Morgunblaðið - 03.03.2020, Side 16

Morgunblaðið - 03.03.2020, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020 Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell gæða lofthreinsitæki Hreint loft - betri heilsa Loftmengun er hættuleg heilsu og lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki eru góð við myglu-gróum, bakteríum, frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum. Verð kr. 18.890 Verð kr. 49.920 Verð kr. 35.850Verð kr.15.960 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195 Ég er heimagangur í húsi í Smáíbúðahverf- inu. Þar býr móðir með 8 ára syni sínum. Venju- lega kem ég í heimsókn síðdegis og fyrsta lífs- mark sem ég sé innan- dyra er oftar en ekki 2- 3-4 félagar og jafn- aldrar, sem sitja í röð í sófa með stýritæki í höndum, önnum kafnir við þátttöku í leikjum sem birtast á sjónvarpsskjá og allir taka þátt í, ell- egar hver og einn grúfir sig yfir sinn einkaskjá og glímir við þau viðfangs- efni, sem þar hafa verið kölluð fram. Þetta eru ekki hljóðlausar samkomur, því bæði láta sófasitjendurnir dæluna ganga eins og þeim þykir tilefni til og svo birtast fyrirskipanir og leikhljóð linnulaust úr búnaði tækjanna. Þarna situr sem sagt kurteist og mjög við- kunnanlegt ungt fólk, 8 ára gamalt eða þar um bil, en það er eins gott fyr- ir hinn nýkomna gest að búast ekki við miklum undirtektum við kveðju úr dyragættinni; það má ekki vænta þeirrar slökunar á einbeitingunni. Það skynsamlegasta – og áhugaverð- asta – sem gesturinn getur gert er að láta lítið fyrir sér fara og fylgjast með því, sem um er að vera. Allar fyr- irskipanir og verklýsingar úr leik- tækjunum – eða af stórskjánum – eru á ensku, sem keppendur í sófanum taka sem sjálfsögðu og auðskiljanlegu og samtal þeirra er jafnframt í fullum gangi eins og við á hverju sinni. Þetta samtal fer fram á því sem kalla mætti viðeigandi talmál aldursflokksins með tilliti til viðfangsefna stundarinnar. Gömul eyru gestsins meta það svo, að beinagrind þessa talmáls sé venjuleg eldhúsíslenska, en kjötið á beinunum sé orðaforði úr þeirri ensku, sem flæðir úr hinum tæknilega umbúnaði leikjanna. Þarna eru sem sé nem- endur úr 3. bekk íslenska grunnskól- ans að leika sér í tómstundum heima fyrir, og gestinum verður flest auðles- ið og ákaflega jákvætt í þeirri fé- lagslegu mynd sem ber fyrir augu. Hann gerir sér fullkomlega ljóst að ef honum hefði opnast tilboð um viðlíka afþreyingu þegar hann var 8 ára, árið 1942, hefði ekkert nema stíft valdboð getað komið í veg fyrir þátttöku hans. En hún hefði þurft nokkra aðlögun, bæði hvað tiltektir og tungu- tak snertir. 1942 lék hann sér 8 ára með sín- um jafnöldrum og með þeim tólum og tali, sem sá tími bauð – og nú verður gestinum, nefni- lega mér, hugsað til afa síns, sem var fæddur 1865. Hvernig ætli mín viðbrögð hefðu orðið ef ég hefði, 8 ára gamall, lent í félagsskap með Sigurði Hinrikssyni og jafnöldrum hans árið 1873? Ég geri því skóna að viðbrögðin hefðu orðið áþekk 1873 og 1942 eins og þau eru núna, í upphafi árs 2020. Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma, segir Prédikarinn – og líka: – að þegja hefur sinn tíma og að tala hefur sinn tíma. Eða með orðum séra Hall- gríms: Sérhvað hefur sína tíð svo er að hlæja og gráta. Hóf er best, hafðu á öllu máta. Hver kynslóð hefur sitt tungutak, tungumálið er lifandi afl og lætur ekki sérstaklega að vilja eins eða neins, því munu engir þrælar vanans fá breytt – en það má hafa á því skoðun. Ég met hina „almennu skoðun Ís- lendinga“ þannig, að fólk vilji geta sagt það sem því sýnist, hvernig sem því sýnist og þegar því sýnist. Og svo eigi eftirfylgjan að geta verið sú að setja hvaðeina fram í ritmáli – hve- nær sem er og með hvaða hætti sem er. Vafalítið var þetta einnig upp á sinn máta hin ríkjandi skoðun bæði 1873 og 1942. Hin stóra breyting felst í flæði tungumálsins, því álykta má að talmál og ritmál séu á merkilegan hátt að renna saman fyrir atbeina tækninnar. Það er ófyrirsjáanlegt hvert sú málfarsþróun leiðir, en það er ekki lífvænleg þróun ef talmál og ritmál þjóðtungu fjarlægjast hvort annað. Umræðan um stöðu tungunnar er öflug og sífelld á Íslandi og ég þykist hafa fylgst með þeirri umræðu af áhuga í uppundir 70 ár, stundum þóst taka þátt í henni. Sú umræða hefur mér alltaf þótt einkennast af því að þátttakendur halda fast við að ræða um eggið en vilja hafa sem minnst af hænunni að segja. Staða bókmáls er fyrir öllu, það er í gangi stórmikið lestrarátak sem beinist að börnum, einkum drengjum eins og þriðjubekk- ingunum í Smáíbúðahverfinu, en um tungutakið er sjaldan rætt; staða bók- arinnar og almennt læsi er mikið áhyggjuefni – en hver er staða ís- lenska samtalsins og iðkunar þess? Um síðustu mánaðamót nóvem- ber-desember var birt PISA- könnunin. Viðbrögðin voru um- svifalaus – á fyrri helmingi aðventu voru fjölmiðlar undirlagðir. Formað- ur Skólastjórafélags Íslands taldi út- komuna undirstrika að við værum ekki á réttri leið, við hefðum lagt meiri áherslu á íslensku en stærð- fræði; á sömu blaðsíðu Fréttablaðsins taldi forstöðumaður samkeppn- ishæfnisviðs Samtaka atvinnulífsins að stytting grunnskóla gæti verið lausnin. Í Morgunblaðinu kveðst menntamálaráðherra hafa kynnt að- gerðir sem miði að því að efla mennta- kerfið, ekki síst með aukinni áherslu á námsorðaforða og starfsþróun kenn- ara. Doktor í raddmeinafræðum telur að versnandi árangur íslenskra nem- enda í PISA-könnun megi rekja til hávaða í kennslustofum, og loks segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir í viðtali við einn af fréttastjórum Morg- unblaðsins í árslok, undir yfirskrift- inni „Menntun reddast ekki“: „Við getum með öðrum orðum ekki gert ráð fyrir því að nemendur læri ís- lensku af sjálfu sér, bara af því að búa á Íslandi.“ Hvergi í þessum samræðum er hið talaða orð gert beinlínis að umræðu- efni. En unga kynslóðin heldur áfram sínu samtali, mótuðu af þeim fyr- irmyndum sem umhverfið býður – því svo læra börnin málið sem það er fyr- ir þeim haft. Mál með vexti … Eftir Hinrik Bjarnason »Hver kynslóð hefur sitt tungutak, tungu- málið er lifandi afl og lætur ekki sérstaklega að vilja eins eða neins, því munu engir þrælar vanans fá breytt. Hinrik Bjarnason Höfundur er eftirlaunaþegi með fortíð í fræðslustarfi og fjölmiðlun. Það var fyrir skemmstu að ég ákvað að gera mér smá dagamun á sunnudegi enda var ekkert á döf- inni en veður var frek- ar leiðinlegt. Ég ákvað að draga börnin frá sjónvarpinu og fara í Kolaportið með fjöl- skyldunni. Við búum í Keflavík og þetta er því svona u.þ.b. klukkutíma akstur að komast alla leið niður á Reykja- víkurhöfn. Ég hef ekki farið í Kolaportið í langan tíma og aldrei síðan ég fékk drengina til fósturráðstöfunar og hefði þetta því átt að verða fyrsta skipti mitt og konunnar með drengina í Kolaportinu. Þar sem konan var mjög kvefuð var ákveðið að leggja ekki langt í burtu heldur sem næst, þar sem veður var eins og fyrr er getið frekar leiðinlegt. Eftir að hafa hringsólað um svæðið í meira en hálftíma í leit að bílastæði ákvað ég að nú þyrfti konan bara að þola smá kulda og hroll, ég myndi leggja úti á höfn og hún gæti bara gengið yfir göt- una. En þá blasti við körfubolta- völlur sem þakti hálft gamla bíla- stæðið. Hinn hluti bílastæðisins var lokaður af og merktur einka- stæði. Því varð raunin að ekki var farið í Kolaportið þann daginn (né nokkurn tímann í framtíðinni er ég hræddur um) og drengirnir voru hundfúlir að hafa keyrt alla leið til Reykjavíkur frá Keflavík til þess eins að keyra beint heim aftur. Ég fór hins vegar í kaffi til bróður míns svo að ferðin færi ekki til ónýtis. En margar spurningar vöknuðu við þetta hringsól mitt í kringum Kolaportið. Ég minnist bíómynd- arinnar American History X þar sem menn spiluðu jú körfubolta utanhúss, en það var í Ameríku á sólríkum degi. Hins vegar búum við á Íslandi þar sem sólríkir dag- ar eru sjaldgæfir. Auk þess efa ég að margir hafi áhuga á að spila körfubolta við Sæbrautina og allan útblásturinn sem henni fylgir. Mér er því lífsins ómögulegt að skilja hvers vegna þessi körfuboltavöllur var gerður, en hann var þakinn snjó á þessum degi og engin merki í snjónum um mannaferðir. Bíla- stæði voru þó öll út í fótsporum sem eru skýr merki um manna- ferðir. Þá hugsa ég með hryllingi til byrjunar hverjar annar í Háskóla Ís- lands þar sem bíla- stæðin eru nær öll yf- irfull þegar maður hefur keyrt þangað úr Keflavík. Á haust- in er svo hálft bíla- stæðið við HÍ und- irlagt fyrir fyllerísraus engum til bóta. Ofan á þetta ætla þeir að bæta við nýju sjúkrahúsi við Hringbraut, ef til vill dýrasta svæðinu sem mögulegt er að byggja nýtt sjúkrahús. Á sama tíma gasprar borgarmeirihlutinn oftar en ekki um þéttingu byggðar sem er ekki til þess að leysa málið. Þegar Sigurður Ingi færði Fiski- stofu til Akureyrar tók hann þó skref í rétta átt að mínu mati. Ís- land árið 2020 er ekki Bretland ár- ið 1820 þar sem stofnanir þurftu að vera í nægilegri fjarlægt hver frá annarri svo að hægt yrði að senda stráklinga með rituð skila- boð á milli. Til þess höfum við nú internetið og það er því ekki nokk- ur ástæða til þess að flestar stofn- anir íslensku þjóðarinnar séuallar samanþjappaðar inni í kjarna Reykjavíkur. Nú höfum við tæknina sem þarf til að vega á móti miðsvæðisvæð- ingu. Netverslun hefur t.d. orðið áberandi upp á síðkastið og versl- anir í miðbænum vafalítið ekki far- ið varhluta af því. Ef til vill í fram- tíðinni verða verslanir miðbæjarins eingöngu með sýningarvarning og lagerinn sjálfur keyður heim til kaupenda úr vöruskemmum í Mos- fellsbæ, en markaðshagkerfið ræð- ur því miður ekki hvernig opinber- ar stofnanir eru reknar og hagræðingin kemur því eingöngu til vegna pólitískra ákvarðana. Því finnst mér þurfa að gera úttekt á hinum ýmsu stofnunum ríkisins og ríkisstyrktum stofnunum (t.d. Sysavarnaskóla sjómanna), hvort ekki sé verið að sóa óþarfa fjár- munum í dýrt húsnæði miðsvæðis í Reykjavík þegar ódýrari kostir eru til annars staðar, mögulega án gjaldskyldra bílastæða. Miðbæjarferð Eftir Arngrím Stefánsson Arngrímur Stefánsson »Reynsla mín af einni bæjarferð ásamt að- finnslum um skipulags- mál miðbæjarins og íhuganir um framtíðina. Höfundur er guðfræðingur. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.