Morgunblaðið - 24.02.2020, Page 6

Morgunblaðið - 24.02.2020, Page 6
samræmi við þær heimildir sem ég hafði kynnt mér og gert skissur samkvæmt,“ segir Ásgeir Gunnar Jónsson í Stykkis- hólmi. Hann kom að þessu máli sem fulltrúi hluta land- eigenda í Skjalda- bjarnarvík, en það er nyrsta jörð í Strandasýslu. Ásgeir segir að landeigendur á þessum slóð- um hafi jafnan litið svo á að jörðum þeirra tilheyrði land upp á miðjan jök- ul, það er að vatnaskilum. Í seinni tíð hafi óbyggðanefnd þó jafnan komist að þeirri niðurstöðu að jöklar séu þjóðlendur. Í ljósi þess hafi niðurstað- an í þessu máli í raun blasað við allan tímann sem meðferð þess hafi tekið. Stöðva virkjunarbrölt „Niðurstaðan er mjög jákvæð,“ segir Elías Kristinsson á Dröngum, sem er harður andstæðingur virkj- unar. „Nú er að koma í ljós, sem ég og fleiri staðkunnugir hafa vitað, að jörð- in Engjanes hefur aldrei átt land nema að ósum Eyvindarfjarðarár. Vesturverk hélt hins vegar hinu gagn- stæða fram. Þjóðlendunefnd með alla sína sérfræðinga hefur nú fundið öll þau gögn sem staðfesta álit heima- manna. Fleira styður þetta álit.“ Elías segir úrskurð Óbyggðanefnd- ar breyta því í virkjunarmálum að Eyvindarfjarðará falli aldrei til Hval- árvirkjunar því sá staður tilheyri jörð- inni Drangavík og meirihluti landeig- enda þar sé mótfallinn virkjun. „Ég vona að nú megi stöðva þetta virkj- unarbrölt og við getum snúið okkur að uppbyggilegri málum, svo sem á sviði náttúruverndar,“ segir Elías enn fremur. Landið er sautján einingar Óbyggðanefnd var stofnuð 1998 til að fjalla um hvaða svæði á landinu væru utan eignarlanda og því úr- skurðuð þjóðlendur. Landinu er skipt í 17 einingar og var Drangajökuls- svæði það 13. sem nefndin úrskurðaði um. Alls teljast 42% lands sem nefnd- in hefur lokið meðferð á til þjóðlendna en 58,3% eru eignarlönd. Af þeim hluta miðhálendisins sem nefndin hefur lokið meðferð á eru 86% þjóðlendur en 14% eignarlönd. Hafin er nú vinna við tvö svæði á Vestfjörðum, en eftir er að skoða mál á Austfjörðum og er sömuleiðis um- fjöllun um eyjar og sker við landið óunnið verk. Þjóðlendumörk í Strandasýslu Hólmavík Borðeyri Búðardalur Mörk Strandasýslu ásamt fyrrum Bæjarhreppi Suðausturhluti Drangajökuls Fyrirhuguð Hvalárvirkjun FYRRUM BÆJAR- HREPPUR STRANDA- BYGGÐ KALDRANANES- HREPPUR ÁRNES- HREPPUR Drangajökull Húnaflói Niðurstaða óbyggðanefndar er að suðausturhluti Drangajökuls sé utan eignarlanda og því þjóðlenda Heimild: Úrskurður Óbyggðanefndar Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Í fljótu bragði sjáum við ekki að þessi úrskurður hafi nein áhrif á virkj- unaráformin og mögulega er niður- staðan frekar jákvæð verkefninu en hitt,“ segir Birna Lárusdóttir, tals- maður Vesturverks ehf., en sl. föstu- dag kvað Óbyggðanefnd upp þann úr- skurð að suðausturhluti Dranga- jökuls, áhrifasvæði Hvalárvirkjunar sem Vesturverk hf. áformar að reisa, væri þjóðlenda. Kröfur og athugasemdir bárust frá eigendum nyrstu jarða í Árneshreppi, það er Skjaldabjarnarvíkur, Dranga, Drangavíkur, Engjaness og Ófeigs- fjarðar. Töldu þeir einstaka hluta jökulsins innan marka lendna sinna. Niðurstaða Óbyggðanefndar var þó á hinn veginn. Drangajökull var eina svæðið sem Óbyggðanefnd fjallaði um, enda úr- skurðar nefndin einungis um svæði sem ríkið krefst að teljist til þjóð- lendna. Óbyggðanefnd segir engin landamörk gefa til kynna að eignar- lönd nái inn á Drangajökul þar sem hann sé innan landamæra Stranda- sýslu. Deilt hefur verið um hvort áformuð virkjun og uppistöðulón séu innan marka jarðarinnar Engjaness, sem virkjunarsinnar eiga, eða Drangavíkur, en þá jörð á fólk sem er mótfallið byggingu virkjunar. Þjóð- lendur lúta hins vegar yfirráðum ríkisins. Unnið að breytingum Birna Lárusdóttir hjá Vesturverki segir að um þessar mundir sé unnið að seinni áfanga breytinga á aðal- og deiliskipulagi Árneshrepps, þ.e. svæðinu þar sem fyrirhugað virkjun verður. Tillögurnar hafa verið sendar sveitarstjórn til umfjöllunar og eru þær nú í kynningarferli auk þess sem Skipulagsstofnun tekur þær til með- ferðar. Ef allir umsagnarfrestir halda sér má reikna með að hægt verði að veita framkvæmdaleyfi á grundvelli hins nýja skipulags seint á þessu ári. „Niðurstöður Óbyggðanefndar koma ekki á óvart og voru alveg í Báðar fylkingar fagna úrskurði  Óbyggðanefnd úrskurðar suðausturhluta Drangajökuls sem þjóðlendu  Bæði Vesturverk og andstæðingar Hvalárvirkjunar túlka niðurstöðuna sér í hag  Vesturverk telur áhrif á virkjunina engin Birna Lárusdóttir Ásgeir Gunnar Jónsson Morgunblaðið/RAX Árneshreppur Hluti svæðisins sem Hvalárvirkjun gæti haft áhrif á. Elías Kristinsson 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2020 Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 7.30-16.30 Sími 557 8866 pantanir@kjotsmidjan.is Komdu við eða sérpantaðu Gæða kjötvörur Úrval af saltkjöti til að sprengja sig út á sprengidaginn Margir ráku upp stór augu í Urr- iðaholti í Garðabæ um helgina þar sem Tarek Zaqout stóð í umfangs- miklum vatnamælingum rétt ofan við verslunarmiðstöðina Costco. Í hverfinu eru stundaðar um- fangsmiklar rannsóknir á gróður- rásum en það er fyrsta hverfið á Ís- landi sem hannað er með tilliti til sjálfbærra ofanvatnslausna. Tarek er kominn um langan veg til rannsóknarstarfa hér á landi. Hann stundar doktorsnám við Há- skóla Íslands undir handleiðslu dr. Hrundar Ólafar Andradóttur, pró- fessors í umhverfisverkfræði. Tarek er Palestínumaður og uppalinn á Gaza-svæðinu. Hann virtist þó ekki láta kuldann trufla sig um helgina og hélt ótrauður rannsóknarstarfinu áfram. Veðrið skemmdi þó ekki fyrir og voru margir á ferli, m.a. hjól- reiðafólk sem nýtti sér greiðfæra göngustígana í hverfinu. Morgunblaðið/Stefán Einar Urriðaholt Tarek Zaqout við rannsóknir sínar um helgina. Um langan veg til vatnsrannsókna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.