Morgunblaðið - 18.03.2020, Síða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020
Veirutímar Hvarvetna í Reykjavík sjást merki um áhrif kórónuveirufaraldursins. Hér eru ferðamenn með maska á gatnamótum Austurstrætis og Pósthússtrætis.
Eggert
„… í fyrsta lagi vil
ég undirstrika þá
staðföstu trú mína að
það eina sem við höf-
um að óttast er
… óttinn sjálfur –
nafnlaus, órökstudd,
órökræn hræðsla sem
lamar viðleitni okkar
að snúa vörn í sókn.“
Þannig komst
Franklin D. Roosevelt,
32. forseti Bandaríkjanna, að orði í
innsetningaræðu sinni í mars 1933
– fyrir 87 árum. Líkt og flest lönd
heims glímdu Bandaríkin við alvar-
lega efnahagskreppu. Þá líkt og nú
þurfti leiðtoga til að stíga fram,
taka forystu, stappa stálinu í al-
menning og fyrirtæki, blása þeim
bjartsýni í brjóst.
Matthew Karanitschnig, blaða-
maður vefritsins Politico, segir í
upphafi fréttaskýringar síðastliðinn
mánudag, að hafi COVID-19 kennt
okkur eitthvað annað en mikilvægi
hreinlætis, þá sé það að leiðtogar
verði fórnarlömb farsótta. Hann
saknar þess að enginn þjóð-
arleiðtogi hafi stigið fram, tekið
forystuna í baráttunni við illvígan
vírus, þjappað þjóðum heims sam-
an í stað þess að sundra. Margir
hafi lokað eyrum og augum í marg-
ar vikur gagnvart aðsteðjandi ógn
– látið viðvaranir sérfræðinga sem
vind um eyru þjóta. Heilbrigð-
isvandinn en ekki síður efnahags-
vandinn verði meiri í sundur-
þykkum heimi.
Samstarf á veikum grunni
Síðustu daga hefur komið æ bet-
ur í ljós hve alþjóðlegt samstarf
stendur á veikum
grunni þegar kreppir
að. Nokkrum dögum
eftir að hafa lýst því
yfir að kórónuveiran
sé eitt stórt pólitískt
„gabb“ setti Donald
Trump forseti bann
við komu Evrópubúa
til Bandaríkjanna
(Bretar voru í fyrstu
undanskildir). Í kjöl-
farið tóku fjár-
málamarkaðir enn
eina dýfuna. Trump
sætir þungri gagnrýni fyrir hvernig
stjórnvöld hafa haldið á málum.
Baráttan gegn vírusnum sé fálm-
kennd og ómarkviss. Hægt og bít-
andi hafa liðsmenn Trumps áttað
sig á því að COVID-19 hefur grafið
undan pólitískri stöðu forsetans á
kosningaári.
Ráðamenn í Evrópu, sem brugð-
ust hart við ferðabanni Trumps,
hafa í örvæntingu gripið til svip-
aðra aðgerða. Hvert Evrópulandið
á fætur öðru lokar landamærum
sínum – ríkisstjórnir hrekjast und-
an óttanum. Pólitísk sjónarmið hafa
náð yfirhöndinni og ráðgjöf vísinda-
manna verið lögð til hliðar. Sam-
staða og samstarf Evrópusam-
bandsins er að rakna upp.
Evrópuhugsjónin um samvinnu,
ekki síst á ögurstundum, er komin
ofan í skúffu. Ítalir vita að þeir
standa einir í baráttunni gegn
skæðum vírus. Þeir eru með
bundnar hendur fyrir aftan bak í
tilraunum til að lágmarka efna-
hagslegan skaða.
Því miður erum við að verða
vitni að því að fleiri leiðtogar brotni
en rísi upp.
Á mánudag klóruðu leiðtogar G-7
ríkjanna (Bandaríkin, Þýskaland,
Bretland, Frakkland, Ítalía, Kan-
ada og Japan) í bakkann. Gefin var
út yfirlýsing um að þeir myndu
vinna saman að öllum nauðsyn-
legum aðgerðum í baráttunni gegn
COVID-19 faraldrinum og tryggja
öfluga efnahagslega viðspyrnu,
sjálfbæran hagvöxt og velmegun al-
mennings. Yfirlýsingin er almenn
og án útlistana. Gripið verður til
samræmdra aðgerða á sviði pen-
inga- og ríkisfjármála til að styðja
við bakið á launafólki og fyr-
irtækjum.
Lukkuriddarar sem allt vita
Á tímum óvissu, ekki síst þegar
hætta steðjar að, koma alltaf fram
á sviðið lukkuriddarar sem annað-
hvort sjá pólitísk tækifæri í stöð-
unni eða eru hreinlega haldnir
þeirri grillu að þeir viti flest betur
en aðrir. Við höfum þegar séð vitr-
ingana birtast á samfélagsmiðlum.
Þeir draga allt í efa sem gert hefur
verið. Ráðleggingar og ákvarðanir
vísindamanna – heilbrigðisyfirvalda
– eru léttvægar fundnar. Og á
komandi dögum og vikum verður
freistingin líklega of mikil fyrir
lukkuriddarana til að halda aftur af
sér í yfirboðum og fögrum lof-
orðum um efnahagslegar aðgerðir
sem verður að grípa til.
Það versta sem nokkur þjóð get-
ur gert við fordæmalausar og
hættulegar aðstæður er að láta
lukkuriddara og sjálfskipaða vitr-
inga ráða för. Við Íslendingar höf-
um notið þeirrar gæfu að þegar í
upphafi var tekið fast á málum
undir styrkri handleiðslu þríeyk-
isins, Ölmu Möller landlæknis, Þór-
ólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis og
Víðis Reynissonar yfirlög-
regluþjóns.
Fumlaus og skipulögð viðbrögð
koma okkur í gegnum hættuna.
Verkefnið er ekki síst að hægja á
útbreiðslu vírussins, tryggja eins
og hægt er að heilbrigðiskerfið ráði
við að veita nauðsynlega – oft lífs-
nauðsynlega þjónustu. Vernda þá
sem eru viðkvæmastir og í mestri
hættu, en um leið tryggja að sam-
félagið haldi.
Við höfum orðið vitni að því
hvernig einstaklingar stíga upp og
verða leiðtogar við erfiðar að-
stæður. „Við höfum lent í mörgum
áföllum sem þjóð og við tökumst
bara á við þetta eins og við höfum
gert með svo margt annað í gegn-
um tíðina. Við gerum það saman og
það er lykilatriðið,“ sagði Víðir
Reynisson í viðtali við Ríkis-
útvarpið fyrir nokkrum dögum.
Þríeykið hefur, með framgöngu
sinni, þjappað þjóðinni saman. Slíkt
er háttur leiðtoga.
Með skýrum og ótvíræðum hætti
verða stjórnvöld að standa þétt við
bakið á öflugu starfsfólki heilbrigð-
iskerfisins, fjárhagslega sem and-
lega. Þegar barist er gegn illvígum
faraldri eiga stjórnmálamenn ekki
að troða sér upp á sviðið. Við sem
sitjum á Alþingi getum haft okkar
skoðanir á einstökum ákvörðunum
heilbrigðisyfirvalda, en við verðum
að hafa andlegan styrk til að þegja.
Við þurfum að einbeita okkur að
öðru – efnahagslegum aðgerðum til
að lágmarka skaðann fyrir íslensk
fyrirtæki og heimili.
Leiðtogar stíga fram
Það er mikilvægt að stjórnvöld –
ríkisstjórn, alþingi – hafi í huga að
ekki er í öllu hægt að beita hefð-
bundnum verkfærum í ríkisfjár-
málum til að örva efnahagslífið.
Hér eru að verki önnur lögmál en
ráða för í hefðbundnum efnahags-
legum samdrætti eða kreppu.
Þegar þetta er skrifað hafa
fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum verið kynntar. Beð-
ið er eftir stærra útspili sem verð-
ur kynnt síðar í vikunni. Sam-
ræmdar aðgerðir í ríkisfjármálum
og peningamálum skipta mestu.
Á sviði heilbrigðismála höfum við
Íslendingar eignast leiðtoga í bar-
áttunni við COVID-19. Íslenskt
samfélag, – atvinnulífið og heimilin
– þarf sterka leiðtoga á hálu svelli
stjórnmála og efnahagsmála.
„Ég ætla að lýsa því yfir hér að
ég hef trú á því að mestu mistökin
sem við gætum gert hér í þinginu
væri að ganga allt of skammt. Það
væri betra fyrir okkur að nýta þá
góðu stöðu sem við búum yfir til að
gera rétt rúmlega það sem þarf
vegna þess að sameiginlega tjónið
af því að gera of lítið of seint getur
orðið miklu meira en tilkostnaður-
inn af því að gera aðeins of mikið,“
sagði Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra í sérstökum um-
ræðum í liðinni viku um aðgerðir
stjórnvalda í efnahagsmálum vegna
veirufaraldurs.
Aðeins leiðtogi sem hefur safnað
korni í hlöðurnar í góðæri hefur
efni á að tala með þessum hætti.
Eftir Óla Björn
Kárason » Á sviði heilbrigð-
ismála höfum við
eignast leiðtoga í barátt-
unni við COVID-19. Ís-
lenskt samfélag þarf
sterka leiðtoga á hálu
svelli stjórnmála.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Leiðtogar: Sumir brotna, aðrir rísa upp