Morgunblaðið - 03.03.2020, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3. M A R S 2 0 2 0
Stofnað 1913 52. tölublað 108. árgangur
verkogvit.is
Velkomin á stórsýninguna Verk og vit
Laugardalshöll 12.–15. mars
Allt það nýjasta í íslenskum byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum
DIDDÚ FLYTUR
SÍNAR UPPÁ-
HALDSARÍUR
ÞYRLUSKÍÐA-
VERTÍÐIN AÐ
HEFJAST
TAKMARKANIR
VERÐA Á
VEIÐISVÆÐUM
ENN ER AUKNING 10 TÍMI GRÁSLEPPUNNAR 14HÁDEGISTÓNLEIKAR 28
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Eftirspurn eftir íslenskum og öðrum
evrópskum sjávarafurðum hefur auk-
ist og mun halda áfram að aukast, að
mati Óskars Sigmundssonar, eiganda
sölufyrirtækisins Marós í Cuxhaven í
Þýskalandi. Sala fyrirtækisins jókst
um 37% í janúar og 44% í febrúar.
Hann segir ástæðuna meðal annars
vera þá að kaupendur séu reiðubúnir
til þess að greiða hærra verð fyrir
umhverfisvænni vöru sem ekki hefur
verið flutt alla leið frá Asíu eins og í
tilfelli kyrrahafskarfa.
Margar breytur
Þá hefur ýtt undir sérstöðu ís-
lenskra afurða að verulegar truflanir
hafa orðið í framleiðslu í Kína og bend-
ir flest til þess að vörur þaðan komi
ekki fyrr en í sumar. Jafnframt sé
óvíst hvernig kínverskum fyrirtækjum
takist að ná fyrri stöðu á markaðnum
og hefur því skapast sóknarfæri fyrir
íslenskar og aðrar evrópskar afurðir
sem yfirleitt eru dýrari.
Auk þess sem Kína rekur öfluga
vinnslu fyrir sjávarafurðir víðsvegar í
heiminum er landið einnig mikill
kaupandi sjávarafurða og því óljóst
hver heildaráhrifin á mörkuðum
verða.
Sala afurða eykst
Kórónuveiran eykur eftirspurn eftir íslenskum sjávar-
afurðum Kaupendur eru til í að greiða mun hærra verð
MEftirspurn eftir íslenskum ... »12
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
Sex ný kórónuveirusmit voru staðfest í
gær til viðbótar við þau þrjú sem fyrir
voru. Þau sem greindust eru Íslend-
ingar á fimmtugs- og sextugsaldri og
komu fimm þeirra hingað til lands með
flugi Icelandair frá Veróna á Ítalíu sl.
laugardag. Unnið er að smitrakningu í
sjötta tilfellinu. Sóttvarnalæknir segir
að nú sé áhersla lögð á að koma í veg
fyrir útbreiðslu smits innanlands.
„Þegar fyrsta tilfellið kom fyrir helgi
var ástandið uppfært í hættustig og það
er engin ástæða til að uppfæra það í
sjálfu sér. Það verður ekki fyrr en það
fer að verða dreifing innanlands að ein-
hverju ráði. Þá verður það endur-
skoðað,“ segir Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir.
Spurður hvort til greina komi að
stöðva flugferðir til og frá Ítalíu segir
Þórólfur það ekki endilega líklegt til ár-
angurs, margir ferðist þangað í gegnum
önnur Evrópulönd. Þá sé erfitt að halda
utan um hverjir hafi verið á skil-
greindum áhættusvæðum. Eina beina
flugið á milli Íslands og Ítalíu er leigu-
flug fyrir Íslendinga og segir Þórólfur
það ekki koma til greina að banna Ís-
lendingum að snúa aftur heim. Þeir sem
hafi verið á áhættusvæðum séu eftir
sem áður beðnir að sæta heimasóttkví.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjöldi smita hefur þrefaldast
Átta af níu veiru-
smitum verið rakin
til Ítalíu
MÁ þriðja hundrað manns ... »2
Landsvirkjun hefur tilkynnt áform
um verulega stækkun á þremur stór-
virkjunum sínum á Þjórsár-Tungna-
ársvæðinu. Orkustofnun hefur sent
þessi áform með öðrum tilkynntum
orkukostum í vatnsafli, jarðvarma
og vindorku til verkefnastjórnar 4.
áfanga rammaáætlunar sem metur
og raðar upp virkjanakostum.
Áhugi er á að stækka Vatnsfells-
stöð sem er með 90 megavött í upp-
settu afli um 55 MW. Sigöldustöð er
150 MW og á að stækka um 65 MW.
Þá á að stækka Hrauneyjafossstöð
sem nú er 210 MW í uppsettu afli um
90 MW. Guðni A. Jóhannesson orku-
málastjóri segir að áformin snúist
um að nýta núverandi virkjanir bet-
ur með því að endurhanna þær og
nýta tækninýjungar. Hægt sé að
stækka virkjanir með tiltölulega
litlum kostnaði. »4
Áform um að
stækka virkjanir
Eru á Þjórsár-Tungnaársvæðinu