Morgunblaðið - 24.02.2020, Side 19

Morgunblaðið - 24.02.2020, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2020 ✝ SigríðurBenný Eiríks- dóttir fæddist í Saurbæ, Villinga- holtshreppi 18. mars 1924. Hún lést á Hrafnistu, Reykjavík, 14. febrúar 2020. For- eldrar hennar voru Ragnheiður Benjamínsdóttir, f. 8.6. 1891 í Syðri- Gegnishólum, Gaulverjabæj- arhreppi, d. 21.4. 1981, og Ei- ríkur Kolbeinsson, f. 15.1. 1875 í Stóru-Mástungu, Gnúpverja- hreppi, d. 12.9. 1925. Albræður Sigríðar voru ónefndur dreng- ur og Eiríkur Kolbeinn, hálf- bróðir hennar (samfeðra) var Gísli. Eiginmaður Sigríðar var Gunnar Guðmundsson, f. 26.12. 1924, d. 25.11.2004. Þau slitu sambúð. Börn Sigríðar og Gunnars eru: 1) Eiríkur, f. 18.12. 1946, maki Valgerður Stefánsdóttir. Börn þeirra eru: a) ónefndur drengur (látinn), b) Guðbjörg, maki Þórarinn Þór Sigursteinn Atli, Brynjar Nói og Hilmar Máni, og b) Bryndís, maki Kristjón Daðason, börn: Lena Rós, Gunnar Snær (lát- inn), Rakel Ösp, Einar Breki og Karítas Ýr. 6) Auður, f. 1.10. 1957 d. 11.5.2016, maki hennar var Hjörtur Jakobsson d. 27.4.2016, dóttir þeirra er a) Ásta Rut. Sigríður átti fimm langalangömmubörn. Alls átti hún 43 afkomendur. Sigríður ólst upp frá fimm ára aldri á Votamýri á Skeið- um. Hún kynntist Gunnari á Selfossi og fluttist með honum til Reykjavíkur árið 1946. Fyrstu árin eftir að börnin fóru að koma til sögunnar bjuggu þau að Árbæjarbletti 70 en fluttu í Lindargötu 23 þegar fjölskyldan stækkaði. Árið 1960 fluttu þau í Sporðagrunn 13. Sigríður bjó síðar að Ljós- heimum 9 og Hraunbæ 103, eft- ir að hún og Gunnar slitu sam- búð. Sigríður var heima- vinnandi húsmóðir í mörg ár og félagi í kvennadeild Flug- björgunarsveitarinnar. Síðar vann hún á saumastofum í Reykjavík. Síðustu þrjú ár hef- ur Sigríður dvalið á Hrafnistu, Reykjavík. Útför Sigríðar fer fram frá Árbæjarkirkju í dag, 24. febr- úar 2020, og hefst athöfnin klukkan 15. Magnússon, börn hennar eru Brynja Dögg og Stefán Ari, og c) Sigríður, synir hennar eru Eiríkur Þór og Steinar Freyr. 2) Trausti, f. 17.9. 1948, maki Berg- lind Rut Sveins- dóttir, synir hans eru a) Gunnar og b) Anton, börn hans eru Berglind Nína og Ingvar. 3) Hildur, f. 7.3. 1952, maki Guðjón Pétur Ólafsson. Börn þeirra eru a) Guðmundur, maki Íris Long, synir þeirra eru Gauti og Guðjón, sonur Ír- isar er Atli Geir, og b) Ásta Sig- ríður, maki Clemente Arena. 4) Ragnheiður, f. 24.4. 1953, maki Bjarni Snæbjörnsson. Dætur þeirra eru a) Íris, maki Karl Sigfússon, börn þeirra eru Selma, Hilmar og Þóra, og b) Snædís. 5) Unnur, f. 23.4. 1956, maki Jónas H. Sveinsson. Þau skildu. Dætur þeirra eru a) Helga Birna, maki Sighvatur Rúnarsson, synir þeirra eru Þegar mamma mín var ekki nema eins og hálfs árs missti hún pabba sinn, en þá var móð- ir hennar ófrísk að Eiríki bróð- ur hennar. Eiríkur fór fljótlega í fóstur til vinafólks að Gafli í Villingaholtshreppi en mamma var áfram hjá mömmu sinni. Þegar hún var fimm ára brenndist amma illa. Þá fór hún að Votamýri á Skeiðum til föð- ursystur sinnar og átti að vera þar í nokkra mánuði en það breyttist og hún var þar til tví- tugs. Mömmu fannst gott að vera á Votamýri. Hún byrjaði í skóla þegar hún var 10 ára og var til 14 ára aldurs. Hana langaði mikið að fara í Héraðsskólann á Laugarvatni því hún átti mjög auðvelt með að læra, en fékk það ekki. Hún var alla tíð leið yfir að hafa ekki fengið að mennta sig. Það eina sem henni stóð til boða var að fara í hús- mæðraskólann en hún kærði sig ekki um að fara í einhvern grautarskóla eins og hún kall- aði hann. Hún hafði stærri drauma en það, en hana dreymdi um að verða flugmað- ur eða leikkona. Hún var mjög virk í Ungmennafélaginu og tók þátt í mörgum leiksýningum. Mamma vann öll verk að Votamýri en fannst skemmti- legast þegar byggt var nýtt hús að vinna við það. Þá sváfu þau i tjöldum í fimm vikur á meðan á byggingarvinnunni stóð. Hún vann við steypuvinnu til jafns við karlmennina á bænum. Mamma bjó enn að Votamýri þegar seinni heimsstyrjöldin hófst og urðu þau í sveitinni talsvert vör við það, þar sem hermenn höfðu aðsetur á bæ skammt þar frá. Mamma var logandi hrædd við hermennina og eitt sinn þegar hún var á leið út að Brautarholti að kvöldi til heyrði hún i bíl, en mjög lítil umferð bíla var á þessu tíma, hún var viss um að þetta væru hermenn svo hún skellti sér út i skurð og faldi sig þar til þeir voru farnir. Hún hafði mikinn áhuga á flugvélum hersins sem flugu yf- ir og þekki hljóðin i vélunum. Eitt sinn þegar hún var úti við heyrði hún í flugvél sem hún vissi strax að var ekki vél Breta eða Bandaríkjamanna. Þá fór hún inn í bæ og heyrði stuttu seinna i fréttum að þýsk vél hefði kastað sprengju í átt að Ölfusárbrúnni. Þegar mamma var um tví- tugt fór hún til Selfoss og vann þar í bíóinu í þrjá mánuði. Á Selfossi hitti hún pabba, Gunn- ar Guðmundsson, en hann var þá að vinna hjá Almenna bygg- ingafélaginu. Mamma fór síðan alfarið til Reykjavíkur á þrett- ándanum 1946. Á þessum tíma var ekki algengt að konur væru með bílpróf en mamma hafði alla tíð verið með bíladellu svo hún tók bílpróf skömmu eftir að hún flutti til Reykjavíkur. Þetta er lítið brot af sögum mömmu sem hún hefur verið að segja mér undanfarin ár. Nú verða sögurnar ekki fleiri en ég ylja mér við þessar endurminn- ingar. Mamma var ótrúleg mann- eskja á margan hátt, mjög ákveðin og hreinskilin og fylgd- ist vel með öllu sínu fólki alveg fram í lokin. Hún var meira að segja að siða mig til fram á síð- ustu stundu, sem mér fannst mjög huggulegt. Nú hefur hún fengið lang- þráða hvíld og er komin i Sumarlandið sitt. Ég sakna elsku mömmu og allra góðu samtalanna okkar, en veit að hún er komin á þann stað sem hún vildi vera á. Blessuð sé minning hennar. Ragnheiður. Amma Sigga var kannski ekki hin dæmigerða ímynd öld- ungs á tíræðisaldri. Hún var hreinskilin, bein í baki fram eftir aldri, og alltaf með nýj- ustu fréttirnar af þjóð- og heimsmálunum á hreinu. Sömu- leiðis var hún ákaflega sjálf- stæð, það mátti helst enginn gera neitt fyrir hana. Hún átti afmælisdagabók, en hefði í raun ekki þurft á henni að halda því hún mundi flesta af- mælisdaga. Afkomendur henn- ar eru margir og nokkuð víðfö- rulir, en það kom þó ekki í veg fyrir að hún myndi hvar í heim- inum þeir væru að ferðast, eða hvenær þeir kæmu til baka. Þrátt fyrir að hún væri að verða 96 ára var minni hennar betra en margra sem eru ára- tugum yngri. Eftir að amma fór á eftir- launaaldur og fluttist í Hraunbæinn gerðist hún mikill göngugarpur. Hún gekk Stíflu- hringinn í Elliðaárdalnum flesta daga og lagði saman kíló- metrana sem hún gekk. Yfir ár- ið náði hún oft að ganga vega- lengd sem samsvaraði því að hún hefði gengið frá Reykjavík austur fyrir Höfn í Hornafirði. Vegalengdirnar styttust eftir því sem aldur færðist yfir, en þó fór hún enn daglega sinn göngutúr, gekk ganginn til enda á Hrafnistu, og kom við hjá píanóinu til að spila aðeins. Hún var mikil hannyrðakona en þegar sjónin fór að daprast tók hún upp á því að prjóna sjöl. Þau voru einfaldari í snið- um en það sem hún hafði áður fengist við, en samt ákaflega falleg og nýtileg. Hún prjónaði alls 650 slík sjöl og gaf þau um allan heim. Hljóðbókasafnið reyndist henni einnig vel, sér- lega þegar sjónskerðingin olli því að hún gat ekki prjónað lengur. Hún fékk hljóðbækur sendar, og á tímabili var hún alltaf sú fyrsta í fjölskyldunni sem var búin að lesa allar jóla- bækurnar. Þannig gafst hún aldrei upp, heldur fann sér leið- ir fram hjá þeim hindrunum sem hún mætti. Amma reyndist mér sérstak- lega vel eftir að foreldrar mínir létust vorið 2016. Þá kom mjúka hlið hennar vel í ljós. Það verður sérstakt að geta ekki lengur farið í heimsókn til hennar, sest í rauða stólinn og spjallað við hana um gamla tíma, nýja tíma og allt þar á milli. Við eigum þó góðar minn- ingar sem ylja. Ásta Rut. Ég reika milli stjarna, stjarnanna minna. Ég er að leita, að minni eigin stjörnu. Hvar ertu mín fagra, bjarta stjarna? Fegurst allra stjarna. Ég leita þín. Nú yljar þú mér um hjartarætur. Og lýsir upp mitt fagra bros. Því nú er ég glöð meðal engla minna. Og veröld mín svo hlý og björt. Stjarna mín, ó stjarna mín. Nú líður mér vel. Því nú er ég komin heim. (ÁSG) Takk fyrir allt, elsku amma. Kveðja, Ásta Sirrý. Ásta Sigríður. Sigríður Benný Eiríksdóttir ✝ IngveldurHöskuldsdóttir fæddist 10. október 1937 á Hornafirði. Hún lést á gjör- gæslu Landspít- alans 13. febrúar 2020. Foreldrar henn- ar voru Höskuldur Björnsson listmál- ari frá Dilksnesi, f. 26. júlí 1907, d. 2. nóvember 1963 og Hallfríður Pálsdóttir, f. 25. mars 1907, d. 15. janúar 1987. Bróðir Ingveldar var Halldór Höskuldsson, f. 9. apríl 1936, d. 26. apríl 2005. Ingveldur var þrígift og eignaðist fimm börn, Hallfríði, f. 1957, Gunnar Þór, f. 1959, Ást- vald, f. 1962, Helgu, f. 1963, d. 1967, og Helga, f. 1969. Barnabörnin eru níu og langömmu- börnin níu. Ingveldur flutti með foreldrum sín- um til Hveragerðis 1947. Fluttist til Reykjavíkur um tvítugt og vann við verslunar- störf og bjó þar lengst af, að undanskildum 15 árum sem hún bjó í Svíþjóð. Útför Ingveldar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 24. febr- úar 2020, klukkan 15. Elsku mamma. Mikið sakna ég þín, en ég hugga mig við það að nú ert þú frjáls, frjáls eins og fuglarnir sem þú hafðir svo mikið dálæti á. Það var auðvelt að finna gjöf fyrir þig, ef hún var með mynd af fugli vissi ég að þú yrðir hrif- in alveg sama hvort það voru servíettur, kertastjaki eða ann- að, og ekki síður ef bleiki litur- inn var líka með. Við áttum okkar stundir sam- an, mæðgur, vinkonur. Við kíkt- um í búðirnar okkar og skoð- uðum fallegar vörur, blómabúðir voru líka heimsóttar og oft fylgdi okkur eitthvað heim eftir þessar heimsóknir, ekki mikið, bara smá. Þú varst fagurkeri fram í fingurgóma, allt í kring- um þig var fallegt eins og þú. Yfirleitt enduðu þessar búðar- ferðir okkar á því að við komum við í bakaríi og keyptum sér- bakað vínarbrauð sem við feng- um okkur þegar við komum heim. Þeirri hefð okkar held ég áfram. Það var ómetanlegt að fá að vera með þér síðustu dagana, elsku mamma mín, enda kom ekkert annað til greina. Við gerðum hlutina saman, þannig var það bara. Það var gott að geta sagt þér hvað ég elskaði þig mikið, þú vissir það, en allt- af gott að fá að heyra það. Við eigum eftir að tala um þig og rifja upp minningar sem eru svo ómetanlegar, barna- börnin sakna langömmu en þú varst þeim svo mikilvæg og fastur punktur í þeirra lífi. Nú ertu komin í Sumarlandið, það verður þín Bólstaðarhlíð, umvafin blómum og ættingjum. Þín dóttir Halla. Hallfríður Kristjánsdóttir. Elsku mamma, takk fyrir allt sem þú ert búin að gera fyrir mig og okkur. Maður er búinn að sakna þess að fá ekki smá- kökurnar og randalínkökurnar frá þér á jólunum. Þetta kom manni í jólaskap. Þegar Hall- fríður amma bjó í Hveragerði og var með kaffistofuna áttum við góðar stundir. Við eyddum miklum tíma þar með góðu fólki eins og Höllu systur, Veigari, Ástvaldi, Halldóri frænda, Gunnu, Höskuldi og Geir frænda heitnum. Maður saknar þessara tíma. Ég er búinn að vera að hugsa hvað þú ert búin að standa vel við bakið á mér. Það var allt þér að þakka þegar þú sást norska grein í blaði um ítalskan dreng sem hafði farið í lengingar- aðgerðir í Rússlandi. Þú stóðst þig svo vel, varst svo sterk þeg- ar læknir reyndi að stíga í veg fyrir að lengingar aðgerðirnar yrðu að veruleika. Þegar við pabbi vorum úti í aðgerðunum fékkst þú skilaboð um hvernig gekk með telefaxi, sem var sent til Sindra. Það var gaman að sjá hvernig þið pabbi unnuð þetta saman þó að þið hafið verið skilin. Ég sakna þín á hverjum degi, elsku mamma. Elsku mamma, kveðja, þinn sonur Helgi. Elsku besta engla amma mín. Þá ertu komin með fallega vængi, mögulega bleika, og ég er sannfærð um að Casper hafi tekið vel á móti þér og sitji í fanginu á þér. Síðastliðnar vikur hafa verið strembnar en ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa getað kom- ið og verið með þér í nokkra daga og sagt þér allt sem ég hefði átt að segja þér mikið fyrr. Ég á endalausar minningar af þér og okkur, Svíþjóðarferðirn- ar voru alltaf hápunktur sum- arsins og þar var alltaf tekið vel á móti manni með góðum mat, verslunarferð og skemmtilegum plönum. Ég er 100% viss um að ég hefði aldrei þorað að flytja er- lendis sjálf ef það hefði ekki verið fyrir þig, þú varst alltaf „rétt hjá“ ef eitthvað kæmi upp á, ef ævintýri mitt færi úrskeið- is vissi ég að ég gæti alltaf kom- ið til þín. Þegar ég bjó í Danmörku kom ég oftar í heimsókn, og alltaf var ég send til baka heim með skúffuköku og matarpoka til að fylla á ísskápinn, besta skúffukakan og ég hafði vit á því að fá uppskrift. Eitt af því síðasta sem þú sagðir mér var að maður ætti alltaf að vera stolt/ur af sjálfum sér, og ég ætla að lifa eftir þess- um orðum, og lít upp til þín. Þú varst sú glæsilegasta, það er ekki flóknara en það. Þangað til næst, Margrét Inga Veigarsdóttir. Elsku amma mín takk fyrir öll árin og allar góðu minning- arnar sem við áttum saman. Þegar þú varst á spítalanum runnu góðu minningarnar í gegnum hugann. Þú varst svo veik en samt varstu svo hress að maður hafði von að þú mund- ir ná þér og flytja inn í nýju íbúðina þína. Þú lást á spítalanum og við spjölluðum um minningar í gegnum árin. Þú sagðir mér frá því þegar þú varst í lýðháskóla þegar þú varst ung. Þú ljómaðir alltaf þegar þú talaðir um þenn- an tíma. Það var upplifun sem þú mundir alltaf eftir. Nú er Óskar barnabarn að stíga sömu fótspor og þú. Þegar við fjölskyldan heim- sóttum þig í Svíþjóð, það voru góðar ferðir. Þú tókst svo vel á móti okkur. Við kynntumst broddgöltunum sem fengu að borða hjá þér, við fengum sænskar kjötbollur inni í vefju með smjöri og fórum í Astrid Lindgren-garðinn. Þú fluttir til Íslands og bjóst heima hjá okkur fjölskyldunni. Þú hafðir góða nærveru, klædd- ir þig í bjarta liti og bakaðir góðar kökur. Einn daginn fluttir þú á Grensásveginn en við feng- um meðal annars að njóta fé- lagsskapar þíns á sunnudags- kvöldum. Þar var spjallað, góður matur borðaður, rauðvín drukkið, Jägermeister og stund- um líkjör. Við fjölskyldan nut- um nærveru þinnar og munum sakna þess að fá þig ekki á sunnudagskvöldum. En hefðin að hafa fjölskyldu sunnudags- kvöldverði mun halda áfram. Inga amma, þú varst algjör listakona, þú skreyttir heimili þitt fallega með myndum eftir pabba þinn. Að koma í heim- sókn til þín var eins og að ganga inn í listagallerí. Þú naust þín í góðum félagsskap, þér fannst ekki allt fyndið og ef þú sást ekki tilgang með hlutunum eins og t.d. að spila eða læra á tækninýjungar þá vildir þú ekk- ert með það hafa. Á tímum sem þessum loka ég augunum finn í brjósti mér allar góðu minningarnar ylja inn að hjarta. Þú varst svo góð og hlý þú kveður þennan heim. Þín minning mun lifa í hjarta allra sem þú komst nálægt Elsku Inga amma. Kveðja, þitt barnabarn Margrét Björg. Elsku fallega amma mín, það er frekar erfitt að setjast niður og byrja að koma niður orðum á blað. Ég er enn að átta mig á því að þú sért farin frá okkur, en sem betur fer hef ég svo margar yndislegar minningar sem eru mér dýrmætar og ylja hjartað á þessum erfiðu tíma- mótum. Þú ert í minningu okkar systranna sem algjör demantur, alltaf svo glæsileg og yndisleg. Árin sem þú bjóst í Svíþjóð, all- ar ferðirnar til þín voru svo skemmtilegar. Þú varst alltaf búin að fara í búðina og kaupa allt uppáhaldsgotteríið og oftar en ekki beið volg skúffukaka eftir manni. Ég man sérstaklega eftir einni ferðinni þegar við kíktum í Legoland. Þar fórum við í biðröð til að komast inn í kastala og skoða hann, en þegar röðin fór að styttast kom í ljós að þetta var ekki bara kastali heldur rússíbani, það er eitt- hvað sem þér fannst alls ekki skemmtilegt en þú lést það ekki stoppa þig og í rússíbanann fór- um við og öskruðum og hlógum til skiptis. Þú varst mikið fyrir skart- gripi, enda hafðirðu unnið í skartgripaverslun. Alltaf fékk maður að gramsa og máta allt glingrið sem þú áttir. Ég er svo þakklát fyrir það að börnin mín fengu að alast upp með þig í lífi sínu. Þau sakna þín svo mikið en við munum halda minningu þinni uppi með myndum og ljúf- um minningum. Síðustu dagarnir á gjörgæsl- unni voru eins og rússíbanaferð, suma daga gátum við spjallað meðan aðra daga sátum við og héldumst í hendur meðan þú hvíldir þig. Ég hef sjaldan séð þig jafn sterka og þá, þú varst algjör prinsessa og höfðingi á sama tíma eins og ég sagði við þig í nokkur skipti. Ég mun halda fast í þessar síðustu stundir, eins og þær gátu verið erfiðar þá er ég svo þakklát fyr- ir þær. Nú ertu komin á betri stað, ég vona svo innilega að allt okkar fólk „þarna hinum megin“ hafi tekið vel á móti þér. Elsku fallegi demanturinn minn, ég elska þig – ég sakna þín. Hvíldu í friði, litlan þín, Kittý. Kristjana Ósk. Ingveldur Höskuldsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.