................... 19 Enski boltinn á Símanum Sport Manchester City – West Ham............. 19.30 Í KVÖLD! Knattspyrnudeild KA hefur fengið stóran og stæðilegan framherja, Ji- bril Abubakar, að láni frá Midtjyl- land, toppliði dönsku úrvalsdeild- arinnar. Gildir lánssamningurinn út ágústmánuð. Abubakar, sem er tvítugur Nígeríumaður og 193 sentimetrar á hæð, var undir smásjá stórliða á síðustu leiktíð og voru félög á borð við Juventus og Leicester að fylgjast með honum. KA þurfti á framherja að halda þar sem Elfar Árni Aðalsteinsson leikur ekki með liðinu á leiktíðinni vegna krossbandsslita. Stór og stæðileg- ur framherji í KA Ljósmynd/KA Framherji Jibril Abubakar leikur með KA út ágústmánuð. SA tryggði sér deildarmeistaratitil karla í ís- hokkí með 5:3-sigri á Fjölni í Skautahöll Ak- ureyrar í gærkvöldi. SA, sem hefur haft yf- irburði í íshokkí hér á landi í áraraðir, lenti 2:3-undir í fyrstu lotu. Akureyringar skoruðu hins vegar þrjú síðustu mörkin og tryggðu sér enn einn sigurinn. SA er með 36 stig eftir 13 leiki í Herz-deildinni, 15 stigum meira en Fjölnir, sem á leik til góða. SR er á botninum án stiga. SA og Fjölnir eigast við í úrslitakeppninni um Íslands- meistaratitilinn og hefst einvígi þeirra í næsta mánuði. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Meistari Skautafélag Akureyrar varð enn og aftur deildarmeistari í karlaflokki í íshokkí í Skautahöll Akureyrar í gærkvöldi eftir sigur á Fjölni. Enn og aftur deildarbikar á loft á Akureyri Stefán Teitur Þórðarson, knatt- spyrnumaður frá Akranesi, æfir þessa dagana með norska úrvals- deildarfélaginu Sarpsborg sem dvelur í æfingabúðum í Marbella á Spáni. Fótbolti.net skýrði frá þessu í gær. Stefán, sem er 21 árs gamall miðjumaður, er fastamaður í 21-árs landsliðinu og á þar tólf leiki að baki og lék fyrstu tvo A-landsleiki sína gegn Kanada og El Salvador í Kaliforníu í janúar. Hann var fyrr í vetur við æfingar hjá Aalesund í Noregi. Stefán hefur leikið 40 úr- valsdeildarleiki með ÍA. Stefán Teitur hjá Sarpsborg Morgunblaðið/Eggert Sarpsborg Stefán Teitur Þórðarson æfir með norska liðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.