Morgunblaðið - 03.03.2020, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARS 2020
„JÆJA, ÞÚ SAGÐIST VILJA GRÆÐA
EITTHVAÐ. HUGSAÐU NÚ VEL UM HANA!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að elska þig svona
mikið.
HVAÐ HAFA HUNDAR SEM
KETTIR HAFA EKKI?
INNBYGGT
RAKATÆKI
VIÐ
MISSTUM
TÍU MENN Í
DAG!
Æ, NEI! ÞJÁÐUST
ÞEIR?
NEI! ÞEIR LÖGÐU Á FLÓTTA
OG HLUPU HRAÐAR EN ÉG SVO
ÉG NÁÐI ÞEIM EKKI!
„VIÐ NOTUÐUM STIGA ÞEGAR VIÐ
VORUM Á NÁMSKEIÐINU Í HÓPEFLI EN
ÞETTA ER Í GRUNNINN ÞAÐ SAMA.”
f. 11.7. 1998, tónlistarkona og nemi í
leiklist við LHÍ; 3) Embla Rún, f.
21.9. 2001, nemi við Menntaskólann
við Hamrahlíð.
Systkini Helgu Rutar eru Dóra
Guðrún Guðmundsdóttir, f. 26.5.
1974, sálfræðingur og sviðsstjóri lýð-
heilsu hjá embætti landlæknis, bú-
sett í Reykjavík; Anna Kristín Guð-
mundsdóttir, f. 21.3. 1979,
sérfræðingur hjá Íslandsbanka, bú-
sett í Reykjavík; Laufey Fríða Guð-
mundsdóttir, f. 2.3. 1984, markaðs-
fræðingur og flugfreyja, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Helgu Rutar eru hjónin
Elín Einarsdóttir, f. 5.4. 1948, fyrr-
verandi sérkennari og námsráðgjafi,
og Guðmundur Ingi Leifsson, f.
23.12. 1946, fyrrverandi skólastjóri
og fræðslustjóri. Þau eru búsett í
Kópavogi.
Helga Rut
Guðmundsdóttir
Sigurður Einarsson
bóndi á Hjaltastöðum
Margét Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Hjaltastöðum
í Blönduhlíð í Skagafirði
Leifur Sigurðsson
járn- og rennismiður í Rvík
Friðrika Elíasdóttir
húsmóðir og kjóla-
saumakona í Reykjavík
Guðmundur Ingi Leifsson
fv. skólastjóri og fræðslu-
stjóri, bús. í Kópavogi
Elías Sigurðsson
sjómaður í Bolungarvík
Halldóra Ástríður
Guðmundsdóttir
húsmóðir og
verkakona í Hafnarfirði
Guðmundur
Einarsson
kennari, bús. í Svíþjóð
Helga Magnúsdóttir barna- og söngkennari og
skólastjóri við Ísaksskóla, einn stofnenda og
forstöðukona sumarbúða KFUK í Vindáshlíð
Halldór Sigurðsson gullsmiður
á Skólavörðustíg,Rvík
Einar Th.
Guðmundsson
óperusöngvari í
Austurríki
Magnús Guðmundsson
prestur í Ólafsvík
Rósa Thorlacius Einarsdóttir
ljósmóðir og prestsfrú í Ólafsvík
Einar Th. Magnússon
skrifstofumaður hjá
Eimskip í Rvík
Petrína Steinadóttir
húsmóðir og verslunarkona í Rvík
Steini Helgason
verslunarmaður í Reykjavík
Elín Helgadóttir
húsmóðir og rak
verslun í Rvík
Úr frændgarði Helgu Rutar Guðmundsdóttur
Elín Einarsdóttir
fv. sérkennari og
námsráðgjafi, bús. í Kópavogi
Magnús frá Sveinsstöðum hefurað undanförnu verið með frá-
sögn af síðustu aftöku á Íslandi í
Landnámssetrinu í Borgarnesi.
Sýningin heitir „Öxin, Agnes og
Friðrik“. Við Sölvi Ólafsson frændi
minn skutumst upp eftir og
skemmtum okkur vel. Það kom mér
satt að segja á óvart hversu góður
sögumaður Magnús er.
Fyrsta sýning Magnúsar var 12.
janúar þegar 190 ár voru frá síð-
ustu aftökunni, síðan hafa margar
verð haldnar og ávallt fyrir fullu
húsi. Og nú er búið að auglýsa þrjár
næstu sýningar 7., 14. og 15. mars.
Nánar á www.landnam.is.
Magnús kryddar frásögnina með
vísum eftir sig og aðra. T.d. þegar
hann er að lýsa Natani Ketilssyni og
samskiptum hans við hjónin Skáld-
Rósu og mann hennar Ólaf, en á
þeirra heimili bjó hann í nokkur ár:
Aldrei í skírlíf’ lét skína,
á Skáld-Rósu leit hann sem sína.
En Ólafur þagði,
þar til hann sagði,
þú átt víst krakkana mína.
Magnús segir frá því að ýmsir
hafi reynt að ráða Agnesi Magn-
úsdóttur frá því að fara til Natans
að Illugastöðum, en ekkert stöðvi
ástfangna stúlku í að fara til elsk-
huga síns:
Allt er lífið eintómt rugl,
ógnar sting í hjarta finn.
Oft er það sem fagur fugl,
flýgur beint í hundskjaftinn.
Magnús nefnir að Skáld-Rósa
hafi skrifað Natani langt ljóðabréf
þegar hún var að missa hann og
Agnes á leið til Natans frá Geita-
skarði í Langadal. Fer þá með þessa
vísu Skáld-Rósu:
Glöggur maður gáðu að þér
gæfu mun það varða.
Máske þyrna beitta ber
blómið Kiðjaskarða.
Meðan Agnes beið dóms var hún
á Stóru-Borg. Rósa kom þar og
kvað þessa vísu til Agnesar:
Undrast þarft ei, bauga brú!
þó beiskrar kennir pínu;
hefur burtu hrifsað þú
helft af lífi mínu.
Agnes svaraði samstundis:
Er mín klára ósk til þín,
angurs tárum bundin:
Ýfðu ei sollin sárin mín,
sólar báru hrundin.
Sorg ei minnar sálar herð!
Seka Drottins náðar,
af því Jesús eitt fyrir verð
okkur keypti báðar.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Góður sögumaður
segir frá