Morgunblaðið - 18.03.2020, Síða 12
Heimild: WHO/Samantekt AFP * 15. mars
Fjöldi tilfella kórónuveirusýkinga í mars
Lönd þar sem vöxturinn hefur verið hraðastur
Ítalía
ÍTALÍA FRAKKLAND
Sjúklingur fluttur á nýtt sjúkrahús
í Róm sem sérstaklega var reist fyrir
sjúklinga með COVID-19.
Mynd/Andreasa Solaro
Sacre Coeur hverfið í
Montmartre í París, 16. mars en
þá hafði öllum veitingahúsum
og kaffihúsum verið lokað
Mynd/Joel Saget
ÍRAN
Fólk bíður í röð eftir varnarbúnaði
gegn kórónuveirunni sem
vopnaðar sveitir hliðhollar
stjórnvöldum deila út
Mynd/AFP
Spánn
Íran
Sviss*
Þýskaland Frakkland
BANDAR.
BretlandKína
Suður-Kórea
SPÁNN
Hermaður sótthreinsar svæði á
flugvellinum í Málaga. Spænsk
stjórnvöld hafa sett útgöngubann
á í landinu
Mynd/Jorge Guerrero
Mars 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7.. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16.
4.000
3.000
2.000
1.000
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Leiðtogar Evrópusambandsríkj-
anna samþykktu á fundi sínum í gær
að þeir hygðust loka ytri landamær-
um sínum til næstu 30 daga. Þetta
varð niðurstaðan af leiðtogafundi
sambandsins, sem haldinn var með
fjarfundabúnaði vegna kórónuveiru-
faraldursins og tilkynnti Angela
Merkel Þýskalandskanslari um nið-
urstöðuna um kvöldmatarleytið í
gær. Ferðabannið mun ekki ná til
ríkisborgara EFTA-ríkjanna eða
Stóra Bretlands. Sagði Merkel jafn-
framt að ríki sambandsins myndu
samræma aðgerðir sínar til þess að
tryggja að allir ríkisborgarar sam-
bandsins sem nú væru strandaglóp-
ar gætu komist aftur til síns heima.
Ákvörðun leiðtoganna náði ein-
göngu til ytri landamæra Evrópu-
sambandsins og Schengen-svæðis-
ins, en 21 af þeim 26 ríkjum sem
mynda Schengen-svæðið höfðu þeg-
ar gripið til lokana á landamærum
sínum, annaðhvort að hluta til eða í
heild. Einungis Belgía, Ísland, Lich-
tenstein, Lúxemborg og Svíþjóð
höfðu ekki kosið að loka landamær-
um sínum.
Fyrr um daginn hafði nær algjört
útgöngubann gengið í gildi á hádegi í
Frakklandi en það mun standa
næstu tvær vikurnar. Er fólki ein-
ungis leyft að yfirgefa heimili sín til
að kaupa mat eða lyf og eru um
100.000 lögreglumenn á götum
franskra borga til að framfylgja
banninu. Áður höfðu Ítalir og Spán-
verjar sett á slíkt bann og einnig eru
vissar takmarkanir á ferðum fólks í
gildi í Þýskalandi. Voru götur borga í
þessum ríkjum nær tómar í gær.
Í „efnahagslegu stríði“
Ríki Evrópu gripu einnig til ým-
issa ráðstafana til þess að tryggja
efnahag sinn í gær. Sagði Bruno Le
Maire, fjármálaráðherra Frakk-
lands, að landið ætti í „efnahagslegu
stríði“ við kórónuveiruna, sem
myndi kalla á að öllum úrræðum rík-
isins yrði beitt til þess að takast á við
komandi kreppu. Væri franska ríkið
því reiðubúið að veita fjárhagsaðstoð
við frönsk fyrirtæki og starfsmenn
þeirra sem næmi allt að 45 milljörð-
um evra. „Ég mun ekki hika við að
beita öllum ráðum sem ég hef til að
verja stór frönsk fyrirtæki,“ sagði
Le Maire, og nefndi sem möguleika
að ríkið myndi hlaupa undir bagga,
kaupa hluti eða jafnvel þjóðnýta
fyrirtæki ef þörf krefði.
Þá ákváðu ítölsk stjórnvöld í gær
að þjóðnýta Alitalia, fyrrverandi rík-
isflugfélag Ítalíu, á ný, en faraldur-
inn hafði ýtt því á barm gjaldþrots.
Vestanhafs var einnig gripið til að-
gerða en Steve Mnuchin, fjármála-
ráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti
að sérstakur „neyðarpakki“ stjórn-
valda hefði verið sendur til þingsins
til samþykktar en gert er ráð fyrir að
um 850 milljörðum Bandaríkjadala
verði varið í fjárhagsaðstoð. Þá væri
í skoðun að senda á næstunni ávísun
til allra Bandaríkjamanna sem væru
undir hátekjumörkum.
Evrópuríkin skella í lás
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna 27 samþykkja að loka ytri landamærum sínum til 30 næstu daga
Útgöngubann víða í gildi í álfunni Tilkynnt um aðgerðir til þess að verja efnahaginn fyrir kreppu
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020
Forkosningar fyrir forsetakosning-
arnar í haust fóru fram í þremur
ríkjum Bandaríkjanna í gær, þrátt
fyrir að kórónuveirufaraldurinn
hefði sett strik í daglegt líf flestra
vestanhafs. Michael DeWine, ríkis-
stjóri í Ohio, ákvað hins vegar að
fresta forkosningunum í ríki sínu
fram til júnímánaðar vegna ótta við
að þær gætu valdið aukinni út-
breiðslu kórónuveirunnar.
DeWine, 73 ára gamall repúblik-
ani, hefur til þessa gengið lengra í
viðbrögðum gegn faraldrinum en
flestir kollegar hans, og sagðist Do-
ug Ducey, ríkisstjóri Arizona, til að
mynda vera efins um að betra færi
gæfist á að halda forkosningarnar
síðar á árinu.
Auk Arizona var einnig kosið í
Flórída-ríki og í Illinois, en í öllum
þremur ríkjum var Joe Biden, fyrr-
verandi varaforseti, talinn vera
öruggur með sigur, þó að kjörsókn
yrði í sögulegu lágmarki. Í Flórída
var til að mynda spáð mjög lítilli
kjörsókn vegna faraldursins, og
höfðu um tvær milljónir manna þeg-
ar greitt atkvæði utan kjörfundar.
Gangi spár hins vegar eftir er
næsta víst að Biden muni hafa tryggt
sér öruggt forskot á helsta keppi-
naut sinn, Bernie Sanders, sem
þyrfti þá að treysta á kraftaverk til
þess að geta unnið útnefningu
Demókrataflokksins.
Washington-ríki til Bidens
Róðurinn varð enn þyngri fyrir
Sanders þegar tilkynnt var í gær-
morgun að talningu væri næstum
lokið í Washington-ríki á vestur-
strönd Bandaríkjanna, en forval
þess fór fram fyrir rúmri viku.
Reyndist Biden hafa unnið naum-
an meirihluta gildra atkvæða í rík-
inu, sem talið var hliðhollt Sanders,
og bætti varaforsetinn fyrrverandi
því enn við forskot sitt í fjölda kjör-
manna. sgs@mbl.is
Ekki kosið í Ohio
vegna veirunnar
Róðurinn þyngist fyrir Sanders
AFP
Frambjóðendur Biden og Sanders
heilsuðust með olnbogunum í kapp-
ræðum sínum á sunnudagskvöldið.
.
DUKA.IS
GJAFAVARA | HEIMILIÐ | ELDHÚSIÐ | SMÁFÓLKIÐ | TEXTÍLVÖRUR
20% afsláttur
af ÖLLU í netverslun
duka.is
Tilboð gildir 16. -22. mars
Enginn sendingarkostnaður
Sendum um allt land
Opið allan sólarhringinn
ICQC 2020-2022