Morgunblaðið - 18.03.2020, Page 15

Morgunblaðið - 18.03.2020, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 Veirutímar Hvarvetna í Reykjavík sjást merki um áhrif kórónuveirufaraldursins. Hér eru ferðamenn með maska á gatnamótum Austurstrætis og Pósthússtrætis. Eggert „… í fyrsta lagi vil ég undirstrika þá staðföstu trú mína að það eina sem við höf- um að óttast er … óttinn sjálfur – nafnlaus, órökstudd, órökræn hræðsla sem lamar viðleitni okkar að snúa vörn í sókn.“ Þannig komst Franklin D. Roosevelt, 32. forseti Bandaríkjanna, að orði í innsetningaræðu sinni í mars 1933 – fyrir 87 árum. Líkt og flest lönd heims glímdu Bandaríkin við alvar- lega efnahagskreppu. Þá líkt og nú þurfti leiðtoga til að stíga fram, taka forystu, stappa stálinu í al- menning og fyrirtæki, blása þeim bjartsýni í brjóst. Matthew Karanitschnig, blaða- maður vefritsins Politico, segir í upphafi fréttaskýringar síðastliðinn mánudag, að hafi COVID-19 kennt okkur eitthvað annað en mikilvægi hreinlætis, þá sé það að leiðtogar verði fórnarlömb farsótta. Hann saknar þess að enginn þjóð- arleiðtogi hafi stigið fram, tekið forystuna í baráttunni við illvígan vírus, þjappað þjóðum heims sam- an í stað þess að sundra. Margir hafi lokað eyrum og augum í marg- ar vikur gagnvart aðsteðjandi ógn – látið viðvaranir sérfræðinga sem vind um eyru þjóta. Heilbrigð- isvandinn en ekki síður efnahags- vandinn verði meiri í sundur- þykkum heimi. Samstarf á veikum grunni Síðustu daga hefur komið æ bet- ur í ljós hve alþjóðlegt samstarf stendur á veikum grunni þegar kreppir að. Nokkrum dögum eftir að hafa lýst því yfir að kórónuveiran sé eitt stórt pólitískt „gabb“ setti Donald Trump forseti bann við komu Evrópubúa til Bandaríkjanna (Bretar voru í fyrstu undanskildir). Í kjöl- farið tóku fjár- málamarkaðir enn eina dýfuna. Trump sætir þungri gagnrýni fyrir hvernig stjórnvöld hafa haldið á málum. Baráttan gegn vírusnum sé fálm- kennd og ómarkviss. Hægt og bít- andi hafa liðsmenn Trumps áttað sig á því að COVID-19 hefur grafið undan pólitískri stöðu forsetans á kosningaári. Ráðamenn í Evrópu, sem brugð- ust hart við ferðabanni Trumps, hafa í örvæntingu gripið til svip- aðra aðgerða. Hvert Evrópulandið á fætur öðru lokar landamærum sínum – ríkisstjórnir hrekjast und- an óttanum. Pólitísk sjónarmið hafa náð yfirhöndinni og ráðgjöf vísinda- manna verið lögð til hliðar. Sam- staða og samstarf Evrópusam- bandsins er að rakna upp. Evrópuhugsjónin um samvinnu, ekki síst á ögurstundum, er komin ofan í skúffu. Ítalir vita að þeir standa einir í baráttunni gegn skæðum vírus. Þeir eru með bundnar hendur fyrir aftan bak í tilraunum til að lágmarka efna- hagslegan skaða. Því miður erum við að verða vitni að því að fleiri leiðtogar brotni en rísi upp. Á mánudag klóruðu leiðtogar G-7 ríkjanna (Bandaríkin, Þýskaland, Bretland, Frakkland, Ítalía, Kan- ada og Japan) í bakkann. Gefin var út yfirlýsing um að þeir myndu vinna saman að öllum nauðsyn- legum aðgerðum í baráttunni gegn COVID-19 faraldrinum og tryggja öfluga efnahagslega viðspyrnu, sjálfbæran hagvöxt og velmegun al- mennings. Yfirlýsingin er almenn og án útlistana. Gripið verður til samræmdra aðgerða á sviði pen- inga- og ríkisfjármála til að styðja við bakið á launafólki og fyr- irtækjum. Lukkuriddarar sem allt vita Á tímum óvissu, ekki síst þegar hætta steðjar að, koma alltaf fram á sviðið lukkuriddarar sem annað- hvort sjá pólitísk tækifæri í stöð- unni eða eru hreinlega haldnir þeirri grillu að þeir viti flest betur en aðrir. Við höfum þegar séð vitr- ingana birtast á samfélagsmiðlum. Þeir draga allt í efa sem gert hefur verið. Ráðleggingar og ákvarðanir vísindamanna – heilbrigðisyfirvalda – eru léttvægar fundnar. Og á komandi dögum og vikum verður freistingin líklega of mikil fyrir lukkuriddarana til að halda aftur af sér í yfirboðum og fögrum lof- orðum um efnahagslegar aðgerðir sem verður að grípa til. Það versta sem nokkur þjóð get- ur gert við fordæmalausar og hættulegar aðstæður er að láta lukkuriddara og sjálfskipaða vitr- inga ráða för. Við Íslendingar höf- um notið þeirrar gæfu að þegar í upphafi var tekið fast á málum undir styrkri handleiðslu þríeyk- isins, Ölmu Möller landlæknis, Þór- ólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis og Víðis Reynissonar yfirlög- regluþjóns. Fumlaus og skipulögð viðbrögð koma okkur í gegnum hættuna. Verkefnið er ekki síst að hægja á útbreiðslu vírussins, tryggja eins og hægt er að heilbrigðiskerfið ráði við að veita nauðsynlega – oft lífs- nauðsynlega þjónustu. Vernda þá sem eru viðkvæmastir og í mestri hættu, en um leið tryggja að sam- félagið haldi. Við höfum orðið vitni að því hvernig einstaklingar stíga upp og verða leiðtogar við erfiðar að- stæður. „Við höfum lent í mörgum áföllum sem þjóð og við tökumst bara á við þetta eins og við höfum gert með svo margt annað í gegn- um tíðina. Við gerum það saman og það er lykilatriðið,“ sagði Víðir Reynisson í viðtali við Ríkis- útvarpið fyrir nokkrum dögum. Þríeykið hefur, með framgöngu sinni, þjappað þjóðinni saman. Slíkt er háttur leiðtoga. Með skýrum og ótvíræðum hætti verða stjórnvöld að standa þétt við bakið á öflugu starfsfólki heilbrigð- iskerfisins, fjárhagslega sem and- lega. Þegar barist er gegn illvígum faraldri eiga stjórnmálamenn ekki að troða sér upp á sviðið. Við sem sitjum á Alþingi getum haft okkar skoðanir á einstökum ákvörðunum heilbrigðisyfirvalda, en við verðum að hafa andlegan styrk til að þegja. Við þurfum að einbeita okkur að öðru – efnahagslegum aðgerðum til að lágmarka skaðann fyrir íslensk fyrirtæki og heimili. Leiðtogar stíga fram Það er mikilvægt að stjórnvöld – ríkisstjórn, alþingi – hafi í huga að ekki er í öllu hægt að beita hefð- bundnum verkfærum í ríkisfjár- málum til að örva efnahagslífið. Hér eru að verki önnur lögmál en ráða för í hefðbundnum efnahags- legum samdrætti eða kreppu. Þegar þetta er skrifað hafa fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum verið kynntar. Beð- ið er eftir stærra útspili sem verð- ur kynnt síðar í vikunni. Sam- ræmdar aðgerðir í ríkisfjármálum og peningamálum skipta mestu. Á sviði heilbrigðismála höfum við Íslendingar eignast leiðtoga í bar- áttunni við COVID-19. Íslenskt samfélag, – atvinnulífið og heimilin – þarf sterka leiðtoga á hálu svelli stjórnmála og efnahagsmála. „Ég ætla að lýsa því yfir hér að ég hef trú á því að mestu mistökin sem við gætum gert hér í þinginu væri að ganga allt of skammt. Það væri betra fyrir okkur að nýta þá góðu stöðu sem við búum yfir til að gera rétt rúmlega það sem þarf vegna þess að sameiginlega tjónið af því að gera of lítið of seint getur orðið miklu meira en tilkostnaður- inn af því að gera aðeins of mikið,“ sagði Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra í sérstökum um- ræðum í liðinni viku um aðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum vegna veirufaraldurs. Aðeins leiðtogi sem hefur safnað korni í hlöðurnar í góðæri hefur efni á að tala með þessum hætti. Eftir Óla Björn Kárason » Á sviði heilbrigð- ismála höfum við eignast leiðtoga í barátt- unni við COVID-19. Ís- lenskt samfélag þarf sterka leiðtoga á hálu svelli stjórnmála. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálf- stæðisflokksins. Leiðtogar: Sumir brotna, aðrir rísa upp

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.