Morgunblaðið - 24.02.2020, Side 13

Morgunblaðið - 24.02.2020, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2020 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is UMFERÐAREYJAR Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki Henta vel til að stýra umferð, þrengja götur og aðskilja akbrautir. Til eru margar tegundir af skiltum, skiltabogum og tengistykkjum sem passa á umferðareyjarnar. Öldungadeildar- þingmaðurinn Bernie Sanders vann öruggan sigur í forvali Demókrata- flokksins í Nevada-ríki í Bandaríkjunum á laugardag. Þegar 60% at- kvæða hafa verið talin hefur Sanders hlotið 46% at- kvæða, ríflega tvöfalt meira en Joe Biden, fyrrverandi varaforseti, sem kemur næstur. Þriðji var Pete But- tigieg, fyrrverandi borgarstjóri í South Bend. Forvali er nú lokið í þremur ríkj- um og hefur Sanders hlotið flesta kjörmenn, en næstur kemur Buttig- ieg. Næst verður kosið í Suður- Karólínu á laugardag, en línur taka fyrst að skýrast 3. mars er kosið verður í fimmtán ríkjum á svoköll- uðum ofurþriðjudegi. BANDARÍKIN Stórsigur Bernie Sanders í Nevada Bernie Sanders Palestínskir vígamenn úr samtökunum Ísl- amskt jíhad á Gaza-strönd skutu í gær eld- flaugum yfir á landsvæði Ísr- aels. Engan sak- aði í árásunum. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að árásin sé svar liðsmanna þess að Ísraelar hafi drepið félagsmann þeirra fyrr um daginn og þeir hefni þannig fyrir „glæpi síonískra óvina“. Talsmaður Ísraelshers segir að mennirnir tveir sem Ísraelar drápu fyrr um daginn hafi verið hryðjuverkamenn og í þann mund að koma fyrir sprengju við landa- mæragirðinguna. Þá segir að tuttugu flaugum hafi verið skotið á landsvæði Ísraels en að eldflaugavarnarkerfi hersins hafi stöðvað tíu þeirra. ÍSRAEL OG PALESTÍNA Tuttugu eldflaugum skotið á Gaza Gaza-strönd. Farbann hefur verið lagt á í nokkr- um bæjum í norðurhluta Ítalíu vegna kórónuveirunnar. 130 tilfelli veir- unnar hafa verið staðfest í landinu, langtum fleiri en í nokkru öðru Evr- ópuríki. Þá hafa þrír látist á Ítalíu af völdum hennar. Um 50.000 íbúum í héruðunum Venetó og Langbarða- landi í námunda við stórborgirnar Feneyjar og Mílanó er nú óheimilt að yfirgefa bæi sína nema að fengnu sérstöku leyfi. Þá hefur skólahald verið fellt niður og ýmsum viðburð- um aflýst. Ákveðið var að ljúka kjöt- kveðjuhátíðinni í Feneyjum tveimur dögum fyrr en til stóð, af sömu sökum. Ítölsk heilbrigðisyfirvöld segja að enn sé reynt að hafa uppi á upptökum veirunnar. Grunur beind- ist upphaflega að viðskiptamanni sem hafði snúið til Langbarðalands frá Kína, en hann reyndist ekki sýktur. Á fundi með fjármálaráðherrum og seðlabankastjórum G20-ríkjanna í gær sagði Kristalina Georgiva, framkvæmdastjóri Alþjóðagjald- eyrissjóðsins, að útbreiðsla veirunn- ar kynni að ógna viðkvæmum bata heimshagkerfisins. Landamærum að Íran lokað Í Íran hafa 43 greinst með veir- una, flestir í heilögu borginni Qom. Þá eru átta látnir, sem er mesti fjöldi utan Kína. Nágrannaríkin Írak, Pak- istan, Armenía og Tyrkland hafa öll lokað landamærum sínum að Íran, auk þess sem stjórnvöld í Afganistan hafa lokað fyrir flug- og vegasam- göngur milli ríkjanna. Í Suður-Kóreu hefur hæsta við- búnaðarstigi verið lýst yfir vegna veirunnar, en þar í landi hafa sex lát- ist og yfir 600 greinst með veiruna. Farbann í bæjum Norður-Ítalíu  130 tilfelli kórónuveiru eru staðfest á Ítalíu  Nágrannaríki loka landamærum að Íran vegna veirunnar  Hæsta viðbúnaðarstigi lýst yfir í Suður-Kóreu AFP Veira Íbúar í smábænum Casalp- usterlengo hafa varann á. Sandstormur gengur nú yfir Kanaríeyjar og lágu flugsamgöngur niðri í gær vegna þessa. Sandurinn á upptök sín í Sahara-eyðimörkinni, en eyjarnar eru um 100 kílómetra undan strönd- um Marokkó. Veðurstofa Kanaríeyja hefur var- að við vindhviðum sem gætu náð allt að 33 m/ sek. Veðrið hefur einnig haft áhrif á ferðalög með ferjum og hamlað björgunaraðgerðum vegna skógarelda í Tasarte á Kanaríeyjum. AFP Flugsamgöngur á Kanaríeyjum lágu niðri Leiðtogafundi Evrópusambandsins lauk á föstudag án þess að sam- komulag næðist um fundarefnið, fjárhagsramma sambandsins til næstu sjö ára. Deilt er um fjár- mögnun ESB nú þegar Bretar hafa yfirgefið sambandið. Bretland var eitt þeirra ríkja sem greiddu meira til sambandsins en þau fengu í bein- ar endurgreiðslur, en mismunurinn nam um 11 milljörðum evra á ári. Flest aðildarríki sambandsins vilja mæta þessu með því að hækka fram- lag aðildarríkja, sem nú miðast við 1% af vergum þjóðartekjum. Lagði Charles Michel, forseti leiðtogaráðs sambandsins, til að framlög yrðu hækkuð í 1,069% en sú tillaga mætti andstöðu úr báðum áttum. Annars vegar frá fjórum ríkjum sem hafa lýst sig andvíg auknum útgjöldum, Svíþjóð, Danmörku, Austurríki og Hollandi, en hins vegar frá 17 ríkj- um sem þiggja meira en þau leggja til sambandsins. Hafa þau ríki, sem nefna sig Vini samheldninnar, lagt til að framlög verði aukin enn frekar. alexander@mbl.is AFP Leiðtogafundur Emmanuel Macron Frakklandsforseti sagði fundinn sýna að Evrópusambandið þyrfti ekki Breta til að sýna óeiningu. Deilt um framtíðar- fjármögnun ESB  Engin niðurstaða á leiðtogafundi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.