Morgunblaðið - 03.03.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.03.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is DVERGARNIR Þungar og öflugar undirstöður DVERGARNIR R HNERRIR DURGURJÖTUNN DRAUPNIR ÞJARKUR Þessir dvergar henta vel sem undirstöður þar sem þung og öflug festing er aðalatriði. 40 ára Guðjón er Reykvíkingur, ólst upp í Fossvogi en býr í Vesturbænum. Hann er kerfisstjóri á Hótel Sögu, rekur eigið fyrir- tæki, Markaðsstofuna Needs, og er trymbill í Q4U og Óværu. Maki: Valdís Rán Samúelsdóttir, f. 1982. Sonur: Samúel Ingi Guðjónsson, f. 2019. Foreldrar: Guðjón Þór Guðjónsson, f. 1954, hárskerameistari og eigandi Hár- snyrtistofunnar Stúdíó Hallgerður, og Áslaug Adda Sigurðardóttir, f. 1958, verkefnastjóri hjá fasteignafélaginu Reitir. Guðjón Guðjónsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það gengur ekki að vera stöðugt kvartandi út af öllum sköpuðum hlutum. Brettu frekar upp ermarnar þegar þú mætir vandamálum. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er ekki ólíklegt að vandamál komi upp í nánum samböndum þínum við aðra. Gaumgæfðu líf þitt og kannaðu hvort þú vilt breyta til. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þótt fólk bjóði af sér góðan þokka og þú viljir treysta því umsvifalaust, skaltu fara þér hægt. Gaumgæfðu alla möguleika og reyndu að forðast áhættu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú átt auðvelt með að hrífa áhrifa- mikið fólk með þér þessa dagana. Nýttu þennan aðdáunarverðahæfileika þinn og láttu gamlan draum rætast. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Einhverjir vilja pranga inn á þig hlutum sem þú hefur í raun og veru enga þörf fyrir. Ef þér finnst þú lítil áhrif hafa í aðstöðunni komdu þér þá í burtu. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Eyddu ekki orku þinni í að hugsa um það neikvæða. Vertu opin/n og þú gætir rekist á nýja hlið á sjálfri/um þér. Reyndu að forðast árekstra við vinnufélaga þína. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhverjir hnökrar koma upp í vinnunni og valda þér bæði áhyggjum og leiðindum. Þér verður mikið úr verki í dag þrátt fyrir mótlætið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vinnufélagar þínir eru sam- starfsfúsir og þú ert örugg/ur með þig. Það væri góð hugmynd að slípa til vinnuaðferðir þínar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Finnst þér þú alveg stopp? Tím- inn sem þú eyðir í að bíða er mikilvægur. Vandkvæði tengd samgöngum að und- anförnu leysast. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert hvorki betri né verri en þú vilt vera og átt því að horfast í augu við sjálfa/n þig. Láttu aðra um að ráða sínum málum, þú hefur nóg með þín. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Láttu það ekki koma þér úr jafn- vægi þótt hlutirnir gangi ekki fyrir sig akk- úrat eins og þú hafðir hugsað þér. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú verður að skipuleggja starf þitt svo að þú drukknir ekki í verkefnum dags- ins. Hikaðu ekki við að þiggja hjálp. Music and Sound Research í Mont- réal, Teachers College of Columbia University og University of Southern California. Auk fræðistarfa og kennslu rekur Helga Rut fyrirtækið Tónagull ehf. sem sérhæfir sig í vönduðu tónlistar- uppeldi ungra barna. „Vinsælustu námskeiðin á vegum Tónagulls eru fyrir fjölskyldur með börn á aldr- inum 0-3 ára og eru námskeiðin kennd í Reykjavík og á Selfossi. Ný- lega hafa Tónagullsnámskeiðin verið þýdd á pólsku og eru þau vinsæl meðal pólskra fjölskyldna hér á landi ledge companion to interdisciplinary studies in singing sem inniheldur greinar eftir rúmlega fjörutíu sér- fræðinga í söngrannsóknum. Hún er einnig höfundur að fræðilegum köfl- um í bókum gefnum út af Student- litteratur, Routledge og Oxford Uni- versity Press. Helga Rut hlaut Fulbright- fræðimannastyrk árið 2016-2017 til fræðistarfa í Bandaríkjunum. Hún hefur verið tímabundið gesta- prófessor við erlenda háskóla, s.s. Université de Montréal, BRAMS International laboratories for Brain, H elga Rut Guðmunds- dóttir fæddist 3. mars 1970 í Reykjavík en þá bjuggu foreldrar hennar í Tjarnargötu 35. Fyrstu þrjú árin bjó hún í Noregi, en svo í Reykjavík til átta ára aldurs þegar fjölskyldan flutti á Hofsós í Skagafirði. Eftir það bjó hún í þrjú ár á Blönduósi áður en hún flutti fimm- tán ára aftur til Reykjavíkur til að ganga í menntaskóla. Af sumar- störfum má nefna kirkjuvörslu í Skálholtskirkju og leiðtogastörf í sumarbúðum KFUK í Vindáshlíð. Helga Rut var í Hólabrekkuskóla, Grunnskólanum á Hofsósi og Grunn- skólanum á Blönduósi. Hún lærði á píanó í Tónlistarskólanum í Reykja- vík og lauk 8. stigi í Kanada. Hún hefur einnig lokið 4. stigi í söng og 3. stigi í blokkflautuleik. Hún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1989 og hóf nám við Kennaraháskóla Íslands sama haust. Í Kennaraháskólanum var hún á tón- menntakjörsviði og útskrifaðist með B.Ed.-gráðu árið 1992. Haustið 1994 hóf hún nám við tónlistardeild McGill-háskóla í Montréal í Kanada og lauk þaðan meistaragráðu (MA) 1997 og doktorsgráðu (Ph.D.) 2003 í tónlistarfræðum. Helga Rut var ráðin lektor í tón- mennt við Kennaraháskóla Íslands árið 2000, fékk framgang í dósent við Háskóla Íslands árið 2014 og pró- fessorsstöðu við sama háskóla 2019. Helga Rut hefur stundað háskóla- kennslu og fræðistörf jöfnum hönd- um. „Ég kenni tilvonandi leik- og grunnskólakennurum fræði og hag- nýtar aðferðir í tengslum við tónlist- arkennslu og tónlistaruppeldi. Rann- sóknir mínar eru á sviði tónlistar- þroska barna en einnig á sviði tónmenntakennslu í skólum. Nýjustu rannsóknirnar fjalla um söng- og málþroska barna frá fæðingu,“ segir Helga Rut. Hún er í rannsóknarsamstarfi við erlenda samstarfsaðila á Norð- urlöndunum, Eystrasalti og Norður- Ameríku. Fræðileg skrif eftir hana eru birt í alþjóðlegum ritrýndum tímaritum og bókum. Í mars 2020 kemur út stórt fræðirit undir hennar ritstjórn sem ber heitið The Rout- sem sækja námskeiðin með styrk frá pólska sendiráðinu á Íslandi,“ segir Helga Rut. Tónagull heldur einnig námskeið fyrir leikskólakennara og gaf út námsefnið Tónmál með það að markmiði að stuðla að málörvun í gegnum tónlist fyrir leikskólabörn. Árið 2015 gaf Helga Rut út bókina Vísnagull með íslenskum vísum og þulum fyrir börn í fangi ásamt geisla- diski sem nú hefur verið gefinn út sem rafbók og á tónlistarstreym- isveitum (s.s. Spotify). Hún hefur reglulega staðið fyrir þátttöku- tónleikum fyrir barnafjölskyldur undir merkjum Vísnagulls og hafa allir slíkir viðburðir verið gríðarlega vel sóttir. Á árunum 2007-2012 var Helga Rut formaður stjórnar sumarbúða KFUK í Vindáshlíð. Í frístundum sínum syngur hún með Dómkórnum og hefur gaman af að æfa afródans og salsa. Helga Rut mun halda upp á fimm- tugsafmælið í beinu framhaldi af fyr- irlestri sínum í tilefni framgangs til prófessors við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fimmtudaginn 5. mars. „Á slíkum stundum er siður að fagna með fjölskyldu, vinum og sam- starfsfólki og því fer vel á því að tengja þessi hátíðahöld saman. Fyrirlesturinn verður haldinn í Bratta við Stakkahlíð og ber heitið: List hjartans – Söngur og tónlist í ljósi vísinda. Þar mun ég líta yfir far- inn veg og bregða upp myndum af því hvernig ástríðan fyrir söng og tónlist hefur tengst rannsóknum mínum í tæpa þrjá áratugi.“ Fyrir- lesturinn er öllum opinn. Fjölskylda Unnusti Helgu Rutar er Hannes Guðrúnarson, f. 8.1. 1967, tónlistar- maður. Fyrri maki Helgu er Halldór Björnsson, f. 5.10. 1965, sérfræð- ingur á Veðurstofu Íslands. For- eldrar hans: Hjónin Iðunn Steins- dóttir rithöfundur og Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri. Börn Helgu Rutar og Halldórs eru: 1) Iðunn Ýr, f. 7.11. 1992, há- skólanemi í málvísindum og sálfræði við McGill í Montréal, Kanada. Maki: Brent Calvelage, tölvuleikjahönn- uður hjá Eidos-Montréal; 2) Elín Sif, Helga Rut Guðmundsdóttir, prófessor í tónlistarfræðum – 50 ára Með dætrunum Iðunn Ýr, Helga Rut, Elín Sif og Embla Rún á ferðalagi í Suður-Frakklandi fyrir nokkrum árum. Borgin Marseille er í baksýn. List hjartans – söngur og tónlist Í Kanada Þátttakendur í alþjóðlegu rannsóknarverkefni um þverfaglegar rannsóknir á söng, Helga Rut stýrði teyminu sem sneri að söng og menntun. 30 ára Hafþór er Ís- firðingur, fæddur þar og uppalinn en býr í Kópavogi. Hann er flutningabílstjóri hjá Glanna. Maki: Lísa Marý Við- arsdóttir, f. 1990, nemi í klassískum söng. Dætur: Emma Rakel Hafþórsdóttir, f. 2012, og Friðrika Móey Hafþórsdóttir, f. 2018. Foreldrar: Agnar Þór Sigurðsson, f. 1962, flutningabílstjóri og eigandi Glanna, og Jóndís Sigurrós Einarsdóttir, f. 1963, matráður í leikskólanum Eyrar- skjóli á Ísafirði. Þau eru búsett á Ísa- firði. Hafþór Atli Agnarsson Til hamingju með daginn Reykjavík Samúel Ingi Guðjónsson fæddist 22. mars 2019 kl. 21.07. Hann var 50,5 sentimetrar og 13 merkur. Foreldrar hans eru Guðjón Guðjónsson og Valdís Rán Samúelsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.