Morgunblaðið - 18.03.2020, Side 6

Morgunblaðið - 18.03.2020, Side 6
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. Teitur Gissurarson Jón Pétur Jónsson Alls höfðu 240 smit vegna kór- ónuveirunnar verið staðfest þegar Morgunblaðið fór í prentun í gær- kvöld. Af þeim lágu þrír á sjúkra- húsi en fimm höfðu náð sér. Þá voru 2.230 í sóttkví. „Hlutfall jákvæðra sýna frá veiru- fræðideildinni er um 10% en frá De- Code um 1% sem er vísbending um samfélagslegt smit. Veiran er að greinast í fjórum landshlutum sem kemur ekki á óvart. Við bjuggumst við því að dreifingin færi víða.“ Þetta var á meðal þess sem Þór- ólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á blaðamannafundi sem al- mannavarnadeild Ríkislög- reglustjóra boðaði til í gær vegna kórónuveirunnar. Einblína á þá sem greinast Þrátt fyrir að fimm væru nú út- skrifaðir sagði Þórólfur að honum þætti það ekki stórt atriði að ein- blína á þá sem hefði batnað. „Við eigum að einbeita okkur að öðrum hlutum heldur en þeim hversu stór hópurinn er sem hefur batnað. Við þurfum að einblína á þá sem eru að greinast og þá sem veikjast alvar- lega og þurfa á spítala að halda. Hvort það eru fjórir, fimm eða sex sem hefur batnað finnst mér vera aukaatriði vegna þess að flestir sem eru að sýkjast eru með væg ein- kenni.“ Á fundinn voru mætt ásamt Þór- ólfi Víðir Reynisson yfirlögreglu- þjónn og Alma D. Möller landlæknir ásamt Steingerði Sigurbjörnsdóttur barnageðlækni. Ekki hamstra lyf Alma hóf mál sitt með því að und- irstrika að birgðir lyfja hefðu verið auknar vegna kóróuveirufaraldurs- ins og biðlaði til fólks að vera ekki að hamstra lyf. „Við minnum í fyrsta lagi lækna á ábyrgð sína þ.e. að ávísa hóflegu magni.“ Þá minnti hún lyfjafræðinga á að afgreiða ekki meira af lyfjum en venjulega. „Lyf eru auðvitað ekki eins og hver önnur neysluvara,“ sagði hún aukinheldur og biðlaði til almennings að sýna ábyrgð þegar kæmi að lyfjakaupum. Þá minntist Alma á bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar, en nú væru 400 skráðir í hana. 133 hjúkr- unarfræðingar, 132 sjúkraliðar, 60 læknar, 34 sjúkraflutningamenn, 34 lyfjafræðingar, 7 lyfjatæknar og geislafræðingar myndu brátt bætast í hópinn. Fer ekki fram hjá börnum Sem fyrr segir var á fundinn mætt Steingerður Sigurbjörnsdóttir barnageðlæknir sem ræddi um geð- heilsu barna á þeim óvenjulegum tímum sem nú ganga yfir og benti hún á að hætt væri við því að áhyggjur barna gætu aukist vegna umræðu foreldra eða frétta. „Börn hafa auðvitað ekki misst af því sem er í gangi,“ sagði hún og bætti við að til þess að hjálpa börnum væri mik- ilvægt að hvetja þau til að halda þeirri rútínu sem hægt væri að halda. Hvetja skyldi þau til að fara í skólann og sinna námi, sofa nóg, fá hollan mat og hreyfa sig. Að auki sagði Steingerður að mikilvægt væri að hvetja börn og unglinga til að hitta vini sína. Hrós frá Þórólfi og Ölmu Eftir að hafa farið yfir stöðuna hrósaði Þórólfur almenningi, fyr- irtækjum og stofnunum fyrir það hvernig þau hefðu útfært samkomu- bannið sem hófst í fyrradag og tak- markanir á skólahaldi sem settar voru á laggirnar. „Ég er mjög hrif- inn af því hvernig menn hafa tekið á þessu. Auðvitað skapar þetta mikil vandamál á mörgum stöðum og við höfum verið í samskiptum við fjöl- marga en það er mjög ánægjulegt að sjá hversu margir vilja leggja lóð sitt á vogaskálina til þess að reyna sem mest að takmarka útbreiðslu þessarar veiru.“ Alma D. Möller tók í svipaðan streng „Ég ætla að bæta aðeins í hrósið frá Þórólfi,“ sagði hún og minntist á að mikið hefði verið rætt um mikilvægi persónulegs hrein- lætis og vönduð þrif, bæði heima fyrir og á fjölförnum stöðum. „Ég vil þakka öllu því góða fólki sem sér um þrif, og mikið mæðir á, kær- lega.“ Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 3 23 Útlönd 0 4 Austurland 0 4 Höfuðborgarsvæði 222 1.636 Suðurnes 5 101 Norðurland vestra 0 2 Norðurland eystra 1 102 Suðurland 16 372 Vestfirðir 0 13 Vesturland 0 25 Smit Sóttkví Fjöldi daglegra smita frá 28. febrúar 28.2. 29.2. 1.3. 2.3. 3.3. 4.3. 5.3. 6.3. 7.3. 8.3. 9.3. 10.3. 11.3. 12.3 13.3. 14.3. 15.3. 16.3. 17.3. 1 1 2 8 5 13 9 8 6 6 9 13 24 15 19 22 19 18 49 17. mars kl. 20.30 Upplýsingar eru fengnar af Uppruni smits Innanlands Erlendis Óþekktur 28%20% 52% 247 staðfest smit 2.282 í sóttkví 2.278 sýni 247 í einangrun 3 á sjúkra-húsi Áherslan verður á þá sem veikjast  Kórónuveiran greinst í fjórum landshlutum  „Lyf eru ekki eins og hver önnur neysluvara“  „Börn hafa auðvitað ekki misst af því sem er í gangi“  400 í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu Ljósmynd/Lögreglan Upplýsingum miðlað Frá blaðamannafundi sótttvarnalæknis og Almannavarna sem haldinn var í Skógarhlíð í gær. Erlendur ferðamaður sem leitaði til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík vegna alvarlegra veikinda í fyrradag reyndist smitaður af kór- ónuveirunni og lést stuttu eftir komu. Á blaðamannafundi um miðjan dag í gær sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að ekki lægi fyrir hvort dánarorsökin tengdist kórón- uveirunni og að þörf væri á frekari rannsóknum til að skera úr um það. Hann taldi þó fremur ólíklegt að andlátið tengdist því að maðurinn væri smitaður af kórónuveiru miðað við þau einkenni sem greint hefði verið frá. Sagði hann, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld að ekki hefðu borist neinar nýjar upplýsing- ar varðandi það hvernig andlát mannsins bar að höndum. Sótthreinsa stöðina „Okkur bárust þær fréttir í morg- un af Norðurlandi að einn erlendur ferðamaður hefði látist þar í gær nokkuð skyndilega með einkenni sem bar brátt að. Það var ákveðið að taka sýni frá þessum einstaklingi og það reyndist vera jákvætt fyrir CO- VID-19 og sömuleiðis frá eiginkonu hans sem var á ferðalagi með honum. Þessi einstaklingur sem lést hafði ekki verið með nein einkenni um CO- VID-sýkinguna, þannig að frekari rannsókna er þörf á því hvort ein- hver tengsl eru á milli COVID og andlátsins,“ sagði Þórólfur á fund- inum í gær. Í tilkynningu sem kom frá stjórn- stöð Almannavarna vegna andláts mannsins sagði m.a. að margþætt vinna tæki nú við, bæði varðandi andlát mannsins og stuðning við hans nánustu. Þá þyrfti að setja þá heilbrigðisstarfsmenn sem komu að meðferð mannsins í sóttkví, sótt- hreinsa heilsugæslustöðina ásamt því að tryggja nauðsynlega heil- brigðisþjónustu fyrir Húsvíkinga. Kórónusmitaður ferðamaður lést  Ekki vitað hvort andlátið tengist kórónuveirunni Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Húsavík Starfsmennirnir sem komu að meðferð mannsins fara í sóttkví.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.