Morgunblaðið - 24.02.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.02.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2020 Klippt og beygt fyrirminni og stærri verk ÍSHELLU 1 | HAFNARFIRÐI | S. 534 1500 | KAMBSTAL.IS 24. febrúar 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.54 128.14 127.84 Sterlingspund 164.68 165.48 165.08 Kanadadalur 96.12 96.68 96.4 Dönsk króna 18.437 18.545 18.491 Norsk króna 13.658 13.738 13.698 Sænsk króna 13.007 13.083 13.045 Svissn. franki 129.78 130.5 130.14 Japanskt jen 1.1402 1.1468 1.1435 SDR 173.65 174.69 174.17 Evra 137.71 138.49 138.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.1788 Hrávöruverð Gull 1610.35 ($/únsa) Ál 1686.0 ($/tonn) LME Hráolía 59.0 ($/fatið) Brent ● Hörður Arnarson, forstjóri Lands- virkjunar, vill upplýsa um ákvæði samn- ings orkufyrirtækisins við Rio Tinto, eiganda álversins í Straumsvík. Hörður var gestur Kristjáns Kristjánssonar í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudags- morgun og upplýsti þar að Landsvirkjun hefði óskað formlega eftir því við Rio Tinto að trúnaðarákvæðum yrði aflétt af rafmagnssamningi fyrirtækjanna. Hörður sagði „æskilegt og í anda gagnsæis að almenningur verði upp- lýstur um hvað stendur í samningnum“. Jafnframt sagði hann að í samningnum væri ákvæði um endurskoðun sem ætti að tryggja samkeppnishæfni ál- versins, og að það væri til mikils gagns fyrir alla að trúnaði yrði aflétt af samn- ingnum svo ræða mætti um innihald hans opinberlega. ai@mbl.is Biðja Rio Tinto að af- létta trúnaðarákvæði Verð Hörður segir ákvæði í samningnum tryggja samkeppnishæfni álversins. STUTT BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Fjármálaráðherrar G20-ríkjanna segja stærstu hagkerfi heims þurfa að snúa bökum saman til að bregðast við því hve langt alþjóðlegir tækni- risar hafa gengið við að lágmarka skattgreiðslur sínar. Ráðherrarnir funduðu í Ríad um helgina og voru skattar á stafræna starfsemi þar ofarlega á baugi. Stjórnvöld víða um heim hafa lengi haft horn í síðu alþjóðlegra tæknifyrirtækja á borð við Face- book, Google og Amazon sem byggja rekstur sinn þannig upp að þau greiða minni skatta en ella í þeim ríkjum þar sem þau selja þjónustu sína og vörur, og beina tekjunum í gegnum dótturfélög í öðrum löndum til að lágmarka skattbyrði sína. OECD vinnur nú að gerð sam- ræmdra alþjóðlegra skattareglna sem ættu að torvelda skattalágmörk- un af þessu tagi og hugsanlega auka skatttekjur ríkissjóða víða um heim um jafnvirði samtals 100 milljarða dala árlega. Reuters greinir frá að í um- ræðum um þessi mál virtust gestir fundarins einkum beina orðum sín- um að Steven Mnuchin, fjármála- ráðherra Bandaríkjanna, en ríkis- stjórn Donalds Trumps hefur hótað því að fara í hart við þau lönd sem reyna að hækka skatta á starfsemi bandarískra netfyrirtækja. Er skemmst að minnast hótana um ofurtolla á franskar vörur á borð við kampavín, osta, handtöskur og varaliti ef ríkisstjórn Emmanuels Macron leiðir í lög svokallaðan Gafa-skatt, sem kenndur er við Google, Apple, Facebook og Ama- zon og myndi fela í sér 3% skatt á tekjur af sölu netauglýsinga sem beint er að frönskum netnotendum. Óttast að Bandaríkin tefji málið OECD vill að stærstu hagkerfi heims sammælist strax í sumar um samræmdan lágmarksskatt á alþjóð- leg netfyrirtæki, og að G20-hópurinn samþykki að fara að tilmælum OECD fyrir lok þessa árs. „Að bregðast við með samræmdum hætti er ekki illskásta leiðin til að leiða þetta mál til lykta, heldur eina leiðin sem kemur til greina þegar allir val- kostirnir eru skoðaðir,“ sagði Ángel Gurría, aðalritari OECD, á G20- fundinum, en talsmenn samræmds internetskatts óttast að Bandaríkin reyni að tefja málið a.m.k. fram yfir forsetakosningarnar sem fara fram þar í landi í lok þessa árs. Fjöldi landa, þar á meðal Spánn, Austurríki, Ungverjaland og Bret- land, er ýmist að undirbúa eða leggja fyrstu drög að skatti á stafræna starfsemi og óttast sérfræðingar að það geti flækt alþjóðaviðskipti til muna ef skattaumhverfi tæknirisa verður mjög breytilegt frá einu landi til annars. „Það fellur illa að [þörf- um] alþjóðahagkerfisins ef skatta- reglur landa stangast á,“ sagði Mnuchin á fundinum. G20-ríkin móta samkomu- lag um skatt á netrisa AFP Þrætur Netrisunum hefur tekist vel að lágmarka skattgreiðslur sínar. Hvalreki » Almenn sátt virðist meðal G20 ríkjanna um að sam- ræma skatta á alþjóðleg net- fyrirtæki. » Bandaríkin hafa hótað löndum eins og Frakklandi ofurtollum ef skattar á bandaríska netrisa hækka. » Tillögur OECD gætu aflað ríkjum heims u.þ.b. 100 millj- arða dala í nýjar skatttekjur ár hvert.  OECD undirbýr reglur um samræmdan lágmarksskatt á alþjóðleg netfyrirtæki Ángel Gurría Steven Mnuchin Donald Trump Emmanuel Macron Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing upplýsti á föstudag að að- skotahlutir hefðu fundist í elds- neytistönkum 35 nýrra þota af gerð- inni 737 MAX. Þoturnar sem um ræðir bíða afhendingar og hefur Reuters eftir heimildarmanni sem þekkir til málsins að af þeim þotum sem hafi verið skoðaðar hafi aðskota- hlutir fundist í eldsneytistönkum í meira en 50% tilvika. Bandaríska flugmálaeftirlitið gat ekki staðfest tölur Boeing en tals- maður sagði stofnunina vita að Bo- eing hefði að eigin frumkvæði hafið leit að aðskotahlutum í vélum sínum. Flugmálaeftirlitið mun auka eftirlit sitt í samræmi og ákveða í framhald- inu hvort að aðgerða sé þörf. Wall Street Journal greindi fyrst frá mál- inu. Að sögn Reuters hefur Boeing lengi glímt við þann vanda að að- skotahlutir verða eftir í nýjum flug- vélum. Ekki er ljóst hvaða aðskota- hlutir það voru sem fundust í 737 MAX-þotunum, en það gætu m.a. hafa verið tuskur, verkfæri eða málmagnir. Samkvæmt upplýsinga- skjali sem starfsmenn Boeing sendu sín á milli gætu aðskotahlutirnir sem leyndust í eldsneytistönkunum stefnt öryggi þotanna í voða. ai@mbl.is AFP Vandi Af þeim eldsneytistönkum sem skoðaðir voru fundust aðskotahlutir í meira en 50% tilvika. Um nýjar þotur er að ræða sem bíða afhendingar. Aðskotahlutir finnast í fleiri 737 MAX þotum  Stór hluti eldsneytistanka í ólagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.