Morgunblaðið - 18.03.2020, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta er búið að vera mikill hasar
og það er lítið sofið þessa dagana,“
segir Guðmundur Magnason, for-
stjóri Heimkaupa.
Mikil aukning hefur verið í net-
verslun með matvöru eftir að kór-
ónuveirufaraldurinn kom upp. Síðan
ljóst varð að samkomubann yrði sett
á í byrjun vikunnar hefur enn frek-
ari aukning orðið og verslanir eiga
erfitt með að anna eftirspurn.
„Það hefur verið fjórfalt eða
fimmfalt meiri sala í matvöru en var
áður,“ segir Guðmundur sem segir
að mikið af ferskvöru, svo sem kjöti
og fiski, hafi selst upp um helgina.
Aukningin er slík að Guðmundur
hefur þurft að bæta við vakt í út-
keyrslu. „Við fengum Prime Tours í
lið með okkur en þeir sjá um keyrslu
fyrir ferðaþjónustu fatlaðra. Það er
gott að geta mannað þetta með ein-
hverjum sem þarf ekki að láta fara
þegar þessi törn er búin, þá fara þeir
bara aftur í sína vinnu. Áður keyrð-
um við út frá klukkan ellefu á
morgnana en núna byrjum við
klukkan níu og keyrum út til klukk-
an níu á kvöldin.“
Guðmundur kveðst merkja það að
eldra fólk sé nú farið að hætta sér út
á forað netverslunar og sé það fagn-
aðarefni. „Aukningin er hlutfallslega
langmest hjá fólki yfir sextugu.
Yngra fólkið var kannski bara komið
inn en nú hrúgast eldra fólkið inn.“
Mikil ásókn í störf hjá Nettó
„Það varð einfaldlega áhlaup í lok
síðustu viku en við náðum utan um
þetta aftur á mánudaginn,“ segir
Gunnar Egill Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri verslunarsviðs Nettó,
um netverslun fyrirtækisins.
Hann líkir ásókn Íslendinga á
þessum tíma við það þegar slegist
var um miða á landsleiki í aðdrag-
anda EM 2016. „Eftirspurnin var
bara margfalt meiri en við gátum
sinnt. Starfsfólk okkar lyfti þó grett-
istaki og kom okkur í gegnum skafl-
ana,“ segir Gunnar en loka þurfti
fyrir pantanir klukkan 16 á föstudag
og fyrir hádegi á laugardag og
sunnudag. Þá var ekki svigrúm til að
afgreiða fleiri pantanir þá daga.
Gunnar segir að búið sé að teikna
upp sviðsmyndir um það hvernig
verslun geti þróast næstu vikurnar.
Enn sé mikil aukning í spurn eftir
heimsendingu á matvöru. Nettó aug-
lýsti eftir starfsfólki um helgina og
hátt í 300 umsóknir bárust. Gunnar
segir að augljóst sé að margir fram-
halds- og háskólanemar sjái sér hag
í því að vinna meðfram námi á næst-
unni. Þá hafi Aha, sem sér um út-
keyrslu fyrir Nettó, keypt tíu nýja
bíla að undanförnu.
„Í dag höfum við ekki áhyggjur af
því að það vanti fólk til að vinna hjá
okkur og keyra út. Flöskuhálsinn er
aðstæður. Við höfum ekki nægilegt
rými fyrir pantanir, kæla og frysti-
aðstöðu til að geyma pantanir,“ segir
Gunnar.
Hann segir að áskorunum sem
þessum fylgi alltaf eitthvað gott.
„Ég held að við séum nú að horfa á
neyslubreytingu til frambúðar. Við
munum trúlega taka inn fimm ára
þróun netverslunar á næstu sex
mánuðum. Núna erum við komin á
þann stað sem ég bjóst við að við
værum á eftir fimm ár.“
Brauð og matur í heimsendingu
Veitingamenn bregðast nú við
breyttum aðstæðum sem skapast af
samkomubanninu. Þannig var til-
kynnt í gær að Grandi Mathöll hefði
opnað fyrir pöntunarþjónustu á net-
inu. Hægt er að panta og sækja eða
fá sent heim af veitingastöðum í
mathöllinni í gegnum vefsíðu henn-
ar. Fyrst um sinn verður sent heim í
póstnúmerin 101, 102, 105, 107 og
170 en samkvæmt tilkynningu bæt-
ast fleiri póstnúmer við bráðlega. Þá
býður Björnsbakarí nú heimsend-
ingu í póstnúmerum 101, 107 og 170.
Bæta við vakt
til að geta ann-
að eftirspurn
Sprenging í matarsendingum hjá
Heimkaupum Plássleysi hrjáir Nettó
Morgunblaðið/Eggert
Netverslun Bílstjórar Heimkaupa
höfðu í nógu að snúast í gær.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta gekk nú bara mjög vel. Við
einfölduðum skólastarfið mjög mikið
og vonumst með því eftir að geta
haldið lengur úti einhverri þjón-
ustu,“ segir Magnús Þór Jónsson,
skólastjóri í Seljaskóla.
Fyrsti kennsludagur var í skólum
í gær eftir að samkomubann gekk í
gildi. Misjafnt er eftir skólum hvern-
ig starfið er útfært en algengt er að
þeir séu tvísetnir og nemendur séu
um það bil 2-3 klukkustundir í skól-
anum í senn.
Magnús segir að Seljaskóla hafi
verið skipt upp í svæði og inngangar
séu afmarkaðir. „Foreldrar hafa
greinilega lesið öll tilmæli skilmerki-
lega og krakkarnir voru afslappaðir
og nutu þess að vera hérna. Það er
nú stóra málið, að finna þeim vett-
vang til að hittast og líða vel,“ segir
hann.
Mikið er lagt upp úr þrifum í skól-
um og segir Magnús að þar eð að-
standendur nemenda í Seljaskóla
hafi snemma greinst með kórónu-
veiruna sé fyrir nokkru búið að upp-
færa þrifaáætlun.
Þó vel hafi gengið fyrsta daginn
verði að taka einn dag í einu. „Þetta
er heljarinnar verkefni en ég er
heppinn með starfsfólk. Við förum
eftir tilmælum landlæknis og fólk
sem er með undirliggjandi sjúkdóma
heldur sig heima. Ég missti eina tíu
þannig og svo er fólk að fara í
sóttkví,“ segir Magnús.
Ekkert skólastarf var í Háteigs-
skóla í Reykjavík í gær eftir að tveir
kennarar við skólann og starfsmaður
í félagsmiðstöð greindust með kór-
ónuveiruna. Tugir kennara og nem-
enda hafa verið sendir í sóttkví.
Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla-
og frístundasviðs Reykjavíkurborg-
ar, sagði síðdegis í gær að allir væru
að fóta sig í þessu nýja landslagi og
kvaðst ekki vita annað en fyrsti dag-
urinn hafi gengið þokkalega fyrir sig
í skólum borgarinnar. „Ég veit að
það kom einhverjum foreldrum á
óvart að ekki væri veitt meiri þjón-
usta en raun bar vitni. Fólk hefur
verið að bera sig saman og sér að
lengd og skipulag skólastarfs er mis-
munandi eftir skólum. Skýringin er
einfaldlega sú að skólabyggingar eru
ólíkar og staðan í starfsmannamál-
um er það líka. Krafan um fjölda
nemenda skýrir þessa uppskiptingu
sem víða er. Þetta er bara eðlilegt.
Seinast þegar menn voru í svona
stöðu, 1918, var grunnskólunum
bara lokað. Fólk er vant góðri þjón-
ustu og því eru þetta mikil við-
brigði.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Seljaskóli Nemendur biðu úti eftir að vera hleypt inn í gærdag. Sumir voru með grímur og hreinlætis var gætt.
Krakkarnir afslappað-
ir í breyttu umhverfi
Skólastarf hófst á ný í gær eftir að samkomubann tók gildi
Heilbrigðisráðherra getur veitt
undanþágu frá takmörkun á skóla-
starfi vegna farsóttar ef ekki er
talin hætta á að slíkt fari gegn
markmiðum opinberra sóttvarna-
ráðstafana. Þegar liggja fyrir úr-
skurðir í þremur slíkum málum.
Umsókn MK um undaþágu fyrir tvo
hópa nemenda, annars vegar nem-
endur með einhverfu á starfsbraut
og hins vegar fyrir kennslu í Krýsu-
vík, var samþykkt.
Svalbarðsstrandarhreppur ósk-
aði eftir undanþágu sökum fá-
mennis og var umsóknin samþykkt
með þeim skilyrðum meðal annars
að a.m.k. tveir aðskildir nem-
endahópar yrðu í leikskóla og tveir
aðskildir nemendahópar í grunn-
skóla. Beiðni Fjölbrautaskólans á
Norðurlandi vestra um undanþágu
fyrir kennslu á málm-, raf- og
tréiðnadeild var aftur á móti hafn-
að.
Tveir skólar fá undanþágu
ÚRSKURÐIR HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
Dolorin
Hita- og verkjastillandi paracetamól
Á HAGSTÆÐUVERÐI!
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is
Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli
fyrir notkun lyfsins.
Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari
upplýsingumumáhættuogaukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Nýjar umbúðir
Dolorin500mg
paracetamól töflur -
20stkog30stk
Ferðafélag Íslands
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S. 568 2533 | www.fi.is
Aðalfundur
Ferðafélags Íslands
verður haldinn miðvikudaginn 25. mars
kl. 20 í sal félagsins Mörkinni 6.
Hefðbundin aðalfundarstörf
Stjórnin.
Fundinum verður streymt á facebók / Ferðafélag Íslands
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR
Foreldrar og aðrir forráðamenn
nemenda grunnskóla Seltjarnarness
fengu í gær orðsendingu um það frá
skólastjóranum, Ólínu Elínu Thor-
oddsen, að skólinn yrði lokaður þar
til yfirstandandi verkfall Eflingar og
sveitarfélaganna leystist. Fyrr væri
ekki hægt að þrífa skólahúsnæðið.
„Þar sem ekki hefur verið boðað til
nýs samningafundar verður skólinn
áfram lokaður þar til verkfallið leys-
ist. Þetta gildir um allt skóla- og frí-
stundastarf,“ sagði í orðsendingunni.
Í skólanum eru um 600 nemendur
á tveimur starfsstöðvum og starfs-
menn um 120.
Grunnskól-
inn áfram
lokaður
Ekki er hægt að
þrífa skólahúsnæðið