Morgunblaðið - 20.02.2020, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
Framkvæmdastjóri / meðeigandi
Hugbúnaðar- markaðs- og greiðslumiðlunarfyrirtæki leitar að aðila til að sjá um rekstur
fyrirtækis sem framleiðir hugbúnað og er í senn markaðs- og greiðslumiðlunarfyrirtæki.
Viðkomandi þyrfti að koma að fyrirtækinu og vera hluthafi.
Greiðsla fyrir hlut er að mestu með vinnuframlagi.
Gott tækifæri til að koma að og eignast hlut í spennandi fyrirtæki með mikla framtíðar
möguleika.
Tekið er á móti fyrirspurnum á netfanginu jonhjaltalin@islandsrettur.is og í síma 419 1300.
Staða sérfræðings
Fulbright stofnunin leitar að háskólamenntuðum liðsfélaga
með mikinn metnað til að taka þátt í krefjandi og fjölbreyttu
starfi sérfræðings (Fulbright program officer).
Mikið uppbyggingarstarf hefur verið unnið hjá Fulbright á
Íslandi á síðustu árum og við höldum ótrauð áfram á þeirri
braut. Við leitum því að drífandi og lausnamiðuðum
einstaklingi með afburða skipulagshæfileika.
Starfið krefst nákvæmni í vinnubrögðum, getu til að skrifa
vandaða texta bæði á íslensku og ensku, góðrar þekkingar
á helstu tölvuforritum og færni til að tileinka sér nýja tækni.
Þekking á menntamálum, bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum
er kostur, sem og reynsla af stjórnsýslu. Áhugi á samskiptum
Íslands og Bandaríkjanna er skilyrði.
Aðrar hæfniskröfur: viðeigandi háskólamenntun og starfs-
reynsla, geta til að setja fram upplýsingar með skýrum hætti
(líka í töflu- og myndformi), sveigjanleiki, þjónustulund og
samskiptahæfni.
Starfssvið:
• Ábyrgð á margvíslegri stjórnsýslu sem tengist umsóknar-
ferli og styrkþegum, bæði íslenskum og bandarískum,
fræðimönnum og námsmönnum
• Textaskrif og ritstjórn, þ.m.t. formleg bréfaskrif, skrif á vef
og samfélagsmiðla, gerð upplýsingaefnis og fleira
• Samskipti við samstarfsaðila á Íslandi og í Bandaríkjunum
• Undirbúningur viðburða, aðstoð við framkvæmdastjóra og
önnur tilfallandi verkefni
Við bjóðum áhugavert starf í alþjóðlegu umhverfi. Hér starfar
lítið teymi þar sem framlag og frumkvæði hvers starfsmanns
skiptir miklu máli. Verkefni eru fjölbreytt og árstíðabundin
- halda þarf utan um marga þræði og mæta glaður hverri
áskorun.
Til að sækja um starfið skal senda umsóknarbréf og ferils-
skrá. Umsóknarbréf skal vera á ensku, en ferilsskrá á
íslensku. Vinsamlegast tilgreinið tvo meðmælendur,
en ekki verður haft samband við þá nema með samþykki
umsækjanda.
Umsóknir skulu sendar rafrænt á netfangið
fulbright@fulbright.is merktar „starfsumsókn“.
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars nk.
Upplýsingar um Fulbright stofnunina má finna á
www.fulbright.is.
Fulbright stofnunin á Íslandi
Umsóknartímabil er frá 8. febrúar til 29. febrúar.
Sæktu um á vef Kópavogsbæjar, kopavogur.is. Þar færðu líka
nánari upplýsingar um störfin sem eru í boði.
Hlökkum til að sjá þig í sumar!
kopavogur.is
Fjölbreytt og spennandi sumarstörf
fyrir 18 ára og eldri
Við leitum að fólki í sumarstörf
í leikskólum,
vinnuskóla,
garðrækt,
umönnun fatlaðra,
á bæjarskrifstofurnar,
í upplýsingatæknideild
bæjarins,
sundlaugarnar
og fleiri skemmtilega
vinnustaði.
HVAÐ DREYMIR
ÞIG UM AÐ GERA
Í SUMAR?
Skráðu fyrirtækið þitt á alfred.is
intellecta.is